Morgunblaðið - 30.04.2008, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. APRÍL 2008 35
Elsku besta amma
mín, ég sakna þín
óendanlega mikið.
Það er ennþá svo
óraunverulegt að þú skulir vera
farin frá okkur, að geta ekki
hringt í þig, að fá ekki aftur símtal
frá þér né geta farið vestur til
Ólafsvíkur að hitta þig. Þú hringd-
ir alltaf reglulega til að fylgjast
með okkur, fá fréttir og nú síðustu
ár til að sjá hvernig Kristín Sól
hefði það. Það verður svo erfitt og
skrítið að koma til Ólafsvíkur og
engin amma þar en andi þinn verð-
ur ætíð hjá mér, ég veit það.
Margar minningar hafa átt hug
minn allan síðan þú kvaddir okkur
en það er ómögulegt að segja frá
öllu. Það er svo skrítið að lifa líf-
inu án þín, elsku amma, þar sem
þú hefur alltaf verið mér stoð og
stytta og verið til staðar fyrir mig.
Í rauninni finnst mér eins og þú
sért bara fyrir vestan og við í
bænum. Og svo þegar við komum
til Ólafsvíkur hitti ég þig aftur
eins og alltaf. Raunin er víst önn-
ur.
Það er gott að rifja upp allar
þær yndislegu stundir sem við höf-
um átt saman, bæði í Ólafsvík og í
bænum. Alltaf þegar komið var
vestur og keyrt inn Ólafsbrautina,
beiðstu við gluggann góða. Það var
svo gott að kyssa þig og knúsa.
Þú varst svo mjúk og það var
alltaf sama góða ömmulyktin af
þér. Við höfðum alltaf nóg að gera
og gerðum ýmislegt saman, spjöll-
uðum, lituðum, spiluðum. Ófá spil-
in kenndir þú mér. Þú sast aldrei
auðum höndum, en gafst þér þó
alltaf tíma fyrir mig. Þú varst og
ert ætíð í huga mér svo falleg,
elsku amma mín; húðin þín, augun,
hendurnar, hárið.
Ég er þér svo óendanlega þakk-
lát hversu vel þú hugsaðir alltaf
um mig, hvort sem var á Ólafs-
brautinni eða í Furugrundinni.
Það var einfaldlega best í heimi að
fá að vera ein með þér og fá að
kúra með þér á Ólafsbrautinni og
vakna á morgnana í kyrrðinni. Þá
var amma liðuga gjarnan frammi í
stofu að gera morgunleikfimi með
Rás 1. Kæfubrauð minnir mig allt-
af svo mikið á þig amma mín, svo
áttir þú alltaf til gosbland a la
Adda amma í ísskápnum og ísblóm
í frystinum. Hjá þér átti ég alltaf
Barbie-sængurfötin sem biðu mín
tilbúin þegar ég kom til þín.
Ég vil þakka þér, elsku amma
mín, fyrir allar þær yndislegu
minningar sem ég á um þig og
okkur saman. Ég verð ávallt þakk-
lát fyrir að við fengum að hafa þig
lengur hjá okkur og þá gafst tæki-
færi fyrir þig að kynnast Kristínu
Sól, sem þú fylgdist svo vel með
frá því hún fæddist. Við mæðgur
áttum alveg yndislega samveru-
stund hjá þér stuttu áður en þú
veiktist, þar sem hún vildi bara
fara úr fötunum sínum og kúra í
ömmu rúmi.
Frá því að ég man eftir mér
kvaddir þú mig alltaf með sömu
orðunum: „Megi guð og góðu engl-
arnir vaka yfir þér, ástarengillinn
minn.“
Með þessum orðum og ljóði, sem
þú fórst svo oft með fyrir mig áður
en ég fór að sofa, vil ég kveðja þig,
elsku amma mín, og ég trúi því að
afi og allir englarnir taki vel á
móti þér.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
✝ Arnbjörg Her-mannsdóttir
fæddist á Hellis-
sandi 22. september
1919. Hún lést á
Dvalarheimilinu
Jaðri í Ólafsvík 16.
apríl síðastliðinn og
var jarðsungin frá
Ólafsvíkurkirkju 26.
apríl.
sænginni yfir minni.
(Sig. Jónsson frá
Presthólum.)
Þín,
Steinunn Dúa.
Elsku Adda amma
er dáin. Við systkinin
viljum þakka þér fyr-
ir samfylgdina og
hlýju og elskulegheit
í okkar garð í gegn-
um tíðina. Þín verður
sárt saknað. En
minningarnar eru
ljúfar og góðar, má þar nefna allar
okkar ferðir á Ólafsbraut 30 með
pabba, aðfangadagskvöldin þegar
allir komu til ömmu í ís og ávexti
og þá var nú þröngt um allan
mannskapinn. Amma fylgdist mjög
vel með öllum sínum börnum og
barnabörnum og vissi alltaf hvað
var að gerast hjá hverjum og ein-
um. Snyrtileg var hún og hver
hirsla var vel skipulögð og allt átti
sinn stað. Við litum aldrei á ömmu
sem gamla konu því ung var hún í
anda og hægt að ræða við hana um
hvað sem var. Ósköp verður til-
veran skrýtin þegar þú ert farin
og er missir barnanna þinna níu
mikill, en lífið tekur víst enda hjá
okkur öllum.
Amma kær, ert horfin okkur hér,
en hlýjar bjartar minningar streyma
um hjörtu þau, er heitast unna þér,
og hafa mest að þakka, muna og geyma
Þú varst amma yndisleg og góð,
og allt hið mesta gafst þá hverju sinni.
Þinn trausti faðmur okkur opinn stóð
og ungar sálir vafðir elsku þinni.
Þú gættir okkar, glöð við undum hjá,
þær góðu stundir blessun, amma kæra
nú hinstu kveðju hjörtu okkar tjá,
í hljóði sorg og ástarþakkir færa.
(Ingibjörg Sigurðardóttir.)
Elsku amma, takk fyrir allt.
Hermann, Páll Hrannar
Jóhanna Snædís og
Hákon Þorri.
Nú þegar komið er að kveðju-
stund er margs að minnast og
margs að sakna. Adda, eða Arn-
björg Hermannsdóttir, var fædd
og uppalin á Hellissandi, mágkona
mömmu, gift frænda okkar Magn-
úsi Kristjánssyni.
Þau hjónin og fjölskylda þeirra
voru nágrannar okkar öll uppvaxt-
arárin, bjuggu í næsta húsi við
okkur og var alltaf mikill sam-
gangur á milli enda einstaklega
kært með þeim systkinum mömmu
og Magga. Adda var mikill Sand-
ari, þar bjuggu foreldrar hennar
og systkini. Það voru ekki miklar
samgöngur á milli Ólafsvíkur og
Sands á þessum árum enda Ennið
á milli en í dag tekur ekki nema
tíu mínútur að keyra á milli stað-
anna. Það var því Öddu mikil
ánægja þegar systur hennar og
Hemmi bróðir komu í heimsókn.
Við krakkarnir á Ólafsbrautinni
fengum stundum að fara gangandi
fyrir Ennið og út á Sand í heim-
sókn til ættingja Öddu þar sem vel
var tekið á móti okkur. Þegar kom
að heimferð var viðtekin venja að
Verónika, systir hennar, fékk fjöl-
skylduvin til að keyra okkur á
jeppa til baka því hún vildi ekki
láta okkur fara fyrir Forvaðann
þegar farið var að falla að, hún
vildi tryggja að við kæmumst
klakklaust heim.
Adda hafði oft á orði að það
væri alltaf sól á Sandi, það varð til
þess að ég uppgötvaði fyrr en ella
að ekki eru aðstæður alstaðar þær
sömu því hér í Ólafsvík sést ekki
til sólar í meira en mánuð og mér
fannst að það hlyti að vera þannig
á öðrum stöðum.
Adda var glæsileg kona með sitt
rauða hár og brúnu augu og hafa
börnin hennar öll erft háralitinn.
Þau hjónin Adda og Maggi eign-
uðust átta börn, þau voru miklar
fjölskyldumanneskjur og hugsuðu
fyrst og fremst um hag heimilisins
og barnanna.
Þegar um hægðist og börnin
komust á legg fór Adda að vinna
úti, vann hún þá hjá fjölskyldufyr-
irtækinu. Á þessum árum gafst
henni tími til að ferðast, var m.a.
farið til Norðurlandanna og Rín-
arlandanna og fleiri staða. Þá
ferðaðist tengdafólkið oft saman
og hafði gaman af.
Eftir að hún missti mann sinn
og hluti barnanna var farinn til
Reykjavíkur ákvað hún að flytja
suður til að vera nær þeim. Á síð-
asta ári ákvað hún að koma aftur
heim og fá vistun á Jaðri og var
ánægjan mikil hjá vistmönnum
þar að fá hana í samfélagið en þar
þekkti hún alla. Okkur finnst nú
að hún hafi notið þess í alltof
stuttan tíma.
Langri ævi er lokið, Adda og
samferðafólk hennar hefur lifað
ótrúlegar breytingar og víst er að
ekki hefur alltaf verið auðvelt að
sjá fyrir sér og sínum. Með ótrú-
legri þrautseigju og dugnaði komu
þau hjón Adda og Maggi upp
börnum sínum sem öll eru vel
gerð og hafa komið sér vel fyrir í
lífinu. Markmið þeirra hjóna var
áreiðanlega velferð og hamingja
barnanna, það gekk fyrir öllu.
Kæru frændsystkin, við hugsum
til ykkar og vitum að minningin
um góða foreldra og gott heimili
fylgir ykkur um ókomna tíð.
Við systurnar og mamma kveðj-
um Öddu með söknuði
Frænkurnar, Ólafsbraut 28.
Arnbjörg
Hermannsdóttir
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is
Vaktsími: 565 5892 & 896 8242 • Sólarhringsvakt
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur
Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar
Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is
Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Bryndís ValbjarnardóttirSverrir Einarsson
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför
Hermann Jónasson Yvonne Tix
✝
Þökkum innilega öllum þeim sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs
eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og lang-
afa,
HÓLMARS FINNBOGASONAR,
Frostafold 44,
Reykjavík,
sem lést sunnudaginn 6. apríl.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki líknardeildar
Landspítalans í Kópavogi og hjúkrunarþjónustu
Karitas fyrir kærleiksríka umönnun og hlýhug.
Karitas Magný Guðmundsdóttir,
Íris Hildigunn Hólmarsdóttir, Gerald Leonard,
Rut Hólmarsdóttir, Morten Wenneberg,
Halla Björk Hólmarsdóttir, Ríkharður Örn Ríkharðsson,
Jóna Brynja Hólmarsdóttir,
Heimir Örn Hólmarsson, Þórunn Karólína Pétursdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Okkar innilegustu þakkir til allra þeirra sem
auðsýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför elskulegs föður, tengdaföður og afa,
EINARS S. GUÐMUNDSSONAR
húsgagnasmiðs,
Hrafnistu,
Reykjavík.
Valgerður Einarsdóttir, Hallgrímur G. Jónsson,
Einar Haukur Jóhannesson,
Gísli Jóhannesson.
✝
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug vegna
andláts móður okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
FJÓLU EIRÍKSDÓTTUR,
dvalarheimilinu Grund,
áður til heimilis að Lynghaga 6.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Grundar fyrir góða
umönnun.
Helga Hallbjörnsdóttir, Eyjólfur Magnússon Scheving,
Dóra Hallbjörnsdóttir, Hálfdán Jónsson,
Sigríður Hallbjörnsdóttir, Kristjón Kristjónsson,
Erla Hallbjörnsdóttir, Ásgeir Guðmundsson,
Lilja Hallbjörnsdóttir, Atli Ingvarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Okkar innilegustu þakkir til allra þeirra er sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
elskulegs föður okkar, tengdaföður, afa og bróður,
GUNNARS RAGNARS SVEINBJÖRNSSONAR
frá Kothúsum,
Garði,
Eyrarholti 20,
Hafnarfirði.
Guð blessi ykkur öll.
Ágústa Sigríður Gunnarsdóttir, Halldór A. Þórarinsson,
Valdís Þóra Gunnarsdóttir, Vignir Már Guðjónsson,
Sara Lind Gunnarsdóttir, Páll Þórir Jónsson,
barnabörn og systkini.