Morgunblaðið - 30.04.2008, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. APRÍL 2008 41
árnað heilla
ritstjorn@mbl.is
Félagsstarf
40+ félagsstarf fyrir fólk með
þroskahömlun | Félagsmiðstöðin er
opin kl. 17-22, bingó, matur kr. 700.
Aflagrandi 40 | Leikfimi kl 8.30,
vinnustofa kl. 9-16.30, postulínsmáln-
ing kl. 9-12 og 13-16.30.
Árskógar 4 | Bað kl. 8.15-16, handa-
vinna, smíði/útskurður kl. 9-16.30,
heilsugæsla kl. 10-11.30. Uppl. í síma
535-2700.
Bandalag kvenna í Hafnarfirði | Að-
alfundur BKH verður haldinn í húsi
Iðnaðarmanna, Hjallahrauni 8 kl. 20.
Aðalfundarstörf og veitingar.
Bólstaðarhlíð 43 | Hárgreiðsla, böð-
un, glerlist, almenn handavinna,
morgunkaffi, dagblöð, fótaaðgerð,
hádegisverður, spiladagur, kaffi.
Dalbraut 18-20 | Vinnustofa í hand-
mennt opin kl. 9-16, leiðb/Halldóra
frá kl. 13-16, leikfimi kl. 10, leiðb/
Guðný. Hársnyrting Guðrúnar, sími
553-3884/893-3384.
Félag eldri borgara í Kópavogi |
Skrifstofan í Gullsmára 9 er opin kl.
10-11.30, sími 554-1226. Skrifstofan í
Gjábakka er opin kl. 15-16, sími 554-
3438. Félagsvist í Gjábakka kl. 13.
FEB í Kópavogi, ferðanefnd | Ferð
um Vatnsleysuströnd - Voga - Njarð-
víkurnar - Keflavíkurflugvöll - Keflavík
- Garðskaga - Sandgerði - Hafnir -
Reykjanesvita - og Grindavík verður
farin föstudaginn 2. maí. Brottför frá
Gjábakka kl. 9.45 og Gullsmára kl. 10.
Kvöldmatur í Grindavík. Skráning í
síma 5540999, Þráinn.
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Göngu-Hrólfar ganga frá Ásgarði
Stangarhyl 4, kl. 10, söngvaka kl. 14,
umsjón Sigurður Jónsson og Helgi
Seljan. Söngfélag FEB æfing kl. 17.
Félagsheimilið Gjábakki | Handa-
vinnustofan opin, síðasti skiladagur
til Kristínar og Þórhildar á munum á
vorsýninguna. Bossía og glerlist fyrir
hádegi, félagsvist kl. 13, viðtalstími
FEBK kl. 15-16, bobb kl. 16.30 og dans
kl. 18-20, undir stjórn Sigvalda.
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Mynd-
list kl. 9, ganga kl. 10, hádegisverður,
kvennabrids kl. 13. Kaffiveitingar.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ |
Vatnsleikfimi kl. 8, kvennaleikfimi kl.
9-9.45, 10.30, karlaleikfimi kl. 9.30,
boccía kl. 10.30, gönguhópur frá
Jónshúsi kl. 11. Lokað í Jónshúsi í dag
og á morgun vegna undirbúnings vor-
sýningar / uppskeruhátíðar.
Félagsstarf Gerðubergs | Vinnustof-
ur opnar kl. 9-16.30, sund og leik-
fimiæfingar í Breiðholtslaug kl. 9.50,
dans kl. 10. Frá hádegi er spilasalur
opinn. Á morgun kl. 11 syngur Gerðu-
bergskórinn við messu í Háteigs-
kirkju og kl. 14 við messu í Fella- og
Hólakirkju, eldri borgarar í Hvera-
gerði koma í heimsókn.
Furugerði 1, félagsstarf | Bókband kl.
9, leikfimi kl. 13.15, framhaldssagan
kl. 14, kaffiveitingar.
Hraunbær 105 | Handavinna og út-
skurður kl. 9, hádegismatur, brids kl.
13, kaffi.
Hraunsel | Morgunrabb kl. 9. Pútt á
Keilisvelli kl. 10-11.30. Línudans kl. 11,
almenn handmennt kl. 13.
Hvassaleiti 56-58 | Opin vinnustofa
kl. 9-16 hjá Sigrúnu, keramik, tau-
málun o.fl. Jóga kl. 9-12, Sóley Erla.
Samverustund kl. 10.30, lestur og
spjall. Böðun fyrir hádegi, hársnyrt-
ing.
Íþróttafélagið Glóð | Pútt í Sporthús-
inu í Dalsmára kl. 9.30-11.30, ringó í
Smáranum kl. 12, línudans í Húnabúð,
Skeifunni 11, kl. 17. Uppl. í síma 564-
1490.
Korpúlfar Grafarvogi | Opið hús á
Korpúlfsstöðum á morgun kl. 13-17.
Listmunir til sýnis og sölu. Lista-
smiðjan sýnir afrakstur vetrastarfs-
ins.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Hjúkr-
unarfræðingur kl. 10.30, leikfimi kl. 11,
handverksstofa opin - námskeið í
myndlist kl. 13, kaffiveitingar kl.
14.30, bingó kl. 15, hárgreiðslustofa
sími 552-2488, fótaaðgerðastofa
sími 552-7522.
Laugarneskirkja | Morgunbæn kl. 8,
foreldramorgunn kl. 10, gönguhóp-
urinn Sólarmegin kl. 10.30. Kirkju-
prakkarar (1.-4. bekkur) kl. 14.15, um-
sjón hefur sóknarprestur og
kirkjuvörður.
Norðurbrún 1 | Smíðastofa kl. 9-16,
félagssvist kl. 14, hárgreiðslustofa
Erlu Sandholt sími 588-1288.
Norðurbrún 1 | Félagsvist kl. 14.
Sjálfsbjörg | Félagsvist kl. 19 í félags-
heimili Sjálfsbjargar á höfuðborg-
arsvæðinu, Hátúni 12.
Vesturgata 7 | Hárgreiðsla og fóta-
aðgerðir kl. 9-12. Aðstoð v/böðun kl.
9.15-16, handavinna kl. 10-12, sund kl.
11.45, hádegisverður, verslunarferð í
Bónus kl. 13-16, tréskurður kl. 14.30,
kaffiveitingar. Flóamarkaður verður
2. og 5. maí kl. 13-17 báða dagana.
Fatnaður, hljómplötur, geisladiskar,
húsbúnaður, bækur o.fl. Sungið við
flygilinn og dansað í kaffitímanum á
föstudeginum. Veislukaffi báða dag-
ana.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl.
8.30, morgunstund kl. 10, handa-
vinnustofan opinn, hárgreiðslu- og
fótaaðgerðarst. opin, upplestur kl.
12.30, bókband kl. 13, dans kl. 14. Sími
411-9450.
Þórðarsveigur 3 | Handavinna kl. 9,
salurinn opinn og ganga kl. 13, boccia
kl. 14. Kaffiveitingar.
Kirkjustarf
Áskirkja | Djákni Áskirkju verður
með stólajóga og bæn á Dalbraut 27,
kl. 10.15. Hreyfing og bæn í neðri
safnaðarsal kl. 11. Safnaðarfélag
Ásprestakalls býður eldri borgurum
til kaffihlaðborðs eftir messu kl. 14 á
uppstigningardag.
Bessastaðasókn | Foreldramorgunn í
Holtakoti kl. 10-12. Opið hús eldri
borgara í Litlakoti kl. 13-16, spilað og
spjallað.
Breiðholtskirkja | Kyrrðarstund kl.
12. Tónlist, hugvekja, fyrirbænir. Létt-
ur málsverður í safnaðarheimili eftir
stundina. Kirkjuprakkarar kl. 16.
Æskulýðsfélag KFUM&K og kirkj-
unnar kl. 20.
Bústaðarkirkja | Tekið verður á móti
munum kl. 13-15, á sýningu sem verð-
ur 1. maí á degi aldraðra.
Dómkirkjan | Bænastund kl. 12.10-
12.30. Léttur hádegisverður á kirkju-
loftinu á eftir. Bænarefnum má koma
á framfæri í síma 520-9700 eða með
tölvupósti til domkirkjan@domkirkj-
an.is.
Fríkirkjan Kefas | Unglingasamkoma
kl. 20. Prédikun, tónlist og samvera.
Grafarvogskirkja | Kyrrðarstund kl.
12. Altarisganga og fyrirbænir, há-
degisverður að lokinni stundinni, TTT
fyrir 10-12 ára kl. 17-18 í Rimaskóla og
Korpuskóla.
Grensáskirkja | Samverustund aldr-
aðra kl. 12, matur og spjall. Helgi-
stund kl. 14.
Hallgrímskirkja | Árdegismessa kl. 8.
Hugvekja, altarisganga, einfaldur
morgunverður í safnaðarsal eftir
messuna.
Háteigskirkja | Kvöldbænir og fyr-
irbænir kl. 18. Prestar og kirkjuverðir
taka við bænarefnum.
Háteigskirkja - starf eldri borgara |
Messa kl. 11 á degir aldraðra, skírn og
Gerðubergskórinn syngur. Eftir
messu verður borin fram súpa í Safn-
aðarheimilinu. Barnakórinn syngur.
Tískusýning, dömur og herrar úr
starfi kirkjunnar munu sýna undir
harmonikkuleik Elsu Kristjánsdóttur.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía |
Bænastund í kaffisalnum kl. 12. Súpa
og brauð kl. 18. Kl. 19 er Royal Rang-
ers fyrir unga fólkið og biblíukennsla
fyrir fullorðna, kennari er Hjalti Grett-
isson.
Hæðargarður 31 | Fastir liðir eins og
venjulega. Skráningu lokið í Akureyr-
arferð 14.-16. maí. Biðlisti. Látið strax
vita um forföll. Fundur kl. 14, 2. maí.
Gengið frá endanlegri dagskrá og
greiðslu.Uppl. í síma 568-3132.
Kristniboðssalurinn | Samkoma kl.
20. Ragnar Gunnarsson segir frá
starfi Kristniboðssambandsins á Ís-
landi. Ræðumaður er Sigríður Hrönn
Sigurðardóttir, kaffi eftir samkomu.
Kristniboðssambandið | Kaffisala
Kristniboðsfélags kvenna er á morg-
un, 1. maí í Kristniboðssalnum á Háa-
leitisbraut 58 kl. 14. Kaffiveitingar og
allir velkomnir að styrkja kristniboð,
hjálpar- og þróunarstarf Kristniboðs-
sambandsins, m.a. í Eþíópíu og Keníu.
Langholtskirkja | Hádegisbænagjörð
með orgelleik og sálmasöng kl. 12.10.
Máltíð kl. 12.30, starf eldri borgara kl.
13-16, sungið, spilað, föndrað, og kaffi.
Selfosskirkja | Messa á uppstigning-
ardag, 1. maí, kl. 11. Heldri borgarar
taka þátt í messugjörðinni. Sr. Gunn-
ar Björnsson.
Vídalínskirkja Garðasókn | For-
eldramorgunn kl. 10-12.30. Fyr-
irlestur mánaðarlega, kynntir sér-
staklega. Heitt á könnuni.
80ára afmæli. Í dag, 30.apríl, er Ólafur Magn-
ússon áttræður. Af því tilefni
tekur hann á móti gestum í
safnaðarheimili Fella- og
Hólakirkju í dag á milli kl. 16
og 19. Gjafir eru afþakkaðar
en þeim sem vilja gleðja Ólaf
er bent á að tekið verður á
móti frjálsum framlögum til
styrktar kaupum á blindra-
hundum.
Hlutavelta | Þessar systur söfnuðu
2.522 kr. fyrir Rauða kross Íslands
með tombólu sem þær héldu fyrir utan
verslunarmiðstöðina Miðbæ. Þær heita
Karen Anna og Erlín Karla Birg-
isdætur.
dagbók
Í dag er miðvikudagur 30. apríl, 121. dagur ársins 2008
Orð dagsins: Ef einhver þykist hafa öðlast þekkingu á einhverju, þá þekkir hann enn ekki eins og þekkja ber. (I. Kor. 8, 2.)
Kennaraháskóli Íslands býðurtil fyrirlestrar í dag kl. 16 ísalnum Bratta. Þar munSigrún Sigurðardóttir
menningarfræðingur flytja erindið
Helförin: Listræn úrvinnsla og sögu-
skilningur: „Helförin er mjög drama-
tískur þáttur í evrópskri sögu, og má
segja að með henni hafi framfarasaga
álfunnar beðið hálfgert skipsbrot,“ seg-
ir Sigrún. „Listamenn hafa sótt tölu-
vert í helförina við listsköpun sína, og
fjalla ég m.a. í fyrirlestrinum um
hvernig listaverk, s.s. myndlist og
skáldsögur, geta haft meiri áhrif á
söguskilning almennings en fræðitexti
og tölulegar upplýsingar.“
Sigrún skoðar hvernig listin er notuð
sem úrvinnsla á helförinni í ólíkum list-
greinum: „Sérstaklega beini ég sjónum
að, og ber saman, tvær kvikmyndir
sem haft hafa mikil áhrif: annars vegar
Lista Schindlers eftir Spielberg, og
heimildarmyndina Shoah eftir franska
leikstjórann Claude Lanzmann,“ út-
skýrir Sigrún. „Í Lista Schindlers er
helförin skoðuð sem einangraður at-
burður og hún slitin úr sögulegu sam-
hengi. Sagan sem er sögð gefur sig út
fyrir að segja sannleikann en er sett
inn í dæmigerða formúlu um baráttu
góðs og ills. Helförin er afgreidd sem
afmarkað og liðið tímabil í sögunni en
ekki sem hluti af veruleika og minn-
ingum fjölda fólks. Viðfangsefnið er
þannig meðhöndlað að það leiðir ekki
til skilnings áhorfandans á því sem
gerðist í raun.“
Kvikmyndin Shoah segir Sigrún að
fáist við efnið á mun metnaðarfyllri
hátt: „Um er að ræða heimildarmynd
sem er rúmlega níu tímar að lengd, og
er formið gjörólíkt. Þar er helförin
skoðuð sem lifandi hlutur í sögu okkar.
Fjöldi fólks sem upplifði atburðina,
sem gerendur eða fórnarlömb eða
hvort tveggja, er enn á lífi. Lanzmann
fær þetta fólk til að segja frá og varpar
ljósi á það hvernig helförin hefur mótað
tilfinningar þess, sjálfsvitund og sam-
skipti við annað fólk,“ segir Sigrún.
„Hann fór með viðmælendur sína á þá
staði þar sem atburðirnir áttu sér stað
og fékk þá til að rifja upp það sem gerð-
ist og takast þannig á við fortíðina. Um
leið neyðist áhorfandinn til að taka af-
stöðu og byrjar ef til vill að skilja
hvernig slíkir atburðir gátu gerst í sið-
menntuðu samfélagi og hvernig svo
margir gátu tekið þátt í atburðunum.“
Saga | Fyrirlestur um hvernig listirnar auka skilning á sögunni
Helförin: list og skilningur
Sigrún Sigurð-
ardóttir fæddist í
Reykjavík 1973.
Hún lauk BA-
gráðu í sagnfræði
frá HÍ 1998 og
cand. mag. í menn-
ingarfræði frá
Kaupmannahafn-
arháskóla 2004.
Sigrún er nú fagstjóri í hönn-
unarfræðum og listfræði við LHÍ, og í
rannsóknarstöðu Kristjáns Eldjárns
við Þjóðminjasafn Íslands. Eig-
inmaður Sigrúnar er Björn Þor-
steinsson heimspekingur og eiga þau
tvær dætur.
Tónlist
Bókasafn Mosfellsbæjar | Kammerkór
Mosfellsbæjar heldur vortónleika 1. maí kl.
16. Flutt verða m.a. verk eftir Mozart, Edg-
ar, Händel, Gunnar Reyni, Atla Heimi o.fl.
Einsöngvari er Auður Árnadóttir, meðleik-
ari er Arnhildur Valgarðsdóttir. Aðrir hljóð-
færaleikarar eru Auður Árnadóttir og Eva
Þórdís Ebenezersdóttir. Einnig koma fram
strengja- og slagverksnemendur úr Lista-
skóla Mosfellsbæjar og Tónskóla Sig-
ursveins D. Kristinssonar. Stjórnandi
Kammerkórs Mosfellsbæjar er Símon H. Ív-
arsson.
Listaháskóli Íslands, Laugarnesi | Banda-
ríska raftónskáldið Morton Subotnick held-
ur fyrirlestur kl. 12.15. Hann fjallar um tón-
list sína og spilar tóndæmi. Subotnick er
eitt af helstu raftónskáldum síðustu ára-
tuga en þetta er í fyrsta sinn sem hann
kemur til Íslands.
Salurinn, Kópavogi | Rakel María Axels-
dóttir heldur útskriftarfyrirlestur kl. 12,
sem hún nefnir Skapandi tónlist með börn-
um en hún útskrifast með BA í tónlistar-
kennslu frá tónlistardeild LHÍ í vor. Á fyr-
irlestrinum munu m.a. börn úr Barnaskóla
Hjallastefnunnar flytja nokkur verk undir
hennar stjórn.
Söngfélag Skaftfellinga | Vortónleikar í
Seltjarnarneskirkju á morgun, 1. maí, kl. 14.
Stjórnandi er Friðrik Vignir Stefánsson.
Undirleikarar eru Vignir Þór Stefánsson á
píanó, Jón Rafnsson á kontrabassa og Ást-
valdur Traustason á harmonikku.
Skemmtanir
Salthúsið | Veðurguðirnir verða með dans-
leik í kvöld en þeir eru nýbúnir að gefa út
sitt fyrsta lag og nefnist það Bahama. Nán-
ar á www.myspace.com/vedurgudirnir
Uppákomur
Hátíðarsalur íþróttamiðstöðvar Álfta-
ness | Dagskrá í tali og tónum helguð verk-
um Sveinbjarnar I. Baldvinssonar, rithöf-
undar og bæjarlistamanns Álftaness árið
2007, kl. 20.30. Aðgangur ókeypis og öll-
um heimill.
Kristniboðsfélag kvenna | Árleg kaffisala
Kristniboðsfélags kvenna verður í Kristni-
boðssalnum á Háaleitisbraut 58-60, 1. maí
kl. 14. Ágóðinn rennur til kristniboðsins.
Fyrirlestrar og fundir
Hótel Loftleiðir | Námsstefna um sjúkra-
flutninga verður haldin 2. og 3. maí, á veg-
um Landssambands slökkviliðs- og sjúkra-
flutningamanna. Fyrirlestrar, kynning á
námi og búnaði. Kynning heilbrigð-
isráðherra á skýrslu um framtíðarskipulag
sjúkraflutninga. Aðgangur er ókeypis. Sjá
nánar á lsos.is.
Krabbameinsfélagið | Stuðningshópur
kvenna sem fengið hafa krabbamein í
eggjastokka heldur fund í húsi Krabba-
meinsfélagsins í Skógarhlíð 8, Reykjavík,
kl. 17. Kaffiveitingar. Konur sem fengið hafa
krabbamein í eggjastokka eru hvattar til að
mæta.
Kvennahreyfing ÖBÍ | Kvennahreyfing Ör-
yrkjabandalags Íslands heldur fund kl. 18
20 í Hátúni 10, á 9. hæð. Sigþrúður Guð-
mundsdóttir, fræðslu- og fram-
kvæmdastýra Kvennaathvarfsins, heldur
fyrirlestur og svarar fyrirspurnum. Gestir
velkomnir.
Fréttir og tilkynningar
Fjörgyn í Foldaskóla | Átthagafélag
Strandamanna heldur aðalfund þriðjudag-
inn 6. maí kl. 20.30 í Félagsmiðstöðinni
Fjörgyn, Logafold 1.
GA- fundir (Gamblers Anonymous) | Ef
spilafíkn hrjáir þig eða aðstandendur þína
er hægt að fá hjálp með því að hringja í
síma 698-3888.
Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur | Matar-
og fataúthlutun kl. 14-17 í Hátúni 12b. Tekið
við hreinum fatnaði og öðrum varningi á
þriðjudögum kl. 10-15. Sími 551-4349, net-
fang maedur@simnet.is
Frístundir og námskeið
JSB | Haldin verða sex stutt námskeið
helgina 10. og 11. maí í húsakynnum Gigt-
arfélags Íslands, Ármúla 5 og í dansrækt
JSB, Lágmúla 9. Skráning og uppl. hjá
Hrafnhildi í síma 894-1806 eða stott-
pilates@medanotunum.is. Skráning til 2.
maí nk.
www.ljosmyndari.is | Eins dags ljósmynd-
anámskeið 17. og 18. maí, 21. og 22. júní kl.
10.17. Teknar eru fyrir helstu stillingar á
myndavélinni og gefin ráð varðandi
myndatökur. Verð 13.900 kr. Leiðbeinandi
Pálmi Guðmundsson, sími 898-3911.
Skráning á www.ljosmyndari.is.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Listaháskóli Íslands.
@mbl.is, eða senda tilkynn-
ingu og mynd í gegnum vef-
síðu Morgunblaðsins,
www.mbl.is, og velja liðinn
„Senda inn efni“. Einnig er
hægt að senda vélritaða til-
kynningu og mynd í pósti.
Bréfið skal stíla á
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Hádegismóum 2
110 Reykjavík.
MORGUNBLAÐIÐ birtir til
kynningar um afmæli, brúð-
kaup, ættarmót og fleira les-
endum sínum að kostnaðar-
lausu. Tilkynningar þurfa að
berast með tveggja daga fyr-
irvara virka daga og þriggja
daga fyrirvara fyrir sunnu-
dags- og mánudagsblað.
Hægt er að hringja í síma
569-1100, senda tilkynningu
og mynd á netfangið ritstjorn-