Morgunblaðið - 11.05.2008, Side 20
20 SUNNUDAGUR 11. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Eftir Orra Pál Ormarsson
orri@mbl.is
Engin bönd hafa haldiðCristiano Ronaldo í vet-ur. Hann hefur gert 30mörk fyrir Manchester
United í ensku úrvalsdeildinni, af-
rek sem fáir samtímamenn geta
leikið eftir. Portúgalinn er samt
ekki nema hálfdrættingur á við
mesta markaskorara allra tíma í
ensku knattspyrnunni, Dixie Dean,
sem gerði hvorki fleiri né færri en
60 mörk fyrir Everton í gömlu 1.
deildinni veturinn 1927-28 – í 39
leikjum. Met sem verður ugglaust
aldrei slegið.
Í vikunni voru liðin 80 ár frá því
að Dean vann afrekið, þá skoraði
hann þrennu gegn Arsenal í loka-
leik Everton á þessari rómuðu
leiktíð þegar Bítlaborgarar urðu
meistarar. Lokamarkið, sem kom
á síðustu andartökum leiksins, var
það sextugasta og þar með sló
Dean landsmet sem George nokk-
ur Camsell hafði sett þegar hann
gerði 59 mörk fyrir Middles-
brough árið áður. En það var í 2.
deild.
Haltur fyrir lokaleikinn
Dean skoraði í fyrstu níu leikj-
um Everton þennan vetur, þar á
meðal öll mörkin í 5:2 sigri á Man-
chester United. Hann var kominn
með 30 mörk um jólin og eftir
þrennu gegn Liverpool skömmu
eftir áramót hafði hann gert 43
mörk. Þá dró hins vegar af kapp-
anum sem skoraði ekki í fjórum
leikjum í röð. Fyrr bjuggust menn
við því að jörðin hætti að snúast.
Fjórar tvennur á skömmum tíma
og ferna gegn Burnley þýddu þó
að metið var aftur í augsýn þegar
aðeins einn leikur var eftir um
vorið. Það leit þó ekki vel út um
tíma því Dean haltraði af velli á
Turf Moor en Harry Cook sjúkra-
þjálfari dró hann á flot á elleftu
stundu fyrir leikinn gegn Arsenal.
Þar átti Dean þó vandasamt
verk fyrir höndum, hann vantaði
þrjú mörk til að slá metið og í vegi
hans stóð einn besti varnarmaður
deildarinnar, Charlie Buchan, í
sínum síðasta kappleik sem átti
svo sannarlega að verða eitthvað
til að greina barnabörnum frá.
Dean lét þó kurteisina lönd og leið
þetta eftirmiðdegi og jafnaði fljótt
met Camsells með skalla og marki
úr vítaspyrnu. En klukkan tifaði
og enn vantaði hann punktinn yfir
i-ið. Æðisgenginni leit lauk rétt
fyrir leikslok þegar Dean smeygði
sér fram fyrir varnarmann og
sendi boltann í markið með vöru-
merki sínu – skalla.
Allt ætlaði um koll að keyra
Allt ætlaði um koll að keyra á
Goodison Park. Everton hefur
unnið marga merka sigra gegnum
tíðina en Thomas Keates, sögurit-
ari félagsins, fullyrðir að aldrei
hafi önnur eins fagnaðarlæti brot-
ist út og þegar Dixie Dean sló
markametið. Himinninn hrökk í
kút.
Dean lét raunar ekki við 60
deildarmörk sitja þennan vetur.
Hann gerði jafnframt þrjú mörk í
tveimur bikarleikjum og fjögur
mörk í fimm leikjum fyrir enska
landsliðið. Samtals 67 mörk í 46
leikjum eða 1,46 mörk að meðaltali
í leik. Ótrúlegt afrek.
Það var kraftaverk að Dixie
Dean skyldi yfir höfuð flengjast
um grundir þetta sögulega vor.
Tveimur árum áður kjálka- og höf-
uðkúpubrotnaði hann í mót-
orhjólaslysi og var vart hugað líf.
En Dean veitti örlögunum viðnám
og bati hans var ótrúlegur.
Læknar voru eigi að síður full-
vissir um að hann myndi aldrei
leika knattspyrnu framar. Dean
var á öðru máli og veturinn eftir
gerði hann 21 mark í 27 leikjum
fyrir Everton. Heilbrigðisstéttin
var orðlaus.
Missti eista í tæklingu
Árangurinn er enn merkilegri
fyrir þær sakir að Dean skoraði
um helming marka sinna á ferl-
inum með höfðinu. Hann hlífði sér
sumsé hvergi eftir slysið.
Dean var vanur að æfa koll-
spyrnur með sandfylltum leð-
urbolta ásamt félaga sínum
Tommy Lawton og það bar svo
sannarlega árangur. Hann var þó
að sögn kunnugra ekki síðri á
jörðinni, fljótur, leikinn og útsjón-
arsamur. Lagði öfugt við marga
markaskorara upp fjölda marka
fyrir samherja sína.
Dixie Dean var mikið prúðmenni
á velli og var hvorki færður til
bókar né vísað af velli á öllum sín-
um ferli. Hann skipti aldrei skapi
enda þótt hann væri miskunn-
arlaust sparkaður niður af harð-
skeyttum varnarmönnum milli-
stríðsáranna. Einn tæklarinn gekk
meira að segja svo vasklega fram
að Dean þurfti að hirða annað eist-
að upp úr grassverðinum. Samt
kvartaði hann aldrei. Stóð bara
upp og hélt áfram að skora. Svona
eins og Didier Drogba!
Snemma beygðist krókurinn
William Ralph Dean fæddist í
Birkenhead á Merseyside 22. jan-
úar 1907. Hann hóf feril sinn hjá
Tranmere Rovers og skoraði 27
mörk í 33 leikjum fyrir félagið í 3.
deildinni frá 1923-25.
Talið er að aðdáendur hafi gefið
Dean gælunafnið Dixie vegna þess
hvað hann var dökkur á brún og
brá. Þá var hárið á honum hrokkið
og mörgum þótti hann líkjast
mönnum af afrískum uppruna í
suðurríkjum Bandaríkjanna. Sjálf-
um geðjaðist Dean aldrei að nafn-
inu og vildi að menn kölluðu sig
Bill.
Everton, sem Dean studdi í
æsku, festi kaup á piltinum fyrir
3.000 pund vorið 1925 og á fyrsta
heila tímabili sínu á Goodison Park
gerði hann 32 mörk í 38 leikjum í
efstu deild. Sextíu marka spark-
tíðin stendur vitaskuld upp úr en
alls gerði Dean ellefu sinnum
meira en 20 deildarmörk á tímabili
á ferlinum og fjórum sinnum 30
mörk eða meira. Veturinn 1931-32
sendi hann knöttinn 45 sinnum í
netið og 39 sinnum 1930-31 og þá
eru bara deildarleikir taldir.
Seinni árin dró af Dean og
Everton seldi hann til Notts
County haustið 1937. Þar náði
hann sér ekki á strik og gekk til
liðs við írska liðið Sligo Rovers í
janúar 1939. Þar lék hann til úr-
slita um bikarinn um vorið en
Sligo laut í gras fyrir Shelbourne.
Eftir leikinn var silfurmedalíu
Deans stolið af hótelherbergi hans
sem væri ekki í frásögur færandi
nema fyrir þær sakir að þegar
hann var á ferð á Írlandi tæpum
40 árum síðar var henni skilað.
Dean barst þá nafnlaus pakki upp
á hótel.
Að heimsstyrjöldinni síðari lok-
inni sneri Dixie Dean ekki aftur á
völlinn.
Hann lék 16 landsleiki fyrir
England og skoraði í þeim 18
mörk, þar af 12 mörk í fimm leikj-
um veturinn eftir slysið 1926-27.
Hann gerði alls 349 mörk í 399
leikjum fyrir Everton og samtals
408 mörk í 465 leikjum á ferlinum.
0,87 mörk að meðaltali í leik
Dean hefur samt ekki gert flest
deildarmörk í ensku knattspyrn-
unni frá upphafi, þann heiður á
Arthur Rowley sem lengst af lék
með Leicester City og Shrewsbury
Town á 5. til 7. áratugnum. Hann
gerði 433 mörk í 619 leikjum, að-
allega í neðri deildum. Meðalskor
Deans er hins vegar mun betra,
0,87 mörk í leik á móti 0,70 hjá
Rowley.
Eftir að hann lagði skóna á hill-
una rak Dean um skeið knæpu en
lengst vann hann fyrir sér sem
dyravörður hjá Littlewoods-
keðjunni og lýsa samstarfsmenn
hans þar honum sem rólegum og
hæverskum manni.
Dean lést af völdum hjartaslags
1. mars 1980, 73 ára að aldri. Það
var við hæfi að kallið kæmi á Goo-
dison Park skömmu eftir að dóm-
arinn hafði flautað til leiksloka hjá
Everton og erkifjendunum Liver-
pool.
Árið 2001 var reist stytta af
Dean fyrir utan leikvanginn með
áletruninni: Knattspyrnumaður,
heiðursmaður, Everton-maður.
Samanburður erfiður
Ógerningur er að bera Dixie
Dean saman við Cristiano Ronaldo
og aðra markahróka samtímans.
Svo mikið hefur hinn góði leikur
breyst í áranna rás. Varnarleikur
var ekki sama listin í þá daga og
hann er nú og fyrir vikið voru
fleiri mörk gerð að jafnaði í leikj-
um. Ástand valla, knötturinn sjálf-
ur, þjálfunaraðferðir, mataræði og
aðrir þættir sem gera menn að
meisturum eru vitaskuld á engan
hátt sambærilegir nú og fyrir átta
áratugum. Að ekki sé talað um
launin. Ronaldo er eflaust ekki
margar mínútur að vinna fyrir árs-
tekjum Deans.
Ljóst má vera að Dixie Dean
myndi ekki skora 60 mörk á
sparktíð væri hann meðal vor í
dag. En hefðu Cristiano Ronaldo,
Emmanuel Adebayor og Fernando
Torres skorað 60 sinnum hefðu
þeir verið uppi árið 1928? Þar ligg-
ur efinn.
Þegar himinninn hrökk í kút
Áttatíu ár liðin frá því Dixie Dean vann það einstaka afrek að skora sextíu deildarmörk fyrir Everton
á einni og sömu leiktíðinni Það er metið sem sparkskýrendur telja öruggast í ensku knattspyrnunni
Í HNOTSKURN
»Met Dixies Deans, 60 mörk íefstu deild á sparktíð, verður
líkast til aldrei slegið. Næst því
komst Tom „Pongo“ Waring sem
skoraði 49 sinnum fyrir Aston
Villa 1930-31.
»Mörkin 60 voru 3,4% af öllummörkum í ensku 1. deildinni
þennan vetur, samkvæmt upplýs-
ingum frá sparkunnandanum
Trevor Powell. Það er líka met.
»Næst því komst Alan Sheareren mörkin hans 34 fyrir
Blackburn voru 2,85% allra
marka 1994-95. Francis Lee
gerði 34 mörk fyrir Manchester
City 1971-72 eða 2,84% allra
marka í deildinni þann vetur.
»Dixie Dean varð tvívegisenskur meistari með Ever-
ton, 1928 og 1932 og einu sinni
bikarmeistari, 1933.
KNATTSPYRNA»
© Hulton-Deutsch Collection/CORBIS
Marksækinn Dixie Dean er mesti markaskorari sem um getur í ensku
knattspyrnunni. Hér er hann á leið út á völl með Everton árið 1936.
AÐ ÞÚ SAFNAR VILDARPUNKTUM
HJÁ SAGA SHOP BÆÐI Í
ÁÆTLUNARFLUGI ICELANDAIR
OG Í VERSLUN Í LEIFSSTÖÐ?
VISSIR ÞÚ …
Vildarklúbbur
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
I
C
E
4
19
81
0
5
/0
8
WW
W.V
ILDARKLUBBUR.IS