Morgunblaðið - 11.05.2008, Page 23
Ætlar hann að taka þetta í eft-
irrétt?
„Nei, þetta er fyrir Gazmanninn.
Hann er á leiðinni. Hann borðar
ekkert nema bringur.“
Í því dettur Garðar Ómarsson,
félagi Egils úr Merzedes Club, inn
úr dyrunum og hugsar sér gott til
glóðarinnar. Í fyrsta skipti sem ég
sé þann mann ekki beran að ofan.
Á hvorki barn né konu
Það er upplagt að renna í ætt-
fræði yfir matnum og Egill upplýsir
að móðir hans heiti Ester Ásbjörns-
dóttir. „Gamli kallinn heitir svo
Einar Egilsson,“ heldur hann
áfram, „sonur Egils Einarssonar.
Það er því pressa á mér, eignist ég
einhvern tíma son, að skíra hann
Einar.“
Annars er hann ekki í barna-
hugleiðingum. „Ætli ég splæsi ekki
í mitt fyrsta barn fertugur,“ segir
hann í góðu gríni.
Egill upplýsir ennfremur að hann
eigi ekki einu sinni konu en oft hef-
ur þótt betra að byrja á því áður en
„splæst“ er í blessuð börnin. Spurð-
ur að því hvort ekkert sé í gangi
hleypir hann brúnum. „Ekki til að
tala um, ég læt þig vita ef það
breytist áður en viðtalið birtist.“
Ég heyri ekki í honum aftur.
Hvurslags eiginlega er þetta,
stelpur? Ætlið þið að láta þennan
væna bita fara til spillis?
Egill á tvö systkini, Atla (f. 1989)
og Hildi (f. 1985). Maður Hildar er
Gunnleifur Gunnleifsson, fótbolta-
markvörður úr HK, og eiga þau von
á sínu öðru barni. „Hún er fimm ár-
um yngri en ég en að koma með sitt
annað barn,“ hugsar Egill upphátt.
Nei, nei, það er engin pressa.
Egill var allan sinn grunn-
skólaferil í Digranesskóla og segir
minningarnar ljúfar. „Við í Merze-
des Club spiluðum þarna um dag-
inn og gerðum allt vitlaust. Það var
ótrúlega gaman að koma aftur í
skólann.“
Síðan lá leið Egils í Mennta-
skólann í Kópavogi, þar sem hann
lagði stund á nám á hagfræðibraut.
„Það var helvíti gaman í MK. Þar
stofnuðum við félagarnir fótbolta-
liðið Viðrinin sem vann allar keppn-
ir sem efnt var til í skólanum. Alveg
sama í hvaða grein var keppt. Fyrir
vikið vorum við ekki vinsælustu
mennirnir í skólanum.“
Á mála hjá Hvöt
Íþróttir áttu snemma hug Egils
allan. Hann byrjaði í fótbolta en
spreytti sig líka í handbolta og ís-
hokkíi. „Ég var strax settur í græn-
an búning og hef verið Bliki síðan.
Að vísu spilaði ég um tíma fótbolta
með Haukum en það breytir engu
um það hvar hjartað liggur.“
Egill er enn viðloðandi boltann.
Er nú á mála hjá Hvöt á Blönduósi
sem leikur í 2. deild. „Það kom
þannig til að gamall félagi minn úr
Viðrinunum, Kristján Óli Sigurðs-
son, sem er spilandi þjálfari hjá
Hvöt, reif upp símann einn daginn
og heimtaði að ég yrði á skýrslu hjá
sér í sumar. Ég gat ekki hafnað
því.“
Egill hefur eigi að síður haft lít-
inn tíma til að spyrna knetti að
undanförnu. „Ég vonast samt til að
spila eitthvað í sumar. Það myndi
t.d. henta mér vel að koma inná síð-
asta korterið og skora þessi tvö til
þrjú mörk sem eiga að duga liðinu
til sigurs. Það er alveg ljóst að
Hvöt er á leið upp í 1. deild í haust.
Síðan verður gerð atlaga að Lands-
bankadeildinni.“
Í raun hentar það Agli illa að
spila mikið meira en korter, tuttugu
mínútur í leik því sparkiðkun er
fljót að bitna á vöðvamassa manna.
„Og ekki langar mig að vera hor-
aður hljómborðsleikari,“ segir hann
og glottir.
Eins og oftar þegar Egill á í hlut
er vont að átta sig á því hvort hann
talar í gríni eða alvöru, þannig að
Gazmaðurinn er gripinn glóðvolgur,
fyrst hann situr við borðið, og
spurður beint út hvort Egill geti
eitthvað í fótbolta.
„Ég er að borða,“ segir hann
kíminn og færist undan því að svara
spurningunni.
„Hann hefur aldrei séð mig spila
fótbolta,“ segir Egill og afgreiðir
álit Gazmannsins út af borðinu.
„Heldurðu að ég sé að skrökva?“
segir hann svo forviða og beinir
spurningunni til mín.
Nei, nei. Það er bara siður blaða-
manna að tékka af staðreyndir.
Loksins skoraði United
Spurður að því hvernig hann ætli
að sameina leik með Merzedes Club
og Hvöt í sumar segir hann það
næsta auðvelt. „Merzedes Club
verður á þeysireið um landið í allt
sumar og það verður örugglega
hægt að púsla þessu saman. Við er-
um t.d. bókuð á Húnavöku og fyrr
um daginn er Hvöt að spila á
heimavelli. Þetta steinliggur.“
Egill spilar ekki bara fótbolta,
hann horfir líka stíft á hann. Er for-
fallinn aðdáandi Manchester Unit-
ed. Flesta leiki sér hann á Players
en hefur þó til hátíðabrigða farið
utan til að sjá goðin í eigin persónu.
„Ég fór á United-Arsenal um dag-
inn. Fram að því hafði ég séð liðið
leika í þrígang og tapa í öll skiptin.
Hafði ekki einu sinni séð United
skora mark! Þegar Arsenal komst
yfir leist mér því hreint ekki á blik-
una. En svo skoraði United tvisvar
í markið fyrir framan mig og gleðin
tók aftur völd. Þetta var æðislegt.“
Skyldi hann fagna enska meist-
aratitlinum í dag?
Egill hefur leift fjórða hluta
nautsins á diskinum og nú sætir
Gazmaðurinn lagi og spyr hvort
hann megi gera restinni skil. „Hann
er alltaf svangur,“ segir Egill og
réttir Gazmanninum nautið. Það er
gott að hafa einhvern til að draga
sig að landi. „Já, þetta er ekki í
fyrsta skipti og örugglega ekki það
síðasta,“ segir Gazmaðurinn sposk-
ur.
Willum rak hann í ræktina
Frá knattspyrnu að kraftadellu.
Hvaðan kemur hún?
„Ég veit það ekki alveg. Ég hafði
eins og allir krakkar gaman af Jóni
Páli. Hann var þvílíkur snillingur.
En samt gerði það ekki útslagið.
Þessi della greip mig líka frekar
seint. Það var þegar ég var að spila
fótbolta með Haukum. Þá var ég
um tvítugt og bara fimmtíu kíló
með skólatöskuna. Willum Þór
Þórsson var þá að þjálfa Haukana
og skipaði mér að fara að lyfta.“
Mikil er ábyrgð Willums.
Egill var ekki fyrr kominn inn í
tækjasalinn að áhuginn á fótbolt-
anum dvínaði og áhuginn á lóðunum
kom í staðinn. „Um leið og ég lærði
hvernig á að gera þetta fór mér að
finnast þetta hrikalega gaman.
Sumum finnst hundleiðinlegt að rífa
í lóð en pína sig til þess. Ég þarf
þess ekki, mér þykir þetta í raun og
veru mjög skemmtilegt. Lóða-
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Hraustur „Þeir sem fara í sterana eru yfirleitt strákar sem nenna
ekki og hafa ekki agann í að æfa rétt og borða rétt. Gefum okkur tvo
gæja, annar notar stera en mataræðið og æfingarnar eru í ruglinu,
hinn borðar rétt og æfir eins og maður. Sá síðarnefndi rúllar stera-
gæjanum upp. Það er ekkert sem toppar alvöru æfingar og gott mat-
aræði,“ segir Egill Einarsson.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. MAÍ 2008 23
Ég vonast samt til að
spila eitthvað í sumar.
Það myndi t.d. henta
mér vel að koma inná
síðasta korterið og
skora þessi tvö til þrjú
mörk sem eiga að duga
liðinu til sigurs.
Viðskiptaráðuneytið
Dagskrá:
8:10 Morgunverður
8:30 Ávarp Björgvins G. Sigurðssonar viðskiptaráðherra
8:40 Skýrsla Félagsvísindastofnunar HÍ
- Dr. Ragna Benedikta Garðarsdóttir félagssálfræðingur,
Félagsvísindastofnun HÍ
- Ásdís Aðalbjörg Arnalds MA, félagsfræðingur,
Félagsvísindastofnun HÍ
9:20 Kynning á skýrslu Hagfræðistofnunar HÍ
- Dr. Þórólfur Matthíasson prófessor,
Hagfræðideild HÍ
9:50 Kaffihlé
10:05 Kynning á skýrslu Lagastofnunar HÍ
- Ása Ólafsdóttir lektor, Lagastofnun HÍ
- Eiríkur Jónsson lektor, Lagastofnun HÍ
10:45 Sjónarmið hins virka neytanda
- Dr. Gunni
11:00 Pallborðsumræður
11:30 Afhending Íslensku neytendaverðlaunanna.
Fundarstjóri er dr. Jón Þór Sturluson,
aðstoðarmaður ráðherra.
Aðgangur ókeypis
Ný sókn
í neytendamálum
Viðskiptaráðuneytið býður öllu áhugafólki um neytendamál til ráðstefnu um stöðu
neytendamála á Íslandi og stefnumótun til framtíðar þar sem kynntar verða nýjar
skýrslur þriggja stofnana Háskóla Íslands.
Ráðstefnan verður haldin á Grand Hótel Reykjavík þann 14. maí frá kl. 8:10-11:30.
Staða neytenda á Íslandi