Morgunblaðið - 11.05.2008, Síða 26
umhverfismál
26 SUNNUDAGUR 11. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Þ
að sem hitar Láru Hönnu
svo í hamsi er fyrirhuguð
Bitruvirkjun, allt að 135
MW jarðgufuvirkjun, við
Ölkelduháls, ofan við
Reykjadal ofan Hveragerðis, sem á
að framleiða rafmagn fyrir álver í
Helguvík. Lára Hanna hefur beitt
sér gegn virkjunaráformunum með
bloggi (www.larahanna.blog.is),
greinaskrifum og sérstakri heima-
síðu (www.hengill.nu). „Það er ekkert
auðvelt fyrir mig að standa í þessu.
Ég er svo athyglifælin. En svo má
brýna deigt járn að bíti.“ Hún segist
reyndar ekki vera upphafsmaður
Hengilssíðunnar, það er Petra Ma-
zetti, leiðsögumaður og hestamaður,
sem Lára Hanna segir vera meiri Ís-
lending en margur sem er það borinn
og barnfæddur.
„Þegar við fréttum af ráðagerð-
unum um Bitruvirkjun gátum við
ekki trúað því að nokkur maður væri
svo vitlaus að fremja slíkt hryðjuverk
gegn náttúrunni. Rétt eins og fólk
trúir ekki sínum eigin eyrum, þegar
fjallað er um olíuhreinsistöð á Vest-
fjörðum. En þegar á leið fóru að
renna á okkur tvær grímur og svo
varð okkur ljóst, að Orkuveita
Reykjavíkur og Sveitarfélagið Ölfus
ætluðu að reisa virkjunina. Þá tók
Petra forystuna um heimasíðuna,
sem Katarina Wiklund setti upp og
Kjartan Pétur Sigurðsson lagði til
ljósmyndir. Sjálf hef ég skrifað í met-
ravís gegn virkjunaráformunum.
Auk þessa létum við búa til og
prenta veggspjald, sem var borið inn
á hvert heimili í Hveragerði, Þorláks-
höfn og dreifbýli Ölfuss til að vekja
þá sem næst virkjuninni búa til vit-
undar um afleiðingar þess að hún
verði að veruleika í túnfætinum hjá
þeim.
En það er ekki eins og við Petra
séum einar í heiminum. Það var sett
Íslandsmet í athugasemdum við
virkjanaáformin til Skipulagsstofn-
unar þegar hún fjallaði um mat á um-
hverfisáhrifum. Þær voru hátt í sjö
hundruð. Og nú þegar Sveitarfélagið
Ölfus hefur auglýst breytingar á að-
alskipulagi til þess að koma virkjun
niður í náttúruperlu vonum við að at-
hugasemdunum rigni yfir þá í nýju
Íslandsmeti.“
Lára Hanna segist vilja taka fram,
að þær Petra séu óháðar stjórn-
málaflokkum og samtökum og að
þær heyi baráttuna gegn Bitruvirkj-
un algjörlega á eigin forsendum. „Við
Petra erum bara hluti af þessum al-
ræmda almenningi sem kallast kjós-
endur fyrir kosningar.
Við höfum varið geysimiklum tíma
og fjármunum í þessa baráttu, sem
við vonum auðvitað að skili sér þótt
síðar verði, þó ekki verði nema í hug-
arfarsbreytingu og vakningu hjá al-
menningi.“
Brotalamir í lögunum
Lára Hanna segir tvær alvarlegar
brotalamir á lögum. „Annars vegar
gera lög um umhverfismat frá 2006
ráð fyrir því að framkvæmdaaðilinn
sjálfur, í þessu tilfelli Orkuveita
Reykjavíkur, sjái um mat á umhverf-
isáhrifum og til þess er fenginn
„óháður fagaðili“, VSÓ-Ráðgjöf, sem
gæti átt svo mikið undir því að af
framkvæmdinni verði, að hann geti
ekki verið á móti henni. Skipulags-
stofnun gerir ekkert annað en að sor-
tera athugasemdirnar og sendir þær
svo til Orkuveitunnar sem fer í gegn-
um þær og úrskurðar sjálf í málinu.
Halló! Heyrir enginn í mér?
Það er einfaldlega ekki hægt að
ætlast til þess að menn séu hlutlausir
í svona ferli. Sá sem ætlar að reisa
virkjunina og sá sem ég tel víst að fái
bita af kökunni, þessir aðilar fara
með úrskurðarvaldið!
Það þarf að lagfæra þessa galla á
lögunum, þannig að óháðir aðilar úti í
bæ, til dæmis einhver háskólinn, ann-
ist þessi störf og Skipulagsstofnun
þarf að fá úrskurðarvaldið aftur.
Núna er þetta eins og þegar sýslu-
mennirnir stjórnuðu rannsókn mála
sem þeir dæmdu svo í. Jón Krist-
insson þurfti að leita til Mannrétt-
indadómstóls Evrópu til þess að við
kipptum þessu í liðinn með aðskiln-
aði. Ég vona að það þurfi ekki að fara
þá leiðina til þess að leiðrétta þessa
vitleysu.
Hin lögin eru Skipulags- og bygg-
ingarlögin. Þórunn Sveinbjarn-
ardóttir umhverfisráðherra hefur
lagt fram frumvarp um breytingar,
sem m.a. taka á því ofurvaldi, sem
sveitarstjórnir hafa haft síðan 1997.
Morgunblaðið/Valdís Thor
Skelegg Lára Hanna Einarsdóttir vill ekki sjá Bitruvirkjun rísa við Öl-
kelduháls. Hún segist tilbúin til þess að berjast alla leið.
Reykjadalur Í botni Reykjadals er fallegur foss og allt um kring er litadýrð náttúrunnar ævintýraleg.
Í liði með
landinu
„Það bara gengur ekki
að menn meti allt í
megawöttum. Við verð-
um að leggja af þennan
hugsunarhátt í garð
náttúrunnar að flippa
meðan hægt er og skítt
með framtíðina.“ Þess-
um orðum fylgir Lára
Hanna Einarsdóttir
eftir með krepptum
hnefanum framan í
Freystein Jóhannsson.
Ljósmynd/Kjartan Pétur Sigurðsson
Heimsferðir bjóða frábært sértilboð til Fuerteventura, sem
hefur svo sannarlega slegið í gegn hjá Íslendingum. Njóttu
lífsins á þessum vinsæla sumarleyfisstað við góðan að-
búnað. Að sjálfsögðu nýtur þú traustrar þjónustu fararstjóra
Heimsferða allan tímann. Gott íbúðahótel á góðum stað í
Corralejo. Á hótelinu er góð aðstaða, s.s. móttaka, veitinga-
staður, snarl-bar, mini-verslun, þvottaaðstaða, barnaleik-
svæði, sundlaug, barnalaug og sólbaðsaðstaða.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Fuerteventura
3. eða 17. júní
frá kr. 44.990
*** Frábært sértilboð ***
Maxorata Beach
Mjög takmarkaður fjöldi íbúða
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku.
Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
Verð kr. 54.990
64.990
Verð kr. 54.990 vika / 64.990 2 vikur
Netverð á mann, m.v. 2 saman í íbúð á
Maxorata í viku. Aukavika kr. 10.000.
Vikuferð aðeins í boði 17. júní.
vika
2 vikur
Verð kr. 44.990
54.990
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og
2 börn, 2-11 ára, í íbúð á Maxorata Beach
í viku. Aukavika kr. 10.000.
Vikuferð aðeins í boði 17. júní.
vika
2 vikur
Útimálning
Viðarvörn
Lakkmálning
Þakmálning
Gólfmálning
Gluggamálning
Innimálning Gljástig 3, 7, 20
Verð frá kr. 298 pr.ltr.
Gæða málning á frábæru verði
Allar Teknos vörur eru framleiddar skv. ISO 9001 gæðastaðli.
Afsláttur af málningarvörum
20%
Sætúni 4 Sími 517 1500
Sérhönnuð málning fyrir íslenskar aðstæður.
Skútuvogi 13, S. 517 1500 www.teknos.com