Morgunblaðið - 11.05.2008, Side 32

Morgunblaðið - 11.05.2008, Side 32
samfélag 32 SUNNUDAGUR 11. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ Raddir innflytjenda Innflytjendur á Íslandi erulangt frá því að vera einsleiturhópur. Konur og karlar allsstaðar að úr heiminum búa nú hér á landi um skemmri eða lengri tíma og eru forsendur flutninganna mismunandi. Sumir eru hér í leit að nýjum tækifærum sem ekki eru fyrir hendi í heimalöndum þeirra, aðrir koma hingað til tímabundinnar vinnu og verkefna og enn aðrir eru hér af hreinni ævintýraþrá. Á undanförnum árum hefur um- ræða um innflytjendur aukist til muna í takt við þá fjölgun sem orðið hefur á erlendum ríkisborgurum hér á landi. Neikvæð umræða hefur verið nokkuð áberandi síðustu misserin þótt stærstur hluti innflytjenda sé venjulegt fólk sem leggur sig fram um að standa sig vel og taka virkan þátt í íslensku samfélagi. Ein þeirra er Paola Cárdenas. Hún ákvað að setjast að á Íslandi eftir að hafa upp- lifað hversu friðsælt hér er. Upp- haflega var það þó ástin sem leiddi Paolu til Íslands, 19 ára gamla. Það var árið 1996, en síðan hefur hún lok- ið hér stúdentsprófi, háskólaprófi og gegnir nú stöðu verkefnisstjóra hjá Rauða krossi Íslands. Paola féllst á að hitta blaðamann á vinnustað sínum í Efstaleitinu og segja frá reynslu sinni sem innflytj- andi á Íslandi. Þrátt fyrir að vera fín- gerð og grönn hefur Paola sterka áru í kringum sig sem gefur til kynna að hér er kona sem veit hvað hún vill. Hún segir frá tilurð þess að hún fékk stöðu verkefnisstjórans: „Á meðan ég skrifaði meistararitgerð mína sendi ég ferilskrána til nokk- urra staða sem vinna að málefnum innflytjenda, því það var sá vett- vangur sem mig langaði helst að vinna við. Á sama tíma var auglýst eftir verkefnisstjóra í málefnum inn- flytjenda hjá Rauða krossinum. Ég sendi inn umsókn í gegnum ráðning- arstofuna sem sá um umsóknirnar, en eitthvað hlýtur að hafa gerst í sendingunni því það kom seinna í ljós að ráðningarstofunni hafði ekki bor- ist umsóknin. Þegar ég hafði ekki heyrt frá þeim í langan tíma ákvað ég að tala við Rauða krossinn, sagði þeim af hverju mig langaði að vinna með innflytjendum og að ég hefði ekkert heyrt frá ráðningarstofunni þrátt fyrir að hafa sent inn umsókn. Þau hjá Rauða krossinum báðu mig að senda ferilskrána mína beint til þeirra. Það er skemmst frá því að segja að ég fékk starfið,“ segir Paola og brosir og bætir svo við: „Það get- ur borgað sig að vera ýtin og frek.“ Í sömu sporum og aðrir innflytjendur Í hverju felst starfið? „Starfið er fjölbreytt og felst í meginatriðum í því að virkja innflytj- endur á þann hátt að þeim sé gert kleift að taka virkan þátt í íslensku þjóðfélagi. Sem innflytjandi get ég auðveldlega sett mig í spor þeirra sem vinna mín snýst um. Og ég er mjög ánægð með það að reynsla mín geti nýst öðrum útlendingum,“ segir Paola og hefur frásögn sína af upp- runa og tilurð þess að hún kom til Ís- lands. „Ég er fædd í Venesúela en faðir minn er frá Kólumbíu og móðir mín frá Chile. Það gætti sterkra áhrifa frá Chile í uppeldi mínu enda fór fjöl- skyldan reglulega þangað í heimsókn til móðurfjölskyldu minnar og þar voru t.d. öll jól haldin. Í Venesúela og einnig í Kólumbíu, þar sem ég bjó með fjölskyldunni um fimm ára skeið, fannst öllum ég tala með chi- leskum hreim,“ segir Paola og brosir. Uppvöxturinn með þremur systr- um ásamt foreldrunum einkenndist því af fjölþjóðlegri reynslu en einnig af ákveðnum skorti af frelsi. „Lífið í Suður-Ameríku var mjög verndað. Lífið gekk út á skólagönguna og ætl- ast var til þess að maður byggi í for- eldrahúsum þar til maður giftist,“ segir Paola. Þráði frelsi og kulda Þetta lífsmynstur átti ekki vel við Paolu sem þráði frekari ferðalög og ekki síst frelsi. Þegar móðir hennar stakk upp á því að hún færi sem skiptinemi til Bandaríkjanna greip hún tækifærið samstundis. „Ég hafði lengi óskað þess að upplifa hvernig það væri að búa við kulda. Allir þeir staðir sem ég hafði búið á einkennd- ust af heitu loftslagi. Ég endaði í litlum bæ í Wisconsin í Bandaríkj- unum þar sem nóg var af snjó og kulda,“ segir hún og hlær. Þar kynntist hún líka Íslendingi sem einnig var skiptinemi á sömu slóðum. „Ég varð svo ástfangin,“ segir Paola og ranghvolfir augunum brosandi. „Ég fékk mikinn áhuga á að heim- sækja Ísland en eftir að dvölinni í Wisconsin lauk fór ég heim til Vene- súela. Um mánuði síðar kom íslenski kærastinn minn og heimsótti mig. Sú heimsókn sló strenginn fyrir það sem koma skyldi.“ Þetta var í ágúst 1996 og í september sama ár var Paola komin til Íslands. Menningarsjokk Menningarsjokkið var mikið en Paolu líkaði þó strax við Ísland. Hún byrjaði á því að vinna og fara í ís- lenskunám í Námsflokkunum. Paola rifjar það upp brosandi að þar sem þetta var íslenska á algjöru byrjenda- stigi lærði hún einungis nokkrar setn- ingar á námskeiðinu: „Ég heiti Paola, ég er frá Venesúela og símanúmerið mitt er …“ rifjar hún upp og skelli- hlær. „Nokkru seinna fór ég í Fjölbrauta- skólann í Garðabæ og kláraði stúd- entsprófið. Þar var spænskan mín metin sem íslenska, þ.e. sem móð- urmál, enska var annað mál og ís- lenska það þriðja. Það hjálpaði alveg ótrúlega mikið og gerði mér kleift að klára stúdentinn,“ segir Paola. Að stúdentsprófi loknu fór hún til Boston í Bandaríkjunum þar sem hún fór í sálfræðinám og kláraði þar BA-próf. „Ég treysti mér ekki í háskólanám á Íslandi út af tungumálinu,“ segir hún. Kærastinn, sem þá var orðinn eig- inmaður hennar, eftir mikinn þrýsting frá foreldrum hennar, kom einnig út til Boston og kláraði sitt BA-nám þar. „Að BA-námi loknu vildi eig- inmaður minn fara til Suður- Ameríku að læra spænsku en ég var ekki á því. Ísland hafði unnið hug minn allan, friðsældin, hreina loftið og ekki síst frelsið til að lifa því lífi sem ég vildi gerði það að verkum að ég gat varla hugsað mér annan stað Vinkonan Með bestu vinkonu sinni Anne frá Danmörku. AFS 1995-96.Í góðum félagsskap Paola með AFS skiptinemum 1995-96. Málsvari Paola vill vera mál- svari innflytjenda á Íslandi, og starfar í raunninni sem slíkur hjá Rauða krossinum. Feðgin Paola ásamt föður sínum. Útskrift Með BA í sálfræði í Boston 2001. Hún á föður frá Kólumbíu og móður frá Chile, ólst upp í Venesúela og bjó um skeið í Kólumbíu. Fyrir tólf árum settist hún að á Íslandi, giftist, eignaðist dóttur, lauk stúdents- og háskólaprófi og skildi við mann sinn á meðan hún vann að meistararitgerð í sálfræði um um stöðu erlendra kvenna við skilnað og sambúðarslit. Halldóra Traustadóttir hitti Paolu Cárdenas, verkefnisstjóra hjá Rauða krossi Íslands, sem virkjar innflytjendur til að taka virkan þátt í íslensku samfélagi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.