Morgunblaðið - 11.05.2008, Side 44
44 SUNNUDAGUR 11. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Höfum verið beðnir að útvega u.þ.b. 250 – 300 fm
eign á framangreindu svæði. Góðar greiðslur í boði.
Allar nánari upplýsingar veitir Sverrir Kristinsson.
Einbýlis- eða raðhús
í vesturborginni óskast
Mb
l
10
02
65
8
Sverrir Kristinsson löggiltur fasteignasali
Síðumúla 21 - www.eignamidlun.is - eignamidlun@eignamidlun.is - Fax: 588 9095
Sími: 588 9090
Mikið endurnýjað og vel staðsett timburhús á steyptum kjallara
sunnanmegin á Seltjarnarnesi. Húsið stendur rétt við sjávarsíð-
una og úr húsinu er einstakt útsýni. Stutt er í alla þjónustu. Húsið
skiptist þannig: 1.hæð: anddyri, stofa, borðstofa, herbergi, snyrt-
ing og eldhús. 2. hæð: tvö herbergi (gætu verið 3-4) og baðher-
bergi. Kjallari: þvottahús, geymsla og tvö svefnherbergi.
Lambastaðabraut -
glæsilegt sjávarútsýni
Mb
l
10
03
38
0
Sverrir Kristinsson löggiltur fasteignasali
Síðumúla 21 - www.eignamidlun.is - eignamidlun@eignamidlun.is - Fax: 588 9095
Sími: 588 9090
Til leigu er mjög gott, 55,7 fm skrifstofurými við
Suðurlandsbraut í Reykjavík. Húsnæðið er í mjög
góðu ástandi en í sameign er falleg móttaka,
fundarherbergi og eldhúsaðstaða. Hér er á ferðinni
mjög gott skrifstofuhúsnæði miðsvæðis í Reykjavík.
Allar nánari upplýsingar veitir Jón Gretar Jónsson
í síma 617-1800.
SKRIFSTOFUHÚSNÆÐI TIL LEIGU
Jón Gretar Jónsson
jon@husakaup.is
s. 617 1800
Suðurlandsbraut 52 – Reykjavík
Sími 533 4800
Opið hús í dag milli kl. 17.00 og 18.00
Glæsileg og mikið endurnýjuð 78,3 fm 3ja herbergja endaíbúð á fjórðu hæð
(efstu) í fjölbýli á Seltjarnarnesi, með glæsilegu útsýni. Íbúðin skiptist í hol,
eldhús, baðherbergi, stofu, og tvö herbergi. Sér geymsla í kjallara.
Glæsilegt útsýni til sjávar í átt að Esjunni. Tvennar svalir. LÁN MEÐ 4,15%
VÖXTUM FRÁ GLITNI FYLGIR EIGNINNI. LÁNIÐ 17,7 MILLJ.
Laugavegur 182 • 4. hæð • 105 Rvík Fax 533 4811 • midborg@midborg.is
Björn Þorri hdl., lögg. fastsali, Karl Georg hrl., lögg. fastsali.
Eiðistorg 9 – Opið hús
ÍSLENSKT menntakerfi er í
öftustu röð á heimsmælikvarða
varðandi vöntun á námsúrræði í
raungreinakennslu. Þetta náms-
úrræði er svo óþekkt hér að ekki
hefur myndast orð yfir það í ís-
lensku máli, en á ensku er það oft-
ast nefnt „science center“ eða
„science museum“,
verður hér nefnt
tæknimiðstöð. Eflaust
þekkja margir þetta
af ferðalögum eða af-
spurn. Tæknimið-
stöðvar eru salir með
fræðandi og gagn-
virkum leiktækjum,
sérstaklega ætluðum
til að vekja umhugsun
um eðli, virkni og
aðra þekkingu. Not-
andinn öðlast þekk-
ingu um leið og hann
upplifir skemmtun og
gagnvirkni. Allir uppalendur vita
að reynslan er besti kennarinn, og
hvað er árangursríkara til kennslu
barna en fræðandi leikir? Þetta er
samt ekki eina hlutverk tækni-
miðstöðva. Flestar eru þær einnig
öflugur fræðslu- og kynningarmið-
ill á sviði tækniþróunarsögu, dag-
legrar tækni og nýjunga á tækni-
sviði. Tæknimiðstöðvar eru
yfirleitt settar upp og starfa út frá
þörfum skólanna og þykja sjálf-
sagðir viðkomustaðir nem-
endahópa einu sinni eða oftar á
skólagöngunni. Í raun er þetta svo
ómissandi þáttur í raungreina-
kennslu að fjölmörg ríki hafa mót-
að sérstaka stefnu um uppbygg-
ingu á þessu sviði. Þetta
námsúrræði er notað af öllum ná-
grannalöndum okkar og áhersla á
það fer stöðugt vaxandi í hinni
hröðu tækniþróun. Jafnt iðnríki
sem þróunarríki hafa séð þörfina
og mótað sér markvissa stefnu um
uppbyggingu á þessu sviði. Ís-
lenska skólakerfið er steypt í
sama mót og í grannlöndum okk-
ar, einkum Norðurlöndunum, þó
það sé sniðið að okkar aðstæðum.
Þjóðfélag okkar er ekki frábrugðið
öðrum hraðvaxandi tækni-
samfélögum hvað varðar þörf á
tæknimenntuðu fólki og kynningu
á tækniþróun og –menningu. Út-
tektir hafa verið gerðar sem sýna
að nauðsynlegt verður að fjölga
verulega í þeim hópi sem velur sér
tækni- og vísindagreinar sem
framtíðarstarf. Með öðrum orðum;
bráðnauðsynlegt er að efla áhuga
og skilning barna og ungmenna á
sviði raungreina og beina þannig
menntavali í æskilegan farveg. Á
grundvelli þessa hafa t.d. Norð-
menn mótað sérstaka stefnu um
uppbyggingu tæknimiðstöðva í öll-
um fylkjum landsins. Í stefnu
norskra stjórnvalda í þessum efn-
um segir m.a.:
„Byggðar verða upp
svæðistækni-
miðstöðvar í þágu
skólastarfs og al-
mennings á viðkom-
andi svæðum. Þær
skulu vera miðstöðvar
á sviði gagnvirkrar
þekkinarmiðlunar og
mynda heildstætt
þjónustunet í landinu.
Megintilgangurinn
með stofnun tækni-
miðstöðva er að
styrkja raungreina-
kennslu“. Önnur Norðurlönd nýta
þetta úrræði óspart, en flestar eru
tæknimiðstöðvar í Svíþjóð, nær 30
talsins. Þetta úrræði er forgangs-
mál í uppbyggingu skólamála í
hinum nýfrjálsu Eystrasalts-
löndum. T.d. beita stjórnvöld í
Lettlandi sér nú fyrir stofnun
fyrstu tæknimiðstöðvar þar.
Spyrja má hve sanngjarnt sé að
bera frammistöðu íslenskra nem-
enda saman við frammistöðu er-
lendra jafnaldra sem búa við betra
námsúrræði í þessum efnum. Ekki
er hægt að líta fram hjá þessum
áhrifaþætti þegar skoðaðar eru
niðurstöður Písa-kannana OECD,
en þar mældist árangur hér slak-
ari en við hefðum óskað. Hvers
eiga íslensk skólabörn að gjalda?
Áhugafólk um úrbætur í þessum
efnum hefur nú tekið höndum
saman og stofnað ÁTAK, sem
stendur fyrir: „Áhugasamtök um
tæknimiðstöð fyrir almenning og
kennslu“. ÁTAK hefur nú tekið
við undirbúningsstarfi sem staðið
hefur í nokkur ár. Kennaraháskóli
Íslands/SRR vann vandaða
skýrslu á sl. ári, byggða á áliti
sérfræðingahóps. Meginniðurstaða
hennar er að stofnun tækni-
miðstöðvar sé brýnt og tímabært
verkefni. En skilningur stjórn-
valda mætti vera meiri. Sótt var
um fjárveitingu á þessu ári til að
fá að vinnunni færustu sérfræð-
inga á þessu sviði. Sótt var um 20
milljónir, en Alþingi fannst tvær
nægja. Ekki virðist samt skortur á
opinberu fé til annarra útgjalda,
s.s. „landvarna“ eða „öryggisráðs“.
Ekki skal hér dæmt um nauðsyn
þess, en væri ekki meiri þörf á að
tryggja börnum okkar menntun til
jafns við aðrar þjóðir?
ÁTAK eru gjaldfrjáls áhuga-
samtök, opin öllum sem vilja úr-
bætur í þessum efnum. Beiðni um
skráningu má senda á póstfangið
tsi@tsi.is. Á heimasíðu samtak-
anna: www.tsi.is, má sjá meira um
verkefnið, grundvöll þess og víð-
tæka vinnu. Einnig má þar opna
heimasíður erlendra tækni-
miðstöðva og sjá hvernig þær nýt-
ast menntun og þjóðlífi. Þarna er
einnig að finna safn af fræðslusíð-
um á sviði raungreina.
Samtökin vinna í nánu og víð-
tæku samstarfi við fagfélög,
menntastofnanir og kennslustéttir.
M.a. starfar fjölmennur og ört
stækkandi samráðshópur að verk-
efninu, skipaður fulltrúum lands-
sambanda á sviði menntunar, at-
vinnulífs og menntastofnana og
sérfróðum aðilum. Efnt hefur ver-
ið til samstarfs við margar erlend-
ar tæknimiðstöðvar, t.d. í Kanada,
Noregi, Svíþjóð og Lettlandi. Ný-
lega var grunn- og framhalds-
skólum boðin aðild að þessari
vinnu og hafa margir þegar þegið
það. ÁTAK hefur boðið stjórnvöld-
um aðstoð við að uppfylla fyrirheit
þeirra um „menntun í fremstu
röð“. Beðið er viðbragða og að-
komu þeirra að þessu mikilvæga
máli.
Hvers eiga íslensk
skólabörn að gjalda?
Valdimar Össurarson
skrifar um námsúrræði í
raungreinakennslu
» Í raun er þetta svo
ómissandi þáttur í
raungreinakennslu að
fjölmörg ríki hafa mótað
sérstaka stefnu um upp-
byggingu á þessu sviði.
Valdimar Össurarson
Höfundur er verkefnisstjóri.
MORGUNBLAÐIÐ er með í
notkun móttökukerfi fyrir að-
sendar greinar. Formið er að
finna við opnun forsíðu
fréttavefjarins mbl.is vinstra
megin á skjánum undir Morg-
unblaðshausnum þar sem
stendur Senda inn efni eða neð-
arlega á forsíðu fréttavefjarins
mbl.is undir liðnum Sendu inn
efni. Ekki er lengur tekið við
greinum sem sendar eru í
tölvupósti.
Í fyrsta skipti sem formið er
notað þarf notandinn að skrá
sig inn í kerfið með kennitölu,
nafni og netfangi, sem fyllt er
út í þar til gerða reiti. Næst
þegar kerfið er notað er nóg að
slá inn netfang og lykilorð og er
þá notandasvæðið virkt.
Ekki er hægt að senda inn
lengri grein en sem nemur
þeirri hámarkslengd sem gefin
er upp fyrir hvern efnisþátt.
Þeir, sem hafa hug á að
senda blaðinu greinar í um-
ræðuna eða minningargreinar,
eru vinsamlegast beðnir að
nota þetta kerfi. Nánari upp-
lýsingar gefur starfsfólk
greinadeildar.
Móttöku-
kerfi
aðsendra
greina