Morgunblaðið - 11.05.2008, Síða 49

Morgunblaðið - 11.05.2008, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. MAÍ 2008 49 ✝ Guðrún Gests-dóttir fæddist á Seyðisfirði 27. júlí 1922. Hún lést á Hjúkrunarheimilinu Vífilsstöðum 5. maí síðastliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Hólm- fríður Jónsdóttir, f. 25.6. 1890, d. 4.4. 1970, og Gestur Jó- hannsson, f. 12.1. 1889, d. 12.3. 1970. Systkini Guðrúnar eru Valgerður, f. 1921, d. 2008; Jón, f. 1924, d. 1961; Friðrika, f. 1927; Kristín f. 1929, d. 2006; Hólmfríður, f. 1929; og Daníel, f. 1932. Guðrún giftist 20.4. 1946 Árna Finnbjörnssyni, f. á Hesteyri í Sléttuhreppi við Norður- Ísafjarðardjúp 16.6. 1921. Hann lést á Hjúkrunarheimilinu Vífils- stöðum 17.6. 2005. Dætur þeirra hjóna eru: 1) Hólmfríður, f. 1947. Börn hennar og Stefáns Páls- sonar, fyrri eiginmanns, eru: a) Árni, f. 1973, sambýliskona Eyrún Ósk Guðjónsdóttir og synir þeirra Guðjón Bjarki og óskírður dreng- ur, sonur Árna og Sólveigar Hrannar Sigurðardóttur er Stef- án Ingi, b) Anna Guðrún, f. 1975, sambýlismaður Þröstur Þorkelsson og dóttir Tinna, c) Guðrún Elísabet, f. 1975, sambýlis- maður Hilmar Veig- ar Pétursson og dóttir Eva Sólveig. Síðari eiginmaður Hólmfríðar er Jón Gauti Jónsson. 2) El- ísabet Guðný, f. 1950. Eiginmaður hennar er Ingþór Kjartansson, synir þeirra a) Kjartan Þór, f. 1982, b) Árni Gunnar, f. 1984, sambýliskona Erna Karen Þórarinsdóttir og barn þeirra Elísabet Lilja. Guðrún ólst upp í foreldra- húsum á Seyðisfirði. Hún fór í Menntaskólann á Akureyri þaðan sem hún útskrifaðist sem stúdent 1942. Hún vann um tíma hjá Eim- skipum og síðan sem húsmóðir. Hún bjó á árunum 1957 til 1961 í Berlín og síðan Prag með eig- inmanni og dætrum, búskaparár- in utan þess í Reykjavík. Útför Guðrúnar fór fram í kyrrþey frá Fossvogskirkju 9. maí síðastliðinn. Það er gott að minnast Guðrúnar Gestsdóttur, fyrrum tengdamóður minnar. Ég kynntist henni fyrir rúm- um fjörutíu árum þegar ég kom á heimili hennar í upphafi sambands míns við dóttur hennar Hólmfríði. Guðrún tók mér vel frá fyrsta degi og náðum við strax vel saman. Hún hafði mikinn áhuga á mönnum og málefn- um og ekki sakaði að ég þekkti vel til margra þeirra sem hún hafði kynnst á skólaárunum í Menntaskólanum á Akureyri og þeirra sem töldust til hennar vinahóps. Guðrún var uppalin á menningar- heimili á Seyðisfirði og voru æsku- stöðvarnar henni kærar alla tíð. Hólmfríður móðir hennar var dóttir Jóns Jónssonar alþingismanns í Múla og voru afkomendur hans og Múlaættin oft á vörum Guðrúnar. Faðir hennar Gestur Jóhannsson vann við verslun á Seyðisfirði og var heimili fjölskyldunnar í stóru húsi er stendur allhátt í hlíðinni í brekkunni undir klettabeltunum og var í dag- legu tali nefnt Múli. Heimilið var mannmargt enda börnin sjö og gesta- gangur mikill. Þar nam Guðrún hin góðu gildi mætra kvenna þess tíma og mun hún að loknu menntaskóla- námi hafa dvalið þar eystra í eitt ár á meðan hún sat í festum og saumaði fangamark í dúkalín er fóru í brúð- arkistilinn og enn má finna í fórum afkomenda hennar. Guðrún var greind, harðdugleg og hefði eflaust notið sín á vinnumark- aðinum, en svo fór að hún helgaði sig heimilinu alla ævi enda átti yngri dóttir hennar við veikindi að stríða í æsku og einnig mun eiginmanni hennar ekki hafa verið það að skapi að hún ynni utan heimilis. Athafna- þörf Guðrúnar fékk því útrás í heim- ilishaldinu í Hvassaleiti 39, enda var þar allt vel fægt og pússað og mat- argerð til fyrirmyndar. Guðrún hafði ánægju af fallegum munum og átti postulín, kristal og silfur er hún hafði keypt austan tjalds í Berlín og í Prag, en þar bjó hún á árunum 1957 til 1961. Á tyllidögum hélt hún veglegar matarveislur fyrir fjölskylduna og oft kom sér vel fyrir okkur sælkerana í hópnum að úr frystiskápnum virtist hún geta töfrað fram ómótstæðilegar kökur, ómælt. Guðrún var há, glæsileg og reist kona en svo fór á efri árum að hrygg- urinn gaf sig smám saman þannig að hún var rúmföst um langt árabil. Þótt líkamleg reisn hnignaði hélt hún fullri andlegri reisn til dánardags. Árni Finnbjörnsson, eiginmaður Guðrúnar, settist í helgan stein er hann var 64 ára og hún árinu yngri. Guðrún hafði yndi af ferðalögum og höfðu þau hjónin öll efni til þess að ferðast á efri árum, en því miður varð lítið úr því vegna líkamlegrar heilsu Guðrúnar. Það var ávallt gaman að rabba við Guðrúnu og fylgdist hún vel með og vildi fá fréttir af mínu fólki og öðrum er hún vissi að ég kunni deili á. Hún var amma góð og reynd- ist börnum mínum vel. Gengin er góð kona og vil ég senda dætrum hennar, mökum þeirra og öðru skyldfólki innilegar samúðarkveðjur. Stefán Pálsson Nú er komin sú stund að við kveðj- um ömmu okkar hana Guðrúnu Gestsdóttur eða ömmu í Hvassó eins og við kölluðum hana oftast. Lengst af ævi okkar systkina bjuggu amma og afi í Hvassaleitinu en þangað kom- um við ófáum sinnum og áttum góðar stundir. Amma passaði okkur börnin oft og sá mikið um Árna fyrstu ár hans. Heima hjá ömmu og afa átti hver hlutur sinn stað og ætíð var röð og regla á öllu. Þegar við gistum þar voru öll föt brotin snyrtilega saman fyrir háttinn sem er góður siður sem við höfum þó ekki náð að innræta langömmubörnunum. Jafnframt hjálpaði amma okkur við heimanám og kenndi okkur marga gagnlega hluti svo sem á klukku, nöfn plánet- nanna í sólkerfinu og hvað höfuð- borgirnar í Evrópu heita. Hún hefði vafalaust orðið mjög góður kennari ef hún hefði farið þá braut. Við minnumst einnig frábærra ís- bíltúra jafnt sem utanlandsferða með afa og ömmu, meðal annars til Flór- ída þar sem Disney World og aðrir merkir staðir á heimsminjaskrá barna voru heimsóttir. Við ömmu- og afabörnin vorum ekki mörg og feng- um því öll mikla athygli. Amma var mikið jólabarn og voru jólin alltaf mikil hátíðarstund hjá henni. Langt fram eftir aldri okkar barnabarnanna hélt stórfjölskyldan aðfangadags- kvöld og annan í jólum hátíðleg í Hvassaleitinu. Þar voru hefðirnar í hávegum, konfekt var handgert, margar sortir bakaðar, jólamaturinn framreiddur á mávastellinu og ófáum sinnum komu hörðustu og stærstu pakkarnir frá ömmu og afa. Frá því að við höfðum vit til mættum við til ömmu fyrir jólin til að baka smákök- ur eftir kúnstarinnar reglum og það var ekki fyrr en próflestur á síðari skólastigum tók allan okkar tíma í desember sem við urðum að láta af þeirri hefð. Síðustu árin hefur amma dvalið á Vífilsstöðum og verið rúmliggjandi en hún hefur staðið sig eins og hetja og alltaf verið okkur barnabörnunum góð. Við þökkum öllu því góða starfs- fólki sem annaðist ömmu þar fyrir umhyggjuna. Við kveðjum hana ömmu hinsta sinni og þökkum henni góðar stundir, væntumþykjuna og fyrir að vera yndisleg amma. Árni Stefánsson, Anna Guðrún Stefánsdóttir og Guðrún Elísabet Stefánsdóttir. Guðrún Gestsdóttir ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, SIGURÐUR EINAR EYSTEINSSON, sem andaðist á Vífilsstöðum fimmtudaginn 1. maí, verður jarðsunginn frá Langholtskirkju þriðjudaginn 13. maí kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir. Sigrún Haraldsdóttir, Dagbjört Einarsdóttir, Ómar Þorleifsson, Finnur Einarsson, Jóhanna Sigríður Sigurðardóttir og barnabörn. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og einlægan stuðning vegna andláts og útfarar elskulegrar eiginkonu, móður, dóttur, tengdadóttur, systur, mágkonu og frænku, JÓHÖNNU KRISTÍNAR RAGNARSDÓTTUR hárgreiðslumeistara, Hjallabraut 37, Hafnarfirði. Kærar þakkir til starfsfólks krabbameinsdeildar 11-E á Landspítalanum við Hringbraut fyrir frábæra umönnun og hlýhug í okkar garð. Hjálmar Kristinsson, Hjalti Hjálmarsson, Helga Hjálmarsdóttir, Kristín Lundberg, Kristinn Sigurðsson, Edda V. Halldórsdóttir, Sigurður Rúnar Ragnarsson, Ragnheiður Hall, Sigurborg Ragnarsdóttir, Kristrún Ragnarsdóttir, Snorri Styrkársson og systkinabörn. ✝ Móðir okkar, tengdamóðir og amma, SIGRÚN JÚLÍUSDÓTTIR, Brúnavegi 9, Reykjavík, lést á öldrunardeild Landspítala í Fossvogi sunnudaginn 4. maí. Jarðarförin fer fram frá Laugarneskirkju föstudaginn 15. maí kl. 15.00. Júlíus Kristinn Magnússon, Sigrún Magnúsdóttir, Jón Jóhannesson, Elín Magnúsdóttir, Rudi Rudari og barnabörn.                               ! "# $!% &   ' (!!%  ! $) (!!*% !! +! ( (!!*% , ( '$  (!!*% - $ .! $  (!!*% /  0  (!!*% 0  1 ! (!!*% Útfararþjónusta Davíðs Ósvaldssonar ehf. Davíð Ósvaldsson Útfararstjóri S. 896 6988 / 553 6699 Óli Pétur Friðþjófsson Útfararstjóri S. 892 8947 / 565 6511 Steinsmiðja • Viðarhöfða 1 • 110 Reykjavík •  566 7878 • Netfang: rein@rein.is • Vönduð vinna REIN Legsteinar í miklu úrvali

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.