Morgunblaðið - 11.05.2008, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. MAÍ 2008 51
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug
við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns,
föður, tengdaföður, afa og langafa,
GUNNARS GUÐNA SIGURJÓNSSONAR,
Hjallalandi 32.
Rósa Hermannsdóttir,
Hermann Gunnarsson, Svava Viktoría Clausen,
Alfreð Örn Hermannsson, Marisa Somvichian,
Gunnar Axel Hermannsson, Svava Óttarsdóttir,
Gestur Hermannsson,
Viktoría G. Hermannsdóttir, Bjarni Lárus Hall
og langafabörn.
✝
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við
fráfall og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu,
langömmu og langalangömmu,
GUÐRÚNAR ÞORSTEINSDÓTTUR,
Hrafnistu,
Hafnarfirði.
Starfsfólki Hrafnistu í Hafnarfirði sendum við
sérstakar þakklætiskveðjur.
Helga Henrysdóttir,
Henry Þór Henrysson, Gíslína Garðarsdóttir,
Haraldur Henrysson, Elísabet Kristinsdóttir,
Hálfdan Henrysson, Edda Þorvarðardóttir,
Hjördís Henrysdóttir, Gísli Þorsteinsson,
Þorsteinn Á. Henrysson, Lára Erlingsdóttir
og ömmubörnin.
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is
Vaktsími: 565 5892 & 896 8242 • Sólarhringsvakt
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur
Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar
Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is
Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Bryndís ValbjarnardóttirSverrir Einarsson
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför
Hermann Jónasson Yvonne Tix
✝
Alúðarþakkir.
Við höfum verið umvafin hlýhug, umhyggju, sam-
úð, ást og vináttu vegna útfarar elskaðrar eigin-
konu, móður, tengdamóður, fóstru og ömmu,
UNNAR KJARTANSDÓTTUR,
Álftamýri 6,
Reykjavík,
sem lést þann 10. apríl.
Fyrir það færum við ykkur okkar hjartans þakkir.
Sérstakar þakkir færum við læknum og hjúkrunarfóki á deild 11 E,
geisladeild og göngudeild krabbameinssjúkra á Landspítalanum við
Hringbraut, heimahlynningu LSH, líknardeild í Kópavogi og Helgu
Sigurjónsdóttur á Landspítalanum Fossvogi.
Guð blessi ykkur öll.
Garðar Ingvarsson,
Karen, Sigríður Anna, Ingvar, Ingibjörg Elísabet Garðarsbörn,
tengdabörn, fósturbörn og barnabörn.
✝
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við fráfall
ástkærs sambýlismanns, föður, tengdaföður, afa
og langafa,
HAUKS RUNÓLFSSONAR,
Víkurbraut 30,
Hornafirði.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk krabbameinsdeildar
Landspítalans, starfsfólk Sjúkrahótelsins á
Rauðarárstíg 18, hjúkrunarþjónustan Karitas og
heimaþjónusta og starfsfólk HSSA.
Halla Bjarnadóttir og fjölskylda.
Börn hins látna og fjölskyldur þeirra.
✝
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og
vinarhug við andlát og útför móður okkar, tengda-
móður og ömmu,
STEINUNNAR JÓSEFSDÓTTUR,
dvalarheimilinu Höfða, Akranesi,
áður Deildartúni 5.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Höfða fyrir frábæra
umönnun.
Adda Ingvarsdóttir, Viðar Karlsson,
Elsa Ingvarsdóttir, Böðvar Jóhannesson,
Ellert Ingvarsson, Svanhildur Kristjánsdóttir
og ömmubörn.
✝ Sigurjón Guð-mundsson
fæddist að Kúlu-
dalsá í Innri-
Akraneshreppi 8.
júlí 1937. Hann lést
á Sjúkrahúsi Akra-
ness 3. maí sl.
Foreldrar hans
voru Guðmundur
Sigurður Jónsson,
f. 26.2. 1907, d. 8.9.
1995, og Jónína
Sigurrós Gunn-
arsdóttir, f. 5.3.
1912, d. 2.1. 2001.
Systkini Sigurjóns eru 1) Jón
Auðunn, f. 15.3. 1934. 2) Jó-
hanna Kristín, f. 28.4. 1935. 3)
Þorvaldur, f. 30.7. 1940. 4)
Ragnheiður, f. 2.3. 1948. 5) Guð-
rún, f. 24.9. 1950.
Eftirlifandi eiginkona Sig-
urjóns er Kristín Marísdóttir, f.
27.5. 1944. Þau giftust 20.4.
1963, og hófu það vor búskap að
Kirkjubóli í Innri-Akranes-
hreppi, þar sem þau bjuggu æ
síðan.
Börn þeirra eru: 1) María, f.
17.10. 1964, hún á fjögur börn
og eitt barnabarn. Sambýlis-
maður Maríu er Þorsteinn Máni
Árnason. 2) Sigurrós, f. 28.10.
1965, gift Hallgrími Þ. Rögn-
valdssyni, þau eiga fjögur börn
og eitt barnabarn. 3) Ingibjörg,
f. 2.9. 1970, gift
Agli Þór Eiríks-
syni, þau eiga tvö
börn. 4) Pétur, f.
16.2. 1975, kvænt-
ur Söru Margréti
Ólafsdóttur, þau
eiga þrjú börn. 5)
Unnur, f. 20.5.
1980, hún á tvo
syni. Sambýlis-
maður Unnar er
Alf Wardum. 6)
Guðjón, f. 3.9.
1981. 7) Kristín, f.
29.3. 1987.
Sigurjón fluttist með fjöl-
skyldu sinni að Innra-Hólmi í
Innri-Akraneshreppi árið 1945.
Hann stundaði öll algeng sveita-
störf og vann einnig við fisk-
vinnslu. Hann útskrifaðist bú-
fræðingur frá Hvanneyri vorið
1959 og starfaði alfarið við bú-
skap eftir það, í nánu samstarfi
við foreldra sína í fjölda ára og
síðar með dóttur sinni og
tengdasyni eftir að þau hófu bú-
skap að Innra-Hólmi, en jarð-
irnar Innri-Hólmur og Kirkjuból
liggja saman.
Sigurjón átti við vaxandi van-
heilsu að stríða síðustu misseri
og dvaldi síðustu mánuði á
Sjúkrahúsi Akraness.
Útför hans var gerð frá
Innra-Hólmskirkju 9. maí sl.
Eitt sinn verða allir menn að deyja
Eftir bjartan daginn kemur nótt
Ég harma það en samt ég verð að segja
að sumarið líður allt of fljótt
(Vilhjálmur Vilhjálmsson.)
Siggi frændi minn á Kirkjubóli
er dáinn ómar í höfði mér. Ég finn
sting í hjarta mér og verð klökkur,
mér líður illa.
Minningarnar um góðan mann
bæta líðanina þó aðeins. Ég var svo
heppinn að fá að vera í sveit á
Kirkjubóli í þrjú sumur.
Siggi hafði alltaf nóg fyrir okkur
vinnumennina að starfa og dáðist
ég oft að skipulagi og stjórnunar-
hæfileikum hans. Mér leið og líður
alltaf vel á Kirkjubóli enda lærði ég
þar margt og mikið undir hand-
leiðslu góðs fólks. Okkur Sigga
kom alltaf vel saman enda var hann
allt í senn áhugasamur, vinnusam-
ur og laghentur. Við vorum æv-
inlega vaktir á morgnana með þeim
fleygu orðum: „Hæ strákar það er
ræs“ og stukkum við þá á fætur til-
búnir að takast á við verk dagsins,
þetta voru skemmtilegir tímar.
Síðan þetta var hef ég alltaf
komið öðru hverju í kaffisopa og
spjall og hurfu þar klukkutímarnir
fljótt þegar Siggi rifjaði upp gamla
tíma, sagði mér sögur og eins gát-
um við spjallað um vélar og tæki og
síðast en ekki síst um sameiginleg-
an Landrover-áhuga okkar. Ég
man hvað Siggi var ánægður og
stoltur þegar hann sýndi mér
Landroverinn sinn og sagði: „Hæ,
Baddi, ég þarf endilega að fá þig til
að kíkja á glóðarkertin í honum.“
Erill og tímaleysi gerðu það að
verkum að ekki er ég enn búinn að
laga þetta fyrir þig, Siggi minn, og
nú er það orðið of seint!
Mér finnst mjög sárt að hafa
ekki getað komið spjallað við þig
undanfarið ár, ég gat ekki horfst í
augu við þá staðreynd að þetta
væri tapað stríð hjá þér og sjúk-
dómurinn smátt og smátt að eyði-
leggja svona góðan mann. Er við
lútum höfði og kveðjum þig, frændi
minn, veit ég með vissu að þér líður
vel núna, ert örugglega að sansa
eitthvað hjá Guði. Vertu sæll, Siggi
minn, og takk fyrir allt, við sjáumst
síðar.
Hvíldu í friði.
Bjarni Jónsson.
Sigurjón
Guðmundsson
Elski mamma mín,
nú eru komin til Jesú
og ég er viss um að þú
varst sótt af englum.
Þú varst svo falleg og
góð að utan sem innan.
Það var alltaf svo gott
að ræða við þig og þú dæmdir aldrei
neinn, áttir alltaf varnarorð handa
öllum, smærstu og stærstu, allir
voru jafningjar í þínum huga. Það
var svo gott að hlæja með þér, það
var alltaf svo stutt í hláturinn þinn
þó lífið færi ekki alltaf mjúkum
höndum um þig elsku mamma mín.
Alltaf hafðirðu meiri áhyggjur af
okkur krökkunum en sjálfri þér. Ég
sit hér og skil bara ekkert í því að þú
sért farin frá okkur en líklega hefur
vantað í umönnunarstörf á himnum
einvern með hlýtt faðmlag og hjarta
á réttum stað.
Ömmuhlutverkið fór þér afskap-
lega vel. Þú varst kannski ekki þessi
týpíska amma í kleinubakstri og
jólakökugerð, fórst frekar í sund
með liðið og í sjoppuna á eftir. Þá var
nú oft fjör. Svo þurfti náttúrlega að
snyrta sig á eftir. Já, þú vildir alltaf
vera vel til höfð og ég var alltaf stolt
af því þegar var talað um hvað ég
væri lík þér.
Elsku mamma mín. Nú ert þú á
himnum hjá pabba þínum og bræðr-
unum sem þú talaðir svo mikið um og
ég veit að þér líður svo vel. Það er
styrkur í sorginni að vita það.
Minning þín er ljós í lífi okkar
allra. Sofðu rótt.
Þín
Bryndís.
Elsku nafna mín.
Það eru til svo mörg falleg orð til
að lýsa því hve góð kona þú varst.
Þegar ég hugsa til baka þá koma svo
Hafdís Þórarinsdóttir
✝ Hafdís Þórar-insdóttir fædd-
ist á Akureyri 22.
maí 1949. Hún lést
2. mars síðastliðinn
og var jarðsungin
frá Akureyrar-
kirkju 10. mars.
góðar minningar upp í
huga minn af okkur
tveimur saman. Hvað
ætli ég hafi verið
margar helgar hjá
þér? Þær helgar voru
alltaf svo skemmtileg-
ar og góðar. Ég man
hvað var gaman þegar
þú leyfðir mér alltaf að
tæma eldhússkápana
og fara með allt í bað
og hafa mikla froðu.
Allir morgnarnir sem
ég borðaði cocopuffs
fram í eldhúsi og á
meðan varst þú í uppi í rúmi að
drekka kaffið sem ég færði þér í
rúmið því þér fannst svo gott að sofa
út en ég vakti þig alltaf eldsnemma
með kaffinu.
Síðustu ár hafa nú verið aðeins
öðruvísi hjá okkur, en þú varst alltaf
besta frænka og ég á eftir að sakna
þín svo mikið. En nú ertu komin á
góðan stað og ég veit að þér líður vel
og þá líður mér vel, elsku nafna mín.
Takk fyrir allar góðu stundirnar
okkar saman.
Þín nafna,
Hafdís.
Þegar ég sá nafnið hennar
Hafdísar Þórarinsdóttur
vinkonu minnar datt mér í
hug að setja smágrein um
þessa elsku. Hún var alltaf
kát og hress á leikjum þeg-
ar ég sá hana og líka góð
kona.
Mig langar að votta syst-
ur hennar, börnum og
skyldfólki samúð mína.
Jón Óskar Ísleifsson.
Haltu guð í hendi mína
hjá mér vertu dag og nótt.
Láttu englaljós þitt skína
svo ég sofi vært og rótt.
Elsku amma Dísa, við
gleymum þér aldrei. Það er
svo gott að kúra undir fínu
sængunum sem þú gafst
okkur.
Minning þín lifir í hjarta
okkar.
Takk fyrir allt sem þú
gerðir fyrir okkur.
Guddurnar þínar,
Silja Ýr og
Lydía Ýr.
HINSTA KVEÐJA