Morgunblaðið - 11.05.2008, Side 56

Morgunblaðið - 11.05.2008, Side 56
56 SUNNUDAGUR 11. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ AUÐLESIÐ EFNI Krónprins-hjón Danmerkur Friðrik og Mary komu til Íslands á mánu-dag í boði Ólafs Ragnars Grímssonar, for-seta Íslands, og Dorritar Moussaieff, forseta-frúar, og voru fram á fimmtu-dag. Þegar hjónin konung-legu renndu í hlað á Bessa-stöðum beið þeirra fjöldi inn-lendra og er-lendra ljós-myndara og blaða-manna, auk Ólafs og Dorritar. Friðrik krón-prins lýsti ánægju sinni með að þau hjónin væru komin hingað í fyrsta sinn saman. Hann sagðist vera spenntur að skoða svæði sem for-feður hans hafa heim-sótt við ýmis tæki-færi og væri sérstak-lega ánægju-legt að geta deilt reynslunni með eigin-konu sinni. Þétt-skipuð dag-skrá beið Krónprins-hjónanna, en þau skoðuðu handrita-sýninguna í Þjóð-menningar-húsinu, fóru á hest-bak í Mosfells-bæ, á Þing-velli að snæða með forsætis-ráðherra og frú og gengu að svo-kölluðum konungs-steinum í hlíðinni fyrir ofan Geysi. Friðrik krón-pins og Mary á Íslandi Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson Friðrik, Mary, Dorrit og Ólafur á Bessastöðum við komu krónprins-hjónanna. Ólafur F. Magnússon segir að ráðning Jakobs Frímanns Magnússonar í starf framkvæmda-stjóra miðborgar-mála sé í samræmi við reglur Reykjavíkur-borgar um ráðningar starfs-manna. Hann segir að laun Jakobs séu sambæri-leg við laun fyrr-verandi miðborgar- stjóra R-listans frá árinu 2005. Jakob fær 710 þúsund krónur í mánaðar-laun auk 150 þúsund króna í nefndar-laun. Tölvu-póstar og sím-hringingar hafa streymt inn á skrif-stofu Starfsmanna-félags Reykjavíkur-borgar vegna frétta af ráðninga-kjörum Jakobs. Garðar Hilmarsson, for-maður starfsmanna-félagsins, segir að laun Jakobs séu greini-lega mun hærri en það sem þekkist al-mennt hjá borginni. Garðar segist aldrei hafa fengið álíka við-brögð við nokkurri ráðningu. Óánægja með laun Jakobs Jakob Frímann Magnússon Á fimmtu-dag kynnti Davíð Oddsson, for-maður banka-stjórnar Seðla-banka Íslands, skýrsluna „Fjármála-stöðugleika“. Í sam-nefndri skýrslu fyrir ári var niður-staða greiningar Seðla-banka Íslands sú að fjármála-kerfið væri í megin-atriðum traust. Sú niður-staða er óbreytt. Segir í skýrslunni að þrátt fyrir skulda-aukningu hafi hrein eigna-staða heimila batnað á undan-förnum árum. Greiðslu-byrði er á heildina litið vel viðráðan-leg ef ráðstöfunar-tekjur skerðast ekki mikið. Staða margra heimila verður hins vegar erfiðari á næstu árum. Skuldir hinna skuld-settustu meðal þeirra hafa aukist langt um-fram meðal-tal. Þessi heimili gætu lent í greiðslu-erfiðleikum. Margt bendir til þess að húsnæðis-verð sé langt yfir langtíma-jafnvægi. Þess vegna er gert ráð fyrir því að verð íbúðar- og atvinnu-húsnæðis lækki á næstu árum. Fjár-mála- stöðug- leiki? Á samráðs-fundi full-trúa ríkis-stjórnar og aðila vinnu-markaðarins á þriðju-daginn var mikill ein-hugur um að vinna saman að því að kveða verð-bólguna niður. Fundurinn var boðaður með tals-verðum fyrir-vara og hefur annar fundur verið ákveðinn í sumar. Fyrir þann fund munu sér-fræðingar fara yfir mál og greina vandann og koma með til-lögur um til hvaða að-gerða megi grípa. Fundinn sátu, auk ráð-herra og embættis-manna, full-trúar Sam-taka atvinnu-lífsins, Alþýðu-sambands Íslands, BSRB, BHM og Sam-taka íslenskra sveitar-félaga. Vilja eyða verð-bólgu Shari Villarosa, sendi-fulltrúi Banda-ríkjanna í Búrma, sagði á miðviku-dag að um 100.000 manns kynnu að hafa látið lífið í felli-bylnum um helgina. Villarosa bætti við að 95% húsanna á svæðinu hefðu eyði-lagst í felli-bylnum og sex metra hárri flóð-bylgju sem fylgdi honum á föstu-daginn í síðustu viku. Milljónir manna hafa misst heimili sín. Villarosa sagði að mikill hörgull væri á mat-vælum á hamfara-svæðunum og hætta væri á far-sóttum vegna skorts á hreinu vatni. Sam-tökin áætla að 40% þeirra sem hafa látið lífið eða er saknað séu börn. John Holmes hjá Sam-einuðu þjóð-unum, sagði að og hjálpar-gögn væru að berast til landsins. 24 ríki hefðu lofað neyðar-aðstoð, and-virði sam-tals 30 milljóna dollara, sem nemur 2,3 milljörðum króna. Rauði kross Íslands veitti 5 milljónir króna úr hjálpar-sjóði sínum til neyðar-aðstoðar í Búrma til handa fórnar-lömbum felli-bylsins Nargis. Um 100.000 manns fórust REUTERS Börn á tréi sem rifnaði upp með rótum. Barack Obama vann sann-færandi sigur í forkosningum Demó- krataflokksins í Norður-Karólínu á þriðju-dag. Í Indiana bar Hillary Clinton sigur úr býtum en aðeins með naum-indum. Hún fékk 51% greiddra at-kvæða, en Obama 49%. Obama virðist nú aðeins vanta 183 full-trúa til að tryggja sér út-nefningu sem forseta-efni banda-ríska Demókrata-flokksins á flokks-þinginu í ágúst, en til þess þarf 2025. Eru nú aðeins eftir for-kosningar í sex ríkjum og það er úti-lokað fyrir Clinton að brúa bilið. Lík-lega verður því lagt hart að henni á næstu dögum að láta nú staðar numið. Annað gæti skaðað flokkinn og gefið John McCain gott svig-rúm Obama með forskot REUTERS Barack og Michelle Obama eftir sigurinn. Dagný Linda Kristjánsdóttir, fremsta skíða-kona Íslands seinustu ár, hefur ákveðið að leggja skíðin á hilluna og hætta æfingum og keppni. Dagný Linda hefur í vetur átt við meiðsl að stríða á hægri fót-legg og og þarf að fara í aðgerð. Í frétta-tilkynningu frá Skíða-sambandi Íslands segist Dagný Linda sátt við ákvörðunina þótt það séu henni mikil von-brigði að geta ekki keppt á Ólympíu-leikunum í Vancouver í Kanada árið 2010, eins og hún hafði stefnt að. „Á mínum ferli hef ég upp-lifað margt og haft tæki-færi til þess að ferðast til fjöl-margra landa vegna æfinga og keppni. Fyrir það er ég afar þakk-lát,“ sagði Dagný Linda. Dagný Linda setur skíðin á hilluna Morgunblaðið/Brynjar Gauti Dagný Linda Kristjánsdóttir Netfang: auefni@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.