Morgunblaðið - 03.07.2008, Blaðsíða 1
F I M M T U D A G U R 3. J Ú L Í 2 0 0 8
STOFNAÐ 1913
180. tölublað
96. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
REYKJAVÍKREYKJAVÍK
KOM, SÁ OG SIGRAÐI
Í HRÓARSKELDU
DAGLEGTLÍF
Þolir frost og funa
og alls konar volk
26
79
/
IG
11
Veiðarfæri
til lax-silungs-og sjóveiða
Þú færð IG-veiðivörur
í næstu sportvöruverslun
Eftir Ágúst Inga Jónsson
aij@mbl.is
INNAN kirkjunnar er nú rætt um það að sjálfboðaliðar
verði fengnir til að gæta kirkna víða um land yfir mesta
ferðamannatímann.
Fjórar ástæður eru einkum fyrir þessu; vilji til að
auka þjónustu kirkjunnar, ótti við að spjöll verði unnin á
kirkjum, fjölgun þjófnaða úr kirkjum á síðustu árum og
síðast en ekki síst það að þeim kirkjujörðum hefur fækk-
að talsvert á síðustu árum þar sem búskapur er.
Séra Kristján Valur Ingólfsson, prestur á Þingvöllum
og formaður helgisiðanefndar kirkjunnar, segir þessa
umræðu tengjast hugmyndum um aukið sjálfboðaliða-
starf innan kirkjunnar. „Víða er æskilegt að hafa kirkj-
urnar meira opnar en nú er og við
sem þjónustum slíkar kirkjur höfum
bent á það úrræði að efla sjálf-
boðaliðastarf til að gæta þeirra. Sjálf-
boðaliðar í þessu starfi yrðu frekar
eldra fólk sem hefur tíma aflögu og
þarf ekki að selja alla sína vinnu. Litl-
ar kirkjur myndu ekki ráða við að
vera með mann á launum við slíkt
gæslustarf,“ segir Kristján Valur.
Hann segir einkum rætt um kirkjur á þekktum stöð-
um og einnig ákveðna helgidóma sem væri hægt að láta
vita að væru opnir á ákveðnum dögum yfir sumarið.
Prestar á varðbergi | 8
Sjálfboðaliðar gæti guðshúsa
Ástæðan er ótti við eignaspjöll og fjölgun þjófnaða
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
FJÓRIR starfsmenn, þar af þrír af
fjórum framkvæmdastjórum, hafa
sagt upp hjá Reykjavík Energy In-
vest (REI) en þeir starfa áfram hjá
fyrirtækinu um sinn þar sem ekki
hefur verið gengið frá starfslokum
við þá, að sögn Kjartans Magnús-
sonar, borgarfulltrúa og stjórnarfor-
manns Orkuveitu Reykjavíkur.
REI heldur áfram
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins er ástæða uppsagnanna sú
að starfsmennirnir eru orðnir
þreyttir á samstöðuleysi allra borg-
arfulltrúa um framtíð verkefna REI.
Kjartan Magnússon segir að níu
starfsmenn vinni hjá REI hérlendis.
Hann bendir á að REI sé deild inn-
an OR og uppsagnirnar hafi ekki
veruleg áhrif á starfsemina. Verk-
efnin séu í góðum farvegi auk þess
sem vinnan fari að miklu leyti fram
hérlendis og sé að sumu leyti unnin
af starfsmönnum OR. „Það er til-
tölulega auðvelt að koma verkefnum
áfram til þeirra,“ segir Kjartan.
Spurður hvort uppsagnirnar þýði
að REI riði til falls segir Kjartan
svo ekki vera. Hann segir að ekki sé
ljóst hvort nýtt fólk verði ráðið í
staðinn fyrir þá sem hafa sagt upp,
enda auðvelt að kalla á aðra starfs-
menn OR. Kjartan leggur áherslu á
að starfsmennirnir hafi ekki sagt
upp til þess að skaða verkefnin.
„Verkefnin eru ekki í hættu og þeir
hafa gætt þess í sínu starfi og við
þessar uppsagnir að skaða hvorki
þau né fyrirtækið.“
Fjórir segja upp hjá REI
Starfsmenn þreyttir á samstöðuleysi
borgarfulltrúa um framtíð verkefna
Í HNOTSKURN
» REI var formlega stofnað11. júní í fyrra um útrás-
arverkefni Orkuveitunnar.
» Mikið hitamál varð íkringum REI og starfsemi
félagsins á liðnu hausti og
varð það til þess að þáverandi
meirihluti borgarstjórnar féll.
» Nýlega var forstjóra REIsagt upp störfum og nú
hafa fjórir lykilstarfsmenn
sagt upp.
SIGRÍÐUR Friðriksdóttir ber það ekki með sér að hafa lifað heila öld og
þar af unnið baki brotnu í 40 ár við fiskverkun. Hún heldur nú samt upp á
100 ára afmæli sitt í dag þó að hún geri sjálf ekki mikið úr áfanganum. Sig-
ríður var einn fárra kvenverkstjóra á sínum tíma og segir flest hafa breyst
til betri vegar frá því þegar konur þurftu að margsanna sig á við karlmenn
til að vera treyst í ábyrgðarstöður. „Mig vantaði engan kjark!“ | 15
„Mig vantaði engan kjark!“
Morgunblaðið/Ómar
Ávöxtun Líf-
eyrissjóðs verzl-
unarmanna var
neikvæð á fyrri
helmingi ársins.
Þorgeir Eyjólfs-
son, forstjóri LV,
segir að geng-
islækkun krón-
unnar hafi unnið
á móti lækkunum
á erlendum mörkuðum, en geng-
isvarnir sjóðsins dregið úr ávinn-
ingi af gengislækkuninni.
Meðalávöxtun LV var 10,6% síð-
ustu fimm árin og sjóðurinn er á
meðal þeirra lífeyrissjóða sem hafa
náð bestri ávöxtun. » Viðskipti
Neikvæð ávöxtun hjá LV
Þorgeir Eyjólfsson
Fransk-kólumbíska stjórnmála-
manninum Ingrid Betancourt,
þremur Bandaríkjamönnum og
fleiri gíslum var bjargað í aðgerð
sérsveitar með aðstoð þyrlu í frum-
skógi í Kólumbíu í gær. Marxíska
skæruliðahreyfingin FARC rændi
Betancourt árið 2002 og Banda-
ríkjamennirnir höfðu verið í gísl-
ingu frá 2003. Auk þeirra voru ell-
efu kólumbískir hermenn frelsaðir í
aðgerðinni. | bogi@mbl.is
Betancourt bjargað
ásamt fleiri gíslum
Fagnaðarfundur Betancourt (t.h.)
heilsar móður sinni í Bogota.
Hópur banda-
rískra vísinda-
manna frá
Brown Univers-
ity og stofn-
uninni NIDA,
sem sérhæfir sig
í fíkniefnarann-
sóknum, hefur
verið hér á landi
í viðræðum við
stjórnendur SÁÁ, Íslenskrar erfða-
greiningar og Landspítalans um
mögulegt samstarf um rannsóknir
á vímuefnameðferð og -úrræðum.
Yfirmaður NIDA, dr. Nora Volkow,
leiðir þennan hóp. » 12
Samstarf um rannsóknir
Dr. Nora Volkow