Morgunblaðið - 03.07.2008, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JÚLÍ 2008 11
FRÉTTIR
Eftir Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
GLITNIR gerir ráð fyrir að al-
þjóðlegi umhverfissjóðurinn Glitn-
ir Globe, sem beintengdur er nýja
sparnaðar-
reikningnum
Save & Save,
muni innan fárra
ára hafa um
hálfan milljarð
króna til ráðstöf-
unar.
Sjóðnum er
ætlað að úthluta
fjármunum til
rannsókna og
verkefna á sviði umhverfismála
með sérstaka áherslu á endurnýj-
anlega orku og sjálfbæran sjávar-
útveg; greinar sem bankinn hefur
lagt sérstaka áherslu á hér á landi
og erlendis.
Greiða 0,1% af innstæðunni
Byrjað verður á að bjóða upp á
sparnaðarreikninginn hér á landi
og í Noregi en á næstunni verður
hann einnig í boði í Svíþjóð, Finn-
landi og Bretlandi. Greiðir Glitnir
0,1% af innstæðu á reikningn-
ingnum á ársgrundvelli og renna
þeir fjármunir í umhverfissjóðinn.
Formaður stjórnar Glitnir Globe
er Árni Magnússon, fram-
kvæmdastjóri á orkusviði bankans
og fv. félagsmálaráðherra. Árni
segir í samtali við Morgunblaðið
að lítil reynsla sé komin á sjóðinn,
enda reikningurinn verið kynntur
um miðja síðustu viku, en fyrstu
viðbrögð hér og í Noregi séu mjög
góð.
Nafn sjóðsins ber með sér að
áhersla verður lögð á stuðning við
verkefni á heimsvísu. Byrjað verði
í Noregi og hér á landi með reikn-
inginn en síðan fari hann á aðra
markaði bankans. Sjóðurinn muni
vaxa og taka að sér ýmis verkefni
á alþjóðavettvangi. Árni telur
raunhæft að ætla að sjóðurinn nái
hálfum milljarði til ráðstöfunar á
næstu þremur til fjórum árum.
Það fari allt eftir viðbrögðum við-
skiptavina bankans hvort það ger-
ist hraðar eða hægar.
Fyrirtæki og einstaklingar
sýna mikinn áhuga
„Þetta er ekki eingöngu spurn-
ing um að Glitnir ætli að auka inn-
lánin, heldur ætlar bankinn að láta
gott af sér leiða með beinum
hætti. Við höfum fundið mikinn
áhuga fyrirtækja og einstaklinga á
að taka þátt í verkefnum bankans
á sviði orkumála og sjávarútvegs,“
segir Árni.
Um aðra stjórnarmenn í Glitnir
Globe segir hann einvalalið vera á
ferðinni. Ánægjulegt hafi verið að
fá nóbelsverðlaunahafann Pac-
hauri til liðs við verkefnið, sem og
Kristínu háskólarektor og Norð-
mennina Gretu Waitz, Jack Waitz
og Johan Olav Koss.
Hver og einn hafi lagt sitt af
mörkum í margs konar stuðningi
við verkefni á sviði samfélags- og
góðgerðarmála.
Stefna á hálf-
an milljarð í
Glitni Globe
Umhverfissjóði Glitnis ætlað að styrkja
ýmis verkefni á sviði endurnýjanlegrar
orku og sjálfbærs sjávarútvegs
Árni Magnússon
Í HNOTSKURN
»Sparnaðarleiðin Save-&Save er að vissu leyti
svar Glitnis við reikning-
unum Icesave hjá Lands-
bankanum og Kaupthing
Edge, nema að keppinaut-
arnir bjóða ekki slíka reikn-
inga hér á landi enn sem
komið er.
»Glitnir Globe verður fjár-magnaður með framlagi
bankans af hverjum sparn-
aðarreikningi, eða 0,1% af
innstæðu reikningshafa.
Aðrir í stjórn sjóðsins Glitnir Globe, auk Árna
Magnússonar, eru dr. Rajendra K. Pachauri
hagfræðingur, sem hlaut Nóbelsverðlaun á síð-
asta ári ásamt Al Gore, dr. Kristín Ingólfs-
dóttir, rektor Háskóla Íslands, hjónin Grete og
Jack Waitz frá Noregi og Johan Olav Koss,
framkvæmdastjóri samtakanna Right to Play.
Dr. Pachauri hefur fylgst með jarðhitaverk-
efnum Glitnis og uppbyggingu á starfsemi
bankans á Indlandi þar sem verið er að þróa
jarðvarmavirkjanir. Grete Waitz var þekkt
hlaupakona á árum áður, sigraði í New York
maraþoninu níu sinnum og vann til silf-
urverðlauna á Ólympíuleikunum 1984. Hún
hefur á seinni árum helgað starfskrafta sína,
ásamt eiginmanninum Jack, baráttu gegn
krabbameini en hún greindist með þann sjúk-
dóm fyrir nokkrum árum.
Norðmaðurinn Johan Olav Koss er fjórfaldur
ólympíumeistari í skautahlaupi en samtök hans
beita íþrótta- og æskulýðsstarfi til að efla
heilsu og lífsleikni barna í fátækum sam-
félögum.
Verðlaunahafar Dr. Pachauri, stjórnarmaður í Glitnir Globe
(t.h.), fékk Nóbelsverðlaunin á síðasta ári ásamt Al Gore.
Einvala lið í stjórn