Morgunblaðið - 03.07.2008, Page 12

Morgunblaðið - 03.07.2008, Page 12
12 FIMMTUDAGUR 3. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eftir Andrés Þorleifsson andresth@mbl.is VANDRÆÐI Fasteignar hf. við að fjármagna ný verkefni hafa áhrif á fleiri sveitarfélög en Fljóts- dalshérað, en um helgina greindi Morgunblaðið frá því að sveitarfélagið hefði þurfti að taka yfir verkefni við grunnskóla, sem Fasteign sá um. Garðabær og Sandgerði leysa til sín félög Fasteign samdi við ÍAV um annan áfanga Sjá- landsskóla í Garðabæ án útboðs, en verktakafyr- irtækið hafði áður reist fyrsta áfanga. Samkvæmt Bergi Haukssyni, framkvæmdastjóra Fasteignar, hljóðaði annar áfangi upp á um 800 milljónir, en síðar kom í ljós að Fasteign hf. gat ekki fjármagn- að verkefnið. Leysti Garðabær þá eignarhalds- félagið til sín og fjármagnaði með láni frá Lána- sjóði sveitarfélaga. Sandgerðisbær samdi einnig við Fasteign hf. um stækkun og endurbætur á sundlaug og grunnskóla í bænum. Sundlaugina hefur Fasteign klárað, en þegar félagið gat ekki fjármagnað seinni áfangann, grunnskólann, tók sveitarfélagið það verkefni yfir ásamt samningi við verktakann upp á 240 millj., en aðrir verkþætt- ir verða boðnir út. Þar sem um er að ræða svo lága upphæð er ekki víst að sveitarfélagið hefði verið útboðsskylt að lögum hefði það staðið að verkefninu frá upphafi. „Ef sveitarfélög standa sjálf í framkvæmdum eins og þarna er um að ræða eru þau útboðsskyld,“ segir Trausti Fannar Valsson, sérfræðingur í sveitarstjórnarrétti við Háskóla Íslands. Hann segir að ef sveitarfélagið sjálft hefði stofn- að félag til að standa að framkvæmdinni hefði það félag líka verið útboðsskylt. Vafinn lúti að heim- ildum sveitarfélaga til að taka yfir samninga um tiltekin verk sem gerðir hafa verið án útboðs, en hefði þurft að bjóða út hefði sveitarfélag verið kaupandi að verkinu í upphafi. Takmarkaðar heimildir „Fyrirfram verður ekki útilokað að sveitarfélög geti tekið svona samninga yfir í sérstökum til- vikum,“ segir Trausti, en telur slíkar heimildir þó takmarkaðar. Þessa leið megi ekki nota til að fara fram hjá lögum um opinber innkaup. Ef sveitarfé- lag geti ráðist í tiltekna framkvæmd, á grundvelli opinbers útboðs, án þess að yfirtaka samning af þessu tagi, verði því almennt að leggja áherslu á að sú leið sé valin. Fleiri verkefni til sveitarfélaga  Fasteign gengur illa að fjármagna ný verk í Sandgerði og Garðabæ » Sveitarfélög og félög íþeirra eigu þurfa að bjóða út verkefni sín fari andvirði þeirra yfir ákveðin viðmið. » Viðmiðunarfjárhæð á út-boðsskyldu vegna inn- kaupa sveitarfélaga er um 450 milljónir. » Á Fljótsdalshéraði voruverkefni upp á 600 millj- ónir ekki boðin út. Útboðsskyldan rík Eftir Þorbjörn Þórðarson thorbjorn@mbl.is SIGMUNDUR Eyþórsson, slökkvi- liðsstjóri hjá Brunavörnum Suð- urnesja (BS), hefur látið af störfum að eigin ósk. Kemur upp- sögnin í kjölfar nokkurs ágrein- ings hjá embætt- inu en Sigmund- ur var á þeirri skoðun að blaða- menn ættu að hafa aðgang að Tetra-kerfi slökkviliðsins til þess að þeir gætu upplýst almenning um hættuástand sem kynni að skapast. Sigmundur afhenti blaðamanni Víkurfrétta Tetra-rásir slökkviliðsins í heimild- arleysi, að sögn Sigurvins Guðfinns- sonar, stjórnarformanns Bruna- varna Suðurnesja. Sigmundur segir að í ljósi þeirra aðstæðna sem voru hafi þetta verið góður tímapunktur til að söðla um. „Vissulega höfðu Tetra-málið og aðfarir stjórnarinnar sitt að segja í minni ákvörðun,“ segir Sigmundur. „Ég vildi byggja upp gott samstarf við fjölmiðlamenn hjá Víkurfréttum sem hefur reynst okk- ur vel. Það varð moldviðri úr því,“ segir Sigmundur. Jón Guðlaugsson varaslökkviliðsstjóri mun gegna stöðunni áður en starfið verður aug- lýst. Lögum samkvæmt má stjórn Brunavarna Suðurnesja setja annan í starfið tímabundið, í allt að eitt ár. Mjög sáttur við málalok „Mér hefur boðist annað starf þar sem ég kem til með að starfa áfram á sama vettvangi,“ segir Sigmundur en hann er tæknifræðingur með sér- menntun í öryggis- og eldvarn- arfræðum. Sigmundur segist mjög sáttur við málalok og óskar eft- irmanni sínum og öðrum starfs- mönnum Brunavarna Suðurnesja velfarnaðar í starfi. Hættir að eigin ósk Slökkviliðsstjóri læt- ur af störfum Sigmundur Eyþórsson KONUR eru mun sjaldnar en karlar viðmælendur í íslenskum fjöl- miðlum samkvæmt úttekt Credit- info Ísland sem skoðaði kynja- hlutföll viðmælenda í fjölmiðlum. Niðurstöður sýna að konur koma aðeins fram í 21% þeirra frétta þar sem viðmælendur koma fram, en karlmenn í 79% tilvika. Skoðaðar voru 7.908 fréttir í útvarpi og sjón- varpi á þriggja mánaða tímabili, þ.e. janúar, mars og júní á þessu ári. thorbjorn@mbl.is Konur mun sjaldnar viðmælendur Eftir Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is MIKLAR vonir eru bundnir við að samstarf komist á milli bandarískra og íslenskra vísinda- manna um rannsókn á áhrifum vímuefna- meðferðar og hvaða líffræði- og erfðafræðilegu þættir ráða því að fólk ánetjist vímuefnum. Hér á landi er staddur hópur vísindamanna á veg- um Brown University og National Institute on Drug Abuse, NIDA, sem er undirstofnun Heil- brigðisstofnunar Bandaríkjanna og sérhæfir sig í fíkniefnarannsóknum. Fyrir hópnum fer yfirmaður NIDA, dr. Nora Volkow, en hún hef- ur sýnt því meðferðar- og vísindastarfi sem fer fram hér á landi mikinn áhuga. Hefur stofn- unin áður verið í samstarfi við Íslenska erfða- greiningu og SÁÁ í rannsókn á tengslum áhættuþátta og erfða hjá reykingafólki. Nora hefur átt fundi með stjórnendum SÁÁ, Íslenskrar erfðagreiningar og Landspítalans um möguleika á rannsóknasamstarfi við NIDA og bandaríska háskóla. Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir á SÁÁ, segir enga samninga hafa verið gerða. Ennþá sé verið að ræða saman en það hafi óneitanlega verið mikill fengur að fá Noru til landsins. Bandaríkjamenn velji sín rannsóknarverkefni af mikilli kostgæfni og langur tími geti liðið þar til einhver niðurstaða fæst. Eftir miklu er að slægjast en NIDA fjár- magnar um 85% allra rannsókna á þessu sviði. „Okkar meðferð hefur ákveðna sérstöðu og við höfum mikil tækifæri til að fylgja henni eftir og hvaða áhrif hún hefur. Erfðafræðirannsókn- irnar hér á landi hafa einnig vakið mikinn áhuga í Bandaríkjunum. Ég er fullviss um að á næstu árum geti komið mikið út úr þessu fyr- irhugaða samstarfi,“ segir Þórarinn. Nora Volkow segist í samtali við Morg- unblaðið telja að íslenskir vísindamenn geti lagt mikið af mörkum í því augnamiði NIDA að bæta meðferðarúrræði vímuefnaneytenda og skilja betur hvernig og af hverju fólk ánetjast fíkniefnum. Hér á landi sé einstakt tækifæri til að fylgjast með hvaða áhrif meðferð hefur á fólk og einnig hefur hún hrifist af þeim gagna- grunnum sem Íslendingar búa yfir. Einstæður árangur á Íslandi Nora segir að Íslendingar hafi náð ein- stæðum árangri á heimsvísu með sínum með- ferðarúrræðum. Hér á landi sé t.d. um helm- ingur allra áfengissjúklinga edrú lengur en tvö ár að lokinni meðferð, á meðan sama hlutfall í Bandaríkjunum er 15%. „Við getum lært heil- mikið af Íslendingum,“ segir hún og nefnir m.a. upplýsingar sem safnað hafi verið saman hér á landi síðan á áttunda áratug síðustu ald- ar um vímuefnasjúklinga og meðferð þeirra. Þetta geti stuðlað að enn betri rannsóknum og niðurstöðum á því hvers vegna fólk ánetjast vímuefnum eða hvers konar fíkn. „Það er mjög mikilvægt að vita hvað gerist að lokinni með- ferð, hve margir fara aftur í neyslu og koma aftur í meðferð og af hverju. Ég veit ekki um nokkurt annað land í heiminum sem býr að þess háttar upplýsingum. Það eru gríðarleg tækifæri í rannsóknum út frá gögnum af þessu tagi.“ Spurð hvort NIDA muni koma með þekkingu og fjármagn inn í rannsóknir íslenskra vísinda- manna segir hún að slíkar ákvarðanir verði ekki teknar strax. Verkefnið verði fyrst að fara í gegnum nokkur nálaraugu. En í ljósi sérstöðu Íslendinga séu miklar líkur á að stofnunin muni leggja til fjármagn. Mikil þörf sé á því í heiminum í dag að finna betri meðferð- arúrræði og lyf fyrir vímuefnasjúklinga. Dr. Nora Volkow telur íslenskt vísindasamfélag geta lagt mikið af mörkum Íslensk vímuefnameðferð heillar Bandaríkjamenn Morgunblaðið/G.Rúnar Áhrifakona Dr. Nora Volkow stýrir stórri stofnun í Bandaríkjunum og var nýlega útnefnd meðal 100 áhrifamestu einstaklinga í heimi í tímaritinu Time. Í HNOTSKURN »Dr. Nora Volkow hélt fyrirlestur í gær-morgun í húsakynnum SÁÁ og hefur einnig fundað með stjórnendum SÁÁ, Ís- lenskrar erfðagreiningar og Landspít- alans. »Hún beitir taugalíffræði í rannsóknumsínum og starfi og gengur út frá því að fíkn fólks í vímuefni og aðra ávanabindandi hegðun stjórnist af sjúkdómum í heila. Rannsóknir hennar eru margverðlaunaðar. LANGAFI dr. Noru Volkow er Leon Trotskí, einn helsti for- sprakki októberbylting- arinnar í Rússlandi 1917 ásamt Lenín. Trotskí endaði ævi sína í útlegð í Mexíkó árið 1940, er hann var myrtur með ísexi á heimili sínu. Á þessu sama heimili er Nora fædd ár- ið 1956 en hún segist hafa ver- ið orðin 17 eða 18 ára þegar faðir hennar, Esteban Volkow, talaði fyrst um afa sinn og ofsóknir Stalíns á hendur honum og fjölskyldunni. Trotskí og seinni konan, Natalía, ólu Esteban upp eftir að móðir hans; dóttir Trotskís af fyrra hjónabandi, lést. Nora segist eðlilega hafa orðið fyrir miklum áhrifum af sögu langafa síns og arfleið, og alist upp við að þurfa að berjast fyrir bættum lífsskilyrðum og geta hjálpað öðrum, líkt og hún gerir hjá NIDA. Langafabarn Trotskís Leon Trotskí

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.