Morgunblaðið - 03.07.2008, Page 14
14 FIMMTUDAGUR 3. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
NÝVERIÐ voru stofnuð samtökin
Almannaheill. Samtökunum er ætl-
að að vinna að sameiginlegum
hagsmunamálum fyrir almanna-
heillasamtök og sjálfseignarstofn-
anir sem starfa í almannaþágu,
skapa þeim hagfellt starfsumhverfi,
styrkja ímynd þeirra og efla stöðu
þeirra í samfélaginu.
Stofnfélagar samtakanna eru:
Aðstandendafélag aldraðra,
Blindrafélagið, Bandalag íslenskra
skáta, Geðhjálp, Gróður fyrir fólk í
landnámi Ingólfs, Heimili og skóli-
Landssamtök foreldra, Hjálp-
arstofnun kirkjunnar, Krabba-
meinsfélag Íslands, Kvenréttinda-
félag Íslands, Landvernd,
Neytendasamtökin, Styrktarfélag
lamaðra og fatlaðra, Ungmenna-
félag Íslands og Öryrkjabandalag
Íslands.
Formaður samtakanna er Guð-
rún Agnarsdóttir.
Almanna-
heill til al-
mannaheilla
ÁRNI Ísaksson,
starfsmaður
Matvælastofn-
unnar, var kos-
inn forseti al-
þjóðlegu
Laxavernd-
unarstofnunar-
innar (NASCO)
á ársfundi henn-
ar dagana 3.-6.
júní sl., en á þeim fundi var m.a.
fjallað um stjórnsýslu varðandi
veiðar á Atlantshafi og teknar
ákvarðanir um laxveiðikvóta við
Vestur-Grænland og Færeyjar.
Laxaverndunarstofnunin var
stofnuð á Íslandi árið 1984 og var
fyrsti forseti samtakanna Guð-
mundur Eiríksson þjóðrétt-
arfræðingur hjá utanríkisráðu-
neytinu.
Árni kosinn
forseti
NASCO
Árni Ísaksson
Eftir Grétu Bergrúnu Jóhannesdóttur
Grímsey | Það má vera að sam-
félagið í Grímsey sé ekki stórt en
mannlífið er fjölbreytt og eyj-
arskeggjar sérlega gestrisnir. Í
sumarblíðunni má heyra hamars-
högg frá sólpallasmíði, vinnuvélar
í gangi á höfninni og að sjálfsögðu
syngja fuglarnir undir alla daga.
Harpa Þórey Sigurðardóttir og
Sigurður Henningsson eru ungt
par og hafa keypt sér hús í eynni
og undirbúa þar framtíð sína. Sig-
urður hefur búið í Grímsey síðan
hann var um fjögurra ára en þá
kom hann með fjölskyldu sinni frá
Hjalteyri. Ungur fór hann að
sækja sjó og tók pungaprófið og
30 tonna réttindin eftir 10. bekk
eins og margir ungir menn á
staðnum. Harpa er frá Lundi í Öx-
arfirði og fluttist út í eyjuna fyrir
tæpum fjórum árum.
Sigurður sækir sjóinn á Birni
EA 220 en fjölskylda hans gerir
bátinn út ásamt stærri útgerð.
Björninn er 15 tonna bátur og á
góðum degi hafa þeir um sjö tonn
af fiski á línu. Hann segir kvóta-
skerðinguna skelfilega. „Það eru
margir sem sitja uppi með að
borga af kvóta án þess að ná að
veiða upp í afborgun, hafa kannski
keypt mörg hundruð tonna kvóta
og mega svo ekki veiða.“
Hann óttast að haldi nið-
urskurður áfram sé hætta á að
margir gefist upp og atvinnugrein-
in leggist af á litlum stöðum. Það
kemur líka margt annað til, eins
og hækkandi olíuverð og lán. „Við
róum styttra út og keyrum hægar
til að spara þannig að þetta svari
kostnaði. Síðasta sumar fórum við
oft út að steini, í Kolbeinsey, núna
förum við ekki nema um 10-12
mílur út.“
Harpa segir að sér finnist sem
ráðamenn tali í kross. „Þetta skil-
ur ekkert eftir sig nema skuldir
eins og staðan er í dag, bankarnir
loka á þetta allt á endanum ef út-
gerðirnar ná ekki að veiða upp í
kvótann og margir eru hættir nú
þegar.“ Sigurður segir að það sé
nógur fiskur og það væri óskandi
að það væri hlustað meira á sjó-
menn í þessum efnum.
Yfir sumarmánuðina færist
meira fjör í atvinnulífið í Grímsey
og þá sækir unga fólkið meira
heim til að ná sér í góðar tekjur.
Það er ótrúlegt að sjá hvernig
ungir sem aldnir vinna saman í
kringum fiskvinnsluna og börnin
tengjast atvinnulífinu strax sterk-
um böndum. Nýja ferjan Sæfari
tekur allan fisk og flytur í land til
sölu og útflutnings. Með ferjunni
koma líka ferðamenn en unga par-
ið er sammála um að meira sé
hægt að gera út á ferðaþjónustu.
Gaman sé að sigla í kringum eyj-
una og svo sé líka alveg ótrúlegt
að ríða þar um, en þau stunda
hestamennsku. Þau hafa nóg við
að vera í Grímsey og þegar þau
eru spurð um framtíðina er það al-
veg klárt að eyjan er þeim kær,
„framtíðin er hér, það breytist
ekkert,“ segir Sigurður.
Ljósmynd/Gréta Bergrún Jóhannesdóttir
Á réttum stað Harpa Þórey Sigurðardóttir og Sigurður Henningsson hafa komið sér vel fyrir í Grímsey.
„Framtíðin er hér“
ÞRÁTT fyrir erfiða tíma í sjávarútvegi vilja þau hvergi annars staðar
vera en í Grímsey. Harpa er nú heimavinnandi með tíu mánaða son
þeirra enda engin daggæsla á staðnum. Henni líkar vel að búa í
Grímsey en segist svo sem varla hafa gert sér grein fyrir því út í
hvað hún var að fara til að byrja með. „Ég var bara allt í einu komin
með vinnu í uppstokkun og sá fyrir mér einhverja risakróka sem
maður væri að vinna með en svo er þetta auðvitað allt saman öðru-
vísi. Þetta er í raun bara eins og ein stór fjölskylda hérna, og fé-
lagslífið gott.“
Vilja aðeins Grímsey
19. eða 26. júlí frá kr. 54.990
Bjóðum nú frábært sértilboð til Rhodos í viku eða 2 vikur 19. eða
26. júlí á tvo okkar vinsælu gististaði. Hotel Rhodos Palace ****+
með hálfu fæði eða íbúðahótelið Sun Beach ****. Hótelin eru frábær
valkostur sem býður góðan aðbúnað fyrir hótelgesti. Þau eiga það
sameiginlegt að vera með góða sundlaugagarða, sólbaðsaðstöðu og
úrval veitingastaða. Skemmtidagskrá er í boði og mikið lagt upp úr
leik og skemmtun fyrir bæði börn og fullorðna. Tryggðu þér þetta
einstaka tilboð og njóttu lífsins með fjölskyldunni við góðan
aðbúnað á eyju sólarinnar.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Sun Beach
Verð kr. 54.990
Netverð á mann , m.v. 2 fullorðna og 2
börn, 2-11 ára, í íbúð á Sun Beach
Resort í viku, sértilboð 19. eða 26. júlí.
Aukavika kr. 17.000.
Verð kr. 69.990
Netverð á mann , m.v. 2 saman í íbúð á
Sun Beach Resort í viku, sértilboð 19.
eða 26. júlí. Aukavika kr. 17.000.
Rhodos Palace
Verð kr. 74.990
- hálft fæði
Netverð á mann , m.v. gistingu í tvíbýli
með hálfu fæði í hótelherbergi á
Rhodos Palace Hotel ****+ í viku.
Aukavika kr. 35.000. Brottför 26. júlí kr.
10.000 aukalega. Aukavika í brottför 26.
júlí kr. 45.000
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku.
Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
Síðustu sætin!
Rhodos Palace ****+
með hálfu fæði
Aparthotel Sun Beach **** Rhodos