Morgunblaðið - 03.07.2008, Side 19

Morgunblaðið - 03.07.2008, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JÚLÍ 2008 19 ÞAÐ er ekki nóg að syngja vel. Og ekki er heldur nóg að spila vel. Ef rétti andinn er ekki til staðar getur hin fallegasta tónlist orðið að ein- hverju allt öðru en hún á að vera. Og þá er spurning hvort hún komi manni nokkuð við. Atli Heimir Sveinsson samdi lögin sín við ljóð Jónasar Hall- grímssonar fyrir um áratug síðan. Þau komu fyrst út á geisladiski með Signýju Sæmundsdóttur í aðal- hlutverki. Nú eru þau komin út aftur, í þetta skipti túlkuð af Huldu Björk Garðarsdóttur sópran og Eyjólfi Eyj- ólfssyni tenór, ásamt hópi valin- kunnra hljóðfæraleikara. Lögin eru sjálfsagt ekki allra. Þau eru vissulega mjög aðgengileg, enda var hugmynd tónskáldsins að „börn gætu haft gaman af að syngja þau“ eins og segir í bæklingnum sem fylgir diskinum. Gamaldags leikhússtíllinn, í anda Kurts Weil með fáeinum Schu- bertslettum (lagið Óhræsið er t.d. eins og bein tilvitnun í síðasta lag Vetrarferðarinnar eftir Schubert), virkar samt eilítið undarlegur. Það er nánast eins og manni sé boðið upp á mjólk sem er komin yfir síðasta sölu- dag. Við fyrstu sýn hafa lögin því ekki elst vel á þessum tíu eða ellefu árum síðan þau voru skrifuð. En er það svo? Ég skrifaði á sínum tíma um túlkun Signýjar á lögunum, sem var skemmtilega hlýleg, en það hæfði alþýðlegum stílnum einkar vel. Í samanburðinum er söngur Huldu Bjarkar dálítið kuldalegur, þótt hann sé vandaður og túlkun Eyjólfs, sem vissulega hefur dásamlega rödd, er á köflum einkennilega tilgerðarleg. Það er eitthvað tildurslegt við sönginn sem hreinlega passar ekki þessari tónlist. Nei, lögin eru einmitt ekki komin yfir síðasta söludag. En umgjörðin er ekki rétt, tónlistin er ekki í þeim bún- ingi sem maður gæti hugsað sér fyrir börnin sín, og maður sér þau ekki fyr- ir sér í gamaldags uppfærslu á ein- hverju skemmtilegu leikriti. Þau eru á einhverjum allt öðrum stað og þau eiga ekki heima þar. Frábær spila- mennskan, hvort sem það er mark- viss fiðluleikur Sigrúnar Eðvalds- dóttur, glitrandi píanóleikur Önnu Guðnýjar Guðmundsdóttur, áferð- arfagur klarinettuleikur Sigurðar Ingva Snorrasonar eða einbeittur bassaleikur Hávarðs Tryggvasonar, breytir engu þar um. Kemur þetta manni við? TÓNLIST Geisladiskur Hulda Björk Garðarsdóttir og Eyjólfur Eyj- ólfsson syngja. Hljóðfæraleikarar: Sigrún Eðvaldsdóttir, Anna Guðný Guðmunds- dóttir, Sigurður Ingvi Snorrason og Há- varður Tryggvason. Tónmeistari: Bjarni Rúnar Bjarnason. Íslands minni. Lög Atla Heimis Sveins- sonar við ljóð Jónasar Hallgrímsson- arbbnnn Jónas Sen Í GRAFÍKSAFNINU, sýningar- sal Íslenskrar grafíkur, hanga nú verk eftir Ingu Huld Tryggva- dóttur undir heitinu „Heimsókn“. Inga Huld lauk MFA-námi í grafík frá Pratt Institute í New York á síðasta ári og er þetta fyrsta einkasýning hennar hér- lendis. Á sýningunni eru myndverk unnin með silkiþrykki, kolum, bleki og klippimyndum. Mynd- efnið er fuglar, fiskar, egg og fleira. Listakonunni tekst ágætlega að blanda saman þrykki, kolum og blekteikningu, og nýtir þá eigind hvers verkfæris fyrir sig í nokkuð einfaldri en skýrri mynd. Þó sjáum við ekki sérlega tekið á tækni eða myndmáli á þessari sýningu. Flöturinn er frekar myndskreyttur, en vissulega er fínlegur bragur á þessu sem fer reyndar yfir í að vera gelgjulegur á köflum. Svarthvít blanda MYNDLIST Grafíksafnið Opið fimmtudaga – sunnudaga kl. 14.00- 18.00. Sýningu lýkur 6. júlí. Aðgangur ókeypis. Inga Huld Tryggvadóttir bmnnn Jón B.K. Ransu Í TILEFNI þess að níutíu ár eru liðin frá því að lýðveldi var sett á laggirnar í Litháen var boðið upp á litháska tóna í Salnum í Kópa- vogi. Kannski ekki litháska, því aðeins eitt litháskt lag var á efnis- skránni „Til föðurlandsins“ eftir Jurjans. Annars voru velflest verkin af vinsældarlistum fyrri tíma, s.s. sigurmarsinn úr Aidu, sem var leikinn eins og ballaða, forleikurinn að „Vilhjálmi Tell“, intermissóið úr „Cavalleria rustic- ana“ eftir Mascagni og næturljóð eftir Copin, sónötubrot eftir Beethoven og söngdansar eins og „Over the rainbow“ Arlens og „Hello Dolly“ Hermans, eina lagið sem svingaði og ranglega eignað Ellington í efnisskrá. Útsetningar voru flestar eftir Macats og hljóm- uðu popplega, trommuheili og allt hvað eina, en sumar eftir Stengre- vics nokkurn og reyndi hann að kalla fram sinfóníska tóna úr hljóðsmalanum og var það mis- heppnað eins og jafnar er slíkt er reynt. Ozols er fantafínn fiðlari og það var frábært að heyra tækni hans og tóninn rafmagnaða aftur á móti gerði Macats lítði annað en að smala gervistrengjum og öðrum gervihljóðum úr hljómborðinu. Eina skiptið sem hann lék sóló eins og hljómborðsleikari var í Hello Dolly en ekki var það merkilegur spuni frekar en hjá fiðlaranum – frekar léttfleygar fraseringar. Aftur á móti blés Ma- cats í munnhörpu í aukalaginu og það var mjög vel gert. Mikið hefði verið gaman að heyra hann leika meira á það hljóðfæri. Þeir félagar eru víða eftirsóttir með þessa rafvæddu poppklassík. Slíkt hefur jafnan verið vinsælt en aftur á móti varla burðarverk í heila tónleika. Færni þeirra félaga kom þó í veg fyrir að manni leidd- ist þó smekkvísin væri ekki í fyrirrúmi. Kokteiltónar TÓNLIST Salurinn Raimonds Ozols raffiðlu og Raimonds Macats hljómborð og munnhörpu Fimmtudagskvöldið 19. júní Ozols og Macats bbmnn Vernharður Linnet SÓLVEIG Baldursdóttir mynd- höggvari sýnir nú fimm verk unnin í marmara í fordyri Hallgrímskirkju. Sólveig hefur nokkra sérstöðu í ís- lenskri myndlist að því leyti að hún heggur myndir sínar í ítalskan marmara og fylgja nöfn marmara- tegundanna með á sýningunni. Sólveig nálgast marmarann á hefðbundinn hátt, þótt segja megi að sú aðferð að láta hluta myndanna brotinn eða óheflaðan tilheyri frekar samtímanum. Verk hennar bera titla sem vísa til náttúrunnar, og sýna blóm, tré, fjöll og eina fígúru, engil sem skreyttur hefur verið hekluðum væng, en dregur það heldur úr ein- faldleika myndarinnar. Sólveigu tekst ágætlega upp við vinnu sína með marmarann og tekst henni að birta margvísleg litbrigði hans og áferð og nýta sér þau vel í verkum sínum. Úrvinnsla hennar á efniviðnum er þó langt frá því að vera framsækin og jafnvel á mörkum skreytilistar. Þetta dregur nokkuð úr heildar- áhrifum sýningarinnar, en senuþjóf- urinn er marmarinn sjálfur, áferð hans, litbrigði og heiti sem kalla fram ítalska draumsýn í huga áhorf- andans. Þrátt fyrir helst til hefðbundin vinnubrögð er engu að síður áhuga- vert að sjá hvernig íslenskur lista- maður nálgast þennan alítalska efni- við og höggmyndir Sólveigar myndu sóma sér einkar vel í náttúrulegu umhverfi, eins og marmari gerir. Hvítir skór Úrvinnsla er á mörkum skreytilistar að mati gagnrýnanda. Minningar um marm- arann MYNDLIST Fordyri Hallgrímskirkju Til 10. september. Opið mán. til lau. kl. 9-20 og sun. kl. 9-19. Höggmyndir í marmara, Sólveig Baldursdóttir bbmnn Ragna Sigurðardóttir SEGJA má að það hafi skipst á skin og skúrir á tónleikum Paul Simons í Höllinni síðasta þriðjudag. Hann og sveit hans fóru á blússandi stím á milli þess sem þeir sigldu lygnan sjó – svo lygnan á köflum að sumum þótti nóg um. Sveit Simons, sem skipuð var ein- valaliði hljóðfæraleikara, hóf kvöldið með lagi af frægustu sólóplötu Sim- ons, Graceland. „Gumboots“ var þétt og hrynheitt og þægilegur sumar- bragur yfir fjölskrúðugum „múltí- kúltí“ mannskapnum sem á sviðinu stóð. Stemningin í salnum var líka þægilega afslöppuð, það var t.d. vel að engir voru stólarnir í stæðinu. Strax á eftir var það svo „The Boy in the Bubble“ af sömu plötu, í nokkuð breyttri mynd þó. Lagið grúvaði frá- bærlega, Simon og félagar búnir að rífa upp mikið stuð á örskotsstund en afrískir straumar Graceland áttu eft- ir að einkenna restina af settinu. Næst var síðan lagið „Outrageous“ af nýjustu plötu Simons, Surprise (2006). Þægilegt lag, ágætlega flutt, en stemningin tók nokkra dýfu við þetta. „Mrs. Robinson“, eitt frægasta lag Simon, var flutt á nýstárlegan hátt sem var bara ekki að virka þó ég taki ofan fyrir tilrauninni. „Slip Slid- in’ Away“ gerði hins vegar eins og segir í nafni þess … rann úr greipum hljómsveitar og frá eyrum hlustenda án þess að nokkur yrði þess var. Stemning hafði því breyst all- nokkuð og nú fóru ákveðnir ann- markar að koma í ljós. Þessir tón- leikar liðu á margan hátt, eðlilega, fyrir að vera þeir fyrstu í tónleika- ferðalagi Simons um Evrópu og sveitin var hreinlega ekki nógu vel æfð í sumum laganna. Einbeiting hljómsveitarstjórans var því tvískipt, annars vegar var hann að benda mönnum á hvert skyldi fara næst og hins vegar að reyna að koma laginu sæmilega frá. Við tók því undarlegur kafli þar sem stigið var varlega fetað og brot- hættur flutningurinn var ekki að virka, bandið kalt og óöruggt. Þegar „Train in the Distance“ var spilað tók ég eftir því að fólk var tekið að fara úr salnum, sýnilega svekkt yfir því að Simon væri ekki lifandi glymskratti. „Me And Julio Down By The Schoolyard“ setti svo skyndilega allt í gang en bíddu við … allt rofið um leið með þunglamalegu „The Teac- her“!? Simon mætti endurskoða lagauppröðunina rækilega fyrir næstu tónleika. Nú steig Simon einn fram með gít- arinn og hóf að spila hið magnaða „Sounds of Silence“. Þarna sýndi hann vel af hverju hann er sagður einn mikilhæfasti lagahöfundur dæg- urlagatónlistarinnar. Söngur hans var bæði fallegur og einlægur og há- punktur tónleikanna staðreynd. Endað var á „Diamonds on the Soles of Her Shoes“ og þá, loksins, var stemningin orðin sæmilega þétt og góð. Simon var þó hvergi nærri hættur og áhorfendur fengu tvær uppklappshrinur. Það var lýsandi fyrir tónleikana í heild sinni að „Still Crazy After All These Years“ klúðr- aðist laglega á meðan „You Can Call Me Al“, var landað með glans. Það vantaði bara Chevy Chase á sviðið. Lokalag var af Graceland „I Know What I Know“ og þá var bandið loks- ins orðið vel heitt. En því miður var það fullseint. Að þessu sögðu er Simon engu að síður með margt með sér. Þó að tón- leikarnir hafi liðið nokkuð fyrir ryð og æfingaleysi er Simon greinilega í ágætu formi og sönglega missti hann t.a.m aldrei dampinn. Víbrarnir voru líka fínir frá sviðinu, þó þeir hafi ver- ið skrykkjóttir á stundum. Lagavalið er þá gott, þó að röðunin hafi verið skrítin, og Simon sneiðir smekklega frá því að vera útungunarvél fyrir smelli og reyndi eftir bestu getu að glæða þá nýju og annars konar lífi. Þetta á eftir að verða vel smurt og gott eftir nokkrar vikur – en í Höll- inni þurfti stundum að taka viljann fyrir verkið. Simon segir … TÓNLEIKAR Laugardalshöll Paul Simon í Laugardalshöll ásamt hljómsveit. Þriðjudaginn 1. júlí Paul Simon bbbnn Morgunblaðið/Árni Sæberg Upp og niður Paul Simon og sveit hans áttu firnagóða spretti á milli þess sem þeir duttu niður í lægð. Lagavalið var gott en röðun laganna skrýtin. Arnar Eggert Thoroddsen

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.