Morgunblaðið - 03.07.2008, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 03.07.2008, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JÚLÍ 2008 25 MORGUNBLAÐIÐ birti nýlega grein eftir Steingrím J. Sigfússon sem var efnislega sama greinin og birtist eftir hann í blaðinu í febrúar síðast- liðnum. Steingrímur er þar að fjalla um útflutningsverðmæti áls annars vegar og sjávarafurða hins vegar. Hér verða ekki eltar ólar við stóryrði Steingríms s.s. að kalla þá þursa sem hafa ekki sömu viðhorf til málefnisins og hann og stilla þeim upp sem sérstökum and- stæðingum náttúruverndar. Í fyrstu nokkur almenn atriði varð- andi málflutning Steingríms. Hann kallar það áratuga gamla klisju og kreddur að það sé skynsamlegt að nýta orkuauðlindir landsins til útflutnings eins og gert er með útflutningi á vörum orkuiðnaðarins. Ef það er eingöngu hugvitið sem á að virkja, og þá ekki í tengslum við auðlindanýtingu, þá hlýt- ur það sama að ganga yfir báðar grein- arnar; að fjárfesting í nýtingu auðlinda sé í sjálfu sér óæskileg! Steingrímur kallar réttilega eftir meiri fræðilegri umfjöllun um þjóð- hagsleg áhrif orkuiðnaðarins. Sú um- fjöllun mætti vissulega að ósekju vera miklu meiri. Hann fjallar sérstakleg um nettó útflutningsverðmæti fiskafurða og áls í grein sinni og segir að álið sé ekki nema hálfdrættingur við sjávar- útveginn hvað það snertir, enda sé nettó útflutningshlutfallið 35% í álinu og 80% í sjávarútveginum; þ.e. að það verði 80% af útflutningsverðmætinu eftir í landinu í sjávarútveginum en ekki nema 35% í áliðnaðinum. Hér teygir Steingrímur forsendurnar eins og hægt er sjávarútveginum í vil en við skulum láta það liggja milli hluta og nota þessi hlutföll í þeim útreikningum sem fara hér á eftir. Álafurðir skila 2/3 á við sjávarútveginn Í gögnum frá aðalfundi Samtaka fisk- vinnslustöðva frá 28. september 2007 segir að á verðlagsforsendum þess tíma sé líklegt að útflutningsverðmæti sjáv- arafurða 2008 muni verða um 100 millj- arðar (gengisvísitalan um 120) og lækka nokkuð frá fyrri árum vegna minni aflaheimilda. Að teknu tilliti til gengisbreytinga miðað við meðalgengi nú í júní (158) væri útflutnings- verðmætið 2008 um 131 milljarður á verðlagi júnímánaðar. Á sömu geng- isforsendum, og miðað við álverð í júní 2008, verður heildarvermæti álútflutn- ings á árinu um 190 milljarðar. Ef not- aðar eru hlutfallstölurnar hans Steingríms þá eru nettó útflutningstekj- urnar 104,8 milljarðar í sjávarútveginum á móti 66,5 milljörðum í álút- flutningi; um 63,5% eða nálægt tveim þriðju en ekki helmingi eins og Steingrímur heldur fram. Þetta eru einfaldir út- reikningar og forsend- urnar getur hver sem er fundið á netinu. Stein- grímur nefnir einnig að þetta segi ekki alla sög- una því orkusölutekjurnar renni til orkufyrirtækjanna og verulegur hluti þeirra fari í að borga af erlendum lán- um. Nú er það svo að á móti afborg- unum af erlendu lánunum kemur eignaaukning í virkjunum sem endast mun lengur en sem nemur tímanum sem tekur að borga lánin upp; þannig að afborganirnar eru ekki áhyggju- efni. Það eru fyrst og fremst vextirnir sem skipta máli hvað þetta varðar. Það sem Steingrímur tekur hins veg- ar ekki inn í sína útreikninga er að á bak við sjávarútveginn standa einnig erlend lán. Það sem skiptir þá máli er hvort standa meiri erlend lán á bak við sjávarútveginn eða orkufyrirtækin þ.e. hinn íslenska þátt þessarar starfsemi. Álfyrirtækin eru eins og alþjóð veit erlend fjárfesting þannig að fjárhagslegar skuld- bindingar þeirra vegna eru á ábyrgð er- lendra aðila og ég reikna með að það sé á þeim for- sendum sem Steingrímur nefnir ekki vexti eða afborganir þeirra. Hvað þetta varðar má til fróðleiks nefna að Alcoa tók ekki lán vegna byggingar Fjarðaáls; framkvæmdin var fjár- mögnuð af tekjustreymi móðurfélags- ins Svipaðar erlendar skuldir Ef aftur er leitað í upplýsingar frá aðalfundi Samtaka fiskvinnslustöðva á síðasta ári þá segir þar að heild- arskuldir sjávarútvegsins séu áætl- aðar 304 milljarðar í júní 2007 og þar af hafi um 217 milljarðar verið erlend- ar skuldir. Steingrímur nefnir til sam- anburðar í sinni grein að heild- arskuldir vegna Kárahnjúkavirkjunar séu í dag ekki undir 150 milljörðum. Undirritaður hefur þær tölur ekki undir höndum og telur reyndar eðlilegra að miða í þessum samanburði við skuldir orku- fyrirtækjanna allra. Ef horft er til þeirra skulda sem hvíla á orkufyr- irtækjunum eftir framkvæmdir síð- ustu ára vegna orkusölu til álfram- leiðslu eins og þær voru í lok síðasta árs, en þá var fjármögnun Kára- hnjúkavirkjunar að mestu lokið, hafa þær væntanlega verið einhversstaðar á bilinu 200-250 milljarðar eða ekki langt frá því sem sjávarútvegurinn skuldaði erlendis á sama tíma. Þessi samanburður breytir því sáralitlu um endanlegan ávinning af útflutningi sjávarfangs annars vegar og álafurða hins vegar. Erlendar skuldir orkufyr- irtækjanna vegna orkufreka iðnaðar- ins eru í dag líklega eitthvað hærri en sjávarútvegsins en væntanlega eru orkufyrirtækin að greiða lægri vexti þannig að heildarvaxtagreiðslur eru svipaðar. Að borga vel fyrir aðföngin Það sem skiptir hins vegar mestu máli hvað varðar framlag til þjóð- arbúsins er hvernig viðkomandi at- vinnugrein nýtir vinnuafl og önnur aðföng; ekki nettóhlutfall útflutnings- ins. Ef litið er á áliðnaðinn þá er hann að greiða verulega hærri laun en gengur og gerist um sambærileg störf og það sama á við um orkufyr- irtækin. Þá sækjast þjónustufyr- irtæki eftir að vinna fyrir orku og ál- fyrirtækin. Ef horft er til raforkuverðsins eins og það er nú á miðju ári 2008 þá sýnist þeim sem þetta ritar að verðið fyrir orkuna frá Kárahnjúkavirkjun sé nú með því hæsta sem gerist um raforkuverð til álframleiðslu í heiminum og til að mynda ekki lægra en haft var eftir stjórnarformanni Alcoa um raf- orkuverð í Brasilíu sem var nokkuð til umræðu hér á síðasta ári. Ef til viðbótar er tekið tillit til þess að Kárahnjúkavirkjun skilar meiri af- köstum en hönnunarforsendur og þar með arðsemisútreikningar gerðu ráð fyrir er ljóst að virkjunin mun verða borguð upp á skemmri tíma en reikn- að hafði verið með. Þetta endurspegl- ast að hluta í reikningum Landsvirkj- unar en eigið fé fyrirtækisins hefur hækkað umtalsvert að undanförnu vegna þess að alþjóðlegar reglur um reikningsskil krefjast þess að fram- tíðarvirði orkusölusamninganna sé strax reiknað til tekna. Ef vilji er til að halda áfram samanburði á orku- iðnaðinum og sjávarútveginum þá er nú svo komið að eigið fé Landsvirkj- unar samkvæmt reikningum fyr- irtækisins er í dag nálægt því það sama og sjávarútvegsins alls sam- kvæmt gögnum Hagstofunnar þar um. Hér verður að slá þann varnagla að eigið fé samkvæmt ársreikningum endurspeglar ekki endilega raunvirði viðkomandi eigna. (Eigið fé Lands- virkjunar var 99 milljarðar árið 2007 en sjávarútvegsins var 96 milljarðar 2006 sem eru nýjustu tölur Hagstof- unnar. Eigið fé Landsvirkjunar hefur hækkað umtalsvert síðan og ef eigið fé sjávarútvegsins hefur hækkað til 2008 eins og það gerði 2003-2006 væri það nú um 110 milljarðar) Mikilvægar greinar fyrir útflutninginn Annars á ekki að standa í þessum samanburði á sjávarútveginum og orkuiðnaðinum. Báðar greinarnar standa ágætlega fyrir sínu á eigin for- sendum og eru og munu verða um langt árabil bakfiskurinn í útflutningi Íslendinga. Það er vandséð hvað get- ur komið í staðinn fyrir þessar tvær greinar hvað það varðar. Jafnvel þó að spá Samtaka iðnaðarins um há- tækniútflutning gangi eftir og al- mennur þjónustuútflutningur haldi áfram að vaxa meira en vöruútflutn- ingurinn, eins og hann hefur gert um árabil, þá verða framleiðslugrein- arnar áfram að standa fyrir sínu ef ut- anríkisviðskiptin eiga að vera í jafn- vægi. Freistandi væri að taka fyrir fleiri þætti úr grein Steingríms en hér verður þó látið staðar numið. Ég ítreka að ég tek undir með honum að það þarf að rannsaka miklu meira hver hin efnahagslegu áhrif af orku- iðnaðinum eru. Ef til staðar væru haldgóðar upplýsingar þar um þá þarf umræðan ekki að byggjast á ágiskunum og sleggjudómum heldur væri til staðar góður gagnagrunnur sem hægt væri að ganga í. Eftir Jóhannes Geir Sigurgeirsson »Ef þessi rök Stein- gríms halda eru ekki heldur nein rök fyrir að nýta auðlindir sjávar eins og gert hefur verið hér um langan aldur. Höfundur er fyrverandi stjórn- arformaður Landsvirkjunar en starf- ar nú sem ráðgjafi í orku- og atvinnu- málum. Sjávarútvegurinn og áliðnaðurinn - burðarásar í útflutningi Jóhannes Geir Sigurgeirsson Hraðferð Logi Bergmann fær aðstoð áður en hann stígur á vespu við Nesvöll, en Logi, ásamt fleira fólki, hóf hringferð um landið í góðgerðargolfi í gær. Árni Sæberg Blog.is Anna Kristinsdóttir | 2. júlí 300 þúsund af 20 milljónum Í gær voru stimpilgjöld vegna lána til fasteigna- kaupa á fyrstu eign af- numin. Veit ekki hvort áhrif á fasteignamark- aðinn verða mikil við þessa breytingu. Þessi aðgerð var gerð til þess að auðvelda ungu fólki að kaupa sína fyrstu fasteign. Ekki síst vegna ástandsins á fasteignamarkaði. Þótt þetta sé jákvæð breyting mun hún varla gera útslagið fyrir ungt fólk í leit að fasteign til kaupa. … Meira: annakr.blog.is Ómar Ragnarsson | 1. júlí Endurskipulagning aksturs Eitt þeirra ráða sem heyrst hefur vegna hækkandi eldsneyt- isverðs er að selja annan bílinn af tveimur á heim- ilinu eða leggja honum. Þetta er ekki einhlítt ráð. Ef velja á hvaða bíll verður eftir verður það yfirleitt hinn stærri og eyðslufrek- ari. Til greina kemur að minni bíllinn sé hafður eins lítill og unnt er og honum ekið sem mest … Meira: omarragnarsson.blog.is MIG minnir að það hafi verið Halldór Laxness sem sagði af hyggjuviti sínu, að maður þyrfti ekki að hafa skoðun á því hvað væri langt til Eyrarbakka, – maður bara mældi það. Sama gildir um tekjur RÚV af af- notagjöldum. Viðmiðunar- grunnurinn sem lagður var árið 2006 var 2,7 milljarðar króna. Árið 2007 vantaði 123 milljónir króna upp á að þessi upphæð héldi raungildi sínu og á þessu ári mun vanta 278 milljónir. Samtals eru vanhöldin á þess- um tekjum því rúmlega 400 milljónir króna frá því sem gengið var út frá í þeim rekstr- aráætlunum, stofnefnahags- reikningi og þjónustusamningi sem mörkuðu upphafið á breyttu rekstrarformi RÚV. Mér dettur hins vegar ekki í hug að nota orð á borð við svik eða brigð um þessa staðreynd og er ekkert að barma mér yfir þessu á torgum. Þetta er bara ný ákvörðun. Fulltrúi eigand- ans – sem jafnframt er kaup- andi þjónustunnar – hefur ein- faldlega ákveðið að kaupa fyrir minna fé en hann ætlaði í fyrstu. RÚV er svo sem ekkert að kveinka sér undan því, – eigandinn „á þetta og má þetta“. Við hjá RÚV högum okkar seglum eftir þessum vindi en höldum ótrauð áfram að búa til eins mikla, góða og fjölbreytta dagskrá og við get- um fyrir það fé sem er til ráð- stöfunar á hverjum tíma. Páll Magnússon Skoðanir og staðreyndir Höfundur er útvarpsstjóri.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.