Morgunblaðið - 03.07.2008, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 03.07.2008, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JÚLÍ 2008 35 Það var fyrir rúmum fimm árum síðan sem við keyptum parhús við Fjallalindina í Kópa- vogi. Daginn eftir að við skrifuðum undir kaupsamninginn hringdi Jón Ólafsson í okkur. Hann kynnti sig sem Jón granna „eiganda að hinum helmingnum af húsinu“ og óskaði okkur til hamingju með kaupin. Til- efnið var þó aðallega að það var komin tími til að mála þakið á húsinu, það yrði þurrkur á næstu dögum, hvort við gætum ekki komið sem fyrst og drifið í þessu með honum „þó svo við ættum ekki að fá húsið afhent fyrr en eftir tvo mánuði“. Auðvitað var það ekkert mál og þakið var málað. Strax við fyrstu kynni komust við að því að Jón var gull af manni, maður sem geislaði af lífsorku og krafti. Hann var opinn, skemmtilegur og mikill húm- oristi. Ef Jón var ekki í vinnunni þá var hann upp í sumarbústað, í golfi, á skíðum og þess á milli að passa barna- börnin. Jón var alltaf að gera eitthvað skemmtilegt. Núna í vetur fórum við í okkar fyrstu skíðaferð til Ítalíu, að sjálf- sögðu leituðum við til Jóns þar sem hann hafði mikla reynslu af slíkum ferðum og þekkti vel helstu skíðastað- ina. Jón gaf okkur góð ráð en mælti þó sérstaklega með að taka einn dag frá og fara í svokallaða „BTB-ferð“, þeim sið ætlum við halda í framtíðinni og um leið minnast góðs vinar og ná- granna. Við munum sakna Jóns granna en um leið erum við þakklát fyrir að hafa fengið tækifæri til að kynnast honum og munum minnast hans sterka persónuleika sem krydd- aði tilveruna með húmor, gleði og hlýju. Við sendum Gerðu, Ástu, Pétri, Láru og öðrum aðstandendum okkar innilegustu samúðarkveðjur og biðj- um guð að styrkja þau á þessum erf- iðu tímum. Pétur og Jóhanna, Fjallalind 57. Skjótt skipast veður í lofti. Jón Ólafsson, góður vinur og skólafélagi er fallinn frá. Hann kvaddi skyndilega og alltof snemma. Sorgin er mikil og ótímabært andlát hans er okkur óskiljanlegt. Hann er öllum sem þekktu hann harmdauði. Lífið er hverfult. Við kynntumst þegar við hófum nám í Verzlunarskóla Íslands. Á þess- um mótunarárum myndaðist djúp vinátta sem hefur stöðugt styrkst. Hópurinn Verzló ’66 hefur staðið þétt saman í gegnum árin. Þar átti Nonni og Júlli vinur okkar, sem dó fyrir 10 árum, stóran þátt í að rækta vinskap innan hópsins og þeir skildu báðir að með vináttu að veganesti er maður aldrei einn á ferð. Sú hefð hefur myndast að hópurinn hittist mánað- arlega í hádegismat yfir vetrartím- ann. Kalkúnaveislan fyrir jólin verður ekki sú sama þegar Nonna vantar í hópinn. Golfferðirnar eru orðnar margar, bæði innan- og utanlands. Einnig heimsóttum við skólafélaga sem bjuggu erlendis og þá var oft glatt á hjalla. Þegar um gamanmál var að ræða þá var Jón sko á heimavelli. Við vorum nágrannar í gamla daga og við vorum farin að hlakka til að verða aft- urnágrannar í sveitinni, þar sem Nonni og Gerða höfðu komið sér ein- staklega vel fyrir. Á kveðjustundu er okkur ofarlega í huga allar ánægjulegu samveru- stundirnar sem við áttum saman. Nonni gaf mikið af sér og var sterkur félagsmaður, alltaf tilbúinn að hjálpa. Við fráfall hans er höggvið skarð í vinahópinn og verður hans sárt sakn- Jón Ólafsson ✝ Jón Ólafssonfæddist í Reykjavík 15. maí 1947. Hann lést á gjörgæsludeild Landspítalans við Hringbraut 19. júní síðastliðinn og var útför hans gerð frá Digraneskirkju 30. júní. að. Við kveðjum gaml- an vin með sorg, sökn- uði og virðingu og þökkum allar samveru- stundirnar sem gott verður að minnast. Um leið og við kveðjum Nonna vottum við Gerðu og börnunum samúð á mikilli sorgar- stundu. Við biðjum Guð um styrk þeim til handa. Við eigum góðar minn- ingar um einstakan vin og frábæran mann sem við geymum. Það er bjart yfir minningu Jóns Ólafssonar. Margrét og Jón Ásgeir. Jón Ólafsson er farinn frá okkur. Í dag kveðjum við kæran vin okkar, Jón Ólafsson. Það er margt sem kem- ur upp í hugann núna þegar hann kveður okkur. Kynni okkar Nonna var í gegnum skíði og golf. Á Nesvelli áttum við góðar stundir í golfi en þar spiluðum við golf í mörg ár. Það er minnisstætt að í mörgum meistara- mótum á Nesinu urðum við í ýmsum sætum til skiptis og vorum sáttir með það. Við félagarnir mættum snemma í kaffi með Jóa Gunn og Jóni Ö. á Kaffi- vagninum og spiluðum svo í „logni“ á Nesinu. Nonni spilaði eitt ár í meist- araflokki Ness og stóð sig vel, ég minnti hann oft á að hann væri meist- araflokksmaður! Það var gaman að spila með Nonna, hann var mikill keppnismað- ur, gaf ekkert eftir og var fljótur að sjá hvað amaði að mótherjanum. Hve oft sagði hann ekki „Magga, horfðu á boltann“. Við Nonni fórum í okkar fyrstu golfferð fyrir um 20 árum síðan og lá leiðin til Skotlands. Þar gistum við hjá frú Peggy fyrir 8 pund á manninn og þá sagði Nonni „þetta var góður díll“. Það voru margar góðar ferðir sem við fórum í saman með „Rusty Nail“ en það eru félagar sem koma úr Fram og Val, 6 í hvoru liði og spiluðum við annað hvert ár erlendis. Síðasta ferð Rusty Nail hópsins var til Írlands árið 2006 og sáum við þar Ry- der-keppnina. Það var frábær ferð. Við Magga fórum margar góðar golf- ferðir með Nonna og Gerðu bæði til Spánar og Flórída. Þar kom hann sterkur inn sem leiðbeinandi því hann var okkur fremri í þeirri íþrótt. Skíðaíþróttin var Nonna afar kær. Hann var mikill áhugamaður ásamt vinum sínum í skíðadeild Fram um uppbyggingu í Kóngsgili í Bláfjöllum. Þar gerðu þeir félagarnir glæsilegan skála og skíðaaðstöðu, allt í sjálfboða- vinnu með fjölskyldum sínum. Fyr- irhugaðar voru margar skemmtilegar ferðir í sumar, t.d. ætluðum við að hitta þau hjónin í golfferð á Akureyri en þá var Nonni kominn á sjúkrahús þar. Við fórum norður þrátt fyrir það til að vera hjá okkar dýrmætu vinum. Að sjá þennan lífsglaða og fallega mann berjast fyrir lífi sínu var átak- anlegt. Við félagarnir vorum á leið í ferð með LEK (Landssamtök eldri kylf- inga) nú í júlí til Tékklands. Nonni var nýtekinn við sem formaður. Í þeirri ferð verður hans sárt saknað en minn- ingu hans verður haldið hátt á lofti. Hann verður þar með okkur alla leið. Við gætum sagt endalausar sögur af dýrmætri vináttu okkar við Nonna og Gerðu en þær varðveitast best í hjörtum okkar og munu lifa þar af ei- lífu. Elsku Gerða, Lára, Ásta og Pétur Marinó, megi Guð gefa ykkur styrk í sorginni og efla ykkur í framtíðinni. Minningin um mætan mann lifir með ykkur. Sárt er vinar að sakna. Sorgin er djúp og hljóð. Minningar mætar vakna. Margar úr gleymsku rakna. Svo var þín samfylgd góð. Daprast hugur og hjarta. Húmskuggi féll á brá. Lifir þó ljósið bjarta, lýsir upp myrkrið svarta. Vinur þó félli frá. Góða minning að geyma gefur syrgjendum fró. Til þín munu þakkir streyma. Þér munum við ei gleyma. Sofðu í sælli ró. (Höf. ók.) Margrét og Sveinn. Að skrifa kveðjuorð um Nonna er erfitt, því hann var alltaf til staðar í lífi mínu og þannig hélt ég að það yrði. Fyrir 35 árum þegar ég kynntist Júl- íusi manninum mínum, kynntist ég líka þeim stóra vinahóp sem haldið hefur saman ávallt síðan. Nonni var besti vinur mannsins míns frá tólf ára aldri og ókrýndur foringi vinahópsins. Þegar maðurinn minn veiktist af ólæknandi sjúkdómi var það mikið áfall fyrir okkur öll. Þegar hann dó fyrir rúmum átta árum breyttist mik- ið og við urðum öll að horfast í augu við sorgina. Ég veit að fráfall hans hafði mikil áhrif á Nonna. En mikið var hann traustur og raungóður. Aldrei leið langur tími að hann hringdi ekki til þess að segja „hæ, bæ og er ekki allt í lagi?“ Ógleymanleg eru öll þau skilaboð í símann sem hann sendi mér víðs vegar að úr heim- inum til þess að láta vita hvað líf þeirra Gerðu væri skemmtilegt. Við vorum öll á skíðum og margar voru skíðaferðirnar til útlanda sem skilja eftir góðar minningar. Dýrmæt voru líka fjölmörg gönguferðalög og útilegur víðs vegar um landið. Síðan kom golfið og flest okkar fóru í golf af því að Nonni var í golfi. Þeir vinirnir stunduðu það vel. En sjálf hef ég „ekki dottið inn“ þar sem ég fer bara af og til. Eitt sinn kvartaði ég við Nonna yfir að vera ekki nógu góð og hann svaraði: „Þú æfir ekki nóg, farðu og sláðu hundrað bolta á dag í mánuð, það er ekki nóg að vera í flottum föt- um með fínar græjur og æfa ekki!“ Þá hafði ég það. Þetta var alveg rétt, það var alltaf hægt að fá svör þegar spurt var um álit, hann var svo hreinn og beinn. Að lokum vil ég nefna hvað sonur minn sagði þegar ég sagði hon- um andlát Nonna: „Nonni var skemmtilegasti maður sem ég hef kynnt og alltaf gaman að vera í kring- um hann.“ Hans tvíræði, en hlýi húm- or og einstakur sjarmi hreif alla í kringum hann og á eftir að ylja okkur um ókomna framtíð. Ég sendi ykkur, Gerða mín, Lára, Ásta og Pétur, mínar innilegustu samúðarkveðjur. Vináttan mun eflast þó skörð hafi myndast í vinahópnum. Lilja Jónsdóttir. Ég kynntist Jóni í febrúar 2003 þegar ég byrjaði að vinna hjá honum í Snæfiski. Betri vinnuveitanda var ekki hægt að óska sér. Hann var ákveðinn en sanngjarn og óspar á hrósið þegar við átti. Hann var alltaf góður við mig og hvatti mig áfram í öllu því sem ég tók mér fyrir hendur og ef eitthvað bjátaði á, hvort sem var í starfinu eða utan þess, var hann alltaf tilbúinn að hlusta og hjálpa. Hann var duglegur að kenna mér og miðla af reynslu sinni, bæði af fyrirtækjarekstrinum og lífinu sjálfu, og hann var einlægur í ósk sinni að mér og Gunnari gengi vel í lífinu. Hann hugsaði vel um fyrirtækið og starfsfólk þess og var duglegur að bjóða okkur út og var þá hrókur alls fagnaðar. Honum var mjög tíðrætt um að það mikilvægasta af öllu væri heilsan og fjölskyldan. Ég hitti Jón síðast fyrir tæpum mánuði. Aldrei hefði mig grunað að það yrði í síðasta sinn. En ég er feginn núna að ég kvaddi hann þá með orðunum: „Takk fyrir allt.“ Elsku Gerða og fjölskylda. Megi Guð gefa ykkur styrk á þessum erfiða tíma. Fjóla Benný. Eftir að Jón Ólafsson steig inn á sviðið hjá GKG var hann ætíð í einu aðalhlutverkanna. Hann var þekktur mannkostamaður, góður kylfingur og keppnismaður mikill. Af þeim ástæð- um var hann fenginn til þess að stýra uppbyggingu afreksstefnu klúbbsins. Það var skemmtilegt verkefni og und- ir forystu Jóns unnust margir sætir sigrar. Samstarfið var gott og vinátt- an dýrmæt okkur öllum. Jón dró hvergi af sér þegar starfið fyrir GKG var annars vegar. Hann rak eigið fyrirtæki af miklum mynd- arskap en eyddi drjúgum tíma fyrir golfklúbbinn og það ber að þakka. Starfið sem Jón innti af hendi var ákaflega mikilvægt og lærdómsríkt að starfa með honum. Við urðum góðir vinir Jóns og lék- um gjarnan saman golf. Það var þó ójafn leikur og fyrir okkur við ofurefli að etja. Hann gerði þó ætíð sitt besta til þess að segja okkur til enda var hann góður leiðbeinandi. Þegar kemur að keppninni við æðri máttarvöld er aldrei nema einn sig- urvegari og enginn veit fyrirfram hvenær þeim leik lýkur. Ekki verður alltaf séð að sanngirni sé höfð að leið- arljósi. Hafa ber þó í huga að aðal- hlutverkin eru ekki alltaf þau lengstu. Okkur líður nú eins og Jón hafi ver- ið kallaður burt á miðjum hring. Margar fallegar holur eftir. Einnig sú nítjánda. Einhver hefur ætlað honum mikilvægara hlutverk. Jón Ólafsson kunni þá list að njóta líðandi stundar og deildi gleði sinni með öðrum. Það var dýrmætt þeim sem fengu að njóta. Við kveðjum sannan höfðingja og góðan dreng með söknuði og sendum Gerðu og fjöl- skyldu okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Gunnlaugur og Guðmundur. Kynni mín af Jóni Ólafs voru þann- ig að ef hann var annars vegar þá var yfirleitt eitthvað skemmtilegt í gangi. Þess vegna tók það mig töluverðan tíma að trúa því að eitthvað væri að þegar ég fékk þær fréttir að Jón væri alvarlega veikur. Ég trúði því reynd- ar að hann myndi ná sér og verða samur aftur, eiginlega ekki hægt að ímynda sér neitt annað, Jón var bara þannig, krafturinn og lífsgleðin svo mikil og hann gerði gott úr öllu. Með fráfalli Jóns erum við svo átakanlega minnt á það að við getum ekki tekið því sem sjálfsögðum hlut að morgundagurinn verði eins og vænt- um og að við getum hitt vini okkar aft- ur. Við lærum að þakka fyrir það sem við höfum fengið að njóta í lífinu og lögum okkur að því sem við getum ekki breytt. Ég þakka fyrir þær stundir sem ég átti með Jóni og fyrir að hafa fengið að kynnast honum. Í stuttu máli þá var alltaf gaman þar sem Jón var. Honum tókst ein- hvern veginn alltaf að laða fram gleðina og fá hópinn til að hlægja og skemmta sér. Hann var næmur á fólk, hafði gætur á öllu og komst upp með að grínast með nánast hvað sem var en misbauð engum. Það sást líka langar leiðir hvað Gerða var honum, þau voru greinilega náin og miklir vinir. Jón var góður skíðamaður og fór- um við ófáar ferðirnar niður fjallið saman og oft var nú ekkert slegið af og reynt vel á þol og fimi. Golfið var líka hans íþrótt enda bjó hann yfir mikilli þekkingu og leikni þar. Sem byrjandi í golfi naut ég tilsagnar og góðra ráða frá honum sem hann miðl- aði af sérstakri nærgætni. Kristín sambýliskona mín sem kynntist Jóni seinna hafði fljótlega orð á því við mig hversu viðkunnan- legur hann væri og við ræddum stundum um það að hann væri ein- staklega fær í mannlegum samskipt- um. Ég veit að skíðaferðirnar verða ekki eins þegar Jón vantar í hópinn og við munum sakna hans sárt en við eig- um minninguna og við eigum örugg- lea eftir að rifja upp óteljandi stundir þar sem Jón kom við sögu. Við Kristín vottum Gerðu og börn- um þeirra okkar innilegustu samúð og biðjum Guð að styrkja þau og leiða í sorginni. Sigurjón. Elsku Jón minn, ég trúi því varla að þú sért farinn. Það var aðeins nokkr- um dögum fyrir veikindi þín að við vorum að spila saman golf og plana saman næstu hringi. Það má segja að þú hafir verið part- ur af mínu lífi frá því að ég fæddist. Þú og pabbi nánir vinir og fjölskyldur okkar mjög samrýndar í gegnum tíð- ina. Ég fæddist á Marklandinu þar sem þú og Gerða bjugguð einmitt og eignuðust Láru stuttu seinna. Ég á sterkar æskuminningar frá þeim frá- bæra tíma sem fjölskyldur okkar hafa SJÁ SÍÐU 36 ✝ Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð með blómum, gjöfum og öðrum fallegum samúðarkveðjum við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, INGVARS GUNNLAUGSSONAR frá Gjábakka Vestmannaeyjum, Heimahaga 12, Selfossi. Guð blessi ykkur öll. Ingibjörg Helga Guðmundsdóttir og fjölskylda ✝ Konan mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, RANNVEIG EIRÍKSDÓTTIR, verður jarðsett frá Prestbakkakirkju á Síðu laugardaginn 5. júlí kl. 14.00. Einar Bárðarson og fjölskylda. ✝ Yndislegi sonur okkar og bróðir, LÁRUS STEFÁN ÞRÁINSSON, Stekkjarseli 4, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju í dag, fimmtudaginn 3. júlí kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast Lárusar er bent á minningarsjóð sem stofnaður hefur verið í hans nafni og er ætlaður til að vinna gegn einelti. Kaupþing banki vistar sjóðinn á reikningi 305-13-303030. Þráinn Lárusson, Ingibjörg Helga Baldursdóttir, Þurý Bára Birgisdóttir, Þórhallur Birgisson, Sigrún Jóhanna Þráinsdóttir, Kristján Stefán Þráinsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.