Morgunblaðið - 20.07.2008, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 20.07.2008, Blaðsíða 4
4 SUNNUDAGUR 20. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eftir Skúla Á. Sigurðsson skulias@mbl.is BÍLAFRAMLEIÐANDINN Nissan hefur gert samkomulag við Ingvar Helgason, umboðsaðila sinn á Íslandi, um að bjóða ákveð- inn fjölda bíla sinna á allt að einnar milljónar króna afslætti. Mun til- boðið standa frá og með morg- undeginum. Er þetta gert til að leiðrétta birgðastöðu Ingvars Helgasonar. Nýskráningum bíla hér á landi hefur fækkað um helming miðað við sama tíma í fyrra og seldum nýjum bílum að sama skapi. Þar sem Ingvar Helgason pantar bíla allt að fimm mánuði fram í tímann og salan hefur minnkað hratt und- anfarna mánuði situr Ingvar Helgason nú uppi með dágóðan fjölda af óseldum bílum. Upphaflega vildi Ingvar Helga- son endursenda bílana. Það varð þó ekki raunin heldur náðist sam- komulag um að veita kaupendum af- slátt og reyna þannig að grynnka á bílhafinu á hafnarbakkanum. „Þetta er alveg einstakt hér á landi að bíla- framleiðandi komi svona inn í þjóð- félagslegt vandamál,“ segir Skúli K. Skúlason, framkvæmdastjóri þjón- ustusviðs. Almennt myndi bílaumboðið þurfa að leysa þetta vandamál á eigin spýt- ur og er þetta því nokkur fengur fyrir umboðið. Svo ekki sé talað um ís- lenska bílakaupendur. Eðlilega er þó ekki tóm mann- gæska á bak við þetta fyrirkomulag. Nissan taldi hag sínum betur borgið með þessu móti en með því að flytja bílana og koma þeim í verð annars staðar. „Þeir sjá hag fyrir sig, þeir sjá hag fyrir okkkur og þeir sjá hag fyrir Íslendinga,“ eins og Skúli orðar það. Þrífætti þursinn „Það hafa komið svona lægðir en ég hef nú verið í þessum bransa í sautján ár, eins og segir í góðu kvæði, og ég hef ekki séð þetta svona,“ segir Skúli um ástandið á bílamarkaðnum. Það sem hann kýs að kalla þrífættan þurs segir hann vera orsökina. Fætur hans þrír séu óhagstætt gengi, lánakreppan og ol- íuverðið. Lánakreppan hefur verið fólki fjötur um fót í bílakaupum þar sem lánastofnanir hafa að undanförnu ekki viljað veita 100% fjármögnun. Skúli segir að viss lánastofnun hafi fallist á að veita 100% myntkörfulán fyrir þeim bílum sem verða með af- slættinum. Hættu við að senda bílana út  Nissan-bílar settir á útsölu vegna sölutregðu á markaðnum  Gert til að leiðrétta birgðastöðu Ingvars Helgasonar  Forstöðumaður þjónustusviðs IH segir ástandið ekki hafa verið svona í 17 ár Í HNOTSKURN »Nýskráningum bíla hefurfækkað um helming miðað við sama tíma í fyrra. »Bílaumboðin sitja uppimeð miklar birgðir af óseldum bílum, og grípa nú til ýmissa ráða til að losna við þá. »Þannig bauð Hekla einamilljón króna fyrir hvern notaðan og skoðaðan jeppa sem uppítöku. Þá hefur Brim- borg boðið styttri rekstr- arleigu og bensíntilboð.Morgunblaðið/Frikki Bílar Illa gengur að losna við nýja bíla í dag. Næg eru tilboðin. Eftir Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is ÓBYGGÐANEFND hefur lokið málsmeðferð og kveðið upp úrskurði á sex landssvæðum af tólf sem nefndinni er ætlað að klára árið 2011. Nefndin hefur því þrjú ár til að ljúka þeim sex svæðum sem eftir eru. Fyrstu úrskurðir nefndarinnar voru kveðnir upp vorið 2002 í upp- sveitum Árnessýslu. Upphaflega voru svæðin 11 en ákveðið var að skipta vestanverðu Norðurlandi, svæði 7, í tvennt. „Aðdragandi þess að svæði 7 var skipt í tvennt var í meginatriðum sá að vegna þjóðlendumála sem ólokið var fyrir dómstólum, þar sem reyndi á grundvallarálitaefni, sendi óbyggðanefnd fjármálaráðherra bréf og spurði hvort ástæða væri til að fresta umfjöllun um hluta svæðis 7 þar til þau mál hefðu verið leidd til lykta, ef þar kynni að reyna á sam- bærileg álitaefni. Í kjölfarið var lagt til af hálfu fjármálaráðherra að skipta svæðinu með þeim hætti sem varð,“ segir Þorsteinn Magnússon, lögfræðingur hjá óbyggðanefnd. Nefndin hefur miðað við gömlu sýslu- og hreppamörkin í umfjöllun sinni. Þannig afmarkaðist svæði 7 af allri Eyjafjarðarsýslu, Skagafjarð- arsýslu og A-Húnavatnssýslu aust- an Blöndu, ásamt Hofsjökli. Svæði 7a er nú suðurhluti þessa svæðis og 7b samanstendur af utanverðum Tröllaskaga og Skaga. Ekki liggur fyrir hvenær svæði 7b verður tekið fyrir hjá óbyggðanefnd. Kröfur vegna 66 jarða á 7a Staða þjóðlendumála í dag er sú að fjármálaráðherra lagði fram kröfur sínar um þjóðlendur á svæði 7a í mars sl. Aðrir höfðu þá þrjá mánuði til að lýsa kröfum um eign- arrétt að þeim landsvæðum. Alls bárust kröfur vegna 66 jarða og annarra landsvæða, öndverðar við þjóðlendukröfur ríkisins. Um mánaðamótin ágúst/septem- ber er fyrirhuguð vettvangsferð um svæðið. Ásamt óbyggðanefnd taka þátt í henni lögmenn málsaðila og staðkunnugir heimamenn. Málsmeðferð er mun styttra á veg komin á svæði 8, en það saman- stendur af A-Húnavatnssýslu vest- an Blöndu, V-Húnavatnssýslu, Mýrasýslu og Borgarfjarðarsýslu, auk Langjökuls. Eiginlegur kröfu- lýsingarfrestur ríkisins hófst 1. júlí sl. og stendur út þetta ár. Vett- vangsferð er fyrirhuguð sumarið 2009 og uppkvaðning úrskurðar í lok þess árs. Málsmeðferð á svæðum 9, 10 og 11 mun fara fram á árunum 2010 og 2011. Svæði 9 tilheyrir Snæfellsnes- sýslu, Dalasýslu og hluta Stranda- sýslu, þ.e. Bæjarhreppi og Brodda- neshreppi. Að loknum kröfu- lýsingum er vettvangsferð ráðgerð sumarið 2010 og uppkvaðning úr- skurða í lok ársins. Vettvangsferð er sömuleiðis fyr- irhuguð á svæði 10 sumarið 2010 en úrskurðir verði ekki kvaddir upp fyrr en á fyrstu mánuðum ársins 2011. Það svæði nær yfir Vestfirð- ina; Austur- og Vestur-Barðastrand- arsýslu, Vestur- og Norður-Ísafjarð- arsýslu og hluta Strandasýslu, þ.e. Árneshrepp, Kaldrananes-, Hólma- víkur- og Kirkjubólshrepp. Síðast mun óbyggðanefnd taka svæði 11 fyrir, Austfirðina. Eftir að ríkið og aðrir aðilar hafa lagt fram kröfur verður vettvangsferð farin sumarið 2011 og úrskurðir kveðnir upp í lok ársins. Hefur þrjú ár til að ljúka sér af                   !                "#        $ %    %&&     !  $  %&' (    %' (%   % ( (%    ' ) *' +  '      ' ,&& - '   ) ÞESSI áhyggjulausa stúlka stökk um loftið undir jökli á Snæfellsnesi þegar ljósmyndara bar að garði. Það sem fer upp kemur þó oft aftur niður og á það jafnt við um stúlkur sem t.d. hlutabréfa- verð. Með góðum vörnum má þó draga úr fallinu og kom hér stór dýna í veg fyrir óhapp. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Áhyggjulaus upp til himins á Snæfellsnesi TRAUSTI Valdi- marsson læknir sigraði í Tíbet- maraþoninu (The Great Tibetian Marathon) í gær. Hlaupið er talið erfiðasta mara- þonhlaup í heimi, samkvæmt Forb- es-listanum, en það fer fram í 3.800 metra hæð yfir sjó. Trausti hljóp á tímanum 3.45. Annar Íslend- ingur, Pétur Haukur Helgason, var í þriðja sæti og hljóp á tímanum 3.57. Alls tóku 30 Íslendingar þátt í hlaupinu og luku því allir, að því er fram kemur á vef Ferðaþjónustu bænda. Hún skipulagði ferð hlaup- aranna til Tíbet í samvinnu við dönsku ferðaskrifstofuna Albatros sem sérhæfir sig í erfiðum hreyfi- ferðum og er helsti bakhjarl mara- þonsins. Samkvæmt lýsingu Páls Arnórs Pálssonar, eins ferðalang- anna, fór hlaupið fram í Ladakh-hér- aði á hásléttum Tíbets Indlandsmeg- in. Hann segir að íslensku hlaupararnir séu með mjög mismikla reynslu en Trausti eigi m.a. að baki ein 50 maraþonhlaup. gudni@mbl.is Sigraði í Tíbet Trausti Valdimars- son hlaupari.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.