Morgunblaðið - 20.07.2008, Síða 10

Morgunblaðið - 20.07.2008, Síða 10
10 SUNNUDAGUR 20. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ Eftir Oddnýju Helgadóttur oddnyh@mbl.is N ýlega settu íslensk stjórnvöld sér þá stefnu að greiða veginn fyrir notkun op- ins hugbúnaðar hjá opinberum stofn- unum. Í skýrslu, sem lögð er til grundvallar stefnunni, kemur fram að árið 1999 hafi verið áætlað að á vegum ríkisins væru um 11.300 vinnustöðvar. Þeim hafi fjölg- að síðan. Þá sé áætlað að kostnaður við hverja vinnustöð sé að meðaltali um 25.000 kr. á ári. Miðað við þessar tölur má ætla að kostnaður ríkisins af rekstri vinnustöðva sé a.m.k. 282.500.000 kr. ár hvert og að hann mætti lækka umtalsvert með því að nota frjálsan og opinn hugbúnað. Slíkur hugbúnaður er oftast ódýr eða ókeypis og honum má breyta og dreifa að vild. Hann er ekki nýr af nálinni. Þegar tölv- ur litu fyrst dagsins ljós voru flestir notendur sérfræðingar sem þróuðu eigin hugbúnað, sem var undantekningalítið opinn. Opinn hugbúnaður liggur til grundvallar Netinu. Síðar hófu stórfyrirtæki í tölvuiðnaði að framleiða og selja séreignarhugbúnað. Viðskipti með hugbúnað af þessu tagi hafa fært sumum þessara fyrirtækja gríðarlegan auð. Margir áhugamenn um tölvur sættu sig aldrei við takmark- anir og kostnað sem fylgdi séreignarhugbúnaði. Undanfarið hefur þessum hópi vaxið fiskur um hrygg og viðhorf hans feng- ið opinbera viðurkenningu. Google, IBM og Apple styðja þessa þróun. Um allan heim starfa hópar áhugafólks um opinn hugbúnað að þróun og forritun þessarar gerðar af hugbúnaði. Í mörgum tilfellum eru þetta alþjóðleg samvinnuverkefni fólks sem hefur aldrei hist. Vefvafrinn Mozilla Firefox og skrifstofuhugbúnaðurinn Open Office eru dæmi um opinn hugbúnað sem margir þekkja. Stefna íslenskra stjórnvalda Í fyrra gaf forsætisráðuneytið út stefnu um opinn hugbúnað á Íslandi. Þar segir að frjáls hugbúnaður sé orðinn raunhæfur valkostur í upplýsingatækni. Hann ýti undir samkeppni á markaði sem hafi einkennst af yfirburðastöðu fárra birgja. „Árið 2005 fórum við að finna fyrir þrýstingi að skoða þessi mál, bæði frá Evrópusambandinu og Norðurlandaráði,“ segir Halla Björg Baldursdóttir, verkefnisstjóri í rafrænni stjórn- sýslu hjá forsætisráðuneytinu. „Íslensk stjórnvöld voru hvött til að standa ekki í vegi fyrir þróun opins hugbúnaðar. Þau ættu, þvert á móti, að styðja við þessa þróun eftir bestu getu.“ Hún segir mörg lönd þegar vel á veg komin í þessum efnum. Ýmsar ástæður séu fyrir þessari þróun. Ekki síst að mikilvægt sé að vera ekki háður fáum byrgjum um allan hugbúnað. Í stefnunni er kveðið á um að opinberar stofnanir vegi og meti hverju sinni hvort opinn hugbúnaður eða séreign- arhugbúnaður sé heppilegri. Einnig er mælst til þess að nem- endur séu ekki vandir á að nota eingöngu séreignarhugbúnað í skólastofum. Í þingsályktunartillögu sem Kolbrún Halldórsdóttir flutti, ásamt öðrum, er lagt til að ýmsir möguleikar opins hugbúnaðar verði kannaðir. Einnig er hvatt til þess að stofnuð verði sérstök miðstöð sem aðstoði við notkun á opnum hugbúnaði. Kolbrún segir opinn hugbúnað hafa ýmsa kosti. „Lýðræð- isleg hugsun og neytendasjónarmið mæla með notkun opins Hver græðir á tækninni? Hópar fólks sem aðhyllist notkun opins hugbúnaðar hafa lengi haft horn í síðu tölvufyrirtækja sem selja séreignarhugbúnað með miklum hagnaði. Ný stefna íslenskra stjórnvalda um notkun á opnum hugbúnaði gerir þessum hópum hátt undir höfði. Þeir sem berjast fyrir notkun opins hugbúnaðar telja að hann geti breytt heiminum til batnaðar. É g átta mig á því að sumum finnst það sem ég hef fram að færa út í hött þegar þeir heyra það fyrst, enda stríðir það gegn mörgu af því sem okkur er kennt. Fólk átt- ar sig heldur ekki á mikilvægi þeirra breytinga sem eru að verða. Þetta eru grundvall- arbreytingar,“ segir Eben Moglen. Boðskapurinn sem hann leitast við að breiða út er að fólk eigi ekki að eiga hug- myndir. Moglen er prófessor í lög- um og sögu laga við Col- umbia-háskóla. Hann er auk þess stofnandi og stjórnandi Software Freedom Law Center, lögfræðistofu sem talar máli forritara sem þróa opinn hugbúnað. Hann kom til Íslands til að flytja erindi á ráðstefnunni Stafrænt frelsi 2008, sem haldin var af nýstofnuðu Fé- lagi um stafrænt frelsi á Ís- landi. Enginn á að eiga hugmynd Hugmyndir Moglens eru ákaflega nýstárlegar og virð- ast brjóta í bága við leik- reglur í markaðshagkerfi, en Moglen rökstyður þær af miklum móð. Hann bendir á að á 20. öld- inni hafi ríkt fólk orðið ríkara og fátækt fólk fátækara, þótt tækniframfarir hefðu átt að gera kleift að bæta kjör þeirra sem bjuggu við sár- ustu fátæktina. „Hvernig stendur á því að möguleikarnir til að bæta lífs- kjör með tækni, sem fylltu fólk bjartsýni við upphaf síð- ustu aldar, leiddu til enn meira ójöfnuðar og órétt- lætis?“ spyr Moglen og bend- ir á að þegar uppfinningar á borð við ljósaperuna, kvik- myndir, símskeyti og síma litu dagsins ljós hafi fólk talið að þær myndu jafna kjör. „Sú varð ekki raunin. Lagaramminn sem reistur var um þessar uppfinningar var þess eðlis að fáir útvaldir græddu á þeim. Eignarhald á hugmyndum, sem hefur verið viðtekinn hluti af hagkerfi okkur síðan á tímum Edisons, hefur gert það að verkum að litið er á hugmyndir sem mjólkurkýr fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Þannig urðu vís- indi að iðnaði. Þekking sem gæti gerbreytt lífi þeirra sem búa við sult og seyru er í einkaeigu og þess vegna ekki tiltæk. Þetta er t.d. mjög áberandi í lyfjaiðnaði.“ Moglen segir að þeir sem líta á einkaleyfi sem órofa og nauðsynlegan þátt af hag- kerfinu átti sig ekki á því hvaðan hugmyndin um einka- leyfi og höfundarrétt er sprottin. „Upphaflega hófu menn að gefa út einkaleyfi til þess að lokka fólk með fagþekkingu til Bandaríkjanna, þar sem tilfinnanlegur skortur var á allri sérfræðiþekkingu. Fólk sem bjó yfir þekkingu og fag- kunnáttu einkaleyfi á því sem það kunni til sjö ára. Síðan átti þekkingin að skila sér út í samfélagið. Þetta var í raun- inni bara sniðug gulrót og skapandi innflytjendastefna.“ Hann segir að síðan hafi þetta kerfi fest í sessi. „Þeir sem græða á því verja það vitanlega með kjafti og klóm. Að mínu viti skekkir það allt; það dregur úr samkeppni og bælir niður sköpunargáfu. Ekki nóg með það, heldur el- ur það á gríðarlegum ójöfn- uði.“ Vatnaskil Moglen trúir að þetta kerfi muni breytast mikið á næstu árum. „Við búum ekki lengur bara við framleiðsluhagkerfi, þar sem allt kostar eitthvað og vörur eru áþreifanlegar. Samhliða þessu kerfi hefur byggst upp þekking- arhagkerfi sem lýtur ekki sömu lögmálum. Þar eyðist ekki það sem af er tekið, heldur er hægt að fjölfalda allt óendanlega oft, samnýta, breyta og bæta án aukakostn- aðar. Þessi þróun mun gjör- bylta ýmsum greinum, t.d. kvikmyndagerð, tónlist, fjöl- miðlun og fjarskiptaiðnaði.“ Moglen, sem hefur sjálfur fengist við forritun frá því hann var táningur, telur að þessi umskipti muni hafa meiri áhrif en flesta órar fyr- ir. „Arkitektar og hugmynda- smiðir netsins, þeir sem Veröld sem verður © Images.com/Corbis

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.