Morgunblaðið - 20.07.2008, Síða 11

Morgunblaðið - 20.07.2008, Síða 11
hugbúnaðar hjá hinu opinbera. Það getur t.d. varla talist eðli- legt að opinber kerfi séu þannig úr garði gerð að fólk verði að kaupa ákveðinn hugbúnað til að hafa aðgang að þeim,“ segir hún. Kolbrún telur einnig mikilvægt að skólabörn læri að nota op- inn hugbúnað og öðlist þannig dýpri þekkingu á tölvunarfræði. Virk grasrót Grasrótarhreyfingar hér á landi eru einnig mjög áfram um að opinn hugbúnaður verði notaður meira. Hallgrímur H. Gunnarsson situr í stjórn Félags um stafrænt frelsi á Íslandi, sem stofnað var í febrúar á þessu ári. Hann seg- ir opinn hugbúnað eitt helsta hugðarefni félagsmanna og áætlar að um 200 Íslendingar séu mjög mjög virkir notendur hugbún- aðar af þessu tagi og mun fleiri sem hafa áhuga á honum. „Það er ljóst að séreignarhugbúnaður sem byggist á lokuðum stöðlum samrýmist ekki kröfum upplýsingasamfélagsins. Opnir staðlar eru forsenda þess að fólk geti notað tölvur til að eiga samskipti sín á milli; án þeirra væri Netið óhugsandi, svo nokk- uð sé nefnt. Opinn hugbúnaður samrýmist vel þeim opnu stöðl- um sem Netið byggist á, enda nota öll helstu netfyrirtæki heims, t.d. Google, opinn hugbúnað,“ segir Hallgrímur. Auk þess að standa vörð um opna staðla, segir Hallgrímur fé- lagsmenn áhugasama um allt sem tengist einstaklingum og tækninotkun. T.d. telji þeir rétt að afnema einkaleyfi og endur- skoða höfundarrétt, ekki síst vegna þess að tæknin sem notuð er til að vernda höfundarrétt neyði fólk til að nota hugbúnað og tæki frá vissum framleiðendum. „Auk þess er tæknin komin langt fram úr löggjöfinni á þessu sviði, “ segir hann. „Forsendur þessarar löggjafar, að dýrt sé að framleiða og dreifa gögnum, eru brostnar. Því teljum við tíma- bært að endurskoða hana.“ Óánægja Ekki eru allir ánægðir með nýju stefnuna. Halldór Jörg- ensson, framkvæmdastjóri Microsoft á Íslandi, er mjög ósáttur við stefnumiðin. „Að mínu viti er þessi stefna í grundvallaratriðum röng. Höf- undar hennar virðast halda að opna staðla sé eingöngu að finna í opnum hugbúnaði. Staðreyndin er sú að séreignarhugbúnaður byggist í líka á opnum stöðlum. Ég harma að ekki sé tekið heildstætt á þessum málum. Af hverju var ekki sett fram stefnumótun um notkun á hugbúnaði almennt?“ Þá segir Halldór að reynslan sýni að opinn hugbúnaður sé, þegar upp er staðið, ekki ódýrari en séreignarhugbúnaður. „Það þarf yfirleitt mikla sérfræðiaðstoð og aðlögun til að nota opinn hugbúnað. Þetta er sérlega bagalegt hér á landi, þar sem skortur er á hugbúnaðarsérfræðingum.“ Halldór gefur líka lítið fyrir þau rök að nemendum læri af því að nota opinn hugbúnað. „Það er eins og að ráðleggja fólki að kaupa aðeins lélegri bíl til að fá innsýn í hvernig bílvél virkar. Ef menn vilja virkja hugbúnaðargeirann þá eru til miklu heppi- legri aðferðir til þess,“ fullyrðir hann. Æ fleiri virðast þó snúast á sveif með þeim sem aðhyllast op- inn hugbúnað. Athyglisvert verður að fylgjast með þróun þess- ara mála. Framtíðin er í mótun. þekkja innviði þessa kerfis sem allir nota núorðið, sáu fyrstir í hvað stefndi og hvaða merkingu störf þeirra höfðu í raun og veru. Netið og yf- irfærsla upplýsinga og gagna á stafrænt form breytir öllum leikreglum og færir völd frá einstaklingum til fjöldans. Sú þróun er bæði óumflýjanleg og óstöðvandi,“ segir Moglen. Þeir sem berjist gegn henni geti í hæsta lagi keypt sér tíma. „Tónlistariðnaður, eins og við þekkjum hann, hefur þegar runnið sitt skeið, þótt sumir neiti að horfast í augu við það. Eftir örfá ár verður allur grundvöllur fyrir séreignarhugbúnaði horfinn. Fjölmiðlun og fjarskipti munu tóra aðeins lengur, en það er samt bara tímaspurs- mál hvenær þeim greinum verður umbylt,“ segir hann. Sjálfur notar Eben síma- kerfi sem gerir honum kleift að hringja hvert sem er í heiminum án þess að greiða nokkuð fyrir það. Þá telur hann að vatnaskil hafi orðið í fjölmiðlun þegar fjöldamorðingi gekk ber- serksgang í Virgina Tech- háskólanum. „Fréttir af árás- inni birtust fyrst á Wikipedia- alfræðiorðabókinni. Hún greindi bæði fyrr og betur frá því sem gerst hafði en allir helstu fréttmiðlarnir. Þeir sem þekkja til vita að fjöl- miðlafólk leitar gjarnan fanga á Wikipedia, en í umfjöllun um fjöldamorðin vitnuðu virt- ir fjölmiðlar í fyrsta sinn op- inberlega í netorðabókina. CNN tók upp eftir Wikipedia, ekki öfugt!“ Óumflýjanlegt Hann telur baráttu þeirra sem reyna að snúa þessari þróun við vonlausa. „Það er eins og að reyna að ýta vatni upp brekku. Þegar allt er saman tekið er áætlað að í hverri viku verji forritarar um 5 milljónum klukku- stunda í að búa til opin forrit. Til samanburðar er talið að forritarar Microsoft vinni samtals í um 1,3 milljónir klukkustundir á viku. Opinn hugbúnaður er þegar a.m.k. jafn góður og séreign- arhugbúnaður. Innan fárra ára verður hann mun betri.“ Hreyfingin sem vinnur að þróun þessa hugbúnaðar er stundum kölluð copyleft. Nafnið er orðaleikur, því höf- undarréttur kallast copyright á ensku. Hugverk sem merkt eru með copyleft-tákninu, öf- ugu c með hring utan um, má afrita, nota og dreifa að vild. Það má hins vegar ekki nota þau til þess að búa til höfund- arréttarvarið efni. Þótt þessi regla gildi segir Moglen að séreignarhugbún- aður byggi undantekn- ingalítið að einhverju leyti á opnum hugbúnaði. Þannig sé opinn hugbúnaður forsenda þess að hægt sé að búa til séreignarhugbúnað. Gjaldþrot og atvinnuleysi Spurður hvort breyting- arnar sem hann á von á muni leiða til hópuppsagna og gjaldþrots fjölda fyrirtækja hallar Moglen sér aftur og brosir. „Fólk spyr mig nánast und- antekningalaust að þessu,“ segir hann. „Í fyrsta lagi má ekki rugla saman opnum hug- búnaði og ókeypis hugbúnaði. Nærri helmingurinn af þeim sem þróa opinn hugbúnað fá greitt fyrir það. Oftast eru fyrirtæki og stofnanir kaup- endur. Forritararnir fá borg- að fyrir vinnuna sem þeir inna af hendi, en þegar þeir hafa lokið starfi sínu er hug- búnaðurinn opinn öðrum sem mega nýta hann og breyta eins og þeim hentar. Það er ekkert óeðlilegt við þetta fyrirkomulag. Blaða- maður fær t.d. greitt fyrir að skrifa grein, en ekki fyrir hvert skipti sem einhver les hana. Vilji einhver nýta greinina sem heimild má hann það að því tilskildu að hann geti höfundar.“ Moglen bendir á að með vinnulaginu sem tíðkast við þróun opins hugbúnaðar byggist smám saman upp hafsjór þekkingar og tækja sem allir geti notað. „Þannig líkist þetta hinni vísindalegu aðferð. Það er stöðugt verið að búa til nýja þekkingu, sem hægt er að byggja á. Það gef- ur auga leið að þetta fyr- irkomulag leiðir frekar til sköpunar en kerfi þar sem allir berjast við að halda því sem þeir vita leyndu og gæta þess að aðrir hagnýti sér það ekki.“ Í annan stað segir hann að mikill áróður sé rekinn til að telja fólki trú um að heilu stéttirnar missi fótanna ef þessi þróun heldur áfram. Það sé ekki rétt. „Tónlist var t.d. til áður en tónlistariðnaðurinn kom til sögunnar, og tónlist verður áfram til þótt yfirbyggingin verði minni. Tónlistariðn- aðurinn var ekki sniðinn í kringum þarfir listamanna og þeir græða oft lítið þótt tón- list þeirra mali öðrum gull. Nú hafa tónlistarmenn tæki eins og MySpace til að koma tónlist sinni á framfæri og eru ekki háðir auglýsinga- og dreifikerfi plötufyrirtækj- anna. Þeir afla sér svo tekna með því að spila á tónleikum, og það er ekkert athugavert við það. Í gegnum tíðina hafa tónlistarmenn oftast haft lifi- brauð sitt af því að koma fram. Þótt örfáar stórstjörnur, sem hafa verið í stöðu til að setja plötufyrirtækjum stól- inn fyrir dyrnar, hafi ef til vill minna upp úr þessu fyr- irkomulagi, þá er það betra fyrir lungann af tónlist- armönnum. Hinir, sem starfa í tónlist- ariðnaðnum, hafa þekkingu og reynslu á sviði markaðs- setningar og auglýsinga og geta flutt sig yfir í aðra geira,“ fullyrðir Moglen. Hann segir að sum tölvu- fyrirtæki hafi þegar lagað sig að breytingum sem eru að verða. T.d. stíli IBM ekki lengur inn á það að selja hug- búnað heldur sérfræðiþekk- ingu og þjónustu. Hann gerir þó ráð fyrir því að breytingarnar komi ein- hverjum illa. „Það gerist æv- inlega þegar tækniþróun breytir forsendum. Þeir sem höfðu atvinnu af því að keyra hestvagna hafa eflaust bölvað sprengihreyflinum í sand og ösku, en það þýddi lítið.“ Enginn má stjórna Netinu Moglen segir samskipti þeirra sem þróa opin forrit og hinna sem vilja halda í höf- undarréttarkerfið alls ekki óvinsamleg. „Margir ímynda sér að mikil úlfúð ríki milli þessara hópa en það er ekki rétt. Raunar er það svo að þeir vinna nokkuð náið saman. Starf mitt hjá Software Free- dom Law Center felst að miklu leyti í því að stjórna samningaviðræðum þeirra á milli.“ Moglen gerir því skóna að þeir sem tapa mestum völd- um og tekjum á þessum breytingum muni þó reyna hvað þeir geta til að halda í gamla kerfið. Hann telur ekki ólíklegt að gerðar verði til- raunir til að læsa hlutum Netsins eða ritskoða það sem þar fer fram. „Ég veit að margir telja að einhvers konar ritskoðun væri æskileg, vegna þess að það birtist margt skelfilegt á Netinu. Þetta má þó ekki ger- ast vegna þess að ef þróuð verður tækni til að stjórna einhverjum hluta netsins, verður hægt að stjórna öllu sem þar fer fram. Þess konar völd ætti enginn að hafa,“ segir hann. Morgunblaðið/Árni Sæberg Vinay Gupta og Eben Moglen hafa trúa því að opinn hugbúnaður geti bætt heiminn. Gupta „Pólitísk vandamál leysast þegar réttar tæknilegar lausnir finnast“ Moglen „Þetta mun gjörbylta kvikmyndagerð, tón- list, fjölmiðlun og fjarskiptum“ MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. JÚLÍ 2008 11 Frjáls og opinn hugbúnaður Hugbúnaður sem er byggður á forritunarkóða sem höf- undar hafa valið að gera opinberan og öllum aðgengi- legan. Notendur mega dreifa, aðlaga og betrumbæta hugbúnaðinn að vild, að því gefnu að afurðin verði áfram opin og frjáls. Hugbúnaður af þessari gerð er oft ókeypis. Séreignarhugbúnaður Hugbúnaður sem byggist á forritunarkóða sem ekki er opinber. Notkun, dreifing og aðlögun á séreign- arhugbúnaði er takmörkunum háð. Hugbúnaður af þess- ari gerð er oft seldur. Opnir staðlar Staðlar sem eru öllum opnir, óháðir búnaði og birgjum og ekki stýrt af einum aðila. Opnir staðlar auðvelda samskipti milli hinna ýmsu hugbúnaðarkerfa. Opinn hugbúnaður byggist oftast á opnum stöðlum. Opnir staðlar eru einnig notaðir í ýmsum séreignarhugbúnaði. Hugtök F jöldi fólks deyr á hverju ári að óþörfu. Ég gat ekki horft upp á það. Þess vegna greip ég það sem ég tel vera sögulegt tækifæri til að láta gott af mér leiða. Með þessum hætti get ég lagt eitthvað af mörkum sem skiptir raunverulegu máli á einni stuttri manns- ævi,“ segir Vinay Gupta, sem lærði upphaflega for- ritun en starfar nú að því sem hann kallar heildstæða kerfahönnun. Hann hélt fyrirlestur á ráðstefnu sem haldin var á vegum Félags um stafrænt frelsi á Íslandi í byrjun júlí. Opinn hugbúnaður útrými fátækt Gupta telur opinn hug- búnað lykilinn að því að bæta hag þeirra sem búa við mesta fátækt í heim- inum. Hann vinnur nú að því að safna saman og koma á netið ýmsum tæknilegum útfærslum, sem geta opnað leið að meiri lífsgæðum fyr- ir þessa hópa. „Ég veit ekki hvort Vest- urlandabúar átta sig al- mennt á því hversu gott þeir hafa það. T.d. eiga bara um 10-20% af fólki í heiminum heimili búin þæg- indum eins og hér tíðkast. Margir eru svo fátækir að þeir deyja hreinlega úr fá- tækt; úr hungri, læknanleg- um sjúkdómum, kulda eða hita. Hæglega mætti bjarga um helmingi þessa fólks.“ Gupta bendir á að til- raunir til að draga úr fá- tækt hafi víðast ekki borið nægan árangur. „Það hefur sýnt sig að miðstýrð þróunaraðstoð skilar ekki því sem ætlast er til. Það má m.a. rekja til þess að reynt hefur verið að færa samfélög í vestrænt horf, en innviðir og grunn- gerð til þess eru ekki til staðar.“ Þess vegna telur Gupta mun heppilegra að finna aðferðir til að leysa vanda- mál inni á hverju heimili fyrir sig, með sjálfbærum einingum. T.d. sé hægt að hreinsa vatn og gera það drykkjar- hæft með því að láta vatns- flöskur standa í sól í um átta tíma. „Einföld ráð af þessu tagi geta haft gríðarlega mikið að segja. Þessi aðferð er mun raunhæfari en áætl- anir um að byggja alls stað- ar vatnsveitur sem tengjast hverju heimili.“ Gupta bendir á að fleiri eignist farsíma með hverj- um deginum sem líður, m.a.s. á mjög fátækum svæðum. „Innan fárra ára verður samruni síma og tölvu al- gjör og þá mun fátæku fólki sem hefur aðgang að Net- inu fjölga mjög hratt.“ Því telur Gupta mik- ilvægt að lausnir og aðferð- ir til að bæta lífsskilyrði birtist á Netinu í aðgengi- legu formi og á sem flestum tungumálum. „Það ætti í rauninni ekki að vera flókið, ef margir koma að því. Einkaleyfi, sem koma í veg fyrir að hægt sé að nýta ákveðnar lausnir, gætu helst reynst óþægur ljár í þúfu.“ Gupta nýtir sér að- ferðafræði opins hugbún- Netið til bjargar aðar í starfi sínu. Hann bindur líka miklar vonir við ódýr fjarskipti með opnum hugbúnaði. Hús fyrir flóttafólk Gupta lærði upphaflega forritun en fann köllun sína þegar hann kynnti sér rannsóknir á högum flótt- fólks, gerðar á vegum hug- veitu sem hann vann hjá í sjálfboðastarfi. „Þegar fólk er landflótta er einn helsti vandinn að koma því í skjól. Oft er hik- að við að byggja flótta- mönnum híbýli, af ótta við að þeir hverfi ekki aftur til síns heima. Því þurfti að finna aðferð til að byggja flóttamannabústaði sem haldi veðri og vindum, eru auðveldir í uppsetningu og auðvelt er að færa.“ Gupta lagðist yfir verk- efnið og fann upp aðferð til að smíða skýli, sem uppfylla kröfu Sameinuðu þjóðanna, úr hörðum pappa og plasti. Skýlin, sem kallast hexa- yurt, eru mjög ódýr í fram- leiðslu, það tekur bara nokkrar mínútur að setja þau upp og það er hægt að pakka þeim saman og flytja þau með sér. Gupta hefur opnað vef- síðu þar sem hægt er að hala niður opinn hugbúnað sem gerir kleift að fram- leiða þessi skýli í verk- smiðjum sem framleiða alla jafna eitthvað allt annað. „Uppfinningar af þessu tagi gætu skipt miklu máli. Pólitísk vandamál hverfa nefnilega eins og dögg fyrir sólu þegar réttar tækni- legar lausnir finnast,“ segir hann að lokum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.