Morgunblaðið - 20.07.2008, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 20.07.2008, Qupperneq 12
12 SUNNUDAGUR 20. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ S ólveig Björk Svein- björnsdóttir vinnur með barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, UNICEF, í héraðinu Abyei á landa- mærum Norður- og Suður-Súdans. Þegar blaðamaður náði tali af henni var hún á skrifstofu SÞ í bænum Kadugli í Norður-Súdan. Hinn 13. maí síðastliðinn brut- ust út hörð átök milli frelsishers Suður-Súdans og hersveita stjórn- valda í samnefndum höfuðstað héraðsins, Abyei. Þeir 30.000 íbú- ar, sem byggðu borgina, flúðu átökin daginn eftir og borgin er nú í eyði. Flestir héldu sunnar en íbú- ar af arabískum uppruna hörfuðu norður á bóginn. Átök um olíu og beitarland Sólveig segir að þetta svæði hafi lengi verið þrætuepli á milli Miss- eriya-fólksins sem er af arabískum uppruna og Ng Dinka-þjóðarinnar sem er upprunnin í Afríku. Átökin hafa einkum snúist um beitarland. Einnig er nú háð harðvítug bar- átta um ríkulegar olíulindir hér- aðsins, en þar eru miklir hags- munir erlendra ríkja í húfi. Hvorki Suður- né Norður-Súdanar vilja því sleppa þessu svæði. Árið 2004 náðist samkomulag um skiptingu olíuauðsins milli stjórnvalda í Norður-Súdan, suð- urhlutans og ættbálkanna sem byggja héraðið og ári síðar var gert friðarsamkomulag á milli frelsishers Suður-Súdans og stjórnvalda í Khartoum. Skortur á sérfræðiþekkingu „Ástandið á svæðinu er afar við- kvæmt og í raun er ekki víst hvar þetta svæði lendir eftir kosning- arnar á næsta ári, en þá verður kosið um það hvort íbúar Suður- Súdans vilji stofna eigið ríki.“ Sólveig var stödd í Kadugli til þess að sinna neyðaraðstoð í Abyei-héraði. „Ég vinn aðallega í bæ sem heit- ir Agok og er um 40 km suður af Abyei, en þar og í þorpunum í kring hefur meginhluti flóttafólks- ins sest að. Starf mitt er einkum fólgið í því að hafa uppi á foreldrum barna, en flóttinn frá Abyei brast á með svo mikilli skyndingu að fjöldi barna varð viðskila við foreldra sína. Nú er ofuráhersla lögð á að hafa uppi á þeim og sameina fjölskyldurnar. Þá er einnig unnið að því að koma á starfi með börnunum og veita þeim stuðning til að aðlagast nýjum aðstæðum. Reynt er að beina huga þeirra frá atburðum sem tengjast þessum átökum. Helstu bjargir samfélagsins eru sterk tengsl innan fjölskyldna og ættbálka. Fólk af sama ættbálki aðstoðar hvað annað. Ég vinn með heimamönnum og nýti mér bjargir samfélagsins til þess að sameina fjölskyldur auk þess að veita fag- lega leiðsögn, en mikill skortur er á fólki með sérþekkingu á sviði barnaverndarmála. Sumir starfsmenn okkar urðu viðskila við börn sín þegar flóttinn brast á og því þurfti einnig að að- stoða þá fyrstu dagana.“ Þegar Sólveig er spurð um framtíð starfsins í héraðinu segir hún að erfitt sé að segja nokkuð um það. „Átök geta brotist út hve- nær sem er. Sameinuðu þjóðirnar eru nú með langfjölmennustu sveitir sínar í Súdan. Þeim er ætl- að að hafa eftirlit með því að frið- arsamningur milli stjórnvalda og uppreisnarmanna í Suður-Súdan sé virtur. Átökin í Abeyei hefðu getað hleypt samkomulaginu í uppnám. Vonandi sér þjóðin fram á bjart- ari daga, en borgarastyrjöld hafði geisað á þessu svæði í 20 ár áður en samkomulag náðist.“ Tifandi tímasprengja í Súdan Í HNOTSKURN »Um íslensku friðargæslunagilda lög nr. 73/2007. Þau taka á ýmsum málum sem snerta störf íslenskra frið- argæsluliða erlendis. »Erlendir samstarfsaðilar ís-lensku friðargæslunnar eru einkum Atlantshafsbandalagið (NATO), stofnanir Sameinuðu þjóðanna (UNICEF, UNIFEM, WFP), Evrópsambandið og Ör- yggis- og samvinnustofnun Evr- ópu. Auk þess var norræna eft- irlitssveitin á Srí Lanka (SLMM) starfandi til ársloka 2007. »Árið 2007 störfuðu samtals74 einstaklingar að lang- tímaverkefnum fyrir frið- argæsluna, en stöðurnar voru um 30. »Jafnframt fóru 17 manns ístuttar ferðir til þess að sinna kosningaeftirliti á vegum friðargæslunnar. »Þátttaka kvenna í frið-argæslunni hefur aukist jafn og þétt. Börnin Mörg börn urðu viðskila við foreldra sína þegar flótti brast á. Sólveig vinnur við að sameina fjölskyldurnar. Íslenska friðargæslan hefur að undanförnu lagt aukna áherslu á samstarf við Sameinuðu þjóðirnar og stofnanir þeirra við val á verk- efnum. Þátttaka kvenna í friðargæslu hefur farið vaxandi en hátt í 60 konur hafa farið á vettvang til lengri tíma á vegum íslensku frið- argæslunnar á síðastliðnum áratug. Íslenskir friðargæsluliðar taka nú þátt í verkefnum á fjórum meginsvæðum í heiminum: í Afganist- an, Mið-Austurlöndum, á Balkanskaga og í Afríku. Arnþór Helgason kynnti sér friðagæslumál. Bjarney Friðriksdóttir er fulltrúi á skrif-stofu flóttamannastofnunar SÞ í Da-maskus. Hún fæst einkum við að skipuleggja þjálfun starfsmanna og semja handbækur, en fjöldi starfsfólks á skrifstof- unni hefur áttfaldast síðastliðið hálft annað ár vegna vaxandi fjölda flóttamanna frá Írak. „Aðstæður í Sýrlandi eru mjög sérstakar, því að langflestir flóttamenn búa í leigu- húsnæði í borgum og bæjum. Þar af er meiri- hluti þeirra í Damaskus,“ segir Bjarney. Hún segir að Sýrland og Jórdanía skeri sig úr að þessu leyti. „Yfirleitt býr flóttafólk í flóttamannabúðum. Í Sýrlandi eru einungis einar búðir en þar dveljast Palestínumenn sem flúðu frá Írak. Þeim hefur ekki verið veitt dvalarleyfi eins og öðrum sem flúðu þaðan. Enginn veit hversu margir hafa komið frá Írak eftir að ráðist var inn í landið, því að landamærin voru opin öllu flóttafólki þar til í október í fyrra. Ýmsir telja að landflótta Írak- ar í Sýrlandi séu á bilinu 1-1,5 milljónir. Margir þeirra gátu keypt sér húsnæði og haldið áfram að lifa eðlilegu lífi. Sumum þeirra hefur einnig tekist að útvega sér vinnu eftir einhverjum leiðum. Sýrlensk yfirvöld heimila þó ekki flóttafólki að vinna í landinu enda ríkir þar 10% atvinnu- leysi. Margar fjölskyldur hafa því lent í mikl- um vandræðum og reyna jafnvel að afla sér tekna með vinnu barna og vændi.“ Veglyndi Sýrlendinga Bjarney segir að í raun hafi Sýrlendingar tekið mjög höfðinglega á móti flóttafólkinu og almenningur hafi veitt því bæði húsaskjól og fjárhagsaðstoð. Börnin fái ókeypis skólavist og ekki sé amast við því að fólkið dvelji í Sýrlandi. „Hér er þar að auki allfjölmennur hópur flóttafólks frá Sómalíu sem dvalist hefur hér í 10-15 ár. Þá eru hér einnig Írakar sem flúðu hingað á dögum Saddams Hússeins. Það veldur nokkrum vandræðum að Sýrland á ekki aðild að flóttamannasamningi SÞ. Sýr- lendingar leita ekki langtímalausna á vanda flóttafólksins heldur líta á það sem gesti í land- inu. Sýrlendingar eru eina þjóðin í Araba- bandalaginu sem veitir flóttamönnum frá að- ildarríkjunum dvalarleyfi í landi sínu. Þess vegna hafa flóttamenn frá Írak, Sómalíu, Súd- an og fleiri löndum getað dvalist í Sýrlandi jafnvel svo að árum skiptir. En fæstir þeirra verða virkir þegnar samfélagsins.“ Flestir eru óskráðir Á vegum flóttamannastofnunarinnar er nú unnið að því að skrásetja flóttafólkið frá Írak. Hingað til hafa einungis um 205.000 manns verið skráð. „Við gerum menn út af örkinni til þess að leita fólkið uppi og fá það til að skrá sig. Flóttafólkið snýr sér nú í auknum mæli til okkar. Einkum á þetta við um fjölskyldur sem eru með fötluð börn, alvarleg heilsuvandamál eða án fyrirvinnu. Þessar fjölskyldur eiga rétt á styrkjum. Flóttamannastofnunin veitir hins vegar ekki styrki fjölskyldum sem eru með karlmann á aldrinum 18-60 ára innan sinna vébanda. Ástæðan er fyrst og fremst skortur á fjár- magni.“ Takmörkuð aðstoð bandamanna Bjarneyju finnst sem þeir, sem stóðu að inn- rásinni í Írak, hafi brugðist þeirri skyldu sinni að koma flóttafólkinu til aðstoðar. „Á hverjum degi koma um 500 manns á skrifstofuna til okkar til þess að leita lausna á vanda sínum. Flestir eru búnir með allt sparifé sitt sem þeir höfðu sér til lífsframfæris og hafa jafnvel selt allar eigur sínar. Þegar allt er upp- urið fer staða fólksins síversnandi og fá úrræði fyrir hendi. Samkvæmt nýlegri könnun vilja einungis 4% flóttafólksins snúa aftur heim til Íraks og fáir virðast trúa því að lausn sé þar í nánd. Stuðningsmenn innrásarinnar hafa veitt Sýrlendingum mjög takmarkaða aðstoð til þess að takast á við þennan mikla fjölda flótta- manna. Þá hafa fáir þeirra fengið vegabréfs- áritun til Vesturlanda. Bandarísk stjórnvöld hyggjast einungis taka við 12.000 írökskum flóttamönnum, en það er eins og dropi í hafið.“ Írakar flykkjast til Sýrlands Morgunblaðið/Ásdís Í Damaskus Bjarney Friðriksdóttir segir Sýrlendinga taka höfðinglega á móti flóttafólki.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.