Morgunblaðið - 20.07.2008, Síða 14

Morgunblaðið - 20.07.2008, Síða 14
14 SUNNUDAGUR 20. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ Eftir Jóhönnu Maríu Vilhelmsdóttur jmv@mbl.is N icolas Sarkozy, Frakk- landsforseti, lék á alls oddi í hlutverki gest- gjafans á stofnfundi Miðjarðarbandalags- ins um síðustu helgi. Sarkozy baðaði sig í sviðsljósinu og það eitt að honum skyldi hafa tekist að kalla saman til fundar rúmlega 40 leiðtoga sem margir hverjir hafa eldað saman grátt silfur í gegnum tíðina, þótti mikið afrek. Helgin var viðburðarík, þar var friðarviðræðum Miðausturlanda þok- að áfram með óljósri niðurstöðu þó. Sýrlandsforseti kom út úr skúma- skoti sínu og settist við sama borð og líbanski forsetinn, ísraelski forsætis- ráðherrann og um 40 aðrir þjóð- arleiðtogar. Stofnfundi Miðjarð- arbandalagsins lauk svo þann 14.júlí, á þjóðhátíðardegi Frakka, með til- heyrandi listflugi og flugeldasýn- ingum. Þrátt fyrir auðsýndan sameining- arvilja Sarkozys lýsti tregða og van- traust sér m.a. í því að ekki reyndist unnt að ná dæmigerðri fundarmynd af öllum leiðtogunum samankomn- um. Nokkrir leiðtogar arabaríkja tóku sameiginlega myndatöku með forsætisráðherra Ísraels ekki til greina. Sarkozy lét það þó ekki spilla stemmningunni heldur stillti sér skælbrosandi upp í upphafi fundar með hverjum leiðtoga fyrir sig, rúm- lega fjörutíu sinnum. Nokkuð bjartari vonir en áður Sarkozy, sem nú gegnir embætti forseta Evrópusambandsins, hefur gengið með drauminn um Miðjarð- arbandalag í maganum í nokkur ár. Viðleitni til aukins samstarfs norðurs og suðurs var reyndar sýnd fyrir 13 árum, þegar ferli sem kennt er við Barcelona fór í gang, en lognaðist fljótt út af. Vonirnar þykja nokkuð bjartari nú en þá, ekki síst með tilliti til aukinna viðskipta og batnandi efnahags- ástands í einhverjum landanna sunn- anhafs. Þó stjórnmálaerjur geti gert nýja bandalaginu erfitt fyrir virðist viðskiptahliðin vera nokkuð vænleg. Í nýlegum leiðara breska tímarits- ins The Economist er bent á að bein erlend fjárfesting í löndunum frá Marokkó til Tyrklands hafi sexfald- ast frá aldamótum, árið 2006 hafi hún verið komin í 59 milljarða Banda- ríkjadala. Þar með nálgist löndin beina erlenda fjárfestingu í Kína sem nemi 69 milljörðum dala. Einnig er bent á að vöxtur vergrar landsfram- leiðslu á sunnan- og austanverðri Miðjarðarhafsströndinni hlaupi á 4,4% á ári og fari sívaxandi um leið og sömu tölur fari lækkandi í Evrópu. Þessar þjóðir eiga þó langt í land með að ná evrópskum hagvexti og með núverandi hraða áætlar Economist að það muni taka þær 160 ár að ná því marki. Atvinnuleysi er víðast hvar gríð- arlegt á þessu svæði, talið allt að 30% þó opinberar tölur séu lægri og er at- vinnuleysið ein ástæða þess að Evr- ópulöndin renna hýru auga suður eft- ir. Með nýrri innflytjendastefnu ESB þar sem ríkjum er einsett að haga út- gáfu landvistarleyfa eftir þörfum at- vinnumarkaðanna er þó sýnt að besta vinnuaflið verður valið úr og ekki hverjum sem er hleypt inn fyrir. Ekki líta allir jákvæðum augum til nýs bandalags norðurs og suðurs. Tyrkir hafa lýst yfir áhyggjum og telja að með nýju bandalagi sé verið að bjóða þeim til leiks á kostnað inn- göngu þeirra í ESB sem þeir hafa unnið að undanfarin ár. Moammar al-Gaddafi, Líb- íuleiðtogi, hélt sig víðsfjarri fund- inum í París. „Við erum fjarri því að svelta og erum engir hundar sem þau verða að henda í beini,“ var haft eftir Gaddafi í evrópskum fjölmiðlum. Hann sagði nýlendufnyk af nýja bandalaginu, Barcelona-verkefnið hefði lognast út af fyrir 13 árum og litlar vonir væru til annarrar nið- urstöðu nú. Sé leitað enn sunnar hefur Ab- doulaye Wade, forseti Senegal, gagn- rýnt stofnun nýja bandalagsins harð- lega og sagt það reisa vegg um miðja Afríku. „Það er augljóst eftir hverju er sóst með stofnun sambandsins, það er olían og gasið í Alsír auk olíu- nnar í Líbíu,“ segir í nýlegri yfirlýs- ingu forsetans Framtíðin á huldu Fyrstu tillögur að verkefnum Miðjarðarbandalagsins eru gaum- gæfilega valdar og ekki er snert á mannréttindamálum eða öðrum eld- fimum málum til að valda ekki ring- ulreið strax í upphafi. Tækifærin sem felast í Miðjarð- arbandalaginu snerta 750 milljónir manna. Of snemmt er að segja til um hvort sambandið gefi af sér frjóar viðskiptalausnir, aukið öryggi og frið við Miðjarðarhafið eins og markmiðið er eða hvort það lognist út af líkt og Barcelona-verkefnið gerði forðum daga. Enn eru grundvallaratriði á huldu, eins og hvar aðalskrifstofa sambandsins verður staðsett eða hversu lengi Hosni Mubarak, Egyptalandsforseti, og Nicolas Sar- kozy munu sinna forystuhlutverk- unum. Erlent | Mikil tækifæri felast í Miðjarðarbandalaginu, en of snemmt er að segja til um hvort það nær markmiðum sínum. Meiðyrði | Bandaríkjamenn segja breska meiðyrðalöggjöf vega að málfrelsi. Réttarfar | Gerði Alþjóða glæpadómstóllinn illt verra með því að fara fram á handtökuskipun á hendur forseta Súdans? Fullkomin Sarkozy-sýning? Frakklandsforseti þótti standa sig vel í gestgjafahlutverkinu á stofnfundi Miðjarðarbandalagsins þegar hann tók á móti litríkri flóru leiðtoga sem margir hafa átt í hatrömmum deilum svo áratugum skiptir Ljósmynd/Associated press Sáttaknús? Dramatíkin þótti ná hámarki þegar Abbas, forseti Palestínu, og Olmert, forsætisráðherra Ísraels, stigu samtímis út úr bifreiðum sínum, gengu til Sarkozy og gáfu honum faðmlag fyrir sameiginlegan fund þeirra. Í HNOTSKURN »Upphafleg hugmynd Sar-kozy var að Miðjarð- arbandalagið mynduðu aðeins þjóðir með land að Miðjarð- arhafinu. Merkel Þýskalands- kanslari fékk hann ofan af því og nú eiga öll ESB-ríkin aðild. »Friður, öryggi og aukinviðskipti eru aðalmark- miðin með stofnuninni. »Sáttaumleitanir þóttuhelsta afrek stofnfund- arins. Leiðtogar Sýrlands og Líbanons sögðu möguleika fyrir hendi á opnun sendiráða í hvors annars ríkjum. VIKUSPEGILL» Erlent                  ! "#$    & '#  ()&  *  $ +  ,-. /     0&  *!(" '(  1              2) &/ ) /                 !      AÐEINS þremur dögum eftir að stofnfundi Miðjarðarbandalagsins lauk var Angela Mer- kel, kanslari Þýskalands, komin til fundar við Abdelaziz Bouteflika, forseta Alsírs, ásamt 50 manna fylgdarliði þýskra fjárfesta og fulltrúa stórfyrirtækja. Markmiðið var að treysta viðskiptatengsl þjóðanna og ræða viðskiptasamninga upp á milljarða evra. Þjóðverjar renna hýru auga til aukinna viðskipta við Alsír, m.a. með tilliti til auð- ugra olíu- og gaslinda sem þar er að finna. Að sögn þýska orkumálaráðherrans, Bernd Pfaffenbach, vilja þýsk yfirvöld kaupa gas í auknum mæli af Alsíringum. Eins og er kem- ur 40% af því gasi sem flutt er til Þýskalands frá Rússlandi, en aðeins 1% frá Alsír. Merkel hefur þótt sýna mikla einurð í að ná góðum samskiptum við Alsíringa „við vit- um að við erum ekki þau einu og að við verðum að leggja okkur öll fram,“ hefur dagblaðið Frankfurter Allgemeine eftir henni á fundi með alsírskum og þýskum við- skiptamönnum. Alsír gæti átt glæsta tíma framundan náist að nýta náttúrulegar auð- lindir landsins og hefur Merkel lagt á það áherslu við yfirvöld landsins að samhliða verði að byggja upp sterkt efnahagskerfi sem byggi á breiðum grunni. Margþættar þýskar lausnir Viðskiptanefndin sem fylgdi Merkel var með ýmsar lausnir í farteskinu. Hvers kyns „pakkalausnir“ sem gætu tekið á marg- víslegum vanda þjóðarinnar. Þýskaland vilji nefnilega ekki aðeins selja Alsíringum her- skip, járnbrautir, steinsteypu eða skolprör heldur einnig kenna landsmönnum að fram- leiða og þar með skapa atvinnutækifæri og auka sjálfstæði þjóðarinnar. Forstjóri stórfyrirtækisins ThyssenKrupp er vongóður um að með þátttöku í viðræðun- um í Alsír muni takast að koma á fót stærstu áburðarverksmiðju heims þar í landi, auk þess að landa sölu fjögurra herskipa fyrir allt að fimm milljarða evra. Í ferðinni var þó aðeins undirritaður einn samningur sem er etv. ekki mjög dæmigerð- ur fyrir þau viðskipti sem þar verða stunduð í framtíðinni. En það var samningur um byggingu þriðju stærstu mosku heims í Al- geirsborg. Moskan sú mun kosta Alsírbúa tæplega einn milljarð evra og er gert ráð fyrir að hún geti rúmað rúmlega 100.000 manns að sögn verkfræðinga. Hún verður um 20.000 fermetrar að stærð og með yfir 214 metra háum bænaturni. Slíkar risaframkvæmdir á andlega sviðinu gætu virst óhagkvæmar í landi þar sem helmingur ungs fólks býr við atvinnuleysi, en yfir 60% þjóðarinnar er undir 25 ára aldri. Forseti landsins, Abdelaziz Bouteflika, telur þó að andlegu lífi almennings verði að sinna jafnt sem veraldlegu. jmv@mbl.is Þjóðverjar byggja upp stórviðskipti í Alsír Reuters Vinir Angela Merkel og Abdelaziz Bouteflika leiddust létt í lund í Algeirsborg á dögunum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.