Morgunblaðið - 20.07.2008, Síða 23

Morgunblaðið - 20.07.2008, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. JÚLÍ 2008 23 Allar nánari upplýsingar í síma 863 9360 profsteinn@profsteinn.is ÍTALSKIR ÖRYGGISSKÓR Mikið úrval - Heildsöluverð KERRUR Í MIKLU ÚRVALI Fjölnota kerrur á frábæru verði frá NORTH STAR lifað tímamótin og blaða- og frétta- menn fengju eitthvað úr að moða. Svo var liðinu smalað saman klukkan 16:40 til formlegrar undir- skriftar. Þeir sem máttu og gátu skrifað undir gerðu það, aðrir munduðu pennana líkindalega og létu sem þeir skrifuðu eitthvað á blað. Menn handsöluðu síðan samn- ingana, glaðir í bragði og baðaðir í ljósum sjónvarpsvéla. Sumum var ekki hlátur í huga en þeir létu sem ekkert væri. Sögulegir samningar voru í höfn en voru það í raun og veru ekki. Það vissu samn- ingamennirnir en hvorki ráðherrar, fréttamenn, aðrir gestir né þjóðin. Veisla í tilefni dagsins Halldór Blöndal samgöngu- ráðherra bauð til veislu í Ráð- herrabústaðnum um kvöldið til að fagna samningum um Hvalfjarð- argöng. Þar komu saman flestir sem hlut áttu að máli, einnig þeir sem enn höfðu ekki náð sam- komulagi sín á milli, án þess að hátt færi í samsætinu, þar á meðal fulltrúar Enskilda Banken, Skanska og John Hancock. Gestgjafinn ávarpaði samkomuna og fagnaði sérstaklega því skrefi í samgöngu- málum að einkafyrirtæki væri falið að annast undirbúning, framkvæmd og rekstur vegganga. Philip Fletc- her, lögfræðingur John Hancock, ávarpaði líka gesti í ráðherraboðinu og lýsti ánægju yfir því að samning- arnir væru afstaðnir, fyllilega með- vitaður um að á Hóteli Sögu biði hans að hefja á ný þref við Enskilda Banken um kröfur NCC til að reyna að ná samkomulagi! Fletcher leyndi því ekki að samningaferlið hefði verið flókið, tímafrekt og erfitt en kvaðst sannfærður um að Hval- fjarðargöng yrðu farsæl og arðsöm framkvæmd. Søren Langvad, fram- kvæmdastjóri E. Pihl & Søn, talaði fyrir hönd verktakans, Fossvirkis, og tók í sama streng. Hann sagði að þegar fagnaðarlátum linnti yrðu hendur látnar standa fram úr erm- um við undirbúning verksins beggja vegna Hvalfjarðar. Samgönguráðherra bauð upp á drykk fyrir matinn og kræsingar voru síðan á borð bornar. Mat- arlystin var takmörkuð hjá mörgum samningamanninum og vínlystin enn minni eftir vinnulotu sem hafði staðið yfir linnulaust í 36 klukku- stundir. Samningamenn skáluðu í kurteisisskyni og skoluðu munninn með rauðvíni. Lögmaður einn bug- aðist strax yfir forréttinum og lét sig hverfa. Hann fór beint út á Hót- el Sögu og náði tæpast að afklæðast fyrir svefninn. Aðrir þraukuðu en fóru heim í háttinn strax eftir borð- hald nema þeir sem áttu eftir að út- kljá deilumál sín. Hjá þeim fór í hönd enn einn samningafundurinn ef hægt er að kalla samskiptin því nafni. Viðstöddum er enn fersk í minni harkaleg senna Nicolas Coa- tes frá ING Barings og Erlands Ringblom frá Enskilda Banken að lokinni ráðherraveislunni. Rifrildinu lyktaði með því að Coates strunsaði til herbergis síns á Sögu, læsti að sér, tók símann úr sambandi og var ekki til frekari viðræðu fyrr en dag- inn eftir. Ringblom hótaði því um nóttina að Enskilda Banken drægi sig út úr öllu saman. Svíinn þótti af- ar harðskeyttur í samninga- viðræðum og til marks um það má taka að bandarískir lögfræðingar, sem komu að gangamálinu og kalla ekki allt ömmu sína, líktu hegðun hans við ofurstrangan kennara sem tuktar nemendur sína harkalega til af minnsta tilefni. Lengra varð ekki komist og menn ákváðu að fella talið og sofa á deilu- málinu. Lítill hópur ráðgjafa neitaði sér hins vegar um hvíld og sat á rökstólum til morguns enda voru samningar um Hvalfjarðargöng í uppnámi, þrátt fyrir að undirskrift- arathöfnin væri afstaðin og þrátt fyrir að gleðskapur vegna lykta málsins stæði fram á nótt í Ráð- herrabústaðnum! Vökunóttin skilaði árangri Þráðurinn í samningamálum var tekinn upp að nýju snemma dags 23. febrúar, annars vegar til að skrifa undir plögg sem ekki vannst tími til að afgreiða daginn áður en hins vegar til að reyna til þrautar að leysa hnútinn varðandi áhættu vegna hugsanlegra skaðabóta Spal- ar til handa verktakafyrirtækinu NCC. Það kom fljótlega í ljós að mennirnir sem vakað höfðu til morguns og voru hvað þreyttastir allra á vettvangi, höfðu fundið leið sem allir samþykktu að fara, seint og um síðir. Verktakinn Fossvirki tók á endanum á sig áhættu af málarekstri sem NCC kynni að stofna til gegn Speli og klukkan 17:00 var loksins skrifað undir stað- festingarskjal samninga um Hval- fjarðargöng. Aldrei reyndi á ábyrgð Fossvirkis enda heyrðist ekki frek- ar frá NCC um deilumálið við Spöl eftir að Eftirlitsstofnun EFTA vís- aði því frá. Þar með var hægt að segja með sanni að samningsgerðinni hefði í raun og veru lokið meira en einum sólarhring eftir að undirritunar- athöfnin mikla hófst. Þá fyrst gátu samningamenn varpað öndinni létt- ar og slakað á. Endanlega var lokið viðræðum um fjármögnun sem stað- ið höfðu yfir í tvö ár samfleytt. Ef samgönguráðherra hefði grunað á þeirri stundu hvernig málið var í pottinn búið hefði hann trúlega opn- að Ráðherrabústaðinn til fram- haldsveisluhalda og kallað til sín kokka og þjóna á nýjan leik. Það gerðist ekki enda báru samn- ingamenn aldrei á torg að hin hátíð- lega undirritun samninga í Súlnasal daginn áður hefði að hluta verið sviðsett.“ Morgunblaðið/Sverrir tilburðir í Súlnasal Skólavörðustíg 21, Reykjavík sími 551 4050 Glæsileg brúðarrúmföt í úrvali Síðumúla 34 - sími 568 6076 Ýmislegt áhugavert fyrir safnara Ýmislegt áhugavert fyrir safnara Borðstofuhús ögn Stakir skápar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.