Morgunblaðið - 20.07.2008, Síða 27

Morgunblaðið - 20.07.2008, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. JÚLÍ 2008 27 fjörugt ímyndunarafl. Gert er ráð fyrir að söfnin sýni verk sem þau fá að láni frá Louvre og Guggenheim auk annarra safna. Þó er nokkuð víst að einhverjar hömlur verði settar varðandi listaverkaval, enda heimamenn flestir múslímar. Því mun væntanlega ekkert sýnt sem misboðið gæti þeim, hvort sem það er nekt eða eitthvað er tengist trúarbrögðum sem þeim gæti mis- líkað. „Svæði sem nefnt hefur verið Wetlands er líka áhugavert. Þar verður annar golfvöllur, sem sam- anstendur af mörgum litlum eyjum. Ég get ekki séð fyrir mér hvernig einhver eigi að geta klárað hann.“ segir Snæbjörn og glottir. Svæðið er aðeins lokaðra en hin og þar get- ur fólk komið sem vill fá ró og næði. Þeir sem vilja kaupa íbúðarhús á svæðinu verða þó að hafa eitthvað á milli handanna en reiknað er með því að húsin kosti um 200 milljónir íslenskra króna. Þar verða líka lúx- us-hótel og verslunarmiðstöðvar, eins og á hinum svæðunum. „Það er mjög skrítið að fara inn í verslunarmiðstöðvar í Abu Dhabi. Það lítur allt eðlilega út og þær virðast vera nákvæmlega eins og þær vestrænu. En það er ekki alveg rétt, því að annað slagið eru þuldar upp heilu bænirnar á arabísku í kallkerfið. Að bænalestri loknum er svo haldið áfram eins og ekkert hafi í skorist,“ segir Snæbjörn um reynslu sína af arabískum versl- unarmiðstöðvum. „En eftir nokkrar ferðir þá hættir maður að taka eftir þessu.“ Furstar fara illa með taugarnar „Furstinn skiptir um skoðun aft- ur og aftur og það getur vissulega tekið á taugarnar. Deiliskipulagið á stundum til að breytast viku frá viku, allt eftir hans áherslum. Ég þekki arkítekt sem hafði staðið í ströngu við að flytja marmara til Dubai fyrir hótel sem var í bygg- ingu. Þegar loksins var búið að koma marmaranum fyrir á sínum stað á hótelinu og vinna úr honum kom furstinn. Honum þótti hann að- eins of gulur og því þurfti að byrja upp á nýtt.“ Að sögn Snæbjörns kunna furst- arnir lítið við að skuldbinda sig. Hins vegar vilja þeir að það sem þeir biðja um gerist strax og líkar alls ekki að bíða eftir hlutunum. „Fursti spyr ekki hvort eitthvað sé hægt eða hversu langan tíma það taki. Fursti spyr hversu mikið það kosti og borgar þá upphæð ef hann er sáttur.“ Ferðamannatímabilið í Samein- uðu arabísku furstadæmunum er frá október og fram í apríl. Þá fer veðrið yfirleitt ekki yfir 30 gráður og er jafnvel eins og íslenskt sum- arveður. Yfir sumartímann er hins vegar of heitt fyrir flesta að dvelja á staðnum og þá eru mun færri ferðamenn. – En hverjir munu dvelja á Saa- diyat? „Það er auðvitað ekki fyrir hvern sem er að dvelja á lúxushótelum eða kaupa sér 200 milljóna króna sumarbústað. En það er líka til nóg af ríku fólki í heiminum sem hefur efni á því. Þeir reikna með að fólk sem nú þegar á tvö eða þrjú heimili um heiminn, kaupi sér eitt til við- bótar þarna.“ Snæbjörn segir að það sé einfald- lega verið að byggja sjálfstæða borg upp frá grunni. Fullgerð mun hún í allt hýsa þrjú hundruð þúsund manns, þar af hundrað og fimmtíu þúsund íbúa. Vonast er til þess að Saadiyat verði aðalaðdráttarafl og menningarmiðstöð Abu Dhabi og efli túristaatvinnuveginn til muna. túrista samskipti í gegnum netið með for- ritinu Skype. Múslimar miða daga- tal sitt við tunglið og eru tyllidagar því ekki á ákveðnum dagsetningum. Einu eða tveimur kvöldum fyrir tyllidaginn tilkynna stjórnvöld á hvaða degi hann lendir, en það ræðst af stöðu tunglsins. Einu tylli- dagarnir sem miðast við dagsetn- ingar ár hvert eru nýársdagurinn, 1. janúar, og þjóðhátíðardagur þeirra, 2. desember. Sameinuðu arabísku furstadæmin eru mjög tæknivædd að sumu leyti, en geta líka verið svolítið gam- aldags. Sé debet- eða kreditkort frá þarlendum banka notað í hrað- banka er kvittun í formi sms kominn í síma viðkomandi áður en hann hef- ur fengið peningana í hendurnar. Heimamenn vilja hins vegar að mik- ilvægar kvittanir og annað slíkt sé handskrifað og stimplað, því þeir treysta þeirri aðferð betur. Á öllum almenningsstöðum og vinnustöðum eru bænaherbergi, svo heimamenn geti iðkað trú sína. Bænaherbergin setja austrænan blæ á annars vestrænt útlítandi staði, til að mynda verslunarmið- stöðvar. Fréttum er stýrt í landinu og sjónvarpsfréttir hefjast alltaf með góðri frétt um fursta. Aldrei er því haldið fram í fréttum að fursti hafi gert eitthvað af sér eða gert nokkuð rangt. Konur í Sameinuðu arabísku furstadæmunum njóta ýmissa rétt- inda sem kynsystur þær í nágranna- löndunum njóta ekki. Fyrir nokkr- um árum fengu þær til að mynda leyfi til að aka bíl. Einnig hafa þær færi á að gegna sömu störfum og karlar, velja sér maka og að vera fjárhagslega sjálfstæðar. Hins veg- ar eru allir ríkisreknir háskólar kynjaskiptir. Meiri sand Þó Saadiyat sé eyðimörk að mestu er unnið linnulaust við að dæla meiri sandi á hana til að móta hana.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.