Morgunblaðið - 20.07.2008, Side 32
32 SUNNUDAGUR 20. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Eftir Orra Pál Ormarsson
orri@mbl.is
H
ann var frægastur fyr-
ir konurnar sem hann
var giftur.“
Þessi eftirmæli eft-
ir bandaríska leik-
arann, leikstjórann og ljósmynd-
arann John Derek getur að líta á
alfræðiritinu Wikipediu á netinu.
Skyldu þetta vera eftirsóknarverð
eftirmæli? Dæmi nú hver fyrir sig.
Einhver kann að benda á, að það
fari eftir því hvert kvonfangið var.
Derek var fjórkvæntur og allar voru
spúsur hans Hollywood-leikkonur –
orðlagðar fyrir fas og fegurð. Deilt
hefur verið um hæfileikana. Þetta
eru Pati Behrs, Ursula Andress,
Linda Evans og Bo Derek. Svo stolt-
ur var Derek af eiginkonum sínum að
hann myndaði þrjár þær síðarnefndu
á Evuklæðunum fyrir hið kunna
menningartímarit Playboy. Þó ekki
allar í einu.
John Derek fæddist í Hollywood
árið 1926 og var skírður Derek De-
levan Harris. Hann haslaði sér ungur
völl sem aukaleikari í kvikmyndum
og er sennilega þekktastur fyrir að
hafa leikið á móti Humphrey Bogart
í Knock on Any Door árið 1949 og í
Boðorðunum tíu eftir Cecil B. De-
Mille árið 1956.
Gekk að eiga frænku Tolstojs
Derek var mikill kvennaljómi og
segir sagan að hann hafi vafið veik-
ara kyninu um fingur sér. Fyrsta
eiginkona hans var Pati Behrs (f.
1922), dóttir ofursta í rússneska
hernum á keisaratímanum og
frænka rússneska rithöfundarins
Leo Tolstojs. Hún var upprunalega
ballerína og starfaði sem dansari í
Frakklandi í seinni heimsstyrjöldinni
en þegar kynni tókust með þeim De-
rek var hún komin til Hollywood og
hugðist reyna fyrir sér sem leikkona.
Ferill hennar þar varð endasleppur.
Behrs var fjórum árum eldri en
Derek og stofnuðu þau til hjóna-
bands árið 1951. Behrs ól Derek tvö
börn, soninn Russell (f. 1950) og dótt-
urina Sean Catherine (f. 1953), og
eru það einu börn hans. Fáum sögum
fer af hjúskap þeirra að öðru leyti.
Behrs andaðist árið 2004.
Russell Derek lamaðist fyrir neð-
an brjóst í mótorhjólaslysi þegar
hann var aðeins nítján ára en Sean
Catherine er þekktust fyrir end-
urminningar sínar, Cast of Charac-
ters, þar sem hún gerir grein fyrir
því hvernig það hafi verið að eiga
John Derek fyrir föður og Ursulu
Andress, Lindu Evans og Bo Derek
sem stjúpmæður.
Fönguleg í flæðarmálinu
John Derek yfirgaf Behrs fyrir
svissnesk-þýsku kynbombuna Ur-
sulu Andress (f. 1936) árið 1957. Þau
kynntust þó öllu fyrr, alltént segir
sagan að James Dean, sem Andress
hafði verið að slá sér upp með, hafi
boðið henni með sér í bíltúr á Porsc-
henum sínum til San Francisco 30.
september 1955 en hún neitað þar
sem hún var yfir sig hrifin af Derek.
Þetta reyndist hinsta för Deans.
Ursula Andress, eða Ursula Un-
dressed eins og gárungarnir kölluðu
hana, hafði á þessum tíma látið að sér
kveða sem fyrirsæta og leikkona á
Ítalíu en var óþekkt með öllu í
Bandaríkjunum. Það breyttist á
einni nóttu þegar hún fékk hlutverk
Honey Ryder í fyrstu James Bond-
myndinni, Dr. No, árið 1962. Án fyr-
irhafnar dró hún karlpening þessa
heims opinmynntan fram á sæt-
isbrúnina þegar hún steig eins og
gyðja upp úr Karabíska hafinu
klædd hvítu bikiníi með hníf í belti.
Þykir það ein kynþokkafyllsta sena
kvikmyndasögunnar og er Andress í
hugum margra hin eina sanna Bond-
skutla.
Ursula Andress mun seint skipa
sér á bekk með merkustu leikkonum
í Hollywood en eftir Bond-ævintýrið
hafði hún nóg að gera, lék m.a. í sex
myndum árið 1965, og var farin að
skyggja duglega á bónda sinn.
Hvort það var af þeim ástæðum
eða öðrum þá sigldi hjónaband De-
reks og Andress í strand árið 1966.
Hún hefur ekki gifst aftur en verið í
tygjum við marga kempuna, nægir
þar að nefna Jean-Paul Belmondo,
Marlon Brando, Sean Connery,
Ryan O’Neal, Warren Beatty, Dean
Martin og Harry Hamlin en með
þeim síðastnefnda, sem er fimmtán
árum yngri en hún, eignaðist And-
ress soninn Dimitri árið 1980.
Andress hefur búið í Róm um ára-
bil og kemur sárasjaldan fram í kvik-
myndum í seinni tíð.
Veðjað á yngri útgáfu
Illar tungur segja ástæðuna fyrir
skilnaði Dereks og Andress þá að
hann hafi viljað skipta henni út fyrir
yngri útgáfu, Lindu Evans (f. 1942).
Ekki skal lagt mat á það hér en þær
eru vissulega um margt áþekkar,
Andress og Evans.
Sú síðarnefnda er af norsku bergi
brotin en óx úr grasi í Connecticut í
Bandaríkjunum. Hún hóf að koma
fram í sjónvarpsþáttum á unglings-
aldri en sló fyrst í gegn í þáttunum
The Big Valley sem sýndir voru við
miklar vinsældir vestra frá 1965 til
1969. Frægust er Evans þó án efa
fyrir hlutverk sitt sem Krystle Carr-
ington í sápuóperunni Dynasty á ní-
unda áratugnum en fyrir það hlaut
hún Golden Globe-verðlaunin árið
1982. Á þeim tíma var hún ein skær-
asta stjarnan í sjónvarpi ásamt hinni
aðalleikkonunni í þáttunum, Joan
Collins, en þær elduðu sem frægt er
grátt silfur meðan á tökum stóð.
Enn eimir af þeirri illsku en fyrir
tveimur árum ritaði Collins grein í
breska dagblaðið Daily Mail undir
yfirskriftinni: „Hvers vegna ég mun
aldrei aftur vinna með Lindu Ev-
ans.“ Lét hún þar aursletturnar
ganga yfir stöllu sína og fullyrti að
hún hefði eitt sinn slegið sig kalda á
Dynasty-tímanum. Enginn annar er
hins vegar til frásagnar um þann
verknað. Þá klikkti Collins út með
því að kalla Evans „Varirnar“ en sú
síðarnefnda lét fyrir einhverjum
misserum stækka á sér varirnar með
umdeildum árangri.
Derek og Evans gengu í heilagt
hjónaband árið 1968 og skildu form-
lega árið 1974 en hann hafði yfirgefið
hana nokkru áður. Evans dró sig í
hlé frá sjónvarpi fyrir um áratug og
rekur nú litla keðju líkamsrækt-
arstöðva í Washington-ríki.
Féll fyrir brimbrettaskutlu
Ábyrgðina á því að hjónaband De-
reks og Evans rann út í sandinn bar
sextán ára gömul brimbrettaskvísa á
Long Beach, Kaliforníu, Mary Cat-
hleen Collins að nafni (f. 1956). Köll-
uð Bo. Hafi Andress og Evans verið
líkar er vart hægt að þekkja Evans
og Bo Derek í sundur á gömlum
myndum. Smekkur Johns Dereks
hefur verið býsna einfaldur.
Bo þótti bera af öðru ungviði á
ströndinni en sýndi fyrirsætustörf-
um í fyrstu lítinn áhuga. Hún lét þó
til leiðast þegar hún sá fram á að
geta fjármagnað áhugamál sitt,
brimbrettabrun, með þeim hætti.
Eitt leiddi af öðru og Bo kynntist De-
rek í áheyrnaprufu vegna sjónvarps-
auglýsingar. Hann féll kylliflatur
fyrir stúlkunni enda þótt hún væri
þrjátíu árum yngri.
Gatan var þó hvergi nærri greið
enda óheimilt að hafa samræði við
einstaklinga yngri en átján ára í
Bandaríkjunum. Til að komast und-
an ákvæðum hegningarlaga hélt par-
ið því sem leið lá til Þýskalands og
bjó þar uns Bo náði lögaldri árið
1974. Engum sögum fer af því hvern-
ig foreldrar hennar tóku þessum
uppslætti en smjattið í slúðurpress-
unni ómaði um fjöll og firði.
Þau giftust tveimur árum síðar og
Bo tók upp nafn Dereks. Hún freist-
aði þess að koma sér á framfæri sem
leikkona en róðurinn var þungur í
fyrstu. Árið 1977 hljóp þó á snærið
hjá Bo þegar hún fékk hlutverk í
myndinni Orca með gamla brýninu
Richard Harris í aðalhlutverki.
Myndin gekk illa en það gilti einu –
Bo Derek var komin á kortið.
Ellefu af tíu mögulegum
Næsta hlutverk gerði hana líka
heimsfræga. Það var í hinni marg-
rómuðu gamanmynd Blake Edwards
10, þar sem Bo leikur draumadís
Dudley heitins Moores. Karakterinn,
Jenny Hanley, er eins og snýttur út
úr nösinni á Honey Ryder en einnig
er talið að hlutverkið hafi verið byggt
á Malibu, karakter Sharon Tate í
gamanmyndinni Don’t Make Waves
með Tony Curtis frá 1967. Hvað sem
því líður er Bo löðrandi í kynþokka í
myndinni og fær einkunnina 11 hjá
Moore – á skalanum 1 til 10. Áhrifin
voru varanleg.
Bo Derek fylgdi velgengninni eftir
með nokkrum myndum, þeirra kunn-
astar Tarzan, the Ape Man og Bo-
lero, sem bóndi hennar leikstýrði.
Þær mæltust aftur á móti illa fyrir og
Bo dró sig í hlé um miðjan níunda
áratuginn. Hún var föst í fjötrum eig-
in kynþokka og enginn virtist taka
hana alvarlega sem listamann. Hún
sneri aftur í byrjun síðasta áratugar
og hefur annað veifið birst í smærri
kvikmyndum og sjónvarpsmyndum
Seiðandi Bo Derek í hinu fræga hlutverki sínu sem Jenny Hanley í kvik-
myndinni 10 árið 1979. Það skaut henni með látum upp á stjörnuhimininn.
Fjölskyldan John Derek og fyrsta eiginkona hans, Pati Behrs, ásamt börn-
um sínum tveimur, Russell og Sean Catherine, snemma á sjötta áratugnum.
Heit Ursula Andress sem Honey Ry-
der í James Bond-myndinni Dr. No.
Til að komast undan
ákvæðum hegningarlaga
hélt parið því sem leið lá
til Þýskalands og bjó þar
uns Bo náði lögaldri árið
1974.
Þokki Linda Evans ásamt Lee Maj-
ors í þáttunum The Big Valley.
Maður kvenna sinna
© Orban Thierry/Corbis Sygma
Vinir Ursula Andress, John og Bo Derek á góðri stundu árið 1987. Þær stöllur eru ennþá prýðilegir vinir.
»Héldi John Derek
námskeið um það
hvernig fást á við eig-
inkonur yrði ég fyrstur
til að skrá mig.