Morgunblaðið - 20.07.2008, Síða 33

Morgunblaðið - 20.07.2008, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. JÚLÍ 2008 33 17.-29. september 2008 Sigling frá Pétursborg til Moskvu Kynnist stærsta landi heims í einstakri siglingu á milli helstu borga Rússlands. Siglt á skemmtiferðaskipi á milli Pétursborgar og Moskvu undir öruggri fararstjórn Hauks Haukssonar sem hefur meira en 18 ára reynslu á svæðinu. Bjarmaland ferðaskrif- stofa er frumkvöðull á þessu sviði; treystið fagmönnum! Ferðakynning í MÍR salnum (Menningartengsl Íslands og Rúss- lands) Hverfisgötu 105, Rvk. 1. hæð, mánudag 21. júlí kl. 18:00. Haukur Hauksson mun þar sýna myndir og fara nánar yfir ferðatilhögun og skipulagsatriði. Allir velkomnir, kaffiveitingar. Allt innifalið. Verð 268.000 kr. Sími: 770 50 60 | 770 50 61 | 770 50 62 bjarmaland@bjarmaland.is | www.bjarmaland.is síðan en aldrei farið almennilega á flug. Fyrirfram spáðu fáir sambandi Derek-hjónanna löngu lífi en þau stóðu við heiti sitt við altarið – voru trú allt til dauða. Síðustu árin átti John við vanheilsu að stríða og Bo er sögð hafa hjúkrað honum af alúð en hjartasjúkdómur varð honum að ald- urtila á heimili þeirra í Kaliforníu vor- ið 1998. Hann var 71 árs að aldri. Hugguð af þeirri fyrrverandi Bo syrgði eiginmanni sinn mjög og það er kaldhæðni örlaganna að fáir veittu henni meiri stuðning en Linda nokkur Evans en þeim hefur um langt skeið verið vel til vina. Raunar er kært með þeim öllum, Bo Derek, Lindu Evans og Ursulu Andress. Frægt er þegar Andress og Evans komu saman á tökustað sjónvarps- þáttanna Love Boat árið 1983. Þá biðu ljósmyndarar í löngum röðum eftir að sjá neistana fljúga. Það gerð- ist ekki. Þvert á móti fór framúrskar- andi vel á með stöllunum. Þá varð ein- um ljósmyndaranna að orði: „Héldi John Derek námskeið um það hvern- ig fást á við eiginkonur yrði ég fyrst- ur til að skrá mig.“ Í seinni tíð hafa hestar átt hug Bo allan og hefur hún m.a. gefið út bók um áhuga sinn á þeirri göfugu skepnu. Þá hefur hún gefið sig í aukn- um mæli að stjórnmálum og er yf- irlýstur stuðningsmaður George W. Bush Bandaríkjaforseta. Studdi kosningabaráttu hans með ráðum og dáð bæði 2000 og 2004. Bo hefur slegið sér upp með ýms- um mönnum hin síðari ár en núver- andi kærasti hennar er leikarinn John Corbett sem líklega er þekkt- astur fyrir hlutverk sitt sem Aidan Shaw í sjónvarpsþáttunum Sex and the City. Það var og. Hafandi sagt allt þetta, er það líklega hvorki tilviljun né skömm að Johns Dereks skuli fyrst og síðast vera minnst fyrir konurnar sem hann var giftur. orri@mbl.is Kanína 1 Ursula Andress. Kanína 3 Bo Derek. Kanína 2 Linda Evans. G OÐSAGNIR um vamp- írur, blóðsugur, hafa fylgt mannkyninu í þúsundir ára en um miðbik síðustu aldar tók ímynd hennar nokkrum stakka- skiptum, breyttist úr því að vera ófreskja í að vera nánast mannlegar verur sem áttu skilið að fá samúð. Um leið og ímyndin breyttist, að- allega fyrir tilstilli skáldsagna og kvikmynda, varð vampíran að eró- tískri hetju, pilturinn sem er nánast fullkominn, heillandi, fagur og myndarlegur með myrka fortíð og ekki síst ógnandi – hver fær staðist hann? Þegar við bætist að aldrei má ganga alla leið, hvílubrögðin gætu orðið banvæn, er það hinn fullkomni kærasti eða svo birtist hann í það minnsta í metsölubókum Stephenie Meyer. Vampírubókmenntir hafa þróast mikið og í raun eins og vestrænt samfélag, þær eru ekki bara hryll- ingssögur lengur, sögur um ófreskj- ur og óttaleg örlög. Upp úr miðjum tíunda áratugnum urðu til bækur og sjónvarpsþættir þar sem spilað var á samúð lesandans með vampírunni sem glímir við blóðþorsta þvert gegn vilja sínum, verður að drekka blóð manna þó að hana langi alls ekki til þess. Á sama tíma er vampíran eft- irsóknarverð vegna eiginleika sinna, ómennskrar fegurðar, ofurstyrks, mikilla gáfna, siðfágunar og auðæva. Djöfulleg ímynd vampírunnar hefur hopað að sama skapi; hún óttast ekki lengur krossa og vígt vatn og skelf- ist ekki sólarljós eða kirkjuklukkur. Vampírur í bílförmum Úr slíku umhverfi sprettur vamp- íran í metsölubókum bandaríska rit- höfundarins Stephenie Meyer sem hrifið hefur lesendur víða um heim en aðallega þó unglingsstúlkur og ungar konur, en fyrsta bókin, Twi- light, sem kom út fyrir þremur ár- um, hefur selst í bílförmum um allan heim. Meyer lýsir því svo á vefsetri sínu að hún hafi verið búin að glíma við ýmsar sögur áður en Twilight kom til sögunnar, en aldrei komist nema rétt úr sporunum. Þá var það aðfara- nótt annars júní 2003 að hana dreymdi stúlku sem hittir geysifagr- an glitrandi vampírupilt í skóg- arrjóðri, en eins og hún lýsir draumnum þá ræddu þau pilturinn og stúlkan þann vanda að þau væru við það að verða ástfangin hvort af öðru og að vampíran ætti erfitt með sig því hana langaði svo að drekka blóð stúlkunnar. Um leið og hún Meyer var búin að koma börnunum í skólann morguninn eftir settist hún við skriftir og skrifaði drauminn nið- ur (sjá 13. kafla Twilight). Mesta vinnan að velja nöfn Þar með var hún komin í gang og næstu daga greip hún hverja stund sem gafst til að skrifa. Það dugði henni svo vel að þremur mánuðum síðar var hún tilbúin með fyrsta handrit. Hún segir að mesta vinnan hafi farið i að velja réttu nöfnin á söguhetjurnar, Edward Cullen og Isabella „Bella“ Swan heita þau, en einnig hafi tekið sinn tíma að finna rétta sögusviðið sem reyndist vera Ólympíuskagi í Washington-fylki, en það er víst sá staður í Bandaríkj- unum þar sem mest rignir. Um leið og fyrsta handritið var tilbúið fór Meyer að skrifa fram- haldið samhliða því sem hún end- urbætti og slípaði handritið að fyrri bókinni. Um leið og það var komið í sæmilegt horf að henni fannst hófst streðið við að finna útgefanda og gekk svo brösuglega að um tíma segist hún hafa velt því fyrir sér að hætta við allt saman. Á endanum tókst henni þó að ná sér í almenni- legan umboðsmann og í kjölfarið út- gáfusamning. Þegar allt er talið liðu ekki nema sex mánuðir frá draumnum góða þar til Meyer var komin með útgáfu- samning sem verður að teljast harla gott, en það tók þó tíma að koma henni út – Twilight kom út vestan hafs í október 2005. Milljónasala Bókinni var gríðarvel tekið, hefur selst í ríflega tveimur milljónum ein- taka þegar þessi orð eru skrifuð, og framhaldsbækurnar, New Moon, sem kom út í ágúst 2006, og Eclipse, sem kom út í ágúst sl., hafa líka selst afskaplega vel. Fjórða bókin, Break- ing Dawn, kemur út í ágúst nk. Ef marka má það sem stendur á vef- setri Meyer verður næsta bók í röð- inni, Midnight Sun, skrifuð frá sjón- arhorni Edwards, en hinar eru allar með Bellu sem miðpunkt. Kvikmynd sem byggð er á fyrstu bókinni er í framleiðslu og stendur til að frumsýna hana 12. desember næstkomandi. Leikstjóri mynd- arinnar er Catherine Hardwicke, en aðalhlutverk leika Kristen Stewart (Bella) og Robert Pattinson (Edw- ard). Mormónatrú og ofbeldissamband Í kjölfar vinsælda bókanna hafa ýmsir orðið til að gagnrýna þær, nema hvað. Mörgum þykir einna merkilegast við bækurnar að Meyer er mormóni og margir hafa farið lús- arleit í gegnum bækurnar til að finna þar mormónsku með mis- jöfnum árangri. Það er helst að mormónatrú Meyer sjái stað í lýs- ingum hennar á samskiptum kynjanna enda eru öll ungmenni sem birtast í bókinni góðir krakkar, stilltir og siðprúðir, og ljótu kall- arnir hafa sínar ástæður fyrir því að vera ljótir. Öllu beittari hefur verið gagnrýni á samband þeirra Bellu og Edwards, enda svipar því mjög til ofbeldis- sambands eins og gagnrýnandi Ac- tive Voice benti á fyrir stuttu. Edw- ard er skapbráður, duttlungafullur og sjúklega afbrýðisamur. Alltaf þegar hann er harkalegur við Bellu, beitir hana ofbeldi þó að saklaust sé er það vegna þess að hann elskar hana svo mikið, eða svo segir hann, eða að það sé henni fyrir bestu. Hann einangrar hana frá vinum sín- um og gerir hana algerlega háða sér, svo háða að hún óttast það sífellt að styggja hann, enda muni hann þá missa stjórn á skapi sínu eða fara sína leið, aukinheldur sem hann tönnlast sífellt á því að hún haldi lífi fyrir það eitt hvað hann hefur gott vald á fýsnum sínum. Þrátt fyrir þessa gagnrýni, sem á að mörgu leyti rétt á sér, hallmæla fáir bókum Meyers og ungmennin sem dá hana láta allt jóss sem vind um eyru þjóta; vinsældir hennar aukast enn. Vampíran sem elskaði mig Hætta Elskhuginn er ógnvekjandi, en ómótstæðilegur. Kvikmynd eftir fyrstu sögu Stephenie Meyer er væntanleg í desembe r á þessu ári. Eftir Árna Matthíasson arnim@mbl.is Bandaríski rithöfundurinn Steph- enie Meyer. Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.