Morgunblaðið - 20.07.2008, Qupperneq 45

Morgunblaðið - 20.07.2008, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. JÚLÍ 2008 45 Útfararþjónustan ehf. Stofnað 1990 Símar: 567 9110 & 893 8638 www.utfarir.is • runar@utfarir.is Alhliða útfararþjónusta Rúnar Geirmundsson Sigurður Rúnarsson Elís Rúnarsson Þorbergur Þórðarson Englasteinar Helluhrauni 10 Sími 565 2566 - www.englasteinar.is Fallegir legsteinar á góðu verði ✝ Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓN FRIÐRIK JÓNSSON málarameistari, Ofanleiti 25, áður Njálsgötu 8b, lést á Landspítalanum sunnudaginn 13. júlí. Útförin fer fram frá Grensáskirkju þriðjudaginn 22. júlí kl. 13.00. Anna Lind Jónsdóttir, Guðmundur Guðmundsson, Arnfríður Jónsdóttir, Karl Þór Ásmundsson, Soffía Rut Jónsdóttir, Einar O. Björnsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, systir, amma og langamma, INGA ÁSGRÍMSDÓTTIR, Inga á Borg, Hraunbæ 103, Reykjavík, sem lést miðvikudaginn 16. júlí á Landspítalanum, Fossvogi, verður jarðsungin frá Grafarvogskirkju föstudaginn 25. júlí kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Gigtarfélag Íslands. Páll Pálsson, Hafdís Halldórsdóttir, Ásgrímur Gunnar Pálsson, Helga Tryggvadóttir, Arndís Pálsdóttir, Rafn Árnason, Auðunn Pálsson, Anna Baldvina Jóhannsdóttir, Björgvin Rúnar Pálsson, Fríður Reynisdóttir, Karl Ásgrímsson, Oddbjörg Júlíusdóttir, barnabörn og barnabarnabarn. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, KONRÁÐ ÁRNASON, Brekkugötu 38, Akureyri, áður Kringlumýri 27, lést á dvalarheimilinu Hlíð miðvikudaginn 9. júlí. Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn 22. júlí kl. 13.30. Nanna Kristín Bjarnadóttir, Björg Konráðsdóttir, Anton Benjamínsson, Heiðar Geir Konráðsson, Hjördís Stefánsdóttir, Halldóra Konráðsdóttir, Karl Símon Helgason og barnabörn. ✝ Elskuleg systir okkar, ÓLAFÍA S. ÓLADÓTTIR frá Siglufirði, Hátúni 10b, Reykjavík, lést fimmtudaginn 10. júlí. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Þökkum samúð, hlýhug og vinarþel í okkar garð. Sérstakar þakkir eru færðar starfsfólki á lungna- deild A-6 og gjörgæsludeild Landspítalans í Foss- vogi fyrir frábæra meðferð og umönnun. Einnig öllum þeim sem stutt hafa hana í langvarandi veik- indum. Fyrir hönd aðstandenda, Svanhildur Óladóttir, Kristín B. Óladóttir. ingarnar á hilluna og safnaði í spari- bauk verðgildi eins sígarettupakka á viku þá myndi hún leggja annað eins á móti og safna með honum fyrir utan- landsferð. Í mínum huga leikur eng- inn vafi á því að þarna var lagður grunnurinn að velgengni Jóns Guð- manns í peningamálum. Miklabraut 40 mun alltaf tilheyra Siggu og Tóta í mínum huga, þó þau búi ekki þar lengur og ég hugsa alltaf til þeirra þegar ég keyri þar framhjá. Ég á eftir að sakna Siggu, hún hefur alltaf verið nálæg og til staðar fyrir okkur í fjölskyldunni. Það er fólk eins og Sigga sem er dýrmætast að eiga að þegar á reynir. Ég votta ykkur Tóti, Jón Guðmann, Magga, Helena Margrét og aðrir ást- vinir, mína dýpstu samúð. Hulda S. Jeppesen Bandamenn. Lífsnauðsynlegir. Ómetanlegir. Þeir fengjust ekki í skiptum fyrir allan þann veraldlegan auð sem til er. Þeir eru baklandið. Þeir eru skjólið og stuðningurinn. Þeir eru til staðar þegar á reynir, jafnt í gleði og sorg. Þeim er hægt að treysta. Og vegna þessa mikilvægis, er sú reynsla að sjá baki bandamanni sár. Hún er ólýsanlega sár. Mig langar til að þakka þér, Sigga mín, kærlega fyrir samfylgdina, þakka þér fyrir alla þá alúð, áhuga og væntumþykju, styrk, stuðning og rausnarskap sem þú hefur sýnt mér og fjölskyldu minni í áratugi. Mig langar til að þakka þér fyrir að vera til staðar þegar á reyndi. Þakka þér fyrir að vilja vera ein af okkur, vera bandamaður okkar, og sannur vinur! Þín verður sárt saknað um ókomna tíð. Við sem eftir stöndum, þéttum nú hópinn. Blessuð sé minning þín, elsku Sigga mín. Páll Jakob. Lífsgöngunni er lokið svo alltof fljótt. Fyrir tæpu ári síðan kom í ljós að vinkona mín Sigríður hafði ekki sigrast á krabbameininu sem hún greindist með og tókst á við 4 árum áður. Sjúkdómurinn tók sig upp aftur og nú var engin vægð gefin þrátt fyrir harða baráttu. Við héldum í vonina og trúðum því að með nýjum meðferð- arúrræðum væri hægt að lengja tím- ann. Með hækkandi sól var ljóst að hverju stefndi og Sigga varð að lúta í lægra haldi. Það eru nú í sumar 30 ár frá því kynni okkar Siggu hófust, kynni sem leiddu til náinnar vináttu þrátt fyrir að rúm tuttugu ár skilji okkur að í aldri. Ég var komin á mína síðustu deild í hjúkrunarnámi og þarna var hún, sjúkraliðinn sem Steinunn amma mín hafði af og til spurt mig hvort ég hefði nú ekki séð á Landspít- alanum. Þær höfðu þegar Sigga var ung og amma mín á miðjum aldri starfað saman á Kleppsspítala og orð- ið vel til vina. Þessarar vináttu naut ég síðan. Við áttum eftir að starfa saman í mörg ár á Landspítalanum og oft gengum við saman niður í miðbæ eftir vinnu til að vinda ofan af okkur, setjast inn á kaffihús og ræða málin. Vinnan skipti Siggu miklu máli enda var hún alla tíð útivinnandi. Hún helgaði sig umönnunarstörfum þar sem eiginleikar hennar nutu sín. Hún var samviskusöm og naut þess að gera vel við fólk sem skilaði sér vel í alúð og samlíðan með þeim sem hún sinnti. Sigga vann þar til hún var sjö- tug og það voru því mikil umskipti fyrir hana þegar hún varð að hætta vinnu sökum aldurs, en hún hélt áfram að fylgjast með því hvernig gengi á deildunum sínum á Landspít- alanum. Þó svo Sigga ynni alltaf mikið þá var hún dugleg að sinna fólkinu sínu, var traustur vinur og átti góðar vin- konur sem héldu tryggð við hana til loka. Hún var ein af þeim sem létu sér annt um fólk, henni var tamara að gefa en að þiggja og var alltaf boðin og búin þegar eitthvað bjátaði á. Oft var hringt og spurt: „Er eitthvað sem ég get gert?“ Sigga átti gott líf. Hún naut þess að geta farið ferða sinna, skroppið í bíl- túra með vinum eða ættingjum og helst þurfti hún að vera undir stýri. Þannig var það líka í lífinu, Sigga vildi vera við stjórnvölinn, taka ákvarðanir og framfylgja þeim. Undir lokin var það annar sem hafði stjórnina og það var erfitt að sætta sig við að fá engu ráðið. Einhvers staðar stendur að gefa sé að veita af tíma sínum, hug og krafti. Sigga var gjöful og hún skapaði góðar minningar sem munu fylgja okkur. Elsku vinkona, hafðu þökk fyrir allt sem þú varst mér og minni fjölskyldu. Innilegar samúðarkveðjur til Þóris, Jóns, Margrétar, Helenu og Rúnars. Herdís. Fyrir rúmlega 50 árum var hópur af stúlkum víðs vegar af landinu mættur við skólasetningu Hús- mæðraskóla Reykjavíkur, allar voru þessar stúlkur komnar í þeim tilgangi að mennta sig til að verða fyrirmynd- arhúsmæður. Strax eftir skólasetninguna var far- ið að Korpúlfsstöðum að tína rifsber, það var þjóðráð því þar náðum við strax að kynnast hver annarri. Þarna hittumst við Sigga fyrst og unnum saman. Þegar við mættum við skól- ann með berjafenginn hafði borist sú fregn að flak Geysis væri fundið á Vatnajökli og áhöfnin öll á lífi, en þau höfðu verið talin af, þessi dagur er mér mjög minnisstæður. Þennan vetur var ekki slegið slöku við að læra allt sem í boði var. Hálfan veturinn var verið í eldhúsinu við mat- reiðslu en hinn helminginn var verið að læra saumaskap og vefnað, kvöldin voru notuð til að bródera dúka, sem aðeins hafa verið notaðir við hátíðleg tækifæri og líklegast verða að ættar- gripum. Við Sigga vorum númersyst- ur ásamt Nönnu frá Þingeyri og Sól- veigu frá Akureyri, það þýddi að við unnum saman í eldhúsinu, núna væri þetta kallað teymi. Þarna myndaðist vinátta sem staðið hefur til þessa dags, og þarna lærðum við það sem nýttist okkur vel og er enn í gildi og í raun er það sorgarsaga hvernig málin með húsmæðraskólana þróuðust. Sigga bjó alla tíð í Reykjavík og fyrir okkur landsbyggðafólkið var ómetanlegt að eiga hana að, hún tók bílpróf fljótlega og áður en fór að þykja sjálfsagt að konur almennt tækju próf, hún var alltaf tilbúin að taka á móti okkur þegar við komum í borgina, skemmst er að minnast þess að þegar við hjónin þurftum bæði að fara í augasteinaaðgerð þá tók Sigga á móti okkur, ók með okkur til Hafn- arfjarðar í aðgerðina, tók okkur heim til sín í gistingu og ók með okkur dag- inn eftir í skoðun og gerði okkur þetta því eins léttbært og kostur var. Sigga var afar duglegur bílstjóri og eina ferð þar sem hún ók fórum við saman til Akureyrar að fylgja Svönu skólasystur okkar til grafar, þrátt fyrir dapurlegt tilefni ferðarinnar var þetta góð samvera hjá okkur, Sigga ók af svo miklu öryggi og festu að mér datt ekki eitt augnablik í hug að efast um öryggi okkar. Vinátta Siggu og umhyggja var dýrmæt gjöf, hún var alltaf tilbúin að rétta hjálparhönd og hafði reglulega samband til að frétta af okkur, hún var óspör á að miðla góðum ráðum, hún var lærður sjúkraliði og kunni oft ráð sem dugðu vel. Núna nýskeð þegar stóri Suður- landsjarðskjálftinn reið yfir og við máttum ekki sofa heima í okkar íbúð og höfðum ekki rænu á að láta vita um okkur, þá hafði Sigga uppi á okkur eftir krókaleiðum til að frétta hvort allt væri í lagi með okkur, þá var hún sjálf illa haldin og um það bil að leggj- ast inn á sjúkrahús, hún var ekki ánægð fyrr en hún vissi að við værum ómeidd. Ég kveð mína kæru og traustu vin- konu með miklum söknuði og þökk fyrir allt sem hún var mér og mínum og bið henni allrar blessunar. Ég sendi eiginmanni hennar, einkasyni, tengdadóttur og sonardóttur og öllum sem syrgja hana einlægar samúðar- kveðjur. Arndís. Við systkinin þekktum Óttar alla ævi. Hann var besti vinur föður okkar og var því góður og tíð- ur gestur á heimilinu. Gisti hann oft á heimili okkar í Frakklandi, hafði meira að segja eigið herbergi á tímabili. Óttar var alltaf glaður að sjá okkur. Andlitið lifnaði við og stóra brosið lét okkur alltaf vita, hvað honum þætti vænt um okkur og hefði gaman af okkur. Óttar var einstaklega barngóður. Við minn- umst sérstaklega hláturs hans og hvað honum fannst allt sem við gerðum sniðugt og skemmtilegt. Þegar við eldri systkinin glímdum án sýnilegs árangurs við erfið reikningsdæmi í franska skólanum okkar, reyndu Óttar, pabbi og Johnny Walker að hjálpa okkur Óttar Þorgilsson ✝ Óttar Þorgils-son fæddist á Hvanneyri 30. mars 1925. Hann andaðist á líknardeild Landa- kotsspítala 22. apríl síðastliðinn og var útför hans gerð frá Laugarneskirkju 28. apríl. með dæmin, en þau reyndust þeim ofviða í öllum tilfellum. Hef- ur minningin um þetta vakið hlátur í fjölskyldunni æ síð- an. Að vísu kenndi Óttar Katrínu, sem er yngst okkar, að lesa, og sýndi mikla þolinmæði. Óttar hafði mikla kímnigáfu og var sannur sjentílmaður, sem varð fyrirmynd fyrir okkur um hvernig góður maður eigi að vera. Það vildi svo til, að Óttar bjó í sama landi og við alla tíð, hvert sem fjölskyldan flutti, og urðu þess vegna samskiptin órofin í marga áratugi. Eftir að faðir okkar dó, hljóp Óttar í skarðið. Hann fylgdi Jó- hönnu upp að altarinu, og hann hélt ræðu í fertugsafmæli Katrínar „in loco parentis“, eins og hann sagði sjálfur. Óttar var viðstaddur alla mikilvæga atburði í fjölskyldu okkar. Nú þegar við höfum safnast saman í fjölskyldunni vegna sorg- aratburðar, finnum við fyrir því að Óttar er ekki lengur á meðal okk- ar. Hans er saknað. Við erum Óttari ævinlega þakk- lát fyrir áhrifin sem hann hafði á líf okkar og munum ætið minnast hans með hlýhug og ást. Sigrún, Helgi, Sara, Jóhanna og Katrín Harðarbörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.