Morgunblaðið - 20.07.2008, Side 51

Morgunblaðið - 20.07.2008, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. JÚLÍ 2008 51 Lögga, læknir og lögfræðingur Kippan HVERSU LANGT ER Í AÐ ÉG FÁI NIÐUR- STÖÐURNAR ÚR RANNSÓKNINNI? EFTIR HÁDEGI Á MORGUN HVERSU LANGT? STRAX Í FYRRAMÁLIÐ HVERSU LANGT? BARA RÉTT BRÁÐUM VÍSINDIN ERU ÓTRÚLEG GÓÐAR FRÉTTIR... ÞÚ ERT EKKI MEÐ HITA ÞAÐ VAR RÉTT HJÁ ÞÉR, HANS ! ÞEIR BYGGJA EK KI HÚS EINS OG Þ EIR GERÐU Í GAMLA DAGA FÓLKI FINNST ÉG VERA LEIÐINLEGUR ÉG SAGÐI ÞÉR AÐ ALLIR YRÐU ÆSTIR Í PÍRAMÍDANA OKKAR! EF SKÓRINN PASSAR, SKALTU NOTA HANN... Velvakandi SLIPPUR eða skipasmíðastöðvar er nauðsynlegur viðkomustaður skipa, en þar eru þau smíðuð, tekin upp til viðgerðar eða rifin. Hér er eitt glæsi- legt skip í upplyftingu. Morgunblaðið/Frikki Slippurinn Náttúra til sölu VIÐ Íslendingar hlust- um ekki á Óskar Magn- ússon og hans lið sem ætla sér skyndilega að selja aðgang að nátt- úruperlum landsins. Kerið er ein slík og verður ekki við það un- að að menn geti eignast slíkar perlur. Ríkið á að taka þetta svæði eign- arnámi og loka strax fyrir svona græðgisfíkn. Við sem vorum þarna í sveit sem börn vitum að engum hefur fyrr dottið slík vitleysa í hug að selja aðgang að Kerinu, Gullfossi eða Geysi, Hvítárgljúfrum, Herðubreið- arlindum eða nefndu það. Hann á ekki að láta sér detta þetta í hug og náttúru verndarráð á að loka á svona græðgi strax, ekki láta menn komast upp með svona lagað. Við sem horfð- um á Kastljósið á fimmtudag erum öskureið. Reiður áhorfandi. Hvernig má það vera? ÞAÐ er svo skrýtið að þegar maður lítur í kringum sig og horfir á sannar myndir utan úr heimi þá kemur í ljós að fátæktin er gríðarleg. Fólk í stórum stíl á hvorki í sig né á. Svo eru aðrir sem lifa í einhvers konar ríki- dæmi, eiga allt og miklu meira en það. Verst þykir mér að kirkjan í þessum löndum þar sem armæðan er mest, virðist eiga nóg af gulli og hvers kyns gnægtum og ætti því að eiga auðvelt með að brauðfæða þá sem minna mega sín og ekkert eiga. Ein- hvern tímann las ég það að um það bil 80% af öllu því fólki sem lifir á þessari jörð ættu um 20% af þeim auð sem fyrirfyndist í heiminum og fyndist það í lagi, 80% af öllu því ríkidæmi sem fyrirfinnst í veröldinni. Hvernig má þetta vera? Af hverju er ekki hægt að haga sér öðruvísi? Að deila þessu ríkidæmi sem safnast hefur á fáar hendur á milli þeirra sem minna mega sín og eru hjálparþurfi. Þeirra bíður aðeins þjáning, sorgir og hvers kyns önnur armæða. Það er ekkert guðlegt við það að svona sé staðan. Við sem trúum því að yfir okkur vaki algóður Drottinn ættum að skamm- ast okkar. Ef við eigum auð til að nýta fyrir þá sem minna mega sín hlýtur það að vera forsjóninni þóknanlegt að láta af hendi rakna það sem er um- fram það sem við þurfum, til að aðrir þurfi ekki að kveljast vegna auraleysis sem dregur dilk á eftir sér og veldur stórþján- ingum. Það er mik- ilvægt og afar áríðandi að við högum lífi okkar þannig að okkur finnist meira en sjálfsagt að gefa frá okkur það sem við þurfum ekki á að halda. Hvaða vit er í því að hlaða í kringum sig gulli og gersemum bara til að upphefja okkur í augum náungans? Af hverju lítum við ekki í kringum okkur og gef- um þeim sem ekkert eiga og þurfa sárlega á hjálp okkar hinna að halda? Það er mjög stutt síð- an Íslendingar skriðu út úr mold- arkofunum og því ættu þeir að eiga mjög auðvelt með að setja sig í spor þeirra sem þurfa á því að halda sem ríkir eiga. Okkur á ekki, þegar við höfum þefað af auðnum, að finnast sjálfsagt að hlaupa út um allt og fjár- festa eins og okkur komi ekki við sú þjáning sem viðgengst í veröldinni. Jóna Rúna Kvaran, blaðamaður og rithöfundur. Sjokkerandi sjónvarpsefni VIÐ fjölskyldan settumst fyrir fram- an sjónvarpið að kvöldi 17. júlí sem er ekki í frásögu færandi nema vegna þess að þátturinn sem hófst þá í sjón- varpinu á ónefndri sjónvarpsstöð kom fjölskyldunni í mikið uppnám. Sjóvarpstöðin aðgreinir þætti sem hún hefur á dagskrá með litum, og þessi tiltekni þáttur var merktur hvítu, en það þýðir að þátturinn sé leyfður öllum aldurshópum. En atriði í þessum þætti voru svo sannarlega ekki fyrir alla aldurshópa, þegar hryllilegar vampírur birtust og lambsblóði var úthellt með tilheyr- andi ógeði. Fjölskylda mín sat í hálf- gerðu sjokki fyrir framan kassann. Við erum að sjálfsögðu ekki lítið óhress með þetta hugsunarleysi og ábyrgðarleysi sem þetta er, að bjóða upp á slíkt er forkastanlegt. Þeim ber skylda til að vara við slíkum atriðum en ekki auglýsa svona þætti sem róm- antíska spennuþætti sem séu leyfðir öllum aldurshópum með hvítum lit, heldur rauðum. Áhorfandi.           Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is Félagsstarfeldriborgara Eftirlaunadeild símamanna | Sum- arferðin verður 2.-7. ág. til Hvanna- linda og Kverkfjalla, að Aldeyjarfossi og Svartárkoti, út í Grímsey og heim um Mælifellsdal og Kjöl. Hafi einhverjir félagar ekki fengið bréf, þá hringið í Ragnhildi í síma 551-1137 eða 898- 4437. Fundur fyrir brottför. Ferðaklúbburinn Flækjufótur | Skráning í Þýskalandsferðina 22.-29. sept. er hafin. Uppl. í síma 898-2468. Félag eldri borgara í Kópavogi | Skrifstofan er lokuð til 5. ágúst. Uppl. gefa: Kristjana s. 897-4566 og Krist- mundur s. 895-0200. Félagsvist verð- ur í Gjábakka og Gullsmára. Hraunbær 105 | Farið verður í Viðey miðvikudaginn 23. júlí. Boðið upp á gönguferð um eyna með leiðsögu- manni o.fl. Skráning á skrifstofu eða í síma 411-2730. Verð 2.300 kr. Hæðargarður 31 | Félagsvist á má- nud. kl. 13.30. Matur og kaffi virka daga og listasmiðjan opin. Uppl. 568- 3132. Íþróttafélagið Glóð | Ringó og pútt á vegum menningarflatarinnar við Gerð- arsafn á miðvikud. kl. 12 og laugard. kl. 13. Línudans í Húnabúð, Skeifunni 11, Rv. á miðvikudaginn kl. 17. Uppl. í síma 564-1490 og 554-5330. Kirkjustarf Akureyrarkirkja | Söng- og helgistund kl. 20.30. Sr. Óskar Hafsteinn Ósk- arsson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.