Morgunblaðið - 06.08.2008, Page 17
EPA
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. ÁGÚST 2008 17
Sigríður segir að í þá daga hafi
ferðamenn haft lengri tíma til að
staldra við og njóta Íslandsdval-
arinnar en nú. „Fyrst þeir voru að
koma til Íslands á annað borð tóku
þeir oft allt sumarið í að ferðast og
dvöldu því hjá okkur í nokkra daga.
Maður kynntist því gestum sínum vel
og þeir stöku sem komu hingað voru
meiri sérvitringar en sá breiði hópur
ferðamanna sem kemur nú til dags.
Þeir höfðu frá mörgu að segja og
opnuðu sögur þeirra marga glugga
fyrir sveitastelpu sem hafði hvergi
farið,“ segir Sigríður sem hafði há-
leita framtíðardrauma. „Þegar ein-
hver spurði mig hvað ég ætlaði að
verða þegar ég yrði stór svaraði ég
að ég ætlaði að verða ferðamaður.
Fyrir mér var ferðamennska lífsstíll
og lífsstarf.“
Með auga ferðamannsins
Það kemur kannski lítið á óvart
að í dag er Sigríður rekstrarstjóri
Farfuglaheimilisins við Sundlauga-
veg og tekur virkan þátt í alþjóða-
starfi samtakanna. „Ferðaþjón-
ustan er heillandi hringiða allt árið
um kring. Við Íslendingar verðum
að passa að halda í heimilislegt and-
rúmsloft þegar við tökum á móti
fólki og vinna af fagmennsku og
heilindum, meðvituð um ábyrgð
okkar sem gestgjafa í dýrmætu
landi. Það sem einkennir far-
fuglaheimili á Íslandi fram yfir aðra
gistingu er hversu mikil áhersla er
lögð á samveru gestanna og að gefa
þeim val um þjónustu. Þannig lækk-
ar kostnaðurinn og gesturinn kemst
af með minna. Margir nýta sér far-
fuglaheimilin vegna þessa en fyrir
flesta er þetta ekki síður lífsstíll og
leið til að kynnast landinu, sjálfum
sér og öðrum. Starfið mitt er
skemmtilegt og mér finnst ég í raun
vera ferðamaður eins og ég ætlaði
mér að vera. Þótt ég sé ekki búin að
ferðast eins mikið og ég hefði viljað
þá umgengst ég ferðamenn á hverj-
um degi og samstarfsfólk mitt kem-
ur víða að og hefur margt reynt sem
er einnig mjög gefandi.“
Hún segir það vera sér dýrmætt
að hafa alist upp þar sem gestir voru
alltaf velkomnir. „Þannig kynntist ég
lífinu, sjálfri mér og staðnum með
augum ferðamannsins. Að umgang-
ast svo marga ferðamenn gaf mér
innsýn í hvað veröldin er merkileg og
miklu stærri en sveitin mín. Ég lærði
líka að meta sveitabæinn því út frá
gestunum sá ég hvað Berunes var
sérstakur staður að búa á og hvað Ís-
land er fallegt. Þeir settu í raun sýn
mína í öðruvísi samhengi.“
Hún man sérstaklega eftir því
þegar þýskur vinnumaður, sem hafði
veturdvöl hjá þeim, keyrði fjölskyld-
una úr jólaboði seint um kvöld. „Það
var ís yfir öllum vegum og ég man
hvernig hringlaði í keðjunum á Land
Rovernum. Vinnumaðurinn stoppaði
bílinn snögglega á miðjum vegi og
sagðist einfaldlega ekki geta haldið
áfram. „Sjáið þið ekki norðurljósin?“
sagði hann. Það voru fljúgandi norð-
urljós um allan himininn og glampaði
á svellið og hann dró okkur þarna út
úr bílnum um miðnætti til að horfa
upp í himininn. Mér fannst ég þá
ekki hafa upplifað norðurljósin áður.
Það er eins og maður þurfi ný augu
til að benda manni á sjálfsagða
hluti.“
www.simnet.is/berunes
www.hostel.is
Í HNOTSKURN
»Gamli bærinn á Berunesivar byggður 1907.
»Á Berunesi hefur veriðstarfrækt farfuglaheimili
síðan 1976.
»Á Berunesi er gistiplássfyrir 45 gesti í gamla bæn-
um, smáhýsum og nýja bæn-
um.
»Alls eru 26 farfuglaheimiliundir nafni Hosteling
International á Íslandi.
»Það stærsta er Farfugla-heimilið við Sundlaugaveg
í Reykjavík.
»Yfir 5000 farfuglaheimilieru starfrækt í 60 löndum í
heiminum.
Berufjörður Gamaldags sveitaandi svífur yfir Berunesi. Sigríður segir gesti oft nefna að heimilislegt andrúmsloft á
Berunesi og stórbrotið umhverfi þess sé eins og þeir höfðu ímyndað sér að Ísland væri.
Pétri Stefánssyni fannst grábölvað á sunnudagað það komu engin blöð út. „Og saknaði ég
þess. Í einni pásunni horfi ég í gaupnir mér og
orti:
Á þessum vota drottins degi
er dauft á mínum vinnustað,
og heldur slæmt að hafa eigi
við höndina sitt Morgunblað.“
Og Pétur orti þegar verslunarmannahelgin leið
undir lok:
Þagnað nú er gleðigeim,
gestum hrúgað saman.
Öllum snúið aftur heim.
Allt er búið gaman.
Hallmundur Kristinsson bætti við:
Nú eru víða lokalög
leikin er kveðja gestir,
ekki svo sárir margir mjög
en móðir úr hófi flestir.
Loks Friðrik Steingrímsson í Mývatnssveit:
Nú er út um nautn og sleik
nú er þjóðin lúin.
Nú er þynnkan nokkuð keik
nú er helgin búin.
VÍSNAHORNIÐ
pebl@mbl.is
Þagnað gleðigeim
- kemur þér við
Raforka verður sett á
markað fyrir áramót
Er Davíð á förum úr
Seðlabankanum?
Hriktir í stoðum litlu
sparisjóðanna
Réttindalausir geitunga-
banar í Reykjavík
Bubbi þakklátur fyrir að
vera á lífi eftir helgina
Hvað ætlar þú
að lesa í dag?
Sérblað um heimili og
hönnun fylgir blaðinu
! "
# $
# % & '
( )
#
*
# + # # % & '
( ,-
. +* .!* !/ !(0
#
*
*/ !
/
/
#
*
(
1
* .
* /
+
! .
(
*!+ !
/
2. ( + 3.* 4
!
*
.
3
* *
! # ( ,
*
1
# 2.
! #
(0
56 788888
!"#"$" %
&'
(')$*+")(+,#"- ./0 1 (')
$
+")(2 +3'4"5"+