Morgunblaðið - 06.08.2008, Page 26
26 MIÐVIKUDAGUR 6. ÁGÚST 2008 MORGUNBLAÐIÐ
dagbók
Í dag er miðvikudagur
6. ágúst, 219. dagur ársins 2008
Orð dagsins: „Ef þér hafið þekkt mig,
munuð þér og þekkja föður minn.
Héðan af þekkið þér hann og hafið séð
hann.“ (Jóh. 14, 7.)
Styr stendur um Ólympíuleikana,sem hefjast í Peking hinn daginn
og það er ekki að ófyrirsynju. Talað
hefur verið um að nú séu í vændum
hinir gleðisnauðu Ólympíuleikar,
skipulag fullkomið en lítið um kátínu.
x x x
Þar verða hins vegar margiríþróttamenn, sem spennandi
verður að fylgjast með. Sumir
íþróttamenn vekja meiri forvitni en
aðrir.
x x x
Hvernig fór til dæmis bandarískasundkonan Dana Torres, sem
er orðin 41 árs og ól nýlega barn, að
því að öðlast keppnisrétt á leikunum?
Hún hefur unnið til níu verðlauna á
Ólympíuleikum. Hún var 14 ára þeg-
ar hún setti fyrsta heimsmetið og
þegar hún vann í fyrsta skipti gull á
Ólympíuleikunum í Los Angeles árið
1984 voru fæstir keppinautar hennar
fæddir. Torres segir að nýjungar í
þjálfun hafi hjálpað sér að komast í
form, þar á meðal sérstakar teygju-
æfingar. Hún hefur haft átta manna
aðstoðarlið sér til fulltingis og kostar
það átta milljónir króna á ári. Hún
mun keppa í tveimur greinum og
gæti því bætt tveimur verðlaunapen-
ingum í safnið í Peking.
x x x
Spretthlauparinn Nery Brenes fráCosta Rica kemur úr allt öðru
umhverfi. Hann ólst upp í hafn-
arbænum Limon sem er í herkví
glæpagengja. 30 manns hafa verið
myrtir í bænum á þessu ári. Brenes
er að margra hyggju besti íþrótta-
maður, sem Costa Rica hefur alið og
miklar vonir eru bundnar við hann í
landinu. Árum saman gat Brenes rétt
með herkjum önglað saman nægu fé
til að einbeita sér að íþróttinni. Þegar
hann fékk 640 þúsund krónur í verð-
laun fyrir að ná fjórða sæti á heims-
meistaramótinu gaf hann peningana
fjölskyldum, sem misst höfðu sína
nánustu, í Limon. Er annað hægt en
að halda með íþróttamanni, sem hef-
ur sigrast á slíkum erfiðleikum?
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Reykjavík Stúlka Einars-
dóttir fæddist 20. júlí. Hún vó
4.350 g og var 52 cm löng.
Foreldrar hennar eru Sigríð-
ur Hlíf Valdimarsdóttir og
Einar Logi Sveinsson.
Reykjavík Guðmundur Tóm-
as fæddist 18. mars sl. Hann
vó 3.255 g og var 50 cm lang-
ur. Foreldrar hans eru Ás-
geir Guðmundsson og Gyða
Sigríður Einarsdóttir.
Reykjavík Aðalheiður Krist-
ín fæddist 26. apríl .sl. Hún
vó 3.980 g og var 52 cm. For-
eldrar hennar eru Ragnar
Bjartur Guðmundsson og
Jónína Auður Hilmarsdóttir.
Nýirborgarar
Krossgáta
Lárétt | 1 starfsamt,
4 stig, 7 aka, 8 óviljugt,
9 fum, 11 sefar, 13 guð,
14 hélt, 15 þráður,
17 ímynd, 20 títt,
22 ærslahlátur,
23 baunin, 24 heift,
25 ota fram.
Lóðrétt | 1 gosmöl,
2 plokka, 3 kögur,
4 sælgæti, 5 frek,
6 endurtekið, 10 loforð,
12 gyðja, 13 kyn,
15 spakur, 16 kaðall,
18 giska á, 19 vera ólatur
við, 20 árni, 21 ferming.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 spilaborg, 8 sonur, 9 allur, 10 far, 11 maula,
13 geisa, 15 starf,18 álfan, 21 lof, 22 lygna, 23 arnar, 24
snakillur.
Lóðrétt: 2 pöndu, 3 lirfa, 4 bjarg, 5 rölti, 6 ásum, 7 þráa,
12 lár, 14 ell, 15 sálm, 16 angan, 17 flakk, 18 áfall,
19 fundu, 20 nýra.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Sudoku
Þrautin felst í því að fylla út í
reitina þannig að í hverjum 3x3-
reit birtist tölurnar 1-9. Það verð-
ur að gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei
má tvítaka neina tölu í röðinni.
Lausn síðustu Sudoki.
© Puzzles by Pappocom
www.sudoku.com
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. d4 d5 2. c4 c6 3. Rf3 Rf6 4. e3 g6 5.
Rc3 Bg7 6. Bd2 O–O 7. Db3 b6 8. Re5
Bb7 9. cxd5 cxd5 10. Be2 Rbd7 11. f4
Rxe5 12. fxe5 Re4 13. Rxe4 dxe4 14.
Bb4 a5 15. Bc3 Bh6 16. Kd2 Bd5 17.
Bc4 e6 18. h4 Bg7 19. Bxd5 Dxd5 20.
Dxd5 exd5 21. b4 a4 22. b5 Hfc8 23.
Bb4 Hc4 24. Be7 He8 25. Bf6 Bh6 26.
Bg5 Bxg5 27. hxg5 Hec8 28. Hhc1 Kf8
29. Hxc4 Hxc4 30. a3 Ke7 31. Hc1 Hxc1
32. Kxc1 Ke6 33. g4 Ke7 34. Kd2 Kf8
35. Kc3 Kg7 36. Kb4 h5 37. gxh6+
Kxh6 38. Kxa4 Kg5 39. Kb4 Kxg4 40.
a4 Kf3 41. a5 Kxe3 42. axb6 Kd3.
Staðan kom upp á alþjóðlegu móti
sem lauk fyrir skömmu í Búdapest.
Stórmeistarinn Zlatko Ilincic (2519)
frá Serbíu hafði hvítt gegn Anh Duong
(2445) frá Víetnam. 43. e6! fxe6 44. b7
og svartur gafst upp enda mun vænt-
anleg drottning hvíts stöðva frípeð
svarts á e-línunni.
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Stutt í þvingun.
Norður
♠ÁKD
♥K2
♦Á43
♣ÁK1054
Vestur Austur
♠1075 ♠82
♥D876 ♥G95
♦G975 ♦K862
♣96 ♣G873
Suður
♠G9643
♥Á1043
♦D10
♣D2
Suður spilar 7♠.
Vestur kemur út með lítinn tígul og
sagnhafi flýgur upp með ásinn – eng-
inn kærir sig um tapa alslemmu í
fyrsta slag. En hvernig á svo að
spila?
Fimm slagir á lauf leysa málið, en
það er of snemmt að múlbinda sig við
þann möguleika. Með hjartatrompun í
borði eru slagirnir orðnir tólf og þá
er stutt í þann þrettánda með þving-
un. En allt í réttri röð: Fyrst er
tromplegan könnuð með ♠ÁK. Þegar
báðir fylgja er óhætt að stinga hjarta.
Síðan fer sagnhafi heim á ♣D og spil-
ar trompunum til enda. Bæði ♦D og
♥10 eru öflug hótunarspil. Eigi annar
mótherjinn gosann fjórða í laufi með
♦K eða hæsta hjarta lendir hann
óhjákvæmilega í kastþröng. Hér er
austur með ♦K til hliðar við ♣Gxxx
og ræður ekki við síðasta trompið.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Þú gætir komið auga á ýmislegt til
að hafa áhyggjur af í lífi þínu, en þú
ákveður að hunsa það. Þú kýst að sjá allt
þetta góða, og það ræður ríkjum í lífi þín-
um.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Það er auðvelt að sjá hvað virkar. Þú
skiptir um lag, jafnvel tóntegund og laðar
fólk að þér. Þú ert að sjá ljósið; með réttri
framkomu geturðu látið hlutina gerast.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þú ert mjög félagslyndur í dag.
Þú vilt gera allt með öðrum, hvort sem það
er eitthvað djarft eða bara að kúra heima.
Veldu því rétta félagsskapinn.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Að viðurkenna að þú hafir rangt
fyrir þér, segja að þér þyki þetta leitt og að
það muni aldrei endurtaka sig, virðist ein-
falt og gott. Af hverju gera ekki fleiri það?
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þú hættir loks að velta þér upp úr
hlutunum. Þegar þú hefur hvöt til að gera
eitthvað, læturðu af því verða. Eftir á fær
árangurinn þig til að pæla í af hverju þú ef-
aðist um sjálfan þig.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þú ert vinsæll. En einn vinur þinn
þarfnast þín meira en allir hinir samanlagt.
Reyndu að finna tíma fyrir ykkur tvo, svo
hann fái alla þína athygli óskipta.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Það er ekki sjálfselska að næra sköp-
unarþrána eins og margir vilja telja þér trú
um. Að vekja þinn innri listamann upp til
lífsins kemur mannkyninu til góða.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Rífðu upp stemninguna í
kringum þig, líka hvað varðar líkama þinn,
föt, heimili og bíl. Ef þér líkar efnisheim-
urinn þinn, ertu rólegur hið innra.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Þú getur þess vegna stokkið í
sjóinn fyrir einhvern, en bara fyrr þennan
rétta „einhvern“. Það sem þú gefur eftir
gæti virst fullýkt fyrir flesta, en er þér eðli-
legt.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Allir eru að leita að einhverju
nýju og fersku, einhverju til að slúðra um.
Þú kannt nýjustu taktana sem allir þrá, en
í raun eru þeir bara endurunnir.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Venus hefur blessað þig með
góðum smekk. Ef þú passar þig ekki, getur
fólk flokkað þig sem snobbara! Næmi þitt
fyrir fagurfræði laðar að ást, vini, peninga
og völd.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Vinskapur krefst framlags, og und-
anfarið hefur það verið í formi peninga.
Gjafmildi þín fer fram úr því sem þú hefur
efni á, en þú færð þetta allt til baka.
Stjörnuspá
Holiday Mathis
Frændsystkinin Jökull Breki Arn-
arson og Anika Ýr Magnúsdóttir
héldu tombólu á Skóalvörðustíg og
söfnuðu 5.103 krónum til styrktar
Rauða krossi Íslands.
Hlutavelta
GUÐRÚN Olga Stefánsdóttir fagnar 25 ára af-
mæli sínu í dag. Hún er nú búsett í Boston í
Massachusetts-ríki í Bandaríkjunum ásamt
sambýlismanni sínum Garðari Haukssyni. Móð-
ir hennar er Ólafía Þórdís Gunnarsdóttir og
faðir hennar er Stefán Ólafsson. Hún á jafn-
framt tvo bræður. „Kærastinn minn ætlar að
vera svo elskulegur að bjóða mér út að borða á
flottan franskan veitingastað í kvöld. Svo ætl-
um við til New York um helgina til að fara á
langþráða Radiohead-tónleika. Það hefur lengi
verið draumur hjá okkur,“ segir hún, aðspurð
hvernig hún muni fagna deginum stóra.
Olga hefur nú búið í Boston í tvö ár. Upphaflega hélt hún þangað til
að klára meistaranám í verkfræðum og hefur nú unnið í eitt ár í fjár-
málageiranum þar í borg. „Við flytjum svo heim saman núna í sept-
ember. Það verður örugglega gott að koma heim en Boston er alveg
frábær borg og við eigum eflaust eftir að sakna hennar.“
Henni er 10 ára afmælisdagurinn á Grundarfirði minnisstæður. „Þá
fékk ég stultur í afmælisgjöf og allur bekkurinn kom í heimsókn og
það var alveg frábært veður. Algjört sumarafmæli,“ segir hún og
hlær. Um áhugamál sín segir Olga: „Ætli það séu ekki aðallega þessi
hefðbundnu, að dvelja í góðra vina hópi og svona. Svo finnst mér gam-
an að fara í fjallgöngur.“ haa@mbl.is
Guðrún Olga Stefánsdóttir er 25 ára í dag
Tónleikar með Radiohead
;)
Nýbakaðir foreldrar?
Sendið mynd af nýja ríkisborgaranum
ásamt upplýsingum um fæðingarstað
og stund, þyngd, lengd
og nöfn foreldra, á netfangið
barn@mbl.is
6. ágúst 1907
Lárus Rist fimleikakennari
synti yfir Eyjafjarðarál, al-
klæddur og í sjóklæðum. Þótti
þetta frækilegt sundafrek.
6. ágúst 1933
Hakakrossfáni var skorinn nið-
ur við hús þýska vararæð-
ismannsins á Siglufirði. Fimm
menn voru dæmdir fyrir
verknaðinn, þeirra á meðal
Steinn Steinarr skáld.
6. ágúst 1951
Peter Scott fuglafræðingur
kom úr fyrsta leiðangri sínum
til að rannsaka heiðargæsir við
upptök Þjórsár. Scott er talinn
eiga þátt í því að Þjórsárver
voru friðuð, en þar eru stærstu
varpstöðvar heiðargæsa í
heimi.
6. ágúst 1958
Opnuð var sýning á 46 mál-
verkum eftir Guðmund Thor-
steinsson, Mugg, sem Elof
Rysebye hafði gefið Listasafni
ríkisins. Morgunblaðið sagði
þetta rausnargjöf sem ekki
yrði metin til fjár. Meðal mál-
verkanna var „Sjöundi dagur í
Paradís,“ eitt þekktasta verk
Muggs.
6. ágúst 2000
Þorgeirskirkja við Ljósavatn í
Suður-Þingeyjarsýslu var vígð.
Á bökkum Skjálfandafljóts var
sýnt á táknrænan hátt hvernig
Þorgeir Ljósvetningagoði
fleygði goðunum í Goðafoss að
lokinni kristnitökunni eitt þús-
und árum áður.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist þá…