Morgunblaðið - 10.08.2008, Page 1
S U N N U D A G U R 1 0. Á G Ú S T 2 0 0 8
STOFNAÐ 1913
216. tölublað
96. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
FRAMÚRSTEFNU-
LEGUR OG FERSKUR
HÖNNUNMUNDA
MOÐYRMI, EITUR-
GEDDA, SKOFFÍN
UNDARLEGARSKEPNUR
Vinsældir Baracks Obama valda því
að honum er líkt við poppstjörnur.
Keppinautur hans, John McCain,
reynir nú að beita þessari stað-
reynd gegn honum.
VIKUSPEGILL
McCain óttast
vinsældir Obama
Þrjátíu ár eru síðan lýst var yfir
neyðarástandi í hverfi í Niagara
Falls-borg í Bandaríkjunum. Það
reyndist byggt ofan á mörg þúsund
tonnum af eitruðum efnaúrgangi.
Þegar eitrið flaut
um Love Canal
Belgar ná ekki að mynda ríkis-
stjórn og nú er svo komið að óttast
er að ríkið kunni að leysast upp.
Konungur Belgíu berst örvænting-
arfullur gegn þeim örlögum.
Er Belgía að
líða undir lok?
Eftir Pétur Blöndal
pebl@mbl.is
ÞRJÁR stærstu stórmarkaðakeðjurnar í Sviss eru hættar
að selja íslenskan villtan þorsk, en þær seldu eingöngu ís-
lenskan þorsk áður og eru með 75% hlutdeild í ferskfisk-
markaðnum þar í landi. Ástæðan fyrir ákvörðuninni er sú
að ekki hefur verið vottað að þorskveiðar séu sjálfbærar
við Íslandsstrendur, að sögn Hilmu Sveinsdóttur hjá Ice-
co GmbH., sem staðið hefur fyrir útflutningi á þorski til
Sviss. Nam heildarútflutningur á þorski til Sviss 2-3 þús-
undum tonna upp úr sjó þegar mest var árið 2006.
Allt frá árinu 2004 hafði Ice-co sett þrýsting á íslensk
stjórnvöld og hagsmunaaðila í sjávarútvegi að fá vottun á
íslenskar fiskafurðir. „Við höfum átt fundi með sjávarút-
vegsráðherra og hagsmunaaðilum, en af ýmsum ástæðum
hafa menn ekki verið tilleiðanlegir að taka þátt í þessu í
samræmi við kröfur Svisslendinga,“ segir Hilma. „Stór-
markaðirnir vilja bara stimpil sem allir þekkja, þannig að
þeir geti selt fiskinn sem góða vöru á háu verði. Ég held að
umhverfismerkingar séu stærsta hagsmunamálið í ís-
lenskum sjávarútvegi í dag.“
Lokað á villtan þorsk
Vantar vottun á sjálfbærar þorskveiðar við Ísland
Stærsta hagsmunamálið í íslenskum sjávarútvegi Í HNOTSKURN» Viðræður eru á lokastigium að sjávarútvegsfyr-
irtæki hér á landi taki upp
MSC-vottun, sem þýðir að var-
an fengi áletrun MSC.
» Þegar varan er merktþannig segir það neyt-
endum að fiskurinn sé úr stofni
nýttum með sjálfbærum hætti,“
að sögn Gísla Gíslasonar, ráð-
gjafa fyrir MSC á Íslandi.
Vilja stimpil sem allir þekkja | 4
„Ég ber fulla
ábyrgð á því
hvernig fór,“
segir Bubbi
Morthens í sam-
tali við Morg-
unblaðið um
ófarir sínar í
fjárfestingum.
Hann segist
ekki hafa gætt
þess að dreifa áhættunni heldur
fjárfesti í þremur innlendum fyr-
irtækjum sem hann hafði ofurtrú á,
Eimskip, Exista og FL Group. Allur
sparnaðurinn hafi farið fyrir lítið.
„Þá keypti ég líka hlutabréf í Er-
icsson-símafyrirtækinu sem skiluðu
mér góðri ávöxtun um tíma. En ég
seldi þau ekki þegar þau hrundu.
Áður var ég efnaður, en nú er ég
nokkurn veginn á floti,“ segir
Bubbi. »12
Bubbi Morthens
Allur sparnaðurinn fór
Jón Karl Helgason hefur gert
fjölmargar kvikmyndir og sjón-
varpsþætti. „Mér finnst heimild-
armyndin skemmtilegust,“ segir
hann. „Kvikmyndirnar eru eins og
túr á togara; þú ferð út, fiskar og
kemur svo aftur í land; mannskap-
urinn fer í sparifötin og drekkur
sig fullan. Svo skilur leiðir og allt er
búið. En heimildarmyndin er með
þér lengi, lengi, sumar árum saman
og þær verða svona einhver sam-
fella í lífinu, sem er bæði notaleg og
skemmtileg.“ »24
Kvikmynd eins
og túr á togara
„Ég hef heyrt í íbúum og versl-
unareigendum í kring. Þeir eru
fegnir að fá Listaháskóla Íslands á
svæði, þar sem nú er meðal annars
tattústofa, karókíbar og stripp-
staður,“ segir Páll Hjaltason arki-
tekt hjá +Arkitektum. +Arkitektar
unnu vinningstillögu að nýju húsi
Listaháskóla Íslands á Frakkastígs-
reit ásamt dönsku arkitektastof-
unni Adapt.
Páll kveðst hissa á þeirri deilu
sem upp hefur komið eftir að vinn-
ingstillagan var kynnt. »11
Arkitektinn
undrandi á deilunni
Leikhús
í sumar >> 45
SÆRÐ kona í Gori í Georgíu eftir loftárás í gær,
minnst fimm manns féllu í árásinni. Þotur Rússa
vörpuðu sprengjum á íbúðarblokkir í Gori og her-
bækistöðvar víða í landinu í gær, einnig Poti við
Tskhinvali, höfuðstað Suður-Ossetíu, þar sem þeir
styðja uppreisnarmenn. Rússar fullyrða að um
1.500 manns hafi fallið í Tskhinvali í árásum
Georgíuhers undanfarna daga.
Svartahaf sem er olíuútflutningsborg. Tugir
manna munu hafa fallið og þúsundir voru á flótta
frá átakasvæðunum. Georgía fór í gær fram á
vopnahlé en Rússar segjast nú ráða yfir
Reuters
Mannfall í loftárás Rússa á Gori