Fréttablaðið - 18.04.2009, Side 2
2 18. apríl 2009 LAUGARDAGUR
SKOÐANAKÖNNUN 62,5 prósent segjast vilja afturköll-
un núgildandi aflaheimilda, samkvæmt nýrri skoð-
anakönnun Fréttablaðsins. 37,5 prósent eru því mót-
fallin.
Nokkur munur er á afstöðu fólks eftir bæði kyni
og búsetu. Konur eru mun frekar fylgjandi afturköll-
un aflaheimilda en karlar. 68,0 prósent þeirra eru
því hlynnt, en 58,2 prósent karla. Þá eru 69,1 prósent
íbúa á höfuðborgarsvæðinu hlynnt því að kvóti verði
afturkallaður, en 52,5 prósent íbúa á landsbyggðinni.
Mikill meirihluti kjósenda Samfylkingar og
Vinstri grænna er hlynntur afturköllun veiðiheim-
ilda. 79,7 prósent kjósenda Samfylkingar og 77,2 pró-
sent kjósenda Vinstri grænna.
Meirihluti kjósenda Framsóknarflokks og Sjálf-
stæðisflokks er hins vegar andvígur því að afla-
heimildir verði afturkallaðar; 58,6 prósent kjósenda
Framsóknarflokks styðja ekki slíka afturköllun og
68,5 prósent stuðningsmanna Sjálfstæðisflokks eru
því mótfallin.
Af þeim sem ekki gefa upp stuðning við stjórn-
málaflokk segjast 63,1 prósent vera hlynnt afturköll-
un kvóta, en 36,9 prósent eru því andvíg.
Hringt var í 800 manns þriðjudaginn 14. apríl og
skiptust svarendur jafnt eftir kyni og hlutfallslega
eftir búsetu. Spurt var; Á að afturkalla núgildandi
aflaheimildir? 76,8 prósent tóku afstöðu til spurn-
ingarinnar. - ss
Skoðanakönnun Fréttablaðsins um afturköllun aflaheimilda:
Meirihluti vill afturkalla kvóta
Á að afturkalla núgildandi
aflaheimildir?
Skv. könnun Fréttablaðsins 14.4. 2009
Já
62,5
Nei
37,5
%
Ung Vinstri græn bjóða í grillpartý í dag kl. 17
í kosningamiðstöð UVG á Suðurgötu 3. Vertu með!
Svandís Svavars plokkar gítarinn af sinni alkunnu snilld.
Byltum á
daginn
Árni Páll, er þá búið að banna
ykkur að rassskella stuttbuxna-
deildina?
„Já, en er hún ekki hvort eð er
mestöll komin í mútur?“
Lög voru samþykkt á Alþingi á fimmtu-
dag sem kveða á um að óheimilt sé að
beita börn líkamlegum eða andlegum
refsingum. Dómur sem bar blak af
flengingum var kveikja málsins. Árni Páll
Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar,
er formaður allsherjarnefndar.
STJÓRNMÁL Skálað var í kampavíni
og fagnað á skrifstofu Stígamóta í
gærkvöldi af því tilefni að Alþingi
samþykkti frumvarp sem gerir það
refsivert að greiða fyrir vændi.
Lögin tóku þegar gildi þannig að
verði einhver staðinn að slíku má
hann eiga von á sekt eða fangelsi í
allt að einu ári.
„Þetta hefur afar mikilvæga
táknræna þýðingu, finnst okkur,“
sagði Guðrún Jónsdóttir, talskona
Stigamóta. „En ekki aðeins fyrir
okkur heldur alla kvennahreyf-
ingu og þar að auki, að ég tel, meiri-
hluta fólks af öllum flokkum og
báðum kynjum ef skoðanakönnun
Capacent frá árinu 2007 er mark-
tæk en hún sýndi að sjötíu prósent
þjóðarinnar eru hliðholl þessari
breytingu. Við hrósum því þessari
feminísku ríkisstjórn í hástert.“
Þar með hefur Ísland orðið
þriðja þjóðin til að fara hina svo-
kölluðu sænsku leið, því Svíar stigu
fyrstir þetta skref en Norðmenn
samþykktu lög sem þessi fyrir
skemmstu. Atli Gíslason, þingmað-
ur Vinstri grænna og einn flutn-
ingsmanna frumvarpsins, segir að
eftir því sem fleiri lönd feti þessa
sænsku leið, þeim mun meiri árang-
ur náist gegn mansali. Hann segir
einnig að í Svíþjóð hafi götuvændi
minnkað og færri konur leiðst út í
vændi frá því lögin voru sett þar.
En verður vændið ekki aðeins
enn meira falið í undirheimunum
eftir þessa breytingu og því harð-
ara og erfiðara við að eiga? „Það
verður alltaf eins ósýnilegt og það
þarf til að viðskiptavinirnir sjáist
ekki en nógu sýnilegt til að hægt
sé að selja það,“ svarar Guðrún.
„Þannig að ég held að þetta breyti
engu þar um.“ Hún segir einnig
mikilvægt að þjóðin sé farin af
þeirri leið að vændi sé í raun lög-
legt og fjölmiðlar meira að segja
farnir að fjalla um það sem viðtek-
inn hlut. Atli segir að nauðsynlegt
hafi verið að banna vændi eftir að
Sjálfstæðisflokkurinn hafi lögleitt
það með breytingu á hegningarlög-
um árið 2007.
„Það er bara kjaftæði,“ segir Ólöf
Nordal, þingmaður Sjálfstæðis-
flokksins. „Þetta hafði verið svona í
hegningarlögum frá því 1940, menn
eru aðeins að slá sig til riddara með
því að tala svona.“ Hún gagnrýnir
vinnubrögðin. „Því var kippt út úr
allsherjarnefnd og í raun hef ég
ekki fengið tíma til að kynna mér
frumvarpið því asinn er svo mikill.
Þetta virðist vera eitt af þessum
málum sem samið hefur verið um
við öfl innan stjórnarflokkanna
að fá að dæla í gegn. Miðað við
ástandið í þjóðfélaginu finnst mér
nú að við þurfum að drífa okkur við
önnur mál.“ jse@frettabladid.is
Kaup á vændi refsiverð
Kaup á vændi hafa verð gerð refsiverð. Fagnað var í Stígamótum. Þingmaður
Sjálfstæðisflokksins segir öfl í stjórnarflokkum fá að dæla málum í gegn og
gagnrýnir að mál sem þetta séu afgreidd í flýti meðan brýnni mál bíði.
UPP VAR HAFINN BIKARINN Á STÍGAMÓTUM AF ÞESSU TILEFNI Stígamót og velunnarar skáluðu hér eru Björg Gísladóttir, Arnar
Gíslason, Kristín Tómasdóttir, Fríða Rós Valdimarsdóttir, Kolbrún Halldórsdóttir, Kristbjörg Kristjánsdóttir, Sóley Tómasdóttir og
Guðrún Jónsdóttir. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
SAMGÖNGUR Eigandi bíls með einkanúmer
hefur verið sektaður um 15 þúsund krón-
ur fyrir að láta ekki skoða bíl sinn í réttum
mánuði. Hann segir að svo virðist sem verið
sé að leiða eigendur einkanúmera í gildru.
Bíll Ásgeirs Þormóðssonar er með einka-
númerið ERR 1. Fastanúmer bílsins endar
hins vegar á tölustafnum átta, og hefur
Ásgeir því látið skoða bílinn í ágúst ár hvert
frá árinu 1997, athugasemdalaust.
Ásgeir fékk nýverið bréf frá Sýslumann-
inum í Bolungarvík þar sem honum er bent
á að skoða eigi bílinn í janúar, þar sem
einkanúmerið endar á tölustafnum einum.
Að auki er hann sektaður um 15 þúsund
krónur, en greiði hann innan mánaðar lækk-
ar sektin í 7.500 krónur.
Hann segist afar ósáttur við þessar
aðfarir, enda sé að sínu mati skýrt í reglum
að miða eigi við fastanúmer bíls þegar
ákvarðað er hvenær á að skoða bílinn.
Hjá Umferðarstofu fengust þær upplýs-
ingar að samkvæmt reglugerð eigi að skoða
bíla með einkanúmerum sem enda á tölu-
staf í þeim mánuði ársins sem tölustafurinn
gefur til kynna. Endi númerið á bókstaf beri
að láta skoða bílinn í maí ár hvert. Engu
skipti í því samhengi hvert fastanúmerið sé.
Bifreiðaeigendur sem kaupa einkanúmer
þurfa sjálfir að afla sér upplýsinga um þær
reglur sem gilda um skoðun ökutækjanna,
samkvæmt upplýsingum frá Umferðarstofu.
Stofan hefur hingað til ekki upplýst um regl-
urnar að fyrra bragði þegar slík númer eru
keypt.
- bj
Umferðarstofa upplýsir kaupendur einkanúmera fyrir bíla ekki um hvenær fara á með bílana í skoðun:
Segir bifreiðaeigendur leidda í gildru
Í kringum fjögur þúsund einkanúmer hafa verið
framleidd hér á landi frá því fyrst var boðið upp
á þann möguleika, samkvæmt upplýsingum frá
númeradeild fangelsisins að Litla-Hrauni. Daglega
eru framleidd þrjú til fjögur slík númer, en einhver
eru endurgerðir af skemmdum eða týndum
númerum.
Samkvæmt upplýsingum frá Umferðarstofu
voru 164 einkanúmer keypt eða endurnýjuð á
fyrstu þremur mánuðum ársins 2009. Það er rúm-
lega 40 prósentum minna en á sama tímabili í
fyrra, þegar 281 númer var keypt eða endurnýjað.
Framleiðsla á hefðbundnum bílnúmerum hefur
einnig dregist verulega saman, og hefur ekki verið
minni í 20 ár. Nú eru um 50 númeraplötur fram-
leiddar á dag, en voru um 1.000 þegar mest var.
FÆRRI EINKANÚMER
STJÓRNMÁL Alþingi samþykkti
í gær með 38 atkvæðum gegn
níu að veita iðnaðarráðherra
heimild til að semja fyrir hönd
ríkisstjórnarinnar við Cent-
ury Aluminium Company og
Norðurál Helguvík ehf. um álver
í Helguvík.
Siv Friðleifsdóttir, þingmað-
ur Framsóknarflokks, sagðist
hins vegar undrast að þingmenn
Vinstri grænna og Mörður Árna-
son, varaþingmaður Samfylking-
ar, og Þórunn Sveinbjarnardótt-
ir, þingmaður Samfylkingar og
fyrrverandi umhverfisráðherra,
gætu ekki greitt atkvæði með
stjórnarfrumvarpinu sem fæli
í sér atvinnuuppbyggingu sem
ekki veitti af í því ástandi sem
nú ríkir. Tæplega nítján hundruð
manns eru atvinnulausir á Suður-
nesjum. - jse
Stjórnarflokkar ósammála:
Heimild fyrir
Helguvík sam-
þykkt á þingi
STJÓRNMÁL Þingi var frestað í
gærkvöldi og halda þingmenn
nú í kosningabaráttu nema þeir
átján sem ekki gefa kost á sér.
Guðbjartur Hannesson, forseti
Alþingis, hvatti þingmenn og
stjórnmálasamtök til að halda
í góða og heiðarlega kosninga-
baráttu. Arnbjörg Sveinsdóttir,
þingflokksformaður Sjálfstæðis-
flokksins, tók til máls og þakkaði
meðal annars starfsfólki þings-
ins fyrir það æðruleysi sem það
sýndi þegar mótmælin stóðu sem
hæst í janúar.
Jóhanna Sigurðardóttir forsæt-
isráðherra tilkynnti svo að lokum
að þinginu væri frestað þegar
hún las upp úr bréfi sem hún
hafði ritað ásamt Ólafi Ragnari
Grímssyni, forseta Íslands.
- jse
Kosningabaráttan hafin:
Þingi lauk í gær
FÓLK Nemar við málmdeild
Borgarholtsskóla eru nú í óða
önn að ljúka við gerð líkans af
lestarteinum sem hefur tekið tvö
ár að smíða. Þeir fylgja sérstöku
lestarlíkani sem er samvinnu-
verkefni 24 evrópskra skóla og
verður frumsýnt í húsakynnum
Evrópusambandsins í Brussel í
næstu viku.
„Skólunum var skipt í þrjá
hópa sem fengu það verkefni að
smíða lestarvagna eða -teina,
sem tákna sameinaða Evrópu,“
segir Aðalsteinn Ómarsson,
kennari og umsjónarmaður
verksins hérlendis. Hann er
ánægður með framvindu þess og
segir þjóðirnar hafa lært ýmis-
legt af samstarfinu.
-rve/sjá Heimili og hönnun
Nemar úr Borgarholtsskóla:
Vilja sameina
þjóðir Evrópu
með lestarsmíð
SAMEINUÐ EVRÓPA Aðalsteinn ásamt
nemendum úr Borgarholtsskóla.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Orkuvísindi á Ásbrú
Undirritaður hefur verið sam-
starfssamningur um uppbyggingu
rannsóknarseturs í orkuvísindum á
gamla varnarsvæðinu sem hlotið
hefur nafnið Ásbrú. Þar á að stunda
rannsóknir á sviði orkuvísinda,
einkum á sviði jarðvarma og annarrar
endurnýjanlegrar orku og innlendrar
orkuframleiðslu.
MENNTAMÁL
SPURNING DAGSINS