Fréttablaðið - 18.04.2009, Qupperneq 4
4 18. apríl 2009 LAUGARDAGUR
Í Fréttablaðinu í gær var sagt að
Eiríkur Tómasson væri prófessor
við Háskólann í Reykjavík. Það er
rangt. Eiríkur er prófessor í lögum við
Háskóla Íslands.
LEIÐRÉTTING
Norrænt velferðarsamfélag
Tryggjum jafnan aðgang að góðri heilbrigðisþjónustu, grunnheilsu-
gæslu og menntun. Föllum frá frekari einkavæðingu og aukinni
gjaldtöku í velferðarkerfinu og eflum lýðheilsu, heimaþjónustu
og heimahjúkrun.
EFNAHAGSMÁL
Rekstargjöld
Seðlabanka
Íslands tvöfölduð-
ust á árinu 2008,
fóru úr 1,5 millj-
örðum króna árið
áður í 3,0 millj-
arða.
Fram kom í
máli Láru V. Júlí-
usdóttur, for-
manns bankaráðs Seðlabankans
á ársfundi hans í gær, að mikil
kostnaðaraukning skrifist á
umsvif vegna falls fjármálakerf-
isins á árinu. Þannig hafi ráð-
gjafarkostnaður vegna hrunsins
numið 1,1 milljarði króna.
Lára fór yfir starfsemi bank-
ans á árinu, sem hún taldi að yrði
lengi minnst fyrir hremmingarn-
ar á alþjóðlegum fjármálamörk-
uðum. - óká
Rekstrargjöld SÍ tvöfölduðust:
1,1 milljarður
króna í ráðgjafa
VIÐSKIPTI „Ánægjulegt er að
geta upplýst hér að eigur Kaup-
þings nægja til að gera upp við
þýska innstæðueigendur,“ sagði
Jóhanna Sigurðardóttir forsætis-
ráðherra í ræðu sinni á ársfundi
Seðlabankans í gær. Skuldbind-
ingar vegna Kaupthing Edge-
reikninganna lenda því ekki á
íslenskum skattgreiðendum.
Upphæðin sem um ræðir er um
það bil 330 milljónir evra, eða
rúmlega 55 milljarðar íslenskra
króna.
Í tilkynningu skilanefnd-
ar Kaupþings segir Steinar Þór
Guðgeirsson formaður hennar
niðurstöðuna afar ánægjulega, en
áréttar um leið að innstæðueig-
endur séu aðeins hluti kröfuhafa
og skilanefndin muni „áfram
leggja áherslu á að hámarka virði
eigna bankans“. - óká
Kaupþing Edge-reikningar:
Kaupþing átti
fyrir kröfunum
LÁRA V.
JÚLÍUSDÓTTIR
EFNAHAGSMÁL „Ég hef ekki farið
leynt með þá skoðun mína að eitt
af forgangsverkefnum næstu ríkis-
stjórnar á að vera umsókn um
aðild að Evrópusambandinu og
upptaka evru,“ segir Jóhanna Sig-
urðardóttir forsætisráðherra. Hún
flutti ræðu á ársfundi Seðlabank-
ans í gær.
Samhliða aðildarviðræðum vill
Jóhanna að leitað verði samninga
um hvort og hvernig Seðlabanki
Evrópu gæti stutt við gengi krón-
unnar þar til unnt verði að taka hér
upp evru. „Ljóst er að hvers kyns
samvinna við Seðlabanka Evrópu
myndi auka trúverðugleika Seðla-
banka Íslands og gera honum auð-
veldara að ná fram markmiðum
sínum um stöðugleika,“ segir hún
og bendir á að þjóðir á borð við
Dani, sem ekki hafi tekið upp evru,
hafi notið aðstoðar Seðlabanka
Evrópu. „Og bankinn hefur aðstoð-
að aðrar þjóðir, svo sem Ungverja,
í þeirra erfiðu aðstæðum.“
Þá kveður Jóhanna tíma kominn
á endurskoðun peningastefnunnar.
„Ég hef því ákveðið að fela nýrri
peningastefnunefnd Seðlabankans
að fara yfir kosti og galla þess að
breyta peningastefnunni og gera
tillögu til stjórnvalda með hliðsjón
af því mati. Jafnframt tel ég rétt
að Seðlabankinn leggi mat á hvern-
ig við getum stigið mikilvæg skref
til þess að koma okkur út úr verð-
tryggingunni.“
Auk þessa boðar Jóhanna að
farið verði að tillögum finnska
bankasérfræðingsins Kaarlos
Jänneri og þegar verði á vegum
forsætisráðuneytisins undirbún-
ar tillögur um að færri ráðuneyti
hafi með löggjöf á sviði fjármála-
markaðar að gera. Þá eigi sem
fyrst eftir kosningar að setja á
fót nefnd sem kanni kosti og galla
aukins samstarfs milli Seðlabank-
ans og Fjármálaeftirlitsins eða
sameiningar stofnananna.
Svein Harald Øygard seðla-
bankastjóri kveðst fylgjandi slíkri
sameiningu, sem sé í takt við þróun
eftirlitsmála á fjármálamörkuðum
í öðrum löndum. - óká
Á ÁRSFUNDI Í GÆR Svein Harald Øygard
seðlabankastjóri, Jóhanna Sigurðardóttir
forsætisráðherra, Ragnar Arnalds seðla-
bankaráðsmaður og Gylfi Magnússon
viðskiptaráðherra. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Forsætisráðherra vill samstarf við Seðlabanka Evrópu samhliða viðræðum um aðild að Evrópusambandinu:
Peningastefnuna á að endurskoða
EFNAHAGSMÁL „Almennt lít ég svo á
að allar helstu forgangsaðgerðir í
peninga- og ríkisfjármálum næsta
árið séu að meira og minna leyti
þær sömu, án tillits til þess hvort
Íslendingar kjósa að nýta sér kerfi
sveigjanlegs gengis á grundvelli
krónunnar eða taka upp annað
gjaldmiðilsfyrirkomulag eins og
með aðild að myntbandalagi Evr-
ópuríkja,“ segir Svein Harald
Øygard seðlabankastjóri. Hann
fór yfir stöðu og horfur í efna-
hagsmálum og aðsteðjandi verk-
efni Seðlabankans í ræðu á árs-
fundi bankans síðdegis í gær.
Seðlabankastjóri upplýsti að
bankinn vildi leggja sitt af mörk-
um til opinberrar umræðu og
væri því unnið að því að uppfæra
skýrslu bankans frá 1997 um
aðdraganda og áhrif stofnunar
Efnahags- og myntbandalags Evr-
ópu (EMU). „Á sama hátt verður
unnin rannsóknarskýrsla um kosti
og galla mismunandi gengisfyrir-
komulags, þar á meðal inngöngu í
EMU. Lykilþáttur í þessari grein-
ingu verður spurningin um hlut-
verk krónunnar við að draga úr
hagsveiflum eða sem sjálfstæð
uppspretta sveiflna.“
Brýnustu verkefni hagstjórn-
arinnar segir Svein Harald að
hafa hemil á verðbólgu og stuðla
að stöðugu gengi krónunnar. Í
þessu ferli segir hann gjaldeyr-
ishöftin illa nauðsyn og herði nú
Seðlabankinn enn frekar eftirlit
sitt með því að farið sé að sett-
um reglum í þeim efnum. „Komið
verður á fót nýrri eftirlitseiningu
og reglum verður breytt á þann
veg að bönkum verði skylt að til-
kynna meint óleyfileg viðskipti,
með líkum hætti og kveðið er á
um í reglum Evrópusambandsins
um peningaþvætti.“
Svein Harald segir áhættusama
leið að lækka stýrivexti mjög hratt
og að of mikið hafi verið gert úr
áhrifum stýrivaxtanna á vaxta-
greiðslur úr landi vegna erlendr-
ar skuldabréfaeignar hér á landi.
Hann segir betra að fara aðra
leið, ekki jafnáhættusama, og að
á næstu mánuðum eigi að vera
hægt að ná fram fimm af meg-
inforsendunum fyrir verulegri
lækkun stýrivaxta.
Hann segir að hrinda þurfi í
framkvæmd áætlun um aðlög-
un ríkisfjármála og skapa traust
á því að Íslendingar séu í stakk
búnir til að takast á við skulda-
stöðu hins opinbera. Þá verði
að ljúka endurskipulagningu og
endurfjármögnun bankakerfis-
ins, nýta afgang á viðskiptum
við útlönd til að greiða niður upp-
safnaðar skuldir, aflétta gjald-
eyrishöftum í áföngum og ljúka
samningaviðræðum um tvíhliða
lán, öðrum samningaferlum og
endurskoðun Alþjóðagjaldeyris-
sjóðsins. olikr@frettabladid.is
SEÐLABANKASTJÓRI Í PONTU Svein Harald Øygard seðlabankastjóri flytur erindi á
ársfundi bankans síðdegis í gær. Hann segir að í Seðlabankanum hafi verið ráðist í
rannsóknir á gildi þess að notast við krónu sem mynt. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Eftirlit aukið með
gjaldeyrishöftum
Svipaðar reglur verða um eftirlit með gjaldeyrishöftum og með peningaþvætti.
Seðlabankinn eykur eftirlit. Forgangsaðgerðir efnahagsmála þær sömu hvort
sem er með krónu eða án. Vinna á skýrslu um mismunandi gengisfyrirkomulag.
BANDARÍKIN, AP Jafnt mannrétt-
indasamtök sem fyrrverandi
fangar Bandaríkjahers leyndu
ekki vonbrigðum sínum með yfir-
lýsingu Baracks Obama um að
starfsmenn leyniþjónustunnar
CIA verði ekki sóttir til saka þótt
sannað verði að þeir hafi stundað
pyntingar.
Minnisblöð leyniþjónustunnar
um pyntingaraðferðir voru birt
opinberlega á fimmtudag. Þar
kemur fram að við yfirheyrslur
höfðu starfsmenn leyniþjónust-
unnar heimild yfirboðara sinna
til að beita fanga harðræði og
pyntingum.
Obama brást við með því að
fordæma pyntingarnar, en segja
leyniþjónustumennina samt ekki
þurfa neitt að óttast. - gb
Minnisblöð um pyntingar:
Vonbrigði með
afstöðu Obama
ERIC HOLDER Dómsmálaráðherra
Bandaríkjanna. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Sumarnám í HA
Ákveðið hefur verið að bjóða upp
á sumarnámskeið í Háskólanum á
Akureyri í sumar. Áætlunin um þau
námskeið var kynnt fyrir háskólaráði
í gær. Alls eru þetta 32 námskeið en
einnig er boðið upp á að taka próf í
150 námskeiðum í ágúst. Í tilkynningu
frá skólanum segir að þetta sé gert til
að koma til móts við óskir nemenda.
AKUREYRI
VEÐURSPÁ
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
Alicante
Amsterdam
Basel
Berlín
Billund
Eindhoven
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
New York
Orlando
Ósló
París
Róm
Stokkhólmur
19°
18°
10°
17°
14°
16°
16°
16°
12°
13°
22°
17°
23°
27°
9°
10°
19°
6°
5 9
9
87Á MORGUN
5-15 m/s hvassast
allra syðst
MÁNUDAGUR
13-20 m/s
10 13
10
1212
9
8
9
5
9
6
12
7
7
9
6
6
6
5
2 2
2
5
3
6
13
6
HLÝINDI ÁFRAM
Í dag vex vindur
smám saman sunnan
og vestan til af
suðaustri. Undir kvöld
verður vindur víðast
orðinn 8-13 m/s. Lítils-
háttar væta verður
sunnan og vestan til
í fyrstu en vaxandi
væta vestan til á
landinu seint í dag
eða kvöld. Norðan-
og austanlands verður
þurrt og sæmilega
bjart verður á landinu
norðanverðu.
Sigurður Þ.
Ragnarsson
veður-
fræðingur
GENGIÐ 17.04.2009
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
206,2212
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
128,24 128,86
189,68 190,6
167,38 168,32
22,467 22,599
19,029 19,141
15,156 15,244
1,2897 1,2973
190,46 191,6
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR