Fréttablaðið - 18.04.2009, Blaðsíða 6
6 18. apríl 2009 LAUGARDAGUR
SVÍÞJÓÐ, AP Fjórir aðstandendur
skráaskiptisíðunnar The Pirate
Bay voru í gær dæmdir í árs fang-
elsi og háar fjársektir af dómstól
í Stokkhólmi. Fjórmenningarnir
voru sakfelldir fyrir brot á sænsk-
um lögum um vernd höfundarrétt-
ar með því að hjálpa milljónum
tölvunotenda að hlaða tónlist, kvik-
myndum og tölvuleikjum niður af
Netinu endurgjaldslaust.
Dómurinn þykir marka tíma-
mót. Samkvæmt honum skulu
hinir dæmdu, Gottfrid Svartholm
Warg, Peter Sunde, Fredrik Neij og
Carl Lundström, sæta árs fangelsi
og greiðslu 30 milljóna sænskra
króna, andvirði um 450 milljóna
íslenskra, í skaðabætur til afþrey-
ingarrisafyrirtækjanna Warner
Bros., Sony Music Entertainment,
EMI og Columbia Pictures.
Giskað er á að um 22 milljónir
tölvunotenda hafi nýtt sér þjón-
ustu The Pirate Bay. Stórfyrir-
tæki afþreyingarbransans hafa
um nokkurt skeið litið á síðuna
sem höfuðóvin sinn, eftir að þeim
tókst eftir dómstólaleiðinni að loka
Grokster, Kazaa og fleiri sambæri-
legum skráaskiptisíðum.
Lundström átti þátt í að fjár-
magna The Pirate Bay, en hinir
þrír sakborningarnir önnuðust
umsýslu síðunnar.
Verjendur fjórmenninganna
höfðu farið fram á sýknudóm
þar sem Pirate Bay-síðan vistar
ekki sem slík höfundarréttarvar-
ið efni. Hún sé aðeins vettvang-
ur fyrir notendur síðunnar til að
hlaða niður efni með svonefndum
torrent-skrám. Sú tækni gerir not-
endum kleift að hlaða niður hlut-
um af stórum skrám frá mörg-
um öðrum notendum; þetta eykur
niðurhleðsluhraðann.
Í dómnum eru fjórmenningarn-
ir fundnir sekir um að aðstoða
notendur við að brjóta gegn höf-
undarrétti „með því að bjóða
upp á vefsíðu með (...) háþróuð-
um leitar möguleikum, einfaldri
niðurhleðslu- og vistunargetu, og
með eltiforritinu (tracker) sem er
hlekkjað inn á af vefsíðunni“.
Dómarinn, Tomas Nordström,
tók fram að rétturinn hefði tekið
tillit til þess að síðan væri „rekin
á viðskiptalegum forsendum“.
Sakborningarnir hafa neitað því
að nokkur viðskiptaleg markmið
lægju að baki síðunni.
John Kennedy, forsvarsmaður
Alþjóðasamtaka hljómplötuiðnað-
arins, kallaði dóminn „góðar frétt-
ir fyrir alla, í Svíþjóð sem um víða
veröld, sem eru að reyna að fram-
fleyta sér eða byggja rekstur á
skapandi starfsemi og sem þurfa
að vita að réttur þeirra sé vernd-
aður af lögum.“
Sakborningarnir sögðu áður
en dómur var kveðinn upp að
yrðu þeir sakfelldir myndu þeir
áfrýja.
audunn@frettabladid.is
TÍMAMÓTADÓMUR Fréttamenn keppast um að komast yfir eintak af dómnum í máli
Pirate-Bay-manna í Héraðsdómi Stokkhólms í gær. NORDICPHOTOS/AFP
Pirate Bay-menn
dæmdir í fangelsi
Fjórir aðstandendur skráaskiptisíðunnar The Pirate Bay voru í gær dæmdir af
sænskum dómstól til árs fangelsisvistar og til að greiða stórfyrirtækjum afþrey-
ingariðnaðarins háar fjársektir. Sakborningarnir hyggjast áfrýja dómnum.
h
„Þetta er mikið fagnaðarefni fyrir alla rétthafa,“ segir
Snæbjörn Steingrímsson, framkvæmdastjóri Smáís, sem
barist hefur gegn ólögmætri dreifingu á höfundarréttar-
vörðu efni. „Það sem er ánægjulegt er að það er gengið
að öllum kröfum saksóknara,“
segir Snæbjörn. Sannað hafi verið
að mennirnir hafi haft gríðarlegar
tekjur af rekstri síðunnar, tugmillj-
ónir á ári.
„Þetta skapar fordæmi, ekki
bara í Skandinavíu heldur um
allan heim,“ segir hann. Fjórmenn-
ingarnir séu holdgervingar og
fánaberar þessarar menningar í
heiminum. „Þeir höfðu aðstoðað
við gerð á kvikmyndum og höfðu
farið víða um allan heim með
fyrirlestra um svona skráarskipti.“
Snæbjörn segir þrjú mál í farvatninu gegn aðstand-
endum íslenskra skráaskiptisíðna. Þeim hafi verið sendar
aðvaranir en í engu svarað þeim. Þá séu kærur á næsta
leiti. - sh
FORDÆMI FYRIR HEIM ALLAN
SNÆBJÖRN
STEINGRÍMSSON
„Ég er ekkert ánægður með þessa niðurstöðu, að þriðji
aðili sé sakfelldur fyrir gjörðir annarra,“ segir Svavar
Lúthersson, sem fyrir skömmu laut í gras fyrir Smáís í
dómsmáli. Þá var lögbann sett á vef-
síðuna Istorrent, sem Svavar hélt úti,
og skaðabótaskylda hans viðurkennd.
Hann var jafnframt dæmdur til að
greiða milljón krónur í málskostnað.
„Mér finnst þetta óeðlileg þróun.
Þetta á náttúrulega eftir að fara fyrir
Hæstarétt, eins og þeir á Pirate Bay
hafa sagt, þannig að ég bara bíð
niðurstöðu hans. Ég vona að þeir snúi
þessum dómi við,“ segir Svavar.
„Ég hef lent í óréttlætinu þannig að
ég get vel skilið þá. Þótt það séu ekki eins háar fjárhæðir í
spilinu, þá hef ég verið á sama enda og þeir,“ segir hann.
Svavar hefur ekki ákveðið hvort máli hans verður áfrýjað
til Hæstaréttar. Það fari eftir kostnaði, enda þurfi hann að
greiða fyrir málareksturinn sjálfur. Hugsanlegt sé að niður-
staðan í Stokkhólmi og mögulegt fordæmi hennar hafi
áhrif á það hvort hann ákveður að áfrýja málinu. - sh
ÓÁNÆGÐUR MEÐ ÞRÓUNINA
SVAVAR
LÚTHERSSON
Ekur þú á bíl á nagladekkjum?
Já 33,6%
Nei 66,4%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Ert þú sátt(ur) við að ekki verði
gerðar breytingar á stjórnar-
skrá fyrir kosningar?
Segðu þína skoðun á visir.is
DÓMSMÁL Karlmaður á fimmtugs-
aldri hefur verið ákærður fyrir
að berja konu í andlitið á veit-
ingastað.
Atvikið átti sér stað á veit-
ingastaðnum Ránni í Reykja-
nesbæ. Konan, sem er af erlend-
um uppruna, nefbrotnaði við
árásina, hlaut brot á augntóttar-
gólfi hægra megin og glóðarauga
beggja vegna.
Ákæruvaldið krefst þess að
maðurinn verði dæmdur til refs-
ingar og til greiðslu alls sakar-
kostnaðar. Konan gerir skaða-
bótakröfu upp á tæpar 600
þúsund krónur.
- jss
Maður á fimmtugsaldri:
Barði konu og
nefbraut hana
AFGANISTAN, AP Tveir jarðskjálft-
ar urðu í austanverðu Afganistan
í fyrrinótt. Leirsteinshús hrundu
í fjórum fjallaþorpum í Nang-
arhar-héraði og fórust þar rúm-
lega tuttugu manns.
Á hverju ári verða tugir jarð-
skjálfta í Hindu Kush-fjöllunum.
Flestir skjálftarnir eru minni-
háttar, en valda þó oft skemmd-
um og jafnvel manntjóni vegna
þess hve leirsteinshúsin eru við-
kvæm fyrir skjálftum.
Skjálftarnir í fyrrinótt mæld-
ust 5,5 og 5,1 stig. Sá fyrri varð
um klukkan tvö að staðartíma
en hinn tveimur klukkustundum
síðar. - gb
Jarðskjálfti í Afganistan:
Á þriðja tug
þorpsbúa létust
EYÐILEGGING Í ÞORPI Tveir menn sitja á
rústum húss í þorpinu Sherzad.
NORDICPHOTOS/AFP
SJÁVARÚTVEGUR Stefán Ásmunds-
son, skrifstofustjóri alþjóðaskrif-
stofu sjávarútvegsráðuneytisins,
hóf störf hinn 1. apríl í Brussel
sem sérfræðingur Íslands við
endur skoðun fiskveiðistefnu
Evrópusambandsins. Endurskoð-
uninni á að vera lokið fyrir 2012,
en Stefán mun starfa í Brussel
næstu tvö árin. Hann verður
áfram á launum hjá íslenskum
stjórnvöldum.
Sigurgeir Þorgeirsson, ráðu-
neytisstjóri sjávarútvegsráðuneyt-
isins, segir að Evrópusambandið
hafi leitað eftir því í fyrravor að
ráðuneytið skipaði sérfræðing við
endurskoðunina, á sviði sem ekki
sneri að fiskveiðimálum. Því hefði
ekki verið hafnað, en leitað hefði
verið eftir því að fá frekar að skipa
sérfræðing í fiskveiðimálum. Það
hefði verið samþykkt í janúar á
þessu ári.
„Stefán er beinn þátttakandi í
endurskoðuninni. Það mun nýtast
hvort heldur sem kemur til aðildar
að Evrópusambandinu eða ekki.“
Sigurgeir bendir á að hvort sem
Ísland verði aðili að ESB eða ekki
muni Íslendingar geta haft áhrif
á framtíðarfiskveiðistefnu ESB í
gegnum þessa vinnu. - ss
Endurskoðun á sjávarútvegsstefnu Evrópusambandsins:
Fulltrúi Íslands vinnur að endurskoðun
STEFÁN ÁSMUNDSSON
Fulltrúi Íslands við endurskoðun sjávar-
útvegsstefnu Evrópusambandsins.
JAFNRÉTTISMÁL Samgönguráðherra
hefur sett á fót starfshóp sem á
að vinna að því að jafna betur
stöðu kynjanna í sveitarstjórnum
við kosningar á næsta ári.
Í tilkynningu segir að enn halli
verulega á konur í sveitarstjórn-
um landsins. Þær séu nú 36 pró-
sent sveitarstjórnarfulltrúa og í
fimm sveitarstjórnum á landinu
séu engar konur.
Hópurinn á að skila tillögum
fyrir 1. júlí í ár um það hvaða leið
sé best að fara í þessum efnum.
Ráðherra mun síðan ákveða
frekari aðgerðir í framhaldinu.
- sh
Nefnd um sveitarstjórnir:
Reynt að jafna
kynjahlutföll
BANDARÍKIN, AP Verslunarmaður
í í Salem í Massachusetts, gerði
lögreglu viðvart þegar hann sá 53
ára ökukennara, Daniel Winsky,
setjast inn í kennslubifreið sína,
nýfarinn út úr verslun hans ang-
andi af áfengi.
Winsky settist reyndar ekki
undir stýri, en bar engu að síður
ábyrgð á akstri nemanda síns.
Winsky var dæmdur í átján
mánaða skilorðsbundið fangelsi,
en má hvorki aka bifreið né stunda
starf sitt næsta árið. - gb
Drukkinn ökukennari:
Kenndi á bíl
undir áhrifum
KJÖRKASSINN