Fréttablaðið - 18.04.2009, Side 13
LAUGARDAGUR 18. apríl 2009 13
NOREGUR Nokkur þúsund nor-
rænir tamílar mótmæltu stríð-
inu á Srí Lanka með göngu til
norska utanríkisráðuneytisins
og Stórþingsins og fundi í Vige-
landsgarðinum í Ósló í gærmorg-
un. Tamílarnir krefjast þess að
samið verði um vopnahlé á Srí
Lanka.
Mótmælafundurinn var hald-
inn að frumkvæði norskra tam-
íla, að sögn norska Dagbladet, en
þeir buðu tamílum frá Svíþjóð og
Danmörku til þátttöku og sendu
tamílar í þessum löndum sendi-
nefnd sína á mótmælin. Fánar
landanna þriggja blöktu við hún.
- ghs
Mótmæli í Ósló:
Vilja vopnahlé
á Srí Lanka
DÓMSMÁL Karlmaður á fertugs-
aldri hefur verið ákærður fyrir
að ógna starfsfólki Lyfju í Lág-
múla tvívegis með öxi og hafa
í kjölfarið á brott með sér sam-
tals 49 pakkningar af rítalíni.
Heildarverðmæti lyfjanna sem
maðurinn rændi var um 126 þús-
und krónur. Bæði brotin framdi
hann í byrjun þessa árs.
Í fyrra skiptið sem maður-
inn ógnaði starfsfólkinu í Lyfju
hafði hann hulið andlit sitt.
Ríkissaksóknari ákærir
manninn og krefst þess að hann
verði dæmdur til refsingar, til
greiðslu alls sakarkostnaðar og
til að sæta upptöku á öxinni. - jss
Maður á fertugsaldri ákærður:
Rændi rítalíni
eftir að hafa
ógnað með öxi
LYFJA Í LÁGMÚLA Maðurinn rændi
lyfjum að verðmæti 126 þúsund krónur.
ALÞINGI Danskar F16 orrustuþot-
ur sem staddar voru hér á landi
við loftrýmisgæslu æfðu aðflug
að Akureyrar-
flugvelli 21. og
22. mars síð-
astliðinn. Þær
voru vopnaðar
vélbyssum og
léttum flug-
skeytum.
Þetta kemur
fram í svari
Össurar Skarp-
héðinssonar
utanríkisráð-
herra við fyrirspurn Álfheiðar
Ingadóttur, þingmanns Vinstri
grænna, sem birt var á vef
Alþingis í gær.
Nauðsynlegt er að æfa aðflug
að Akureyrarflugvelli af örygg-
isástæðum, og verður sama
fyrir komulag haft á þegar aðrar
þjóðir senda þotur til eftirlits.
- bj
Orrustuþotur yfir Akureyri:
Vopnaðar þot-
ur æfðu aðflug
ÁLFHEIÐUR
INGADÓTTIR
ATVINNUMÁL Sumarstörf á vegum
Reykjavíkurborgar verða jafn
mörg í ár og í fyrra, eða 1.400
talsins. Sunnudagurinn 19. apríl
er síðasti dagurinn sem hægt er
að leggja inn umsóknir um þessi
störf. Þeir sem fæddir eru 1992
eða fyrr geta sótt um störfin.
Katrín Jakobsdóttir mennta-
málaráðherra segir mikilvægt
sumarstörfum hjá borginni verði
ekki fækkað. „Upp á síðkastið
hefur verið starfandi starfshópur
um atvinnumöguleika framhalds-
og háskólanema í sumar. Þar hafa
verið skoðaðir möguleikar í sam-
starfi við sveitarfélögin, skóla-
meistara og fleiri aðila, og fulltrú-
ar framhaldsskólanema hafa verið
mjög virkir í því starfi. Hópurinn
lýkur væntanlega starfi sínu í dag
og líklega verður gengið frá þessu
máli í næstu viku.“
Fyrr í vikunni var tilkynnt um
aukna fjárveitingu til Lánasjóðs
íslenskra námsmanna, sem megn-
ar nú að sjá allt að 4.000 nemend-
um fyrir framfærsluláni vegna
sumarnáms í Háskóla Íslands og
fleiri háskólum. Katrín segir að
með sumarnámi við háskólana
náist að dekka stóran hluta þeirra
háskólanema sem annars hefðu
verið án atvinnu í sumar. „Hvað
varðar önnur störf fyrir þennan
hóp er verið að ræða um störf á
vegum Nýsköpunarsjóðs náms-
manna, lítinn sumarátakssjóð á
vegum iðnaðarráðherra, sem í
myndu fara um tíu milljónir, og
störf á borð við skógrækt og stíga-
gerð sem kalla eftir sumarstarfs-
fólki,“ segir Katrín Jakobsdóttir.
- kg
Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra segir mikilvægt að sumarstörfum verði ekki fækkað:
1.400 sumarstörf hjá Reykjavíkurborg
SUMARVINNA Starfshópur um atvinnuúrræði nemenda kynnir niðurstöður í næstu
viku.
Íslensk listahátíð
Íslenska listahátíðin Ur havet stiger
landet, eða Úr hafinu rís landið,
hófst í Vasa í Finnlandi í gær. Sautján
íslenskir listamenn taka þátt í hátíð-
inni.
FINNLAND
Velferðarbrú fyrir heimilin
Velferðarbrú fyrir skuldsettar fjölskyldur er eitt mikilvægasta verkefni Sam-
fylkingarinnar í ríkisstjórn. Brúin er samsett úr mörgum markvissum aðgerðum
sem efla stöðu heimilanna og tryggja að þau sem komast í vanda fái aðstoð eftir
þörfum. Þannig nýtum við takmarkaða fjármuni þjóðarinnar best.
Traust velferðarbrú er ábyrga lausnin á vanda skuldsettra heimila.
www.xs.is
2009
-10%
-5%
0%
5%
10%
2007 2008 2010 2011
Ný hagvaxtarspá
Seðlabanka Íslands
sýnir hvaða bil við
þurfum að brúa.
– Endurgreiðsla vaxta og verðtryggingar
hækkuð um 70%. Vaxtabætur verða
allt að 487 þús.kr. á ári fyrir hjón.
– Hjón geta fengið allt að 2 milljónir
af séreignarsparnaði greiddar út.
– Dráttarvextir lækkaðir um 4%.
– Óskertar barnabætur þrátt fyrir skattaskuld.
– 10–20% lægri greiðslubyrði með
greiðslujöfnun verðtryggðra lána.
– 40–50% lægri greiðslubyrði með
greiðslujöfnun gengistryggðra lána.
– Frysting allra afborgana í allt að 3 ár heimiluð.
Almennar aðgerðir
– Greiðsluaðlögun þar sem skuldir eru
afskrifaðar eða aðlagaðar greiðslugetu.
– Frestun nauðungaruppboða fram í október.
– Lengri aðfararfrestir, 40 dagar nú í stað 15.
– Aukinn stuðningur við fólk sem kemst
í greiðsluþrot.
– Heimili ábyrgðarmanna varin og ábyrgð
þeirra takmörkuð.
Sérstök úrræði fyrir fólk
í alvarlegum skuldavanda