Fréttablaðið - 18.04.2009, Síða 22
22 18. apríl 2009 LAUGARDAGUR
UMRÆÐAN
Brynhildur Georgs-
dóttir skrifar um nýtt
hlutverk bankanna
Í því umhverfi sem við búum við í dag
eru örlög og hagsmun-
ir banka, atvinnulífs og
einstaklinga samtvinn-
uð. Í kjölfar efnahags-
hrunsins er mikilvæg-
ara en nokkru sinni að fullt traust
ríki á milli þessara aðila og þeir
gangi samstíga til þess uppbygg-
ingarstarfs sem fram undan er. Í
því starfi gegna bankarnir mik-
ilvægu hlutverki og því til stuðn-
ings hefur verið skipaður sérstak-
ur umboðsmaður viðskiptavina í
hverjum banka.
Nýtt hlutverk bankanna
Ein af afleiðingum efnahags-
ástandsins er sú að framtíð margra
fyrirtækja er í höndum bankanna
og stjórnendur þeirra þurfa að
taka erfiðar ákvarðanir sem hafa
áhrif á framvindu atvinnulífsins.
Þetta er mikilvægt hlutverk en
engan veginn það sem bankarnir
óskuðu sér. Stjórnendur bankanna
taka á þessu verkefni af fullri
alvöru og ábyrgð. Starfsmenn
bankanna leggja nótt við dag til að
leita þeirra lausna sem best gagn-
ast fyirtækjunum sjálfum, bönk-
unum og samfélaginu í heild. Nú
sem aldrei fyrr verður að leggja
áherslu á góða og faglega þjónustu,
þar sem lykilorðin eru gagnsæi og
sanngirni. Byggja þarf að nýju upp
það glataða traust sem er grund-
völlurinn undir rekstri banka-
stofnana.
Mikil vinna fer fram um þessar
mundir innan Nýja Kaupþings við
endurskipulagningu fyrirtækja
í fjárhagsörðugleikum. Í þeirri
vinnu er lögð áhersla
á skýrt og faglegt ferli
þar sem leitast er við
að endurspegla sjón-
armiðin um sanngirni,
jafnræði og gagnsæi.
Áhersla er lögð á að
bjarga lífvænlegum
fyrirtækjum, þ.e. fyrir-
tækjum sem eiga sér
raunhæfan rekstrar-
grundvöll og eru líkleg
til að leggja atvinnu-
lífinu lið til framtíðar.
Hætt er við að sum fyrirtæki eigi
sér hins vegar ekki lífsvon. Vinna
við endurskipulagningu er unnin
af breiðum hópi sérfræðinga bank-
ans og áhersla er jafnframt lögð á
samvinnu við starfsmenn viðkom-
andi fyrirtækja. Þannig er leitast
við að nýta þá þekkingu sem þar
hefur myndast og mikilvægt er að
glatist ekki úr atvinnulífinu. Slík
samvinna er þó háð því að viðkom-
andi starfsmenn og stjórnendur búi
yfir nauðynlegri færni og traust
ríki milli þeirra og bankans.
Stuðningur umboðsmanns
Umboðsmaður viðskiptavina
hjá Nýja Kaupþingi heyrir beint
undir stjórn bankans og er skip-
aður af henni til að hafa eftirlit
með því að unnið sé að markmið-
unum um jafnræði, gagnsæi og
sanngirni. Umboðsmaður kemur
að mótun þess verklags sem
unnið er eftir við endurskipu-
lagningu fyrirtækja. Umboðs-
maður hefur þannig áhrif á ferl-
ið í samstarfi við starfsmenn
bankans og kemur að því verki
með hagsmuni viðskiptavina og
atvinnulífsins að leiðarljósi. Auk
þess er umboðsmaður til staðar
fyrir þau fyrirtæki sem eru í
vanda og telja sig ekki hafa notið
sanngjarnrar meðferðar. Þau eiga
greiðan aðgang að umboðsmanni.
Umboðsmaður skoðar hvert mál
sem til hans er beint gagnrýnum
augum og metur hvort afgreiðsla
þess sé í samræmi við góða og
viðtekna viðskiptahætti. Umboðs-
maður mun einnig taka mál upp
af eigin frumkvæði til að ganga
úr skugga um að farið sé eftir
verklagsreglum. Atbeini umboðs-
manns getur komið til bæði á
meðan unnið er að endurskipu-
lagningu fyrirtækja innan bank-
ans en einnig eftir að henni er
lokið. Umboðsmaður mun bregð-
ast við með viðeigandi hætti eftir
málsatvikum hverju sinni.
Göngum samstíga til verks
Það er mikið verk fram undan
í samfélaginu við að koma hjól-
um atvinnulífsins í gang á ný
og hjálpa heimilum í landinu að
standa af sér þann efnahags-
storm sem nú ríður yfir. Hag
bankanna og kröfuhafa þeirra,
jafnt innlendra sem erlendra, er
best borgið með því að verðmæta-
sköpunin í þjóðfélaginu verði sem
mest. Því er mikilvægt að leggja
heimilunum og fyrirtækjunum í
landinu lið. Þannig eru örlög og
hagsmunir banka, atvinnulífs og
einstaklinga í raun samtvinnuð
og mikilvægara en nokkru sinni
að þessir aðilar gangi samstíga
til verks.
Höfundur er umboðsmaður við-
skiptavina hjá Nýja Kaupþingi.
BRYNHILDUR
GEORGSDÓTTIR
Umboðsmaður viðskiptavina
Starfsmenn bankanna leggja
nótt við dag til að leita þeirra
lausna sem best gagnast fyrir-
tækjunum sjálfum, bönkunum
og samfélaginu í heild. Nú sem
aldrei fyrr verður að leggja
áherslu á góða og faglega
þjónustu.
UMRÆÐAN
Björg Sigurðardóttir
skrifar um íslenskt
samfélag
Í umróti seinustu mán-aða hefur margt gerst
til að vekja mig og vafa-
laust marga aðra hér á
landi til að líta yfir liðna
tíð og reyna að staðsetja sig í lífinu.
Ég hef litið yfir lífsferil minn og
undrast andvaraleysi mitt um eigin
hag og annarra. Í stað þess að fylgj-
ast með þróuninni hér á landi og
erlendis og reyna að skilja það sem
koma skyldi eyddi ég öllum mínum
tíma í að vinna, árum saman tvöfald-
an vinnudag, til að framfleyta mér
og börnum mínum þrem þar eð faðir
þeirra lést skömmu eftir heimkomu
eftir langt nám erlendis og við þá að
byrja að koma undir okkur fótunum
hér heima, þá nýbúin að festa kaup
á íbúð.
Í óðaverðbólgu þess tíma var eina
líftryggingin fasteign svo ég ákvað
að gera allt til að halda henni. Ég var
afar ánægð með sjálfa mig þegar
íbúðin var skuldlaus og ég búin
að safna mér sjóði í hlutabréfum í
Kaupþingi, bankanum sem ég vann
í. Best er alltaf að vera upp á engan
kominn.
Draumurinn um frjálst og öruggt
líf breyttist skyndilega í eitthvað
allt annað þegar vinnan hvarf með
sjóðnum mínum og framtíðin varð
að stóru spurningarmerki. Átti ég að
hírast inni í örvæntingu og skamm-
ast mín fyrir að vera atvinnulaus?
Ég er líklega of ánægð með sjálfa
mig til að meta mig þannig og ekki
tilbúin að láta einn bankavesaling
setja mig út af sporinu. Ég sá það að
ef ég gerði ekkert sjálf til að reyna
að breyta þessu lask-
aða þjóðfélagi hérna þá
gæti ég ekki ætlast til
að aðrir gerðu það fyrir
mig.
Ég fór í öll þau mót-
mæli sem ég frétti af.
Gerðist einlægur og
staðfastur aðdáandi
Harðar Torfa og fór á
fyrsta borgarafundinn
sem Gunnar Sigurðs-
son og fjölskylda hans stóðu fyrir
upp á eigið einsdæmi og bauð mig
fram til að hjálpa til við fundina sem
á eftir komu.
Þetta var starf með góðu fólki
sem bættist í hópinn með hugmynd-
ir sínar og vangaveltur um stöðu
mála. Það var ekki spurt um pólit-
ískan bakgrunn heldur var rökrætt
um möguleikann á að átta sig á því
hvernig þjóðin gat misst allt sitt. Þ.e.
eigur sínar, að miklu leyti lífsafkom-
una og sjálfsvirðinguna. Þetta hefur
verið innihald borgarafundanna sem
hópurinn stóð fyrir og slíkir fundir
eiga rétt á sér um ókomna framtíð
til að þingmenn og ráðherrar geri
þjóðinni milliliðalaust grein fyrir
því sem þau eru að gera.
Þegar ljóst var að kosið yrði
ætlaði ég að draga mig í hlé en sá
fljótt að svo margt var enn ógert
um borð í þjóðarskútunni að ekki
þýddi að hlaupast undan merkjum.
Ég ákvað því að vinna fyrir fram-
boð þeirrar hreyfingar sem byggðist
upp af hluta fólks úr borgarafund-
unum og mörgum hópum fólks sem
lét sig ástandið miklu varða og var
tilbúið að leggja mikið af mörkum
til að búandi væri fyrir alla í þessu
fallega landi okkar.
Þökk sé þér, Hörður Torfason.
Höfundur er fyrrverandi
almennur bankastarfsmaður.
Auðvelt val að
ígrunduðu máli
BJÖRG SIGURÐARDÓTTIR
4
10
4
0
0
0
|
l
an
d
sb
an
ki
nn
.is
Við vinnum með þér
að lausnum fyrir heimilið
L A U S N I R F Y R I R H E I M I L I Ð
Landsbankinn býður upp á nokkur úrræði fyrir heimili sem eiga við greiðsluerfiðleika að etja. Við aðstoðum
þig við að velja lausn sem kemur til móts við þínar þarfir. Hafðu samband við þjónustufulltrúa í útibúinu þínu.