Fréttablaðið - 18.04.2009, Síða 38

Fréttablaðið - 18.04.2009, Síða 38
Þegar Loftur tók við húsinu 1995 var þar lengi kraftmikil starfsemi. Og nú er Bjarni tekinn við. Hundrað og fimmtíu þúsunda markaður „Ég ætla að láta á þetta reyna. Mér finnst ótækt að nánast allt leikhús- líf Íslendinga sé annaðhvort ákveð- ið af borgarleikhússtjóra eða þjóð- leikhússtjóra. Í 150 þúsund manna byggðakjarna á að vera pláss fyrir prívatsenu – einkarekið leikhús. Ég er búinn að fylgjast með þessu á Norðurlöndum, Bretlandi og Þýskalandi. Og þetta á að vera hægt. Hins vegar verður maður að marka sér skýra stefnu. Þetta er ekkert lúxusleikhús, en þetta er salur fyrir 400 gesti, svið og aðstaða. Ég ætla bara að láta reyna á þetta – og ef það gengur ekki upp – þá gengur það ekki upp. En þetta verður að vera fyrir alþýðuna – alþýðuleikhús. Verkin sem fara þarna upp verða að geta selt miða.“ Styrkt samkeppni Samkeppnisaðilar Bjarna eru allir styrktir ríkulega af opinberu fé: Þjóðleikhúsið, Íslenska óperan, Borgarleikhúsið, Tjarnarbær sem er verið að endurbyggja núna og til verður næsta haust. Nyrðra er Leikfélag Akureyrar með tvær litlar senur og fær brátt aðgang að nýju 400 sæta húsi, Hofi. Í Hafnar- firði er gamla áhaldahúsið en þar hefur Hermóður og Háðvör haft aðstöðu en samningur félagsins við bæ og ríki rennur út í lok þessa árs. Í öll þessi hús hafa sjálfstæðir leikhópar leitað, bæði eftir húsa- skjóli og samstarfi. Bjarni útilok- ar ekki samstarf við sjálfstæða leikhópa: „Við getum tekið áhættu með leikhópum og þeirra sýning- um,“ segir hann. „Ég hef reynt að leigja Þjóðleikhúsið en það er því- líkt reglugerðarrugl. Þau verða að að átta sig á því að vilji þau auka tekjur í húsinu má þetta ekki bara vera tómt vesen. Húsið stendur autt tvo mánuði á ári en þangað fer eng- inn inn því engum er treyst fyrir að ganga þar um tæki og tól.“ Bjarni hefur líka unnið í Gamla bíói og Borgarleikhúsi en þar verða sýningar einkaaðila að víkja þegar regluleg starfsemi húsanna fer í gang. Þar eru sjálfstæðir hópar víkjandi. Það er því af reynslu sem hann ræðst í að koma Loftkastal- unum í gang. Endurtekið efni - nýir áhorfendur Og hvað tekur við þegar Grease hefur gengið í sumar? „Ef vel tekst til verða sýningar á Grease fram eftir hausti. Fjölskyldusýningar eins og Grease eiga að koma upp reglulega. Sérðu vinsældirnar sem Kardemommubærinn nýtur núna. Í Kaupmannhöfn er hann settur upp á hverju ári. Það er eitt af því sem ég hef aldrei skilið við leikhús hér hvers vegna kynslóðir þurfa að bíða árum saman eftir verkum sem allir eiga að sjá á réttum aldri.“ Verkefnið sem fyrirhugað er með haustinu er franskt: Boe- ing, Boeing, var það kallað og er það franska verk sem komið hefur oftast upp. Höfundurinn er íslensk- um leikhúsgestum vel kunnur: Marc Camelotti, sá sem skrifaði Sex í sveit. Boeing, Boeing naut mikillar hylli á sjöunda áratugn- um og var þá leikið af Leikfélagi Kópavogs. Fyrir tveimur árum var það leikið aftur á West End í London og varð feikilegur smellur sem fluttur var á Broadway. Hér verður það Sigurður Sigurjónsson sem setur verkið á svið. Spott og spaug Bjarni segist hafa fleiri verk í undir búningi en hann ætlar sér að taka eitt skref í einu. Hann ætlar að stofna til hátíðar sem helguð verður uppistandi og gamanleik. Það verði að styrkja þann þátt í leikmenningu okkar sem hafi í raun verið afar farsæll á árshá- tíða- og skemmtanasviðinu en hafi aldrei fengið fastan stað: Reykja- vik Comedy Festival. „Ég sleppi „International“ úr heitinu í bili en stefni að því að fara í gang í haust, kannski fyrst bara í þrjú kvöld, einhvern tíma milli Alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar og Ice- land Airwaves. Ætlunin er að opna glugga fyrir upprennandi og eldri uppistandara á Íslandi. Þá vil ég reyna að fá til landsins bæði þekkta og minna þekkta erlenda uppistandara og hef þegar heyrt af áhuga nokkurra þekktra breskra uppistandara.“ Tónlist til gamans Loftkastalinn hefur líka verið skjól fyrir tónleikahald: „Við ætlum að ríða á vaðið með KK og vinum, en ég vil gjarna koma á föstum uppákomum, kalla til fólk í flutn- ing laga eftir meistara söngleikj- anna, Gershwin, Rodgers og Hammerstein, Webber, Björn og Benny. Það furða margir sig á því en hér á landi er fullt af fólki sem fílar söngleiki og það sem meira er, fullt af fólki sem getur sungið.“ Úrtölur og áræði En eru ekki nógir til að draga úr honum áræðið? „Jú, það eru marg- ir sem hafa komið að máli við mig og spurt hvort ég fylgist ekki með fréttum? En ég spyr bara á móti: Ef ekki núna, þá hvenær? Við erum að sjá samdrátt á mörgum sviðum, í utanlandsferðum, sumarleyfi verða öðruvísi, allt er að breytast. Leikhúsið stendur aldrei betur en á samdráttartímum. Ég er bjart- sýnn á að þetta takist og ef það gengur ekki, þá það.“ Ný störf í innlendri framleiðslu Gróflega er talið að það séu rúm- lega átta hundruð störf í íslenskum leikhúsiðnaði. Stærstur hluti þeirra nýtur opinberra styrkja eftir nokkrum leiðum. Þótt Bjarna tæk- ist ekki nema að auka starfafjöld- ann um einhverja tugi væri sá árangur merkilegur. Hann áætlar að frá mars í ár fram á sumarbyrj- Framhald af forsíðu Það er eitt af því sem ég hef aldrei skilið við leikhús hér hvers vegna kynslóðir þurfa að bíða árum saman eftir verkum sem allir eiga að sjá á réttum aldri. Miðasala á www.listahatid.is www.midi.is STOFUTÓNLEIKA LISTAHÁTÍÐAR Retro Stefson, FM Belfast og MC Plútó, 101 Reykjavík Föstudagur 22. maí Ágerður Júníusdóttir, 107 Reykjavík Áshildur Haraldsdóttir og Katie Elizabeth Buckley, Túngötu 44, Benóný Ægisson, Skólavörðustíg 4c, Gershwin í Mýrinni, Kjartans- götu 9, Spilmenn Ríkínís, Dómkirkjuloftinu, Miðillinn, í fl utningi Ásgerðar Júníusdóttur, Melhaga 2, Melchior, Bugðulæk 17, Jón Ólafsson, Hagamel 33, Sigrún Hjálmtýsdóttir og Stofukvartettinn, Vesturbrún 4, amiina, Grundarstíg 10. Melakvartettinn, Þórsgötu 18, Dvorák-hópurinn, Hávallagötu18, Stofutónleikar í Stekknum, Urðarstekk 3, Felix Bergsson, Starhaga 5, Valgerður Andrésdóttir og Ingibjörg Guðjónsdóttir, Grettisgötu 39, Barrokk í Þingholtunum, Bragagötu 27, Djass í Breiðholti, Vesturbergi 137, Tómas R. Einarsson, Reynimel 24 (bílskúr), Duo Landon, Laugarnestanga 70. Benda slagverkshópur, Heiðargerði 1b, Ólöf Arnalds, Ingólfsstræti 10, Vicky, Holtsgötu 39, Bloodgroup, Hólmaslóð 2, Retro Stefson, FM Belfast og MC Plútó, Ingólfsstræti 21a, Weirdcore, Hólmaslóð 2, Reykjavík!, Smiðjustíg 4a. Laugardagur 23. maí Sunnudagur 24. maí Kristjana Stefáns og Agnar Már Magnússon, 109 Reykjavík Helgina 22. til 24. maí verða 25 STOFUTÓNLEIKAR á jafn mörgum heimilum í Reykjavík, í póstnúmerum 101 til 111. Aðeins ÖRFÁ SÆTI í boði.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.