Fréttablaðið - 18.04.2009, Síða 43
LAUGARDAGUR 18. apríl 2009 3
Íslenska flautukórnum hefur verið
boðið að halda tónleika á árlegri
alþjóðlegri ráðstefnu The National
Flute Association sem haldin verð-
ur í New York í ágúst á þessu ári
og í tilefni af því mun flautukórinn
halda fjáröflunartónleika í Nes-
kirkju á morgun sunnudaginn, 19.
apríl, klukkan 20.
„Þetta er stærsta ráðstefna sinn-
ar tegundar og er hún haldin ár
hvert í Bandaríkjunum en ferð-
ast á milli staða,“ segir Hallfríður
Ólafsdóttir, flautuleikari og með-
limur í Íslenska flautukórnum.
„Ráðstefnan er einungis á tólf til
fimmtán ára fresti í New York og
þá mæta allir. Þetta árið verða því
öll stærstu nöfnin samankomin og
mikið af kunningjum okkar. Þekkt-
ustu flautuleikurunum er boðið og
verða þeir með tónleika og flottar
uppákomur en annars eru margir
um hituna. Því var frábært að við
skyldum fá tækifæri til að halda
tónleika en samkeppnin var hörð
þetta árið,“ útskýrir Hallfríður
áhugasöm. Áætlað er að um
2.500 flautuleikarar hvaðanæva
að úr heiminum sæki hátíðina. Á
tónleikunum í New York flytur
Íslenski flautukórinn eingöngu
íslensk tónverk eftir Þuríði Jóns-
dóttur, Þorkel Sigurbjörnsson og
Huga Guðmundsson. „Einleikari á
tónleikunum verður Stefán Ragn-
ar Höskuldsson, leiðandi flautu-
leikari við Metropolitan Óperuna
í New York en óhætt er að segja
að Stefán Ragnar hafi náð einna
lengst íslenskra hljóðfæraleikara
á alþjóðlegum vettvangi og mikið
gleðiefni fyrir kórinn að geta leik-
ið með honum við þetta tækifæri,“
segir Hallfríður ánægð.
Á morgun verður hins vegar
leikin tónlist sem spannar allt
frá heiðríku frönsku barokki upp
í seiðandi sænska skrýtitóna list
og frá angurblíðri ítalskri kvik-
myndatónlist að frumflutningi
á teknóskotnu nývirki frá sama
landi. „Við ætlum að spila öll uppá-
halds verkin okkar og kennir þar
ýmissa grasa, enda ótrúlegustu
hljóð sem hægt er að ná úr flaut-
unni,“ segir Hallfríður og brosir.
Nýja ítalska verkið, Framenti di
Aqua, kom til flautukórsins í gegn-
um heimasíðu kórsins og verður
frumflutt á tónleikunum á sunnu-
daginn. „Íslensku verkin verða
hins vegar ekki flutt núna en við
spilum í Skálholti 9. ágúst og þar
má heyra efnisskrána sem fer til
Ameríku,“ útskýrir hún.
Íslenski flautukórinn var stofn-
aður árið 2003 og hefur þegar
skapað sér gott orð. „Í flautukórn-
um eru tuttugu flautuleikarar sem
taka allir virkan þátt í íslensku
tónlistarlífi. Svo maður tali nú um
hina margfrægu íslensku höfða-
tölu þá eru ótrúlega margir færir
flautuleikarar hér á landi. Við
höfum staðið fyrir því að fá erlenda
gesti heim og þá tengt það við alla
þessa ungu flautuleikara sem eru í
námi en í tvígang höfum við stefnt
saman vel yfir hundrað nemendum
á helgarnámskeið. Við störfum því
á mörgum sviðum og gerum ýmis-
legt skemmtilegt. Flautuhópurinn
hefur oftast komið fram á nýlista-
hátíðum og leikið nýja tónlist, en á
sunnudaginn leikum við okkur líka
með ýmsa skemmtitónlist og hefð-
bundnari í bland,“ segir Hallfríður,
sem hlakkar til tónleikanna.
hrefna@frettabladid.is
Tuttugu flautur leika
Íslenski flautukórinn heldur fjáröflunartónleika í Neskirkju annað kvöld klukkan átta í tilefni af því að
kórnum hefur verið boðið að halda tónleika á alþjóðlegri ráðstefnu The National Flute Association.
Íslenski flautukórinn er föngulegur á að líta en á sunnudaginn verða haldnir fjáröflunartónleikar í Neskirkju til styrktar för kórsins
á alþjóðlega ráðstefnu flautuleikara í New York í ágúst. MYND/HILMAR Þ. HILMARSSON
Ókeypis
MANNÚÐ OG MENNING
Reykjavíkurdeild Rauða kross Íslands býður upp á
ókeypis námskeið í sumar fyrir börn á aldrinum
7-9 ára og 10-12 ára.
Á námskeiðinu er lögð áhersla á fræðslu og leiki í tengslum við
hugsjónir Rauða krossins um mannúð og óhlutdrægni. Þátttak-
endur fræðast um Rauða kross starf, skyndihjálp, mismunandi
menningarheima og umhverfið. Meðal efnis á námskeiðinu er;
undirstöðuatriði skyndihjálpar, umhverfismál, skapandi leikir,
saga og starf Rauða krossins, fjölmenningarlegt samfélag og
uppskeruhátíð.
sumarnámskeið
Einn verkefnastjóri er á hverju námskeiði
og með honum eru þrír til fjórir leiðbein-
endur.
Hvert námskeið er ein vika.
Námskeiðin standa yfir frá mánudegi til
föstudags frá kl. 09:00-16:00.
Þáttakendur þurfa að hafa með sér nesti
en hádegismatur og ferðakostnaður er
greiddur af Reykjavíkurdeild Rauða krossins.
Nánari upplýsingar er hægt að nálgast hjá Berglindi Rós Karlsdóttur,
forstöðukonu Ungmennadeildar Reykjavíkurdeildar Rauða kross Íslands,
berglind@redcross.is, sími 545-0407.
Skráning hefst mánudaginn 20. apríl á
www.raudikrossinn.is/reykjavík
Upplýsingar um tímasetningar
námskeiða má finna á heimasíðu
deildarinnar raudikrossinn.is/reykjavik
Ath. Takmarkað pláss er á hverju
námskeiði.
Námskeið um hvernig á að útbúa einfaldan
en næringarríkan mat fyrir börn frá 6 mánaða
aldri. Farið verður yfir hvaða fæðutegundum
er gott að byrja á og hvenær.
… Svo eitthvað sé nefnt.
Leiðbeinandi:
Ebba Guðný Guðmundsdóttir kennari
Verð: 3.500 kr.
Upplýsingar og skráning:
síma 694-6386 og á netfanginu
ebbagudny@internet.is
Hvað á ég að gefa
barninu mínu að borða?
Miðvikudagur 22. apríl kl. 20:00–22:00
hjá Maður lifandi Borgartúni 24
Námskeiðið nýtist einnig vel þeim
sem eru með eldri börn. Nýjar
uppskriftir og fróðleiksmolar fylgja
með námskeiðinu og verða nokkrir
réttir og “drykkir” útbúnir
á staðnum.
RENNIHURÐAFATASKÁPAR
Askalind 3 • 201 Kópavogur • Sími: 562 1500
Mán. - föst.kl. 10-18
Laugardaga kl. 11-16
OPIÐwww.friform.is
BAÐINNRÉTTINGARNAR
BETRA BAÐ
NÚ BJÓÐUM VIÐ ALLAR INNRÉTTINGAR (ELDHÚS, BAÐ, ÞVOTTAHÚS, FATASKÁPA)
TIL AFGREIÐSLU AF LAGER EÐA MEÐ STUTTUM FYRIRVARA, MEÐ 25% AFSLÆTTI
ÞVOTTAHÚS
GÓÐ VINNUAÐSTAÐA
SKIPTIR MÁLI
REYFARAKAUP
AF LAGER Á LÆGRA VERÐI
NÝJIR TÍMAR - FERSK FORM
ÞEGAR ÞIG VANTAR INNRÉTTINGU
FRÍFORM HREINT OG KLÁRT
25%
EFTIR MÁLI, SNIÐNIR
AÐ ÞÍNUM ÓSKUM
Hurðirnar eru afgreiddar eftir máli, hæð allt að 275 cm og breidd
40-150 cm. Mikið úrval áferða.
BJÓÐUM EINNIG FATASKÁPA MEÐ HEFÐBUNDNUM HURÐUM
Byggjast á 40,50,60,80 og 100cm raðeiningum.
Við teiknum og gerum þér hagstætt tilboð.
Blaðberinn
bíður þín
Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24
alla virka daga frá kl. 8-17.
óðar fréttir fyrir umhverfiðBlaðberinn...