Fréttablaðið - 18.04.2009, Qupperneq 44
18. apríl 2009 LAUGARDAGUR4
Upphaf á ósviknum gleðidegi hefst
í gömlu Keflavík þar sem fyrir-
finnst Vatnaveröld; yfirbyggður
vatnsleikjagarður fyrir alla fjöl-
skylduna, klæddur mjúku efni
fyrir lítil kríli.
„Vatnaveröld nýtur mikilla vin-
sælda fjölskyldna með ung börn,
en allir geta fundið eitthvað við
hæfi í inni- og útilauginni, heitu
pottunum, gufuböðunum og fleiru.
Leikgarðurinn er yfirbyggður og
búinn heitara vatni en gerist og
gengur, til að mæta kröfum lítilla
barna sem þurfa meiri hita um
kroppinn,“ segir Dagný Gísladóttir
kynningarstjóri Reykjanesbæjar,
um Vatnaveröld að Sunnubraut 1,
sem var opnuð 2006.
„Í leikgarðinum eru fötur sem
skvetta gusum yfir börnin, kast-
ali með klifurgrind og fjölbreytt-
um leiktækjum sem kalla á ómælt
dund barna, rennibrautir, sveppir
og fígúrur til að príla á. Sambæri-
legur garður er ekki til hérlendis
og mikil vinna lögð í hann svo
ævintýrin gerðust sem best,“ segir
Dagný um Vatnaveröld sem opin er
um helgar frá 8 til 18.
Eftir sundferð er ómissandi að
koma við hjá Skessunni í fjall-
inu, en skessan er höfundaverk
Herdísar Egilsdóttur, sem skrifað
hefur sextán sögur um Siggu og
skessuna í fjallinu.
„Nýjasta sagan fjallar um flutn-
inginn til Suðurnesja, þar sem
skessan hefur nú aðsetur í Svarta-
helli við smábátahöfnina í Gróf,
með góðu útsýni yfir Keflavík og
Faxaflóa. Þar situr hún sofandi
í eldhúsi sínu, og heyra má hana
hrjóta og freta hátt,“ segir Dagný
um skemmtilegustu viðbót íbúa-
flóru Suðurnesja.
„Til skessunnar liggur stöðugur
straumur barna sem setja bréf til
hennar í póstkassa hellisins. Skess-
an er dálítið á ferðinni um bæinn
og finna má skessuspor víða, eins
og fyrir utan Vatnaveröld,“ segir
Dagný, sem veit sitthvað um erindi
barna við skessuna. „Þau er virki-
lega forvitin um hennar hagi, en
um leið ljóst að hún er blíð og góð,
enda hrifin af börnum, þótt hún sé
eilítið ógnvekjandi í fyrstu. Inni-
hald bréfanna snýst svo mest um
hennar persónulegu hagi; hvort
hún eigi ísskáp, hvað hún leggi
sér til munns og hvort hún pissi
kannski undir úr því sæng hennar
er stundum blaut.“
Hellirinn er opinn frá klukkan 13
til 17 um helgar. thordis@frettabladid.is
Vatnsparadís fyrir börn
Það er auðvelt að púsla saman ógleymanlegum ævintýradegi fyrir fjölskylduna í Reykjanesbæ, enda
undur og stórmerki sem finnast þar og hvergi annars staðar fyrir leikfúst og lífsglatt fólk á öllum aldri.
Skessan í hellinum er ógnarstór og
virkar ógnvekjandi í fyrstu, en er elsk
að börnum og svarar bréfum þeirra
samviskusamlega milli blunda.
MYND/ODDGEIR KARLSSON
Það er bara gaman í vatnsleikjagarði Reykjanesbæjar, eins og sjá má skína úr andliti þessa barns í vatnsflaumi ævintýratækja.
MYND/ELLERT GRÉTARSSON
Í Vatnaveröld Reykjanesbæjar blasa ævintýrin við í hverju horni og um að gera að
gefa sér góðan tíma til að njóta ferðarinnar sem best. MYND/ELLERT GRÉTARSSON
JÓGA
Ásta Arnardóttir • 862 6098
www.this.is/asta • astaarn@mi.is
www.lotusjogasetur.is • Borgartúni 20
MORGUN / HÁDEGI / SÍÐDEGI
BYRJENDANÁMSKEIÐ HEFST 22. OKT.
KUNDALINI HEFST 22. OKT.
MEÐ ÁSTU
Ásta Arnardóttir • 862 6098 • asta@this.is
Lótus jógasetur • www.this.is/asta
MORGUN • HÁDEGI • SÍÐDEGI
NÝTT NÁMSKEIÐ HEFST 27. APRÍL
Auglýsingasími
– Mest lesið