Fréttablaðið - 18.04.2009, Blaðsíða 59
5 MENNING
un 2010 verði um 150 hlutastörf til
í kringum reksturinn, endurbætur,
daglegan rekstur, undirbúning
sýninga og viðburða og sýningarn-
ar sjálfar. Saman dregið áætlar
hann að hér séu að verða til milli
fimmtíu og sextíu ársverk. Breyt-
ingar á frístundalífi vegna
aðstæðna í fjármálalífi kalla á að
skemmtanaiðnaður eflist innan-
lands og þeirri kröfu hyggst hann
mæta.
Afþreying hins opinbera
Einkarekið leikhús hefur alltaf átt
á brattann að sækja í íslensku sam-
félagi enda hafa íslensk stofnana-
leikhús sótt hart inn á svið sem í
öðrum löndum þætti vera fyrir
rekstur einkaleikhúsa. Það hefur
reyndar verið álitamál hefur mörg-
um þótt, hversu fíkin íslensk stofn-
analeikhús eru í rekstur sýninga
sem eru hrein kassastykki. Þjóð-
leikhússtjóri hefur margoft varið
þá stefnu og leikhússtjóri LR held-
ur henni fast fram, samanber Fló á
skinni og Söngvaseið. Tilkoma
einkarekins leikhúss á höfuðborg-
arsvæðinu sætir því nokkrum tíð-
indum og áhrif þess reksturs munu
segja til sín á fleiri stöðum.
Samkeppnisstaða
Á árdögum síðustu stóru bylgjunn-
ar á liðinni öld í rekstri einkarek-
inna leikhúsa sem lauk með stóru
gjaldþroti upp á 260 milljónir,
reyndu einkarekin leikhús árang-
urslaust að fá hömlur settar á
rekstur ríkisstyrktra leikhúsa, en
án árangurs. Atvinnustarfsemi af
því tagi skyldi án nokkurra skjóla
verða að keppa við leikhús styrkt
af sveitarstjórnum og ríki. Og hið
opinbera spýtti frekar í rekstur
sinna leikhúsa þegar samkeppni
kom upp frá einkareknum leikhús-
um. Það var hugsunarháttur emb-
ættismanna og kjörinna fulltrúa
sem nú verður reynt aftur á. Veldi
leikhúsa sem njóta aðstöðu í hús-
næði og rekstrarstyrkjum er varið,
styrkir til sjálfstæðra leikhópa eru
hafðir minni máttar og ofríki hinna
stóru tryggt – á kostnað skattborg-
ara. Aðstaða til samkeppni er afar
ójöfn – og óréttlát. Hvernig Bjarna
og hans áætlunum reiðir af í þeirri
samkeppni er óljóst. Það er bara
að bíða þess að endurbótum á Loft-
kastalanum ljúki og Grease fari í
gang.
Bjarni vill reyna að koma á
þeim sið að setja upp sérstakar
jólasýningar sem verða bara á
fjölunum í kringum jól eins og
nokkrum sinnum hefur verið
reynt af minni leikhópum og
Þjóðleikhúsinu. Sá siður er í
heiðri hafður víða um lönd
þar sem það er fastur liður að
fjölskyldur fara saman í leikhús
í aðdraganda jóla og fram á
þrettándann. Verkið sem hann
ætlar að sýna um jólin
er Jólaævintýri Dickens,
sígilt verk um anda
jólanna og búrann
og nirfilinn Scrooge.
Leikstjóri verður Jón
Gunnar Þórðarson, en
sýningin verður full af
hljóðum og furðum
þótt leikarinn sé
aðeins einn sem
flytur hana.
BÆTT Í JÓLASIÐI
Jólaævintýri Dickens fyrir börn og fullorðina