Fréttablaðið - 18.04.2009, Side 60
MENNING 6
Aqua - Silence Myndbandsverk sem fjallar um vatn á margvís-
lega vegu.
Osram-fyrirtækið keypti nýverið
verk af íslensku myndlistar-
konunni Rúrí en það verður stað-
sett fyrir utan aðalstöðvar fyrir-
tækisins í München. Verkið, sem
heitir Aqua - Silence, verður
vígt í næstu viku og er mynd-
bandsverk þar sem vatn birtist
á margvíslega vegu, í formi
hafsins, fossa og jökla. Innsetn-
ing Rúríar er hluti af seríu sem
Osram hefur haldið í München
og nefnist Seven Screens en með
henni vonast þeir til að kynna
umhverfis væn viðhorf og ábyrgð
stór fyrir tækja í heiminum. Verk
Rúríar þykir einmitt innihalda
þrjú megin þema, tíma, afstöðu og
alheiminn og í senn hið goðsagna-
kennda og táknræna afl sem
vatnið er fyrir mannkyninu öllu.
Frekari upplýsingar eru á www.
osram.de/art/sevenscreens
Verk eftir Rúrí vígt í München
MYNDLIST
ANNA
MARGRÉT
BJÖRNSSON
Aðstandendur
Þjóðleiks
Frá vinstri: Tinna
Gunnlaugsdóttir,
Bjarni Jónsson,
Karen Erla Erlings-
dóttir, Þórdís Elva
Bachmann, Vig-
dís Jakobsdóttir
og Sigtryggur
Magnason.
S
tærsta leiklistarhátíð sem haldin
hefur verið hérlendis fer fram á
Egilsstöðum 24.-26. apríl. Þar verða
28 sýningar á vegum þrettán leik-
hópa sem allir hafa starfað undir
merkjum Þjóðleiks, tilraunaverkefnis á
vegum fræðsludeildar Þjóðleikhússins og
fleiri aðila, í vetur.
Hátt í 200 þátttakendur, víðs vegar að af
Austurlandi koma saman á Egilstöðum og
halda lokahátíð sína en hóparnir hafa að
undan förnu sett upp verk sín í heimabæjum
þar eystra, allt frá Vopnafirði til Hafnar
í Hornafirði. Leikarar í sýningunum eru á
aldrinum 13-20 ára en stjórnendur þeirra
hafa í vetur notið handleiðslu fagmanna
frá Þjóðleikhúsinu. Þjóðleikhúsið er aðili
að Vaxtarsamningi Austurlands og gengst
fyrir verkefninu í samstarfi við Menningar-
miðstöð Fljótsdalshéraðs og marga fleiri
aðila á Austurlandi um skipulag og fram-
kvæmd verkefnisins.
Eitt meginhlutverk Þjóðleiksverkefnisins
er að efla leiklistarstarf ungs fólks og hvetja
til nýsköpunar í íslenskri leikritun. Ævintýrið
hófst síðasta sumar þegar þrjú ung leikskáld,
þau Bjarni Jónsson, Sigtryggur Magnason og
Þórdís Elva Bachmann, voru valin af Þjóð-
leikhúsinu til þess að semja leikrit fyrir þetta
grasrótarstarf.
Að sögn Vigdísar Jakobsdóttur, hjá
fræðsludeild Þjóðleikhússins, er sex ára
draumur og tveggja ára undirbúningur að
verða að raunveruleika. „Þegar við auglýst-
um eftir hópum til að taka þátt í þessu verk-
efni áttum við von á fimm til sex; þeir voru
hins vegar þrettán, sem fer langt fram úr
okkar björtustu vonum.“ Hóparnir eystra
völdu sér síðan eitt þessara nýsömdu verka
og unnu sínar sýningar og sýndu í heima-
byggð. Á hátíðinni verða verkin hins vegar
öll flutt tvisvar á þremur dögum – alls fjór-
tán uppfærslur á þremur mismunandi verk-
um. „Þeir allra áhugasömustu geta skipulagt
sig þannig að þeir komist á allar sýningar,“
segir Vigdís. „Það verður ekki síst lærdóms-
ríkt fyrir leikhópana að sjá aðrar uppsetning-
ar á sama verki og þeir settu upp.“
Vigdís segir markmið Þjóðleiks vera mörg.
„Þarna er Þjóðleikhúsið í beinu samtali við
landsbyggðina og miðlar af þeirri þekkingu
sem er til í húsinu til leikhúsfólks út á landi,“
segir hún. „Við erum að búa til vettvang og
tækifæri fyrir ungt fólk til að taka þátt í leik-
list, á sumum stöðum hafði til dæmis ekki
verið sett upp leiksýning í háa herrans tíð.
Þetta er líka tækifæri til að tengja byggðar-
lögin í þessum landshluta saman, krakkar frá
ýmsum stöðum hittast og deila vinnu sinni.
Og síðast en ekki síst erum líka að búa til
öðruvísi tækifæri fyrir íslensk leikskáld.“
Vigdís vonar að Þjóðleikur sé kominn til að
vera og verði haldinn reglulega í framtíðinni,
helst annað hvert ár. „Þetta er of umfangs-
mikið til að hægt sé að halda þetta á hverju
ári, það þarf þetta auka ár upp á að hlaupa,
bæði til skipulagningar og til að afla fjár. Í
ljósi efnahagsástandsins vitum við að það
verður erfiðara næst, en nú erum við búin
að fara í gegnum þetta einu sinni og höfum
grunn til að byggja á. Það væri mikil synd að
láta það fara í súginn.
STÆRSTA LEIKLISTARHÁTÍÐ
Íslandssögunnar
Á AUSTURLANDI
LEIKLIST
BERGSTEINN
SIGURÐSSON