Fréttablaðið - 18.04.2009, Síða 70

Fréttablaðið - 18.04.2009, Síða 70
42 18. apríl 2009 LAUGARDAGUR ÉG HLÆ ALDREI Orrustubjarka finnst Breiðholt vera besti staðurinn á jarðríki en Innlit/útlit heldur fyrir honum vöku á nóttunni. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Hvers vegna Orrustubjarki? Grunnskólakennarinn minn sagði mér einu sinni frá brjáluðum vík- ingi sem hét Böðvar Bjarki og var kallaður Orrustubjarki. Hvenær varstu hamingjusam- astur? Þegar bróðir minn dró mig með kaðli upp á bílskúrsþak þegar ég var þriggja ára. Þá varð ég svo ánægður að ég hrinti honum niður og meiddi hann mikið. Ef þú værir ekki tónlistarmað- ur hvað myndirðu þá vera? Kokk- ur eða glæpamaður, veit ég yrði góður í hvoru tveggja. Nú ertu bæði í hljómsveitinni Pétur og úlfurinn og með „solo project“. Hvernig gengur að samtvinna það? Það gengur mjög vel, nema að Pétur er hættur að drekka bjór. Hvað er það versta sem nokkur hefur sagt við þig? Nei. Hvað er það dýrasta sem þú hefur nokkurn tímann keypt þér? Risastóran glæpabens í algjörri geðveiki. Ef þú byggir ekki í Reykjavík, hvar myndirðu vilja búa? Nálægt Reykjavík. Uppáhaldstónlistarmaður og af hverju? Orrustubjarki, af því að ég elska að hlusta á sjálfan mig. Draumahelgin þín í einni setn- ingu? Sex, drugs and rock n’roll. Hvert er versta starf sem þú hefur nokkurn tímann gegnt? Kassagerðin (man vs. machine). Uppáhaldsstaðurinn þinn á jörðunni? Breiðholt. Hvers konar tónlist hefur mest áhrif á þig og hvaða lag hlust- arðu mest á í dag? Ég fíla Slayer og Can en er að hlusta mikið á sjálfan mig og efni á tilvonandi plötu. Ef þú ættir tímavél, hvert myndirðu fara og af hverju? Ég myndi fara til 4485, kaupa mér geimskip og eitthvað sem væri vinsælt að éta í framtíðinni. Er eitthvað sem heldur fyrir þér vöku á nóttunni? Innlit/útlit. Ef þú gætir breytt einhverju í fortíð þinni, hvað myndi það vera? Ég myndi koma í veg fyrir að ég tæki þátt í álfadansinum í Laugarnesskóla þegar ég var sex ára. Þetta var dans djöfulsins! Hvenær fékkstu síðast hlátur- skast? Ég hlæ aldrei. Áttu þér einhverja leynda nautn? Kókaín og rohypnol, en það er víst ekki leyndarmál úr þessu … Uppáhaldsbókin þessa stund- ina? Voru guðirnir geimfarar? Hvaða núlifandi manneskju lítur þú mest upp til? Pabba míns. En hvaða núlifandi manneskju þolirðu ekki? Sigtryggur getur verið alveg óþolandi! Uppáhaldsorðið þitt? Alkul. Hvaða eitt atriði myndi full- komna lífsgæði þín? Ný tölva. Hvaða lag á að spila í jarðar- förinni þinni? Angel of Death með Slayer. Hver verða þín frægu hinstu orð? Þeir sem ekki lifa, lifa ekki. Hvað er næst á dagskrá? B.Ö- .M.S AWAY tónleikaferð með Tarnús Jr, Klængi og Össa. Síðan eru plötur í vinnslu með Orrustu- bjarka og Pétri og úlfinum. Tónlist Orrustubjarka má finna á www.myspace.com/orrustu- bjarki. www.myspace.com/peter and wolf. www.myspace.com/raf- gashaus Yrði góður glæpamaður Tónlistarmaðurinn Bjarki Markússon er í hljómsveitinni Pétur og úlfurinn en semur einnig tónlist undir nafninu Orrustubjarki. Anna Margrét Björnsson fékk hann í þriðju gráðu yfirheyrslu. ÞRIÐJA GRÁÐAN FULLT NAFN: Bjarki Markússon STARFSFERILL Í HNOTSKURN: Listamaður/glæpon FÆÐINGARÁR OG HVAÐ GERÐ- IST MARKVERÐAST Á ÞVÍ ÁRI: 1975, þá var síðasta þorska- stríðið háð á Íslandi. ■ Á uppleið Matur frá Mið-Austurlöndum. Loksins eru slíkir veitingastaðir að spretta upp í bænum, allt frá hinum ljúffenga Saffran niður í skyndibita eins og Ali Baba. Namm! Rúllugardínur. Eina leiðin til að halda aga á heimilum þessa dagana þegar börn neita að fara í háttinn. Hvers vegna? Jú, það er enn þá dagur! Hústökur. Nóg er enn af tómum húsum í miðborginni, hvernig væri nú að leyfa fátækum námsmönnum og listamönnum að hreiðra um sig þar í stað þess að reka burt með valdi? Mótorhjólajakkar. Stuttir töffaralegir leðurjakkar eru algjört möst fyrir sumarið, hvort sem það er við þröngar gallabuxur eða sæta kjóla. Susan Boyle. Þessi músarlega 47 ára heimavinnandi frú sló í gegn í Britain‘s got Talent með stórfenglegri rödd og kom svo sannarlega við hjartað í fólki. ■ Á niðurleið. Borgarafundir. Orðið þreytandi að hlusta á þá, frasarnir eru ofnotaðir og maður trúir ekki lengur því sem fólkið hefur að segja. Facebook-skjall. Hvað er málið með að skrifa á veggi hjá öðru fólki endalaust að það sé fallegt, geggjað, sætt? Klámvæðing fjölmiðla. Þykir það virkilega frétt að skrifa um klobba á fræga fólkinu? Ókurteis börn. Hvert stefnir æska landsins þegar fimm ára börn svara fullorðnu fólki með þjósti og segja því að fara fjandans til? Köflóttar skyrtur. Eru svo afskap- lega „kúl“ þessa dagana að það verður ekki þverfótað fyrir þeim. Flókin matarboð. Of mikil fyrirhöfn þýðir bara að enginn hefur tíma til að standa í þessu. Skellið bara í næring- arríka súpu! MÆLISTIKAN
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.