Fréttablaðið - 18.04.2009, Side 82
54 18. apríl 2009 LAUGARDAGUR
Fáðu Idol áritun
hjá Vodafone
Lifðu núna
Í dag milli klukkan 14:00 –15:00 munu
keppendur úr Idol-stjörnuleit árita myndir
fyrir framan verslun Vodafone í Smáralind.
Viðskiptavinir fá einnig að snúa lukkuhjóli í
verslun okkar og geta unnið glæsilega vinninga.
Liðlega þrítugur hjúkrunar-
fræðingur í Reykjavík gaf
nýverið út frumsamda
barnabók sem hefur gengið
vel, en í henni bregða
krakkar sér í hlutverk dýra.
„Ég held það sé mér hreinlega lífs-
nauðsynlegt að gera eitthvað „ein-
staklingshæft“ eins og að skrifa
bók til mótvægis við vinnuna mína
sem hjúkrunarfræðingur sem
er náttúrlega mjög félagsleg og
gengur út á allt annað. Sinna fólki,
hjálpa öðrum,“ segir hinn rétt lið-
lega þrítugi Jón Ólafsson. Hann er
hjúkrunarfræðingur en gerði sér
lítið fyrir og gaf nýverið út barna-
bók sem hann skrifar og teiknar
myndir í. Bókin, sem heitir Voff
pabbi, ég er hundur, hefur hlotið
góðar viðtökur og er í fjórða sæti
á sölulista Eymundsson. „Þetta
er voða fjör. Þetta er bók um efni
sem mér skilst að krakkar eigi auð-
velt með að tengja sig við, það að
bregða sér í hlutverk dýra.“
Nú virðist sem starf hjúkrunar-
fræðings eigi fátt skylt við hið ein-
manalega starf rithöfundarins og
Jón segir það merg málsins. Vinna
hjúkrunarfræðings er mikið út á
við – mikil teymisvinna. „Ég held
reyndar að það blundi í okkur öllum
þessar tvær hliðar. Annars vegar
félagsveran og hins vegar einstakl-
ingurinn. Ég er mjög félagslyndur
en hef líka mikla þörf fyrir einveru
og að gera hluti einn.“
Jón á mjög fjölbreytt áhuga-
mál sem þýðir að hann er ágæt-
ur í mörgu en ekki afbragðsgóður
í neinu einu. „Ég er einn af þeim
sem finnst allt áhugavert og verð
helst að vera í öllu, ja í það minnsta
að prufa allt. Ég mála, sker út í við,
skrifa, hugleiði, stunda jóga, æfi
jiujitsu, stunda kajaksiglingar, er
að vinna í að eignast mótorhjól,
ég er útivistarfrík, spila á gítar
og fleira og fleira. Og svo þetta að
skrifa og teikna bók og gefa hana
svo út sjálfur. Ég ætlaði reynd-
ar að fara með hana til útgefanda
en svo vaknaði upp þessi löngun
til að gera það sjálfur. Bara til að
sjá hvort það væri hægt. Af hverju
ekki?“
Höfundur bókarinnar Voff
pabbi, ég er hundur gerir sér engar
grillur þó viðtökurnar hafi verið
ánægjulegar.
Metsölulistinn er byggður á
vikulegri sölu og það þarf kannski
ekki mikið til. „En, hey! Það var
rosalega gaman að sjá bókina sína
í einhverri hillu merktri 4. sæti.
Held hún hafi verið komin í 7. sæti
í síðustu viku og gáði svo í dag
og þá var hún ekki lengur á topp
tíu listanum. Það gengur svona.“
Aðspurður hvernig honum hafi
dottið í hug þetta sjónarhorn – það
að sögumaður telji sig hund segir
Jón það einfaldlega hafa komið til
sín. Hann horfi á börnin í kring
um sig. Þar á meðal strákinn sinn.
Það virðist vera börnum mjög
eðlilegt að bregða sér í hlutverk
hunds eða annarra dýra. „Marg-
ar uppákomurnar í bókinni eru
dagsannar. Mér fannst þetta bara
svo sniðugt og ég man að ég hugs-
aði með mér að þetta, þessar uppá-
komur, þessar furðulegu aðstæður,
væri nokkuð sem ég yrði að koma
frá mér. Deila með öðrum. Þetta er
bara eitthvað svo frábært. Ímynd-
aðu þér bara að standa fyrir fram-
an barnið þitt þar sem það heimtar
að þú gangir með það í bandi niður
Laugaveginn af því það er hund-
ur. Það er ekki hægt annað en að
gleðjast yfir slíkri innlifun og leik-
gleði.“
jakob@frettabladid.is
Margskipt veröld Jóns Ólafssonar
HJÚKRUNARFRÆÐINGUR OG RITHÖFUNDUR Sonur Jóns heimtaði að hann færi með sig í bandi niður Laugaveginn og það varð
kveikjan að bók. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
John Travolta og Kelly Preston
hafa átt um sárt að binda eftir
að sonur þeirra Jett lést í byrjun
þessa árs. Þau hafa varla farið út
úr húsi en reyndu að fljúga sig frá
sorginni í síðust viku. Travolta og
Preston fóru í hringferð um heim-
inn á flugvél þeirra hjóna og höfðu
meðal annars viðkomu á Fiji-
eyjum og Ástralíu yfir páskana.
The Sydney Daily Telegraph
greinir frá þessu og segir meðal
annars frá því að þau hafi borðað
páskamáltíðina með vinum sínum
við Byron-flóa. Einn íbúanna
hafði þó heppnina með sér því
hann fékk að láta mynda sig með
Travolta þar sem hjónin sátu að
snæðingi á kínverskum veitinga-
stað. „Hann var virkilega við-
kunnanlegur og fannst lítið mál að
láta mynda sig með okkur,“ segir
Alicie Spence við The Sydney
Daily Telegraph.
Travolta-
hjónin flýja
sorgina
LEYNILEGT FRÍ Kelly Preston og John
Travolta hafa farið huldu höfði eftir að
sonur þeirra lést. Þau flugu í kringum
heiminn í síðustu viku og höfðu við-
komu á Fiji-eyjum.