Fréttablaðið - 18.04.2009, Side 88
60 18. apríl 2009 LAUGARDAGUR
FÓTBOLTI Undanúrslitin í elstu
bikar keppni heims, ensku bik-
arkeppninni, fara fram í dag
og á morgun. Eru margir á því
að Chelsea og Manchester Unit-
ed komist í úrslit keppninnar en
þau gætu einnig mæst í úrslitum
Meistaradeildarinnar. Enginn
skyldi þó bóka neitt fyrir fram
því óvæntu úrslitin koma í bik-
arnum.
Arsene Wenger, stjóri Arsen-
al, gæti þurft að breyta vörninni
hjá sér í dag fyrir leikinn gegn
Chelsea. Bacary Sagna er tæpur
vegna meiðsla og sömu sögu má
segja af Keiran Gibbs. Chelsea-
menn kætast yfir því að endur-
heimta fyrirliðann sinn, John
Terry, úr banni. Deco er tæpur
vegna meiðsla en Jose Bosingwa
er byrjaður að æfa á nýjan leik.
„Ég elskaði gamla Wembley og
var ekkert sérstaklega hrifinn
af nýja vellinum. Ég var aðeins
áhorfandi á fyrsta úrslitaleikn-
um þar á milli Chelsea og Man.
Utd. Kannski mun þetta blasa
öðruvísi við mér núna þar sem
ég verð þjálfari niðri á vellinum,“
sagði Arsene Wenger, stjóri Ars-
enal, um upplifun sína af nýja og
gamla Wembley.
„Þegar ég var krakki lékum
við á lélegum völlum og draumur
okkar allra var að spila á fallega
grasinu á Wembley. Það voru því
mikil vonbrigði þegar ég heyrði
að það væru vandamál með völl-
inn því maður vissi að það var
eitthvað mjög sérstakt við þenn-
an völl. Ég býst við mikilli stemn-
ingu en lætin eru ekki eins sann-
færandi og þau voru á gamla
vellinum,“ sagði Wenger.
Landi Wengers, Florent
Malouda hjá Chelsea, segist vera
afar spenntur fyrir því að taka
þátt í undanúrslitum enska bik-
arsins.
„Þegar maður lítur á sögu bik-
arkeppninnar sést munurinn á
Englandi og öðrum löndum. For-
tíðin og öll sagan, maður finnur
fyrir henni. Fólk talar um keppn-
ina en það er ótrúlegt að fá að
taka þátt í þessu og fá að spila á
Wembley. Þetta verður stórkost-
legt,“ sagði Malouda brosmildur.
Leikurinn á sunnudag verð-
ur mjög sérstakur fyrir Wayne
Rooney, sem mætir þar sínu upp-
eldisfélagi.
„Ég hef engar áhyggjur af því
hvernig stuðningsmenn Everton
taki á móti mér. Ég veit að þeir
voru reiðir þegar ég fór. Ég fæ
alltaf að heyra það frá þeim en
tek það ekkert alvarlega,“ sagði
Rooney léttur en hann hrósar
David Moyes, stjóra Everton,
fyrir sitt starf.
„Hann hefur gert frábæra hluti
með Everton og hefur náð langt
með liðinu. Það eina sem það í
raun vantar er titill. Við vitum að
þeir eru afar hungraðir og verð-
um því að vera á tánum.“
David Moyes, stjóri Everton,
hefur sagt að leikurinn á morg-
un sé hans mikilvægasti á ferl-
inum.
„Ég hef trú á því að þetta félag
sé mjög nálægt því að vinna
titil. Þegar maður gengur um
ganga Goodison Park sér maður
myndir af gömlu hetjunum sem
unnu titla. Ég vil sjá myndir þar
af strákunum mínum sem eru
Everton-hetjur nútímans,“ sagði
Moyes.
henry@frettabladid.is
Bikarúrslitaleikur í boði um helgina
Undanúrslitaleikirnir í enska bikarnum fara fram um helgina en báðir verða þeir spilaðir á hinum nýja og
glæsilega Wembley-leikvangi. Í dag mætast Lundúnaliðin Arsenal og Chelsea og á morgun er komið að leik
Manchester United og Everton. Flestir spá því að Chelsea og Man. Utd fari í sjálfan úrslitaleikinn.
ALLAR LEIÐIR LIGGJA TIL WEMBLEY Augu knattspyrnuáhugamanna verða um helgina
á þessum velli þar sem undanúrslitin í enska bikarnum verða leikin.
NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Rafael Benitez, knatt-
spyrnustjóri Liverpool, mátti þola
gagnrýni úr mörgum áttum í gær
- bæði frá Alex Ferguson, stjóra
Manchester United, og Sam All-
ardyce hjá Blackburn.
Þeir Benitez og Ferguson hafa
skipst á skotum frá því að Benitez
gagnrýndi í janúar síðastliðnum
hvernig Ferguson kæmi fram við
knattspyrnudómara.
United mætir Everton um helg-
ina og notaði Ferguson tækifærið
í dag til að bauna á Benitez.
„Everton er stórt félag, ekki
lítið eins og Benitez sagði eins
og einhver hrokagikkur,“ sagði
Ferguson.
„Eitt er að vera hrokafullur
en það er ekki hægt að fyrirgefa
fyrirlitningu eins og hann sýndi
Sam Allardyce um síðustu helgi.“
- esá
Sálfræðistríðið á fullu:
Benitez fær
það óþvegið
RAFA BENITEZ Byrjaði sálfræðistríðið
sem nær brátt hámarki.
NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES