Morgunblaðið - 03.09.2008, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 03.09.2008, Qupperneq 19
|miðvikudagur|3. 9. 2008| mbl.is daglegtlíf Stemningin er aðalmálið Morgunblaðið/hag Rauð Áróra með Eddu vinkonu sinni, sem er önnur þeirra sem gáfu henni vatnspípuna rauðu eftir Spánardvöl og langan aðskilnað. Hún á vatnspípu sem hún dregur aðeins fram í góðum samkvæmum með fleira fólki. Kristín Heiða Kristinsdóttir heyrði í menntaskólastelpu sem tók gripinn með sér til útlanda í útskriftarferð. Stemningin felst fyrst og fremst í þvíað reykja saman, með þennan fal-lega hlut sem vatnspípa er. Leikasér að því að búa til hringi og ann- að slíkt. Ég nenni aldrei að reykja þessa vatnspípu ein,“ segir Áróra Árnadóttir menntaskólanemi, en hún á litla vatnspípu sem hún tekur stundum fram í sam- kvæmum og býður fólki að smakka. „Þessi pípa er keypt á Spáni en tvær vinkonur mínar gáfu mér hana í fyrra þegar þær komu heim eftir sumarlanga dvöl á Spáni. Pípan var því einhvers konar sárabót af því að þær voru svona lengi í burtu frá mér. Þær kynntust þessum vatnspípureykingum úti og þetta var nýtt fyrir mér þegar þær færðu mér gripinn.“ Áróra gerði sér lítið fyrir og tók vatns- pípuna með sér í útskriftarferðina sína í sumar til Ródos. „Þetta var nú bara tveggja vikna ferð en pípan vakti mikla lukku og einn strákur í ferðinni keypti sér pípu eftir að hann kynntist pípunni minni. Reyndar var ég tekin á teppið í tollinum á leiðinni heim, en pípan var ekki tekin af mér, vegna þess að það er ekki ólöglegt að reykja vatnspípu,“ segir Áróra og bætir við að tób- akið sé ekki sterkt sem reykt er í þessum pípum. „Maður finnur engin nikótínáhrif eða neitt slíkt, heldur er þetta meira eins og maður sé að anda að sér vatnsgufu með bragði. Tóbak með jarðarberjabragði er uppáhaldið mitt. Stelpurnar gáfu mér tóbak með pípunni og ég er fyrst núna að klára það, því ég hef bara notað þetta spari.“ khk@mbl.is „ÞEIR sem kaupa vatnspípur hér hjá okkur eru á aldr- inum átján ára til áttræðs og af báðum kynjum. Hingað komu eitt sinn fyrir jólin tvær eldri dömur sem keyptu hvor sína vatnspípuna en ekkert tóbak. Þær ætlaðu að nota pípurnar sem stofustáss, enda eru þetta mjög fallegir gripir. Þær sögðust hafa kynnst þessu í Jerúsalem,“ segir Kári Kjartansson sem vinnur í tóbaksversluninni Björk í Bankastræti. „Ég hafði séð vatnspípum bregða fyrir á Strikinu í Kaupmannahöfn, á svona vatnspípubörum þar sem fólk skreppur inn og fær sér te eða bjór og smók í vatnspípu. Við ákváðum að prófa og tókum nokkrar pípur í sölu fyrir tveimur árum og höfum verið með þær síðan.“ Loftbólur og milt ávaxtabragð Kári kaupir vatnspípurnar og tóbakið í þær í gegnum fyrirtæki sem heitir Mac Baren. „Þeir eru með vatns- pípuframleiðslu í Jórdaníu og þar er tóbakið líka ræktað, en síðan er það flutt til Hollands og blandað og pakkað þar. Vatnspíputóbak er með ávaxtabragði og mjög sætt.“ Sérstök kol þarf að kaupa til að hægt sé að reykja ávaxtatóbakið, en kolin sitja efst í pípunni og hita upp tób- akið. „Þegar sogið er, þá fer loftið í gegnum kolin og tób- akið og alla þessa löngu leið niður í vatnið á botni píp- unnar. Við það myndast loftbólur í vatninu og þegar þær springa, þá leysist gufan upp og sá sem er að nota pípuna andar henni að sér.“ Bragðmikið te drukkið með Kári segir vatnspípuhefðina koma frá Indlandi. „En þaðan voru verslunarleiðir til Sádi-Arabíu og því hefur þessi siður þróast lengi meðal Araba og þeir fundu í raun upp tóbaksblönduna sem notuð er í pípurnar. Erlendis er yfirleitt drukkið með vatnspípunni mjög sérstakt arabískt te úr litlum glerbollum,“ segir Kári og bætir við að vatns- pípuhefðin sé líka útbreidd í Austur-Evrópu. Kári tekur fram að ekki sé hægt að reykja hass eða ólögleg efni í þessum pípum, enda vill hann alls ekki þjón- usta fíkniefnaneytendur. Morgunblaðið/Ómar Ávaxtabragð Kári með sýnishorn af vatnspíputóbaki og vatnspípu. Kemur upprunalega frá Indlandi Augnayndi Vatnspípur geta verið fallegir gripir sem sumir nýta jafnvel sem stofustáss.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.