Morgunblaðið - 03.09.2008, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 03.09.2008, Qupperneq 34
34 MIÐVIKUDAGUR 3. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ dagbók Í dag er miðvikudagur 3. september- , 247. dagur ársins 2008 Orð dagsins: Annað er þetta: „Þú skalt elska náunga þinn eins og sjálfan þig. Ekkert boðorð annað er þessu meira.“ (Mark. 12, 31.) Víkverji brá sér á bikarleik í vik-unni og fannst hann vera óvenju snemma á ferðinni. Við miðasöluna var hins vegar heillöng biðröð og hafði maður, sem stóð nokkru fram- ar, á orði að ætla mætti að þrjátíu þúsund manns væru þegar komnir á völlinn miðað við fjölmennið, sem beið eftir að kaupa miða. x x x Miðasalan gekk hægt fyrir sig ogtuttugu mínútur voru liðnar af leiknum þegar loks kom röðin að Vík- verja. Sem betur fer gekk leikurinn líka hægt fyrir sig og hafði ekkert gerst í honum heldur. Fótboltaleikir eru þó ekki alltaf tíðindalausir fyrstu tuttugu mínúturnar og væri óhætt að bæta afköstin í miðasölunni. x x x Vel var mætt á völlinn og voruáhorfendur rúmlega þrjú þús- und. Áhorfendur sem heima sátu og fylgdust með útsendingunni í Ríkis- sjónvarpinu hafa hins vegar senni- lega haldið að ekki einn einasti áhorf- andi væri á vellinum. Áhorfendur sátu nefnilega allir í stúkunni með- fram vesturhlið vallarins. Í austur- stúkunni sat enginn. Myndavélarnar eru hins vegar allar yfir vesturstúk- unni og því blasti tóm stúkan beint á móti við þegar sýnt var frá leiknum. Ef markmiðið er að fanga stemn- inguna á íþróttaviðburðum í sjón- varpsútsendingum hefði verið ráð að hafa sjónvarpsgræjurnar hinum megin við völlinn. x x x Laugardalsvöllurinn er orðinnmjög nútímalegur og vekur sér- staka athygli að meðfram vellinum voru komin björt skilti þar sem lit- fagrar auglýsingar kepptu um at- hygli við knattspyrnumennina. En tæknin nær ekki til upplýsingatöfl- unnar. Þar má sjá hvað tímanum líð- ur og stöðuna. Nöfn liðanna eru sett upp staf fyrir staf, eins og gert hefur verið í áratugi. Vissulega heimilis- legt, en kannski dálítið gamaldags. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Reykjavík Elísabet Ása fædd- ist 10. apríl kl. 10.36. Hún vó tæpar 13 merkur og 51 cm. Foreldrar hennar eru Sigur- laug Þóra Kristjánsdóttir og Einar Már Björnsson. Reykjavík Baldur Már fædd- ist 31. júlí kl. 11.57. Hann vó 3.615 g og var 51 cm langur. Foreldrar hans eru Álfheið- ur Viðarsdóttir og Jón Há- konarson. Nýirborgarar Krossgáta Lárétt | 1 háski, 4 lund, 7 aski, 8 álút, 9 gagn, 11 vot, 13 kvæði, 14 örð- ug, 15 mikill, 17 mjög, 20 heiður, 22 óbundið, 23 líffærið, 24 starir, 25 sleifin. Lóðrétt | 1 afslöppun, 2 skýrði frá, 3 lengdar- eining, 4 hæð, 5 varkárt, 6 trjónur, 10 fórn, 12 mergð, 13 tryllta, 15 látin, 16 óþekkt, 18 þunga, 19 ákveðin, 20 borðandi, 21 sprota. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 svifasein, 8 rugga, 9 konum, 10 tík, 11 skatt, 13 síðan, 15 korgs, 18 kants, 21 púa, 22 pakka, 23 reyfi, 24 vikapilts. Lóðrétt: 2 vígja, 3 flatt, 4 sokks, 5 iðnað, 6 hrós, 7 smán, 12 tóg, 14 íma, 15 kopp, 16 rukki, 17 spaka, 18 karfi, 19 neytt, 20 skin. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 Sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3- reit birtist tölurnar 1-9. Það verð- ur að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Lausn síðustu Sudoki. www.sudoku.com © Puzzles by Pappocom Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. e4 c5 2. c3 Rf6 3. e5 Rd5 4. d4 cxd4 5. Rf3 d6 6. cxd4 Rc6 7. Bc4 Rb6 8. Bb5 a6 9. Bxc6+ bxc6 10. O–O e6 11. Bg5 Be7 12. Bxe7 Dxe7 13. Db3 Rd7 14. Rbd2 d5 15. Hac1 c5 16. dxc5 Rxc5 17. Db6 Rd7 Staðan kom upp í Áskorendaflokki Skákþings Íslands sem er haldinn þessa dagana í húsakynnum Taflfélags Reykjavíkur og Skáksambands Ís- lands í Faxafeni 12. Jóhanna Björg Jóhannsdóttir (1655) hafði hvítt gegn Jakobi Sævari Sigurðssyni (1860). 18. Dc6! Hb8 19. Dxc8+ Hxc8 20. Hxc8+ Dd8 21. Hxd8+ Kxd8 22. Hc1 hvítur er nú manni yfir og með léttunnið tafl. Framhaldið varð: 22…Ke7 23. Rb3 Hb8 24. Hc2 f6 25. Rbd4 Hb7 26. exf6+ gxf6 27. b3 e5 28. He2 Kd6 29. Rf5+ Ke6 30. R3d4+ og svartur gafst upp. Hvítur á leik. Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Verðmætamat. Norður ♠9853 ♥ÁD42 ♦62 ♣Á94 Vestur Austur ♠106 ♠Á4 ♥K108 ♥975 ♦Á3 ♦1098754 ♣KG10862 ♣75 Suður ♠KDG72 ♥G63 ♦KDG ♣D3 Suður spilar 4♠. Þegar gefur á bátinn bregður góður skipstjóri stundum á það ráð að létta skipið – hendir jafnvel verðmætum afla frá borði til að forða því að skipið farist með manni og mús. Hann fórnar minni verðmætum fyrir meiri. Þetta er oft erfitt, bæði í lífsins ólgusjó og líka við græna borðið. Í spili dagsins hefur vestur sýnt lauflit í sögnum og spilar svo út ♦Á og meiri tígli. Sagn- hafi fer í trompið, austur drepur, spil- ar tígli og vestur trompar með ♠10. Það er þriðji varnarslagurinn. Skip- stjórinn í sæti sagnhafa þarf nú að átta sig á alvöru málsins. Tromp eru verðmæti, en bæði fjórða hjartað og þriðja laufið eru meiri verðmæti. Hann hendir því trompi undir ♠10. Vestur verst best með því að spila laufi frá kóng, en þvingunin í lokin verður ekki umflúin. (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Það skiptir ekki máli hvað þú ger- ir, heldur með hvaða hugarfari. Hvert verkefni er því það rétta til að þú getir æft þig í að vera jákvæður. (20. apríl - 20. maí)  Naut Þrjóskan í þér gerir gæfumuninn. Þér mun ekki bara takast vel upp á sömu sviðum og aðrir, heldur einnig á þeim sem aðrir hafa flaskað á. Andaðu djúpt. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Þér er eiginlegt að sýna um- hyggju þar sem þér þykir vænt um þína nánustu. Nú er hins vegar mikið að gera hjá þér og þeir fá minni athygli en ella. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Þú ert að jafna þig eftir missi. Hann átti sér kannski stað fyrir mörgum árum, en þú ert enn með lítil sár. Nú ertu til í að takast á við hann – og það gerir þú. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Horfðu fram hjá smáatriðunum og sjáðu það sem skiptir máli. Þú hefur meiri stjórn yfir aðstæðum en þú gerir þér grein fyrir. Æfðu þig seinna í dag. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Varaðu þig á því að láta ekki nei- kvæðar hugsanir ná stjórn á huganum. Finndu leið til að snúa þeim yfir í já- kvæðni ef þú getur ekki sleppt þeim. Það er mun heillavænlegra. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Fugl skítur á nýþveginn bílinn og krakkarnir káma út spegilinn. Vertu ekki að eyða miklum tíma í smáatriði. Láttu það eiga sig sem er nokkurn veginn í lagi. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Heppnin sækir þig heim í formi óvænts tækifæris. Það er ástæða fyrir því að eitthvað grípur athygli þína. Íhugaðu á hverju þú hefur áhuga. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Það er mjög auðvelt að troða áhrifum sínum upp á fólk með því að trufla, tala hátt eða reyna að ná yfirráð- um yfir aðstæðum. Veldu þögult vald. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Er fjarstæða að óska sér sam- bands sem bæði er ríkt af ást og pen- ingum? Nei! Svo lengi sem þú hefur for- gangsröðina á hreinu máttu óska þess að vera hamingjusamur. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Jógaspekúlantar segja að „Prana“ sé lífskraftur í loftinu. Þú andar honum að þér og styrkir líkama og sál. Það sem var erfitt í gær er auðvelt í dag. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Undanfarið hefurðu sett velferð einhvers annars ofar þinni. Eyddu meiri tíma í að hugsa um sjálfan þig. Eldaðu góðan mat og farðu í bað, bara fyrir þig. Stjörnuspá Holiday Mathis 3. september 1919 Flogið var í fyrsta sinn á Ís- landi, í Vatnsmýrinni í Reykja- vík. Flugvélin var af Avro- gerð og flugmaðurinn enskur, Cecil Faber að nafni. Fólk var undrandi að sjá „nýjasta galdraverk nútímans svífa loftsins vegu“, að sögn Morgunblaðsins. 3. september 1939 Aukafréttir voru í Ríkis- útvarpinu kl. 11.48 á sunnu- dagsmorgni þar sem flutt var sú fregn að Bretar hefðu sagt Þjóðverjum stríð á hendur. Síðari heimsstyrjöldin var haf- in. Í aukablaði Morgunblaðs- ins daginn eftir (á mánudegi) var aðalfyrirsögnin: „Það er stríð.“ 3. september 1982 Sýning á verkum Bertels Thorvaldsens var opnuð á Kjarvalsstöðum, en hún var á vegum Thorvaldsenssafnsins í Kaupmannahöfn. Þetta var í fyrsta sinn í 134 ára sögu safnsins sem verkin voru sýnd utan Danmerkur. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson Þetta gerðist þá … Þessir geðþekku hnokkar Sigur- þór og Skúli Óskarssynir fagna sex- tugsafmæli sínu í dag, 3. septem- ber. Þeir verða að heiman ásamt eiginkonum sínum. 60 ára EKKI er einfalt mál að greina frá nafni afmælis- barns dagsins. Jorge Ricardo Cabrera fagnar í dag fertugsafmæli sínu. Ricardo, eða Ríkharður eins og hann er yfirleitt kallaður, ber þó annað og óvenjulegra nafn í þjóðskrá. Ríkharður fluttist til Íslands frá Kólumbíu fyrir réttum 20 árum, þegar skilyrði fyrir ríkisborgararétti var að bera íslenskt nafn. Þá tók hann upp nafnið Eilífur Friður Edgarsson og vakti nokkra athygli með því. Nafn- ið var góðlátleg ádeila á lögin og í dag segir Rík- harður það líklega hafa haft áhrif á að þeim var breytt. Það nafn notar hann ekki dagsdaglega og flestir sem hann þekkja kalla hann Ríkharð. Hann ætlar að halda upp á fertugsafmælið í kvöld með því að bjóða fjölskyldu sinni og nokkrum vinum í kvöldmat. Ríkharður á sex systk- ini, þar af fjögur búsett á Íslandi, er kvæntur og á tvö börn, Freyju Maríu og Alexandre. Sonurinn verður þó ekki viðstaddur á afmælis- daginn enda búsettur í Noregi. Ríkharður hefur gaman af ferðalögum og reynir að fara til heima- landsins, Kólumbíu, á hverju ári. Um miðjan ágúst kom hann þaðan eftir tveggja mánaða dvöl með eiginkonu sinni og dóttur. Í ferðinni gafst honum dálítill tími til að sinna hinu áhugamálinu sínu, söfnun eðalsteina. „Jaspis er til dæmis íslenskur steinn sem ég hef mjög gam- an af,“ segir Ríkharður. onundur@mbl.is Eilífur Friður Edgarsson er fertugur í dag: Býður sínum nánustu í mat ;) Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af nýja ríkisborgaranum ásamt upplýsingum um fæðingarstað og stund, þyngd, lengd og nöfn foreldra, á netfangið barn@mbl.is Akureyri Jón Konráð fædd- ist 8. júní kl. 13.28. Hann vó 3.045 g og var 48 langur. Foreldrar hans eru Gréta Dröfn og Jóhann Oddgeir frá Hofsósi í Skagafirði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.