Morgunblaðið - 03.09.2008, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 03.09.2008, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. SEPTEMBER 2008 39 Þú færð 5 % endurgreitt í Laugarásbíó ef þú greiðir með kreditkorti tengdu Aukakrónum 50 kr. afsláttur ef þú kaupir bíómiðann á SÝND HÁSKÓLABÍÓI Steve Carell fer hamförum í frábærri gamanmynd sem fór beint á toppinn í USA. Ekki missa af skemmtilegustu gamanmynd sumarsins - Get Smart. -TOMMI - KVIKMYNDIR.IS -GUÐRÚN HELGA - RÚV Sýnd kl. 5:40, 8 og 10:15 eeee - Ó.H.T, Rás 2 eee - L.I.B, Topp5.is/FBL Langstærsta mynd ársins 2008, 90.000 manns. Sýnd kl. 9 -Kvikmyndir.is “Fínasta skemmtun. Myndin er skemmtileg og notaleg.” - Mannlíf ar bíómiðann með Kreditkorti tengdu Aukakrónum! -bara lúxus Sími 553 2075 Sýnd kl. 5:40, 8 og 10:15 TOPPMYNDIN Á ÍSLANDI Í DAG! 3 VIKUR Á TOPPNUM Í USA! FRÁ BEN STILLER KEMUR EIN KLIKKAÐASTA GRÍNMYND ÁRSINS! TOPPMYNDIN Á ÍSLANDI Í DAG! 3 VIKUR Á TOPPNUM Í USA! FRÁ BEN STILLER KEMUR EIN KLIKKAÐASTA GRÍNMYND ÁRSINS! -L.I.B.TOPP5.IS/FBL -DV SÝND SMÁRABÍÓI OG BORGARBÍÓI Þú færð 5 % endurgreitt í SmárabíóSími 564 0000 Tropic Thunder kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 16 ára Tropic Thunder kl. 8 - 10:30 LÚXUS Make it Happen kl. 4 - 6 - 8 - 10:10 LEYFÐ Rocker kl. 5:40 - 10:20 B.i. 7 ára Mamma Mia kl. 5:30 D - 8 D - 10:30 D LEYFÐ -S.V., MBL SÝND SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI Geggjuð gamanmynd frá leikstjóra Full Monty -Empire -L.I.B.TOPP5.IS/FBL -DV -S.V., MBL www.laugarasbio.is JULIUS Winsome býr í kofa í skógi í Maine sem einangraður er með bók- um, 3.282 bókum. Hann lifir fábrotnu lífi, les í bókunum, sýslar í kringum kofann og lærir utanað orð úr verkum Shake- speare. Eini félagi hans er hund- urinn Hobbes. Haust eitt ber svo við að hundurinn er skotinn og það á heldur en ekki eftir að draga dilk á eftir sér. Saga Julius Winsome kemur smám saman í ljós og ekki bara saga hans heldur og saga föður hans og afa og ekki síst saga Lee-Enfield .303 riffils- ins sem á eftir að koma mjög við sögu. Winsome er einrænn og sér- lundaður, en lesandinn fær samúð með honum er hann tregar Hobbes vin sinn, þó viðbrögð hans séu óneit- anlega vel yfir strikið. Gerard Donovan vann sér orð sem ljóðskáld áður en hann sneri sér að skáldsagnaritun og vakti talsverða athygli með sinni fyrstu bók, Scho- penhauer’s Telescope, en aðrar bæk- ur eru Doctor Salt, Julius Winsome, sem hér er tekin til kosta, og Sunless, sem er Doctor Salt endurrituð. Text- inn hjá honum er oft skáldlegur og margt í þessari bók er listavel skrif- að, en hann á erfiðara með að skrifa samtöl manna í millum. Þannig er lýsingin er hann grefur hundinn einkar vel skrifuð og eins eru margar af náttúruhugleiðingum Winsome, en samtal hans við sinn helsta fjanda undir lokin er stirðbusalegt og laust við ljóðrænu. Fín bók samt. Hundsins hefnt Julius Winsome eftir Gerard Donovan. Fa- ber and Faber gefur út. 215 bls. kilja. Árni Matthíasson BÆKUR» METSÖLULISTAR» 1. The Force Unleashed – Sean Williams 2. Smoke Screen – Sandra Brown 3. The Guernsey Literary and Po- tato Peel Pie Society – Mary Ann Shaffer og Annie Barrows 4. The Bourne Sanction – Eric Van Lustbader 5. The Host – Stephenie Meyer 6. Acheron – Sherrilyn Kenyon 7. Moscow Rules – Daniel Silva 8. The Story of Edgar Sawtelle – David Wroblewski 9. Off Season – Anne Rivers Sid- dons 10. The Lace Reader – Brunonia Barry New York Times 1. Pride and Prejudice – Jane Aus- ten 2. The Book Thief – Markus Zusak 3. Second Glance – Jodi Picoult 4. The Road Home – Rose Tremain 5. The Other Queen – Philippa Gregory 6. The Forgotten Garden – Kate Morton 7. Bones of the Hills – Conn Iggul- den 8. The Reluctant Fundamentalist – Mohsin Hamid 9. The Kite Runner – Khaled Hos- seini 10. The Ghost – Robert Harris Waterstone’s 1. Not in the Flesh – Ruth Rendell 2. Appeal – John Grisham 3. Book of the Dead – Patricia Cornwell 4. The Bone Garden – Tess Gerrit- sen 5. Twilight – Stephenie Meyer 6. New Moon – Stephenie Meyer 7. Eclipse – Stephenie Meyer 8. Breaking Dawn – Stephenie Meyer 9. Making Money, Terry Pratchett 10. What I Talk About When I Talk About Running – Haruki Mura- kami Eymundsson RÚMLEGA sjö hundruð ævisögur Adolfs Hitlers hafa verið skrifaðar en mun minna hefur farið fyrir áhuga á hinni staðföstu ástkonu hans, Evu Braun. Nú er komin út fyrsta ævisaga Evu Braun sem skrifuð hefur verið af konu. Höfundurinn er Angela Lambert og bók hennar nefnist The Lost Life of Eva Braun. Bókin hefur vakið athygli og fengið góða dóma. Við samningu bókarinnar náði Lambert tali af frænku Evu Braun, Gertraud,sem mundi vel eftir henni og sagði við höfundinn að það hefði þjakað sig alla ævi að ástkær frænka sín hefði fórnað lífi sínu fyrir fjöldamorðingja. Lambert hafði einnig aðgang að dagbókarbrotum Evu Braun frá árinu 1935 en þar kemur greinilega fram að hún var afar óviss um tilfinningar Hitlers sem hún elsk- aði einlæglega. Reyndi tvisvar að fyrirfara sér Eva Braun var þrjátíu og þriggja ára gömul þegar hún kaus að deyja með Hitler og hafði þá verið ástkona hans í fjórtán ár. Nasistaforingjarnir í innsta hring Hitlers veittu henni enga athygli og eiginkonur þeirra litu niður á hana.Umheimurinn vissi ekki af henni og árið 1944 taldi breska leyniþjónustan að hún væri ritari Hitlers. Bílstjóri Hitlers kallaði Evu óhamingjusömustu konu Þýskalands. Hún reyndi tvisvar að fyrirfara sér og virt- ist með því vera að kalla á athygli Hitlers sem var skeyt- ingarlaus um tilfinningar hennar. Með árunum breyttist samband þeirra Hitlers og hann fór að meta tryggð hennar og umhyggju. Þegar ráðskona Hitlers, sem hafði lítið dálæti á Evu, spurði hann hvernig hann gæti þolað blaðrið í henni svaraði Hitler: „Eva fær mig til að gleyma hlutum sem ég vil ekki hugsa um. Hún veitir mér hvíld.“ Blíðlynd og góð Albert Speer sagði að Eva hefði verið glaðlynd, blíð- lynd og góð. Hún var ekki gyðingahatari og ekki félagi í nasistaflokknum og hafði engan áhuga á stjórnmálum. Hún sýndi ekki af sér yfirlæti og sætti sig við að vera ósýnilega konan í lífi Hitlers þótt hún þráði ekkert heit- ara en að verða eiginkona hans. Höfundur bendir hvað eftir annað á að góðir ein- staklingar geta orðið yfir sig ástfangnir af illmennum. Niðurstaða höfundarins er að Eva Braun hafi verið góð manneskja sem hafi lítið sem ekkert vitað af grimmd- arverkum nasista. Hitler hafði enga trú á því að konur hefðu vit á pólitík og ræddi þau mál síst af öllu við Evu sem lifði mjög einangruðu lífi og hafði á tímabili hvorki aðgang að dagblöðum eða útvarpi. Enginn getur stöðvað mig Frænka Evu Braun, Gertraud, sagði hana óham- ingjusömustu konu sem hún hefði hitt, hún hefði haft lít- ið við að vera, lokuð frá umheiminum, og þess vegna eytt dögunum í að skipta um föt og hárgreiðslu oft á dag. Þegar höfundur spurði Gertraud hvað Eva hefði þráð var svarið: „Það eina sem hún vildi var að vera elskuð.“ Kunningjakona Evu spurði hana eitt sinn hvað hún myndi gera ef Þjóðverjar töpuðu stríðinu. „Ég mun deyja með honum,“ svaraði hún. Kunningjakonan benti henni á að þar sem hún væri óþekkt gæti hún flúið land. Svar Evu var: „Heldurðu að ég myndi láta hann deyja einan. Ég verð með honum til síðustu stundar. Ég hef tekið ákvörðun. Enginn getur stöðvað mig.“ Forvitnilegar bækur: Ný bók um Evu Braun Vansæl ástkona Eftir Kolbrúnu Bergþórsdóttur kolbrun@mbl.is Eva Braun Ný ævisaga hennar vekur athyli.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.