Morgunblaðið - 13.09.2008, Side 8
8 LAUGARDAGUR 13. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
ALÞINGI
Leg að láni
Settur verður á
laggirnar hópur til
að skoða hvort
leyfa eigi stað-
göngumæðrun
hér á landi. Þetta
kom fram í svari
Guðlaugs Þ.
Þórðarsonar, heil-
brigðisráðherra,
við fyrirspurn
Ragnheiðar El-
ínar Árnadóttur, Sjálfstæðisflokki, á
Alþingi í gær.
Ragnheiður og Guðlaugur voru sam-
mála um að koma þyrfti af stað um-
ræðu og að hún þyrfti að taka mið af
læknisfræðilegum, siðferðilegum og
lögfræðilegum álitaefnum. Þá taldi
Guðlaugur almenning og kirkjuna
einnig eiga að koma að umræðunni.
Deilt um póstinn
Sótt var að Kristjáni L. Möller, sam-
gönguráðherra, frá hægri og vinstri á
Alþingi í gær vegna málefna Íslands-
pósts. Jón Bjarnason, VG, hafði
þungar áhyggjur af versnandi póst-
þjónustu á landinu en
Sigurður Kári Kristjánsson, Sjálf-
stæðisflokki, taldi ríkisfyrirtækið
hins vegar hyggja á „grímulausa
samkeppni“ við einkaaðila.
Kristján kom Íslandspósti til varnar.
Sagði breytingarnar einungis vera í
takt við tímann, með nútímalegri
pósthúsum en einnig öðruvísi þjón-
ustu þar sem hefðbundnum póst-
sendingum hefur fækkað.
Ragnheiður Elín
Árnadóttir.
ÞETTA HELST …
Í lok ágúst tilkynnti ég vinum og
fjölskyldu hátíðlega að samvistir við
mig yrðu takmarkaðar fyrri hluta
septembermánaðar. Ég gæti ekki
komið í venjubundnar heimsóknir
eða hangið yfir tebolla á síðkvöldum.
Nú væri þingið að byrja, eða réttara
sagt því að ljúka, með tilheyrandi
kvöldfundum og löngum vinnudög-
um fyrir þingfréttaritarann. Fram-
an af lét ég líka eins og það væri al-
veg brjálað að gera, þar til ég áttaði
mig á því að fundir stóðu hreint ekk-
ert fram á kvöld og ég var yfirleitt
búin á kristilegum tíma.
Samningar um hvaða mál yrðu
kláruð á þessum septemberþing-
fundum virðast hafa skilað sínu og
dagskráin hefur gengið greitt fyrir
sig. Þó hafa aðeins tvö stór mál verið
afgreidd, þ.e. frumvarp um þróun-
arsamvinnu og sjúkratrygginga-
frumvarpið. Það fyrra í samstöðu en
hið síðara var umdeilt.
Þingmenn eiga það stundum til að
falla í sömu gryfju og atvinnu
(bílstjóra)mótmælendurnir gerðu á
vordögum og tala um vilja „fólksins í
landinu“. Fólkið í landinu, eða al-
menningur, líður ekki hitt eða þetta
eða vill einhverjar breytingar sem
viðkomandi þingmanni þykja góðar.
Þó að þingmenn séu margir hverjir
duglegir að ferðast um landið og
ræða við fólk þá er deginum ljósara
að þeir munu seint vita hvað öllum
landsmönnum finnst – ekki síst þar
sem aðeins takmarkaður hópur fólks
gefur sig yfirleitt á tal við þingmenn.
Öðru máli gegnir að styðja mál
sitt með skoðanakönnunum, sem vit-
anlega geta gefið góðar vísbend-
ingar um vilja meirihluta Íslendinga.
Kjaradeila ljósmæðra hefur sett
mark sitt á fundi Alþingis þessar
tvær vikur og Árni Þór Sigurðsson,
þingmaður VG, hafði t.a.m. áhyggj-
ur af því í gær að Alþingi yrði sent
heim og í millitíðinni bráðabirgðalög
sett á ljósmæður til að stöðva verk-
fallsaðgerðir. Geir H. Haarde sagði
hins vegar engin áform vera uppi
um það.
Hvað má lögsókn kosta?
Talsvert hefur verið herjað á Ingi-
björgu Sólrúnu Gísladóttur, jafnt
innan þings sem utan, vegna ljós-
mæðradeilunnar og kallað eftir fögr-
um kosningaloforðum Samfylking-
arinnar. Nú er vel skiljanlegt að
beðið sé efnda á loforðunum en engu
að síður er dálítið ósanngjarnt að
stilla Ingibjörgu upp sem geranda í
ljósmæðradeilunni. Vitanlega getur
hún, eins og allir aðrir ráðherrar,
beitt sér fyrir því að eitthvað verði
gert í málum en utanríkisráðherra
mun seint ganga til samninga við
ljósmæður.
Alma Lísa Jóhannsdóttir, vara-
þingmaður VG, kom hins vegar með
athyglisverða spurningu á Alþingi í
gær: „Hvað mega málaferli gegn
ljósmæðrum kosta ríkissjóð?“
Þessu mættu aðhaldssömu ráð-
herrarnir svara.
Skilvirkt þing, ljósmæður og fólkið í landinu
ÞINGBRÉF
Halla Gunnarsdóttir
Eftir Höllu Gunnarsdóttur
halla@mbl.is
RÁÐHERRAR heita ennþá ráðherrar hvort
sem þeir eru karlar eða konur og léttvín og
bjór eru ekki væntanleg í verslanir á næstunni.
Þingmálin sem að þessu lutu rötuðu inn í
nefndir en aldrei út úr þeim og þ.a.l. kom ekki
til þess að þingmenn þyrftu að sýna alþjóð af-
stöðu sína með því að greiða um þau atkvæði.
Fundum Alþingis var frestað í gær en nýtt
þing kemur saman 1. október nk. Eins og áður
hlutu afskaplega fá mál sem þingmenn lögðu
fram afgreiðslu og þau þarf því að leggja fram
aftur. Þá hefst ferlið að nýju: Aftur er þrætt
um skaðsemi áfengissölu í búðum, málið svo
sent til nefndar og þar getur það sofnað værum
blundi.
Suðurnesjalögreglan óbreytt
Oft er það þannig að málin sem valda hvað
mestum deilum eru ekki afgreidd. Þannig var
því t.a.m. háttað með uppstokkun lög-
reglustjóraembættisins á Suðurnesjum. Drög
að frumvarpi voru samþykkt í þingflokki Sjálf-
stæðisflokks en sömu sögu var ekki að segja
þegar málið rataði á borð Samfylkingarinnar.
Þar kúrir það enn og fer ekki lengra.
Á þinginu sem nú er lokið urðu 115 stjórn-
arfrumvörp, þ.e. frumvörp sem koma frá ráð-
herrum, að lögum. Sex voru aldrei rædd og
fimmtán dagaði uppi í nefndum. Þar má nefna
frumvarp um brunavarnir sem m.a. fól í sér að
Brunamálastofnun yrði lögð niður og frumvarp
sem hefði gert það að verkum að sjóstangveiði-
fyrirtæki þyrftu að kaupa sér aflaheimildir.
Viðamikið frumvarp dómsmálaráðherra til al-
mennra hegningarlaga varð heldur ekki að lög-
um að sinni og umhverfisnefnd komst aldrei að
niðurstöðu um ný skipulagslög.
Ekki voru þingmenn jafn lukkulegir og ráð-
herrarnir en aðeins sex þingmannafrumvörp
voru samþykkt. Þar af komu tvö frá forseta Al-
þingis og sneru að breytingum á þingsköpum
og fjögur frá fastanefndum, m.a. um venju-
bundna veitingu ríkisborgararéttar.
Eftirlaunin standa enn
Frumvarp Jóns Magnússonar um að
veitingastaðir mættu hafa sérstök reyk-
herbergi var ekki rætt og frumvarp Daggar
Pálsdóttur um sameiginlega forsjá kom aldrei
út úr allsherjarnefnd. Ekki verður heldur gerð
breyting á eftirlaunum æðstu ráðamanna í bili
þrátt fyrir að frumvarp frá Valgerði Bjarna-
dóttur liggi fyrir þinginu.
Þingmenn fengu átta þingsályktunartillögur
samþykktar, m.a. um að fordæma bæri fanga-
búðirnar í Guantanámo og um að komið skyldi
á fót skáksetri helgað afrekum Bobbys Fischer
og Friðriks Ólafssonar. Efling íslenska geit-
fjárstofnsins bíður hins vegar enn um sinn sem
og heilsársvegur yfir Kjöl og heimkvaðning ís-
lenskra friðargæsluliða frá Afganistan.
Ráðherrar eru ráðherrar og ráða
Morgunblaðið/G. Rúnar
Nýtt þing, sama fólk, Alþingi kemur að nýju saman 1. október nk.
Í HNOTSKURN
» 36 konur tóku sæti á 135. löggjaf-arþingi en 53 karlar, ef varaþing-
menn eru taldir með.
» Karlarnir töluðu samtals í 530klukkustundir en konurnar í 185.
Þetta jafngildir því að hver karl hafi tal-
að í tíu klukkustundir en hver kona í
fimm.
» Mest talaði Steingrímur J. Sigfús-son, þingmaður Vinstri grænna, en
hann deildi skoðunum sínum með þing-
heimi í samtals tæpar 33 klst.
» Minnst þingmanna sem sitja að jafn-aði á þingi talaði Herdís Þórð-
ardóttir, Sjálfstæðisflokki, eða aðeins í
28 mínútur samanlagt.
Mjög fá þingmannamál
hljóta afgreiðslu Alþing-
is en flest stjórnarfrum-
vörp fljúga í gegn