Morgunblaðið - 13.09.2008, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 13.09.2008, Blaðsíða 26
Skrautlegt Pífur og litríki var áberandi hjá Betsey Johnson. Eftir Önnu Sigríði Einarsdóttur annaei@mbl.is Fatahönnuðirnir Marc Jacobs og Betsey John-son buðu gestum á New York tískuvikunni,sem nú er í þann mund að ljúka, upp á sann-kallaða veislu fyrir augað. Hjá Betsey var klæðnaðurinn líflegur og litríkur að venju, pífur, blúndur og jafnvel krínólínur sem sumar hverjar hefðu sómt sér vel í einhverju búningadramanu á BBC. Litabræðingurinn, ásamt fjörlegri, og á köflum allt að því teiknisöguleg nálgun, í sniðagerð og form- myndun ítrekar þó að Betsey telji að tískuna beri ekki að taka of alvarlega. Mikið var sömuleiðis um að vera hjá Marc Jacobs. Sýningarpallarnir fullir af smáatriðum og tilvísunum sem efalítið eiga mörg hver eftir að rata á flíkur ann- arra og minni spámanna á komandi misserum. Tískuspekúlantar hafa líka lofað sýninguna einróma og talað um einstæða sýn hans á bandarískar konur. Já, og jafnvel blandað baráttu Hillary Clinton fyrir tilnefningu sem forsetakandidat Demókrataflokksins, baráttu kvenna fyrir kosningarétti og atvinnuþátttöku þeirra í fyrri heimsstyrjöldinni í málið. Greinilega djúp tíska þar á ferð. Aðrir létu sér nægja að benda á vísanir í Mary Poppins, samba söngkonuna Carmen Miranda og Joan Crawford. Pils í anda súffragettanna, aðsniðnir skólastýrujakk- ar og flatkollóttir stráhattar voru alla vegna meðal þess sem fyrir augu bar hjá Marc Jacobs, ásamt litríkum mittislindum, gráum buxnadrögtum, silkitúrbönum og síðkjólum. Það verður síðan forvitnilegt að sjá hver þessara ævintýralegu stílbrigða munu birtast í hillum íslenskra fataverslana á vordögum. Litríkt Leikurinn er aldrei fjarri hjá Betsey Johnson. Krínólína Sögu- legar vísanir sem hæfa bún- ingadrama. Reuters Fjölbreytileiki Vor og sumarlína fathönnuðarins Marc Jacobs var sannkölluð veisla fyrir augað. Kómík og kvenréttindi Pífukjóll Ljós og sumarlegur fyrir sólina. Morgunblaðið/Golli Litla húsið Við Suðurgötuna á Siglufirði stendur hús með sögu sem er óvenju stórt að innan. Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur khk@mbl.is Okkur hjónum þykir ákaf-lega vænt um þettagamla hús og við höfumlagt mikinn metnað í að halda því við. Við keyptum húsið af foreldrum mínum árið 1971 en þá vorum við komin með þrjú börn og síðan bættust tvö við. Auðvitað var stundum þröngt með allan þennan hóp en allt bjargaðist þetta, enda léku börn sér þá meira úti við en í dag og eldri börnin fóru að heiman í framhaldsskóla. Til marks um það hvað tímarnir og kröfurnar breytast, þá er það svo að nú þeg- ar við hjónin erum orðin tvö í kotinu, þá finnst okkur vanta eitt herbergi undir tómstundaiðju,“ segir Ómar Möller um æskuheimili sitt, lítið hús við Suðurgötu á Siglufirði þar sem hann býr ásamt konu sinni Mögnu Sigbjörns- dóttur. Byggt af alþýðufólki Foreldrar Ómars, þau Kristinn Möller verkamaður og Sigrún Björnsdóttir byggðu húsið árið 1946. Það var danskur verkfræð- ingur að nafni Spanneberg í danska sjóhernum teiknaði húsið, en hann var að vinna nokkrar vik- ur við að mæla upp landið í Siglu- firði. Nokkur hús á Siglufirði eru byggð eftir sömu grunnteikningu en það er misjafnt hvernig her- bergjaskipan í þeim er. „Þetta hús er byggt af alþýðu- fólki stuttu eftir lok seinni heims- Síldarárin á Sigló ógleymanleg |laugardagur|13. 9. 2008| mbl.is daglegtlíf tíska
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.