Morgunblaðið - 13.09.2008, Side 28
Eftir Unni H. Jóhannsdóttur
uhj@mbl.is
Við sitjum að sumbli áGrandakaffi, Halla Mar-grét Árnadóttir óp-erusöngkona og ég. Á með-
an við hrærum í þunnri
uppáhellingunni, heitu vatni með
kaffibragði og mikilli mjólk, hlæjum
við að því hversu góð tilfinning það er
þó að drekka svona sull.
„Ég get drukkið endalaust af
þessu sulli, enda finnst mér þetta
vera besta kaffihúsið í borginni,“ seg-
ir Halla Margrét sem hefur vanið
komið sínar hingað enda uppalin
Þingholtadama og KR-ingur. „Ég fæ
aldrei svona kaffi á Ítalíu og nú bara
á stöku stað á Íslandi,“ segir hún
hlæjandi og við sammælumst um að
bragðið veki minningar um allt annað
Ísland, aðra Reykjavík en þegar
Halla Margrét fór út í hinn stóra
heim fyrir áratug síðan og gott betur.
„Það er alltaf gott að koma til Ís-
lands – „heim“ – en mér finnst margt
hafa breyst. Það er meiri stórborgar-
bragur á þessari litlu borg lengst úti
á hjara veraldar. Hin alþjóðlegu áhrif
eru að mörgu leyti jákvæð en mér
finnst þau stundum vera að gleypa
landið dálítið. Það er meiri stofnana-
bragur á öllu.“ En kaffið á Granda er
enn rammíslenskt og taugar Höllu
Margrétar til landsins eru enn mjög
sterkar þrátt fyrir að hafa búið á Ítal-
íu í rúm 10 ár, þar sem hún starfar
óperusöngkona.
Lundakaffi í Parma
Halla Margrét hefur þó fleiri járn í
eldinum þar því hún rekur í borginni
Parma barinn Lundakaffi, Caffet-
teria la Pulcinella, ásamt eiginmanni
sínum til þriggja ára, Paolo Divita.
Þar er ekki bara kaffimenningin önn-
ur heldur stemningin einnig og ekki á
eins hljóðlátum nótum og á Grand-
anum.
„Barinn er í Oletretorrente hverf-
inu en það er sögufrægt hverfi og
íbúar flestir vinstra megin í pólitík-
inni. Þar var andspyrnan sterk á tím-
um Mussolinis, sem jafnaði hluta
þess við jörðu með jarðýtum. Pólitík-
in spilar stóra rullu í lífi Ítala, al-
menningur er yfirleitt óánægður með
stjórnmálamennina, háa skatta og
spillingu. Það er svo mikill munur á
því hvort þú sért Jón eða séra Jón og
litla manninum finnst hann endalaust
þurfa að borga fyrir bruðlið,“ segir
Halla Margrét og heldur áfram. „Það
má eiginlega segja að það séu tveir
þættir í ítölsku þjóðlífi sem virka eins
og öryggisventlar, svo ekki brjótist
hreinlega út borgarastyrjöld eða
stjórnarkreppa. Það er ítalski fót-
boltinn og ítölsku hverfisbarirnir.
Fólk fer annars vegar á völlinn, öskr-
ar og úthúðar leikmönnum og hins
vegar á barina, þar sem það hittist,
fær sér kaffi og eys úr skálum reiði
sinnar yfir stjórnmálaástandinu. Þar
kemur saman allt litróf mannlífsins,
rétt eins og í heitu pottunum í sund-
laugunum á Íslandi. En svo gerist
aldrei neitt. Á Ítalíu fer almenningur
ekki í mótmælagöngur eða segir mik-
ið opinberlega. Það má því segja að
þetta tvennt hafi stjórn á almúg-
anum, 60 milljónum. En Ítalir eru
yndislegir og mjög skemmtilegir,
enda búa þeir yfir mikilli kímnigáfu
og hlátri.“
Brýtur reglurnar við ánægju
Óperusöngkonan á sér þann
draum að kynna ítalska matarmenn-
ingu fyrir Íslendingum – og þjóð-
félag. „Það er svo gaman að búa á
Ítalíu þótt það sé stundum erfitt því
þar dettur maður um mannkynssög-
una eins og um þúfurnar á Íslandi.“
Þegar Halla Margrét stendur ekki
á óperusviðinu tekur hún stundum
vaktina á barnum.
„Matur skiptir Ítala miklu máli og
Parmasvæðið er eitt mesta matvæla-
svæði í Evrópu og þar fer fram gríð-
arlega mikil matvælaframleiðsla.
Líflegar umræður Paolo Divita, eiginmaður Höllu er ófeiminn við að vera á öndverðum meiði við viðskiptavini sína.
Morgunblaðið/Eggert
Söngkonan „Það eru ákveðnar reglur sem Ítalinn brýtur ekki. Þeir myndu
til dæmis aldrei setja ananas á pitsu eins og við. Í þeirra huga er ananas
ávöxtur og ávextir fara ekki á mat,“ segir Halla Margrét Árnadóttir.
Kemst upp með að
brjóta reglurnar
Þegar hún er ekki að syngja tekur hún stundum vaktina á kaffihúsi þeirra hjóna,
Lundakaffi, þótt hún sleppi því að taka lagið. Óperusöngkonuna Höllu Margréti
Árnadóttur dreymir þó líka um að kynna ítalska matarmenningu fyrir landanum.
daglegt líf
28 LAUGARDAGUR 13. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Guðmundur Björnssonlandlæknir, Gestur, orti undir
gömlu tvísöngslagi:
Vermenn sitja og sýta,
sjó-læða þá mæðir,
lútir líta á gjótinn,
lang-þjakaðir vaka.
Fátt er um fína drætti,
fengir góðir engir;
síðla mun nú á seyði
sex-flakandi skata.
Þvílíkar skötur sjást ekki lengur
að dugi í sex flök, svo að menn
verða að láta sér tindabikkju nægja
á Þorlák!
Hér kemur svo gamall
húsgangur að norðan:
Háa Þóra heitir fjall
hæst í Þorgeirsfirði.
Oddur kleif það einsamall,
upp á þann háa klettastall!
Steindór Steindórsson frá
Hlöðum var skemmtilegur kennari
og fróðleiksbrunnur. Hann krydd-
aði mál sitt gjarna með smásögum
og vísum. Þessi er um Smjör-
vatnsheiði:
Enn sá heiðarandskoti!
ekkert strá né kvikindi,
hundrað milljón helvíti
af hnullungum og stórgrýti.
Kerling er hæsta fjall í Eyjafirði
en Blámannshattur hæsti hnjúkur
við utanverðan Eyjafjörð að austan.
Halldór Blöndal orti:
Kerling reisir höfuð hátt mót sól,
hattinn tekur blámaðurinn ofan.
Í sumar brá hún sér í nýjan kjól
og sópar stássleg gamla fjallakofann.
VÍSNAHORNIÐ pebl@mbl.is
Kerling og skatan
595 10 00
www.heimsferdir.is www.vivacuba.se • www.cubatravel.cu